Morgunblaðið - 06.02.1990, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990
23
Tónlistarhópurinn Snerta leikur á Háskólatónleikum nk. miðviku-
dag. Frá vinstri eru Pétur Grétarsson, Maarten van der Valk, Arni
Askelsson og Eggert Pálsson.
Söfriun íyrir SEM samtökin:
9,3 milljónir hafa skilað sér
Bílstjórar Nýju sendibílastöðvarinnar gefa dagslaun sín
ÁHUGAHÓPUR um bætta umferðarmenningu hefur tekið við um
9,3 milljónum króna til styrktar Samtökum endurhæfðra mæn-
uskaddaðra, SEM samtökunum, vegna fyrirhugaðrar húsbyggingar
þeirra.
Áhugahópurinn gekkst fyrir
fjársöfnun í tengslum við sjón-
varpsdagskrá á Stöð 2 í september
s.l. Markmið dagskrárinnar var að
vekja athygli á hörmungum um-
ferðarslysa og hins vegar íjársöfn-
un. Þá fengust loforð fyrir 12,8
milljónum króna og auk þess
vinnuframlag og gjafir í bygging-
una, sem metið hefur verið á um
11 milljónir. Staðfesting hefur
fengist á vinnuframlagi og gjafa-
loforðum frá flestum aðilum og í
dag munu allir bílstjórar Nýju
sendibílastöðvarinnar gefa dags-
laun sín til SEM samtakanna.
Undirbúningsvinna vegna vænt-
anlegrar byggingar er hafin. 20
íbúða bygging fyrir félagsmenn
verður reist sunnan Kringlumýrar-
brautar vestan við Borgarspítalann
og heíjast byggingarframkvæmdir
11. maí n.k. Már Viðar Másson er
formaður bygginganefndar og
Magnús Bjarnason er bygginga-
stjóri. Húsnæðsifélag hefur verið
stofnað, „SEM-Sólhlíð“, og mun
það sjá um bygginguna, en sjóð-
stjóm, sem fulltrúar frá Áhuga-
hópi um bætta umferðarmenningu
og SEM samtökunum skipa, heldur
utan um söfnunarféð.
■ SEINNA misseri háskólatón-
leika hefst 7. febrúar nk. Tónleik-
arnir fara að venju fram í Norræna
húsinu á miðvikudögum kl. 12.30-
13.00. Samtals verða tónleikarnir
12, fluttir á tímabilinu 7. febrúar
til 16. maí. Fyrstu tónleikarnir
verða með óvenjulegu sniði. Þá
kemur fram íslenski slagverks-
hópurinn Snerta. í hópnum eru
tónlistarmennimir Árni Áskelsson,
Eggert Pálsson, Maarten M. van
der Valk og Pétur Grétarsson.
Markmið Snertu er að kynna sem
mest af þeirri tónlist, sem samin
hefur verið fyrir slagverkshljóðfæri
og einnig að stuðla að nýsköpun á
því sviði. Að þessu sinni ætlar hóp-
urinn að flytja verk eftir Steve
Reich, J.S. Bach og Áskel Másson.
Samgöngu-
ráðuneyti
svarar um-
boðsmanni
Samgönguráðuneytið hefur nú
gefið umboðsmanni Alþingis svör
um það hvernig ráðuneytið hagi
svörum við erindum, sem því ber-
ast. I Morgunblaðinu á föstudag
kom fram að samgönguráðuneytið
hefði eitt ráðuneyta ekki svarað
umboðsmanni.
Steingrímur J. Sigfússon sam-
gönguráðherra segir að fyrir mis-
skilning hafi ráðuneyti hans svarað
forsætisráðuneytinu, þar sem for-
sætisráðherra hafi framsent erindi
umboðsmanns. Nú hafi hins vegar
verið gengið frá svörum í snatri.
„Ég held að ég geti fullyrt að það
sé góð reiða á skjalavörzlu og með-
ferð erinda í samgönguráðuneytinu,"
sagði Steingrímur í samtali við Morg-
unblaðið. Hann sagði að hins vegar
væri aðhald umboðsmanns Alþingis
með stjórnsýslunni af hinu góða.
HIGH-DESERT
BLÓMAFRJÓKORN
HlGH-DESERT
SKIUÐ SKATTFRAMTAU
ÍTÆKATÍÐ
Skattframtali 1990 vegna tekna 1989 og eigna í árslok á að skila í síðasta
lagi 10. febrúar.
Fylgiblöð meðskattframtali liggja frammi hjá
skattstjómm sem jafnframt veita frekari
upplýsingar ef óskað er.
Mikilvægt er að framteljendur varðveiti
launaseðla áfram eftir að skattframtali hefur
verið skilað. Launaseðlar eiga að sanna, ef á
þarf að halda að staðgreiðsla hafi verið dregin af launurri
smi
SÍÐASTISKILADAGUR SKATTFRAMTALS
ERIOFEBRÚAR.
RSK
- RÍKISSKATTSTJÓRI
i i