Morgunblaðið - 06.02.1990, Síða 10
10
MW JfA'Jflfl'T? .!) HUDAamŒSM fJlOAJHMUDSÍOM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990
Mannfólk og fiskar
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Það má til sanns vegar færa
að sumum liggur á í listinni og
hafa tilfinningu fyrir markaðs-
setningu listar sinnar. Það höfðu
popplistamennirnir öðrum betur
með Andy Warhol f fararbroddi
og það höfðu einnig frumkvöðl-
amir í nýja málverkinu svo og
ýmsir sporgöngumenn þeirra og
einn af þeim verður að telja
Þorlák Kristinsson, er hefur
tekið sér listamannsnafnið Tolli.
Öll ber sýning Tolla í vestari
sal Kjarvalsstaða það með sér að
hér sé á ferð maður sem veit
hvert hann er að fara og ekki
þurfa listrýnar blaðanna að kvarta
undan því að þeir hafi of lítið á
milli handanna á sýningum hans.
Tolli kynnir sig og list sína
með veglegum sýningarskrám,
þar sem listsagnfræðingar og rit-
höfundar skrifa um listamanninn,
kryfja Iist hans og tengja goðsög-
um eða segja frá kviku mannlífs-
ins.
Að sjálfsögðu er það rétta
stefnan, a.m.k. að vissu marki,
enda í anda tímanna og áhættu
að eiga myndlistarmenn að þora
að taka — verða satt að segja að
gera það ef þeir eiga að lifa af í
samkeppni nútímans.
Sagan segir okkur að það eru
iðulega ágætir myndlistarmenn
sem fara þannig að og hvorki
bætir þetta né grómar list viðkom-
andi og sama er að segja með þá
sem láta sér nægja að hengja
einungis upp myndir sínar, setjast
Þorlákur Kristinsson listmál-
ari.
svo niður og bíða svo í stóiskri
ró og af stakri þolinmæði eftir
sýningargestum, slíkir verða ei
heldur betri né verri fyrir vikið.
Tolli er hressilegur málari sem
fer geyst í listsköpun sinni, virðist
mála myndir sínar eina af annarri
líkt og á færibandi. Þær eru inn-
byrðis ákaflega keimlíkar í lit og
útfærslu og efnisföngin eru ákaf-
lega svipuð — líkast stefi í ymsum
tilbrigðum.
Slík vinnubrögð einkenna og
marga nýbylgjumálarana ásamt
óheftri málaragleði og sjálfur
segir hann „að þetta sé ekki vits-
munalegt ferðalag heldur eins
konar leikur sem hann tekur hann
heljartökum um leið og hann
vinnur úr þeim áhrifum sem safn-
ast hafa innra með honum“.
Þannig má segja að Tolli sé
samkvæmur sjálfum sér og sé
ekki með nein merkilegheit né
tvíræðar yfirlýsingar — kemur
sem sagt til dyranna eins og hann
er klæddur og það er mikill ávinn-
ingur hveijum listamanni. Og eins
og fulltrúar nýja málverksins þá
leitar hann hiklaust í smiðju sér
eldri málara og þannig minna
vinnubrögðin í sjálfu sér, svo og
liturinn, ekki svo lítið á Veturliða
Gunnarsson, eins og hann var er
hann kom fyrst fram, en aðföngin
á Svein Björnsson. Skyldleikinn
við þessa tvo málara er auðsær
svo og einu og öðru úr myndheimi
nýbylgjumálaranna en hins vegar
verður því alls ekki neitað að við
þetta bætir Tolli heilmiklu af sjálf-
um sér og það er fyrir mestu.
Það voru einkum þijár myndir
er höfðuðu sérstaklega til mín á
sýningunni fyrir myndræna út-
geislan og tjákraft og ber fyrst
að nefna hina ábúðarmiklu mynd
á vinstri endavegg „Fjalladrottn-
ingin“ (33), því næst hina listilega
útfærðu mynd „Spádómur" (39),
sem sker sig úr á sýningunni og
það gerir og einnig hin formsterka
mynd „Hvalstöðin“ (40). Þessar
þijár myndir eru eitthvað svo
óþvingaðar, hreinar og beinar í
útfærslu, en það eru ekki ýmsar
aðrar þar sem formin eins og rífa
hvert í annað og byltast um í
óskipulögðum og krampakennd-
um leik um myndflötinn.
í stuttu máli þá kemst Tolli
vel frá þessari sýningu að því
leyti að hún er allt í senn lífleg,
umbúðalaus og heildarsvipurinn
skilvirkur.
Tónagjöf
Bækur
Egill Friðleifsson
Skömmu fyirr jól sendi Fjölvaút-
gáfan frá sér bókina „Tónagjöf",
sem er myndskreytt handbók um
fremstu tónskáld og tónverk heims-
ins. Fjölvaútgáfan er þama í sam-
vinnu við Salamander-útgáfuna í
London, en ristjórar og höfundar
eru þau Marita Westberg og Þor-
steinn Thorarensen ásamt ráðu-
nautinum Peter Gammond.
Sá háttur er hafður í þessari bók
að tónskáldum er raðað í starfrófs-
röð en ekki í tímaröð og er það í
sjálfu sér allt í lagi. Hafi ég talið
rétt koma þarna við sögu 124 tón-
smiðir og spannar saga þeirra yfir
um fimm aldir.
En hver eru mestu tónskáid
heimsins? Það er auðséð að bókin
er samin af Englendingi (eða Eng-
lendingum) og e.t.v. fyrst og fremst
fyrir Englendinga. Að sönnu em
þama allir stórmeistaramir í röðum
tónskálda til kvaddir, en þegar
kemur að minni spámönnum orkar
valið tvímælis. Þarna eru týnd til
ýmis ensk tónskáld, sem lítil áhrif
hafa haft utan síns heimalands, en
önnur sem þó hafa öðlast alþjóðlega
frægð og viðurkenningu, er að engu
getið. Þannig er ekki minnst á
menn eins og t.d. Katsjatúrían en
hins vegar gerð ágæt grein fyrir
einhveijum Lennox Berkeley, enda
fæddist hann í Englandi en ekki í
Rússlandi. Þetta lýrir gildi bókar-
innar. Það segir sig sjálft að þegar
ijallað er um svo marga höfunda á
aðeins 240 síðum, þar sem myndir
taka dijúgan hluta, er ekki hægt
að ijalla ítarlega um hvem og einn.
Þó em frásagnir með ævisöguívafí
og helstu tónverka getið. En ein-
mitt vegna þess hve textinn er
knappur er ástæða til að vanda
vel til verka. Það fínnst mér höf-
undi bregðast bogalistin. í örfáum
setningum er bmgðið upp mynd af
viðkomandi, skapgerð hans og
lífsstíl eða lífshlaupi lýst, og þar fá
menn ákaflega misjafna einkunn.
Þannig er Amold Bax (Englending-
ur) sagður hafa verið skarpur
hugsuður, skemmtinn í viðræðum
og frábær píanóleikari. Wagner
var hins vegar „siðskertur", losta-
fullur, vanþakklátur og óheiðarleg-
ur.
■Enska tónskáldið Michael Tippet
er ákaflega viðkvæmur fyrir félags-
vandamálum, andlegu gildi og
manneskjulegum hugsjónum. Hann
er gagnrýninn og róttækur og oft
kallaður „samviska" enskra tón-
skálda. Rachmaninov er hins vegar
lýst sem hrokagikki og tónlist hans
er ijómasæt og væmin. Oft er ein-
kennilega til orða tekið í bókinni.
T.d. er sagt að á síðari hluta ævi
sinnar hafí Scriabin tekið upp „van-
skapaðan", margflókinn og fram-
andlegan stíl. Og þegar talið berst
að verkum Bruckners koma fyrir
orð eins og draumsæjumóða og
hugleiðslusammni. Þýðingin kemur
oft ankannalega fyrir. í stað orðsins
kammermúsík er stundum notað
orðið stofulög, sem er beinlínis vill-
andi, og sumstaðar er verið að
óþörfu að þýða erlend staðarheiti.
Þannig er sagt frá því að Thomas
Augustine Arne hafí hlotið doktors-
nafnbót í Öxnafurðu (Oxford).
Kannski á þetta bara að vera fynd-
ið?
Þrátt fyrir þessa ágalla bókarinn-
ar hafði ég á ýmsan hátt gaman
af að glugga í hana, en vil benda
lesendum á að taka skoðunum og
fullyrðingum höfundar, sem stund-
um em dálítið hæpnar, svo ekki sé
sterkar að orði kveðið, með hæfíleg-
um fyrirvara.
21150-21370
LÁRUS Þ. VALDIMARSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI
EINAR ÞÓRISSON LONG, SÖlumaður
KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. löggiltur fasteignasau
Til sölu er að koma meðal annarra eigna:
Glæsilegt einbýlishús við Látraströnd
Steinhús ein hæð um 185 fm.' Nýr sólskáli um 15 fm og góður bílsk.
um 25 fm. Eignarlóð 850 fm. Útsýni. Teikningar og nánari uppl. á skrifst.
Glæsileg eign næstum fullgerð
Nýtt raðh. á vinsælum stað á Ártúnsholti á tveim hæðum um 160 fm.
3-4 svefnherb. Góður bílsk. Góð langtimalán.
Endaíbúð - sérþvottahús
4ra herb. á 3. hæð 109,5 fm nettó á vinsælum stað í Seljahverfi.
Sólsvalir. Ágæt sameign. Stæði í bílhýsi. Mikið útsýni.
í smíðum - sérþvottah. - bílskúr
Eigum óselda eina 4ra herb. íbúð mjög rúmgóða við Sporhamra nú
fullb. undirtréverk. Sameign verðurfullgerð. Frábær greiðslukjör. Kynn-
ið ykkur teikn. og nánari uppl.
Hentar smið eða lagtækum
Efri hæð 5 herb. í reisulegu þríbhúsi á útsýnisstað við Digranesveg,
Kóp. Allt sér. Bilskréttur. Þarfnast nokkurra endurbóta. Laus 1. mars nk.
Einbýlishús — raðhús eða sérhæð
óskast miðsvæðis í borginni. Æskileg stærð 150-220 fm. Miklar og
góðar greiðslur.
3ja herb. og 4ra-5 herb.
góðar fbúðir
í vesturborgínni.
ALMENNA
FASTEIGNASAl AH
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
GIMLIGIMLI
Þorsgata 26 2 hæð Simi 25099 ^ Þorsgata 26 2 hæd Simi 25099 ^
VANTAR EINBYLISHÚS
Höfum fjölmarga kaupendur að góöum einbýlishúsum á Reykjavikursvæö-
inu. Vlö mætum á staðlnn og verðmetum samdægurs.
© 2S099
Einbýli og raðhús
HVERAFOLD
Fallegt einbhús á einni hæð ca 150 fm
ásamt 34 fm bílsk. Fallegur frág. garður.
4 góð svefnherb. Skemmtil. skipul. Góð
nýting. Áhv. hagst. lán. Skipti mögul. á
4ra herb. íb. í Flraunbæ.
GRAFARVOGUR - PARH.
Glæsil. fullb. timburparh. hæö og ris
ásamt sökklum af ca 28 fm bílsk. Fullb.
vönduð eign. Áhv. 2,2 millj. við veðd.
ÁSLAND - MOS.
PARHÚS + BÍLSK.
Falleg ca 110 fm parh. á elnni-
hæöásamt 25 fm bflsk. Glæsil.
eldh. Parket. Ákv. sala. Hagkv. lán.
KÓPAVOGUR
Ca 195 fm parh. á tveimur hæðum með
innb. bílsk. Fallegt útsýni. Arinn. Skipti
mögul. á ódýrari eign. Verð 10,5-10,8 m.
HVASSALEITI
Fallegt 256,6 fm nettó raðhús með
innb. bflsk. Stórar stofur, 6 svefn-
herb., nýl. parket. Ágætur garöur.
Ákv. sala. Verð 13,8 míllj.
I smíðum
GRAFAR VOGUR - PARH.
AFH. STRAX
Glæsil. 180 fm parh. á tveimur hæðum.
Innb. bílsk. Húsin afh. fullb. að utan fokh.
að innan. Afh. strax. Teikn. á skrifst.
VEGHÚS - 2JA -
HAGSTÆTT VERÐ
Glæsil. ca 71 fm íbúðir á 1. hæð sem
afh. tilb. u. trév. Verð 4,8 millj.
SALTHAMRAR - EINB.
HÚS Á EINNI HÆÐ
Glæsil. 188 fm einbhús á einni hæð með
góðum innb. bílsk. Skilast fullfrág. að utan
og tilb. u. trév. að innan. Garðstofa. Teikn.
á skrifst. Verð 9,5 m.
VEGHÚS - 4RA-5
- NÝTT HÚSNLÁN
Vorum að fá í endursölu ca 113,5 fm
nettó 4ra-5 herb. íb. á tveimur hæðum
í nýju glæsil. fjölbhúsi. íb. veröur afh. tilb.
u. trév. að innan í mars með frág. sam-
eign. Áhv. nýtt lán við hússtj. ca 4,2 millj.
Teikn. á skrifst. Verð 6980 þús.
5-7 herb. íbúðir
ÁLFHÓLSVEGUR
Falleg 5 herb. hæð í þríbhúsi. Sérþvottah.
Sökklar aö bílsk. HúsiÖ allt nýmálað að
utan. Verð 7,8 mlllj.
LAUGARNESVEGUR
Ca 126 fm neðri sérh. í þríb. Mjög ákv.
sala. Verð 7 millj.
VANTAR SÉRHÆÐIR
Höfum fjársterka kaupendur að
góðum sérhæðum. Mikil eftir-
spurn.
AUSTURBERG - BÍLSK.
Falleg 4ra herb. endaíb. á 3. hæð ásamt
ca 20 fm fullfrág. bílsk. 3 góð svefnherb.
Suðursv. Verð 6,2-6,3 mlllj.
ENGJASEL
- GLÆSIL. ÚTSÝNI
Falleg 102,4 fm nettó endaíb. á 3. hæð
ásamt stæði í góðu bílskýli. Suðursv. 3
svefnherb. Sérþvhús. Glæsil. útsýni. Verð
6,4-6,5 millj.
KAPLASKJÓLSVEGUR
Glæsil. 4ra-5 herb. íb. á 3. hæð. Beyki-
parket. Gufubað. Áhv. hagst. lán.
HRAUNBÆR
Falleg 112,5 fm nettó íb. á 2. hæð. Sér-
þvottah. Stór stofa. Óvenju rúmg. og vel
skipulögð eign. Ákv. sala.
SUNDLAUGAVEGUR
Mjög falleg 4ra herb. risíb. lítið undir súð
í góðu steinh. Verð 5,5 millj.
3ja herb. íbúðir
VESTURGATA - 3JA
Góð 3ja herb. íb. á 1. hæð með sérinng.
Nýl. ofnalagnir o.fl. Verð 4,5 millj.
HRÍSMÓAR
Stórglæsil. 3ja herb. fullb. íb. ca 97 fm í
vönduðu lyftuh. Tvennar svalir. Glæsil.
útsýni. Áhv. 2,6 millj. Verð 6,9 millj.
MIÐSTRÆTI - BILSK.
99,4 fm íb. á 2. hæð í steinh. ásamt 28
þús. hagst. lán. Verð 5,2-5,3 millj.
KLEPPSVEGUR
Góð 3ja herb. íb. á 1. hæð í góðu lyftuh.
Laus fljótl. Lítið áhv. Verð 5 millj.
NJÁLSGATA
Falleg mikið endurn. 3ja herb. risíb. Sér-
inng. Verð 4,4 millj.
MARÍUBAKKI
Falleg 3ja herb. íb. á 1. hæð. Rúmg.
þvottah. og búr. Sameign öll endurn.
Verð 5,2 miHj.
BRÆÐRABORGARST.
Falleg 3ja herb. 91,5 fm ib. í lyftuhúsi.
Fallegt útsýni. Nýl. standsett íb. Mjög
ákv. sala. Lítið áhv. Verð 6,9 mlllj.
VANTAR 3JA HERB.
M/ NÝJUM HÚSNL.
- STAÐGR. f BOÐI
4ra herb. íbúðir
INN VIÐ SUND
Falleg 101,8 fm nettó 4ra herb. íb. á 3.
hæð. Endaíb. Sérþvottah. Rúmg. stofur,
2 svefnherb.
ENGIHJALLI
Falleg rúmg. 4ra-5 herb. íb. á 3. hæð í
lyftuh. Áhv. 1,5-2 millj. langtl. Verð 6,t m.
EYJABAKKI - ÚTSÝNI
Glæsil. 4ra herb. íb. á 3. hæð. Suðursv.
Lítið áhv. Verð 6 millj.
ENGJASEL
Falleg 4ra herb. íb. á tveimur hæðum
ásamt stæði bílskýli. Nýtt parket. Suð-
ursv. Verð 5,950 millj.
KRUMMAHÓLAR
Falleg 4ra herb. endaíb. á 6. hæð. Suö-
ursv. Verð 5,4 millj.
FURUGRUND
Falleg 4ra herb. íb. á 1. hæð. 3
svefnherb. Parket. Suðursv.
Bilskýli.Verð 6,5 m.
HRAUNBÆR
Rúmg. 3ja herb. íb. á 3. hæð ásamt 12
fm' aukaherb. í kj. Útsýni. Verð 5,2-5,4
millj.
NJÁLSGATA - ÓDÝR
Ca 85 fm nettó íb. á jarðh. í steinh. Ákv.
sala. Verð 4 millj.
2ja herb. íbúðir
KÁRASTÍGUR
Glæsil. 2ja herb. íb. í kj. í fallegu virðulegu
timburh. Eignin er öll ný standsett. Eign
í sérflokki. Verð 3,9 millj.
BRÆÐRABORGARSTÍGUR
Mjög falleg 2ja herb. íb. á 3. hæð.
VINDÁS - BÍLSK.
Falleg 2ja herb. íb. á 2. hæð. Suöursv.
Bílskýli. Áhv. 1600 þús. veðd. Mjög ákv.
sala. Verð 4,5-4,6 mlllj.
VALLARÁS
Glæsil. 2ja herb. íb. á 2. hæð.. Áhv. ca
1950 þús. veðd. Verð 4,5 millj.
HÁALEITISBRAUT
Gullfalleg 2ja herb. endaíb. á 4. hæð.
Parket. Gott gler. Verð 4,5 millj.
GRETTISGATA - RIS -
HAGST. LÁN
Falleg nýstandsett 2ja herb. íb. 58,3 fm
nettó. Nýjar rafmagns og ofnalagnir. Áhv.
1600 þús. hagst. lán. Verð 3,7 millj.
ENGIHJALLI
Falleg rúmg. 2ja herb. íb. á 1. hæð. Góð-
ar innr. Hagst. lán. Áhv. 2,2 millj.
ÞVERBREKKA
Falleg 63 fm nettó íb. á 1. hæð með sér-
inng. í 2ja hæða fjölbhúsi. Suðurgarður.
STANGARHOLT
Glæsil. 2ja herb. íb. á 3. hæð í
nýju fjölbhúsi. Áhv. 1800
þús.v/veödeiid. Verð 4950 þúe.
AUSTURBERG
Falleg 2ja herb. íb. á 4. hæð. Glæsil. út-
sýni. Verð 4,150 millj.
BRAGAGATA
Falleg 2ja herb. íb. ó 3. hæð í steyptu
þríbhúsi. Lítið áhv. Verð 3 millj.
SPÓAHÓLAR
Falleg, rúmg. 2ja herb. íb. á 1. hæð m/suð-
urgarði. Parket. Verð 4350 þús.
ÓÐINSGATA
Góð 50 fm íb. 2ja herb. á 1. hæð. Góður
garður. Ákv. sala. Verð 3,1 millj.
Árni Stefánsson, viðskiptafr.