Morgunblaðið - 06.02.1990, Qupperneq 26
26
oeex JiAUflaEra .a }TJDAauu3ia<í GiGtAjffwuojiOM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990
HITA
BLÁSARAR
POmA-HEAT
SIMI: 681500 - ARMULA 11
Færeyjar:
Smíði Heygadrangs kost-
ar landssjóð tæpan milljarð
Þórshöfn. Frá Snorra Halldórssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞVERHNÍPTUR og tignarlegur stendur Heygadrangur í nág’renni
Vestmannabyggðar á Straumey. Ekki stafar jafh miklum ljóma af skip-
inu sem nefnt hefur verið í höfuðið á drangnum.
Bílalyftur
2ja og 4ra pósta
Verð frá kr. 208.700,-
án vsk.
n
Olíufélagið hf
681100
Allt saman byijaði með því að
nokkrir hugsjónamenn í Vestmanna
tóku sig til og ákváðu fyrir nokkrum
árum að smíða venjulegan togara.
Síðan var áætlunum breytt á þann
veg að togarinn ætti að nýtast við
kolmunnavinnslu. Smíði togarans í
skipasmíðastöðinni í Skálum dróst á
hins vegar mjög á langinn. Fyrir
ári, um það bil sem henni var að
ljúka, varð skipasmíðastöðin gjald-
þrota. Upphaflega hafði verið gert
ráð fyrir að togarinn kostaði sem
svarar 450 milljónum íslenskra króna
en nú var kostnaður farinn að nálg-
ast 1.350 miiljónir. Landsstjórnin
skipaði nefnd til að athuga málið.
Hún lagði til að gerð yrði opinber
rannsókn á smíði togarans. Ýmislegt
í tengslum við hana virtist undarlegt
og var talað um ábyrgðarleysi stjóm-
mála- og embættismanna. Samtök
launþega hafa krafíst þess að lands-
stjómin láti stjómskipaða nefnd yfír-
heyra opinberlega þá sem málið
snertir.
Ein af þeim spumingum sem ekki
hefur verið svarað er sú hvað hafí
orðið af því fé sem útgerðin þarf að
leggja fram til tryggingar í upphafí
og ætti að vera 10% af kostnaði.
Sumir hafa getið sér þess til að féð
hafí verið lagt inn á banka, kvittun
fengist fyrir því til að framvísa hjá
hinu opinbera og peningarnir síðan
teknir strax út aftur.
Nú stefna þrotabússtjórarnir að
því að selja Heygadrang og gera
menn sér vonir um að fá fyrir hann
450 milljónir króna. Þegar hafa
Norðmenn sýnt skipinu áhuga en
ekki er búið að setja í það sérút-
búnað vegna kolmunnavinnslu svo
nokkm nemi. Það þýðir að hið opin-
bera þarf að taka á sig umframkostn-
aðinn sem nú hvílir á skipinu, sam-
tals 900 milljónir króna. Slíkt er illa
séð nú þegar brýnt er fyrir öllum
Færeyingum og ekki síst landsstjórn-
inni að herða sultarólina.
Reuter
Hundruð þúsunda Sovétmanna á útifúndi við Kremlarmúra á sunnu-
___________ dag þar sem krafíst var umbóta og afnáms einræðis kommúnista.
Mestu mótmæli í Sovétríkjunum á síðari tímum:
Hundruð þúsunda
kröfðust afiiáms ein-
ræðis kommúnista
NÁMSKEIÐ
jyrvr nemendur
• grunnskóla • framhaldsskóla
• háskóla NemaidapjónusUmsf.
Þangbakka 10. Mjódd.
Moskvu. Reuter.
TALIÐ er að allt að 300.000 manns hafí tekið þátt í mótmælagöngu
í Moskvu á sunnudag þar sem krafíst var umbóta og lýðræðis. Sagt
er að þetta séu fjölmennustu mótmæli gegn stjórnvöldum í landinu
frá því á þriðja og áratugnum. Fólkið heimtaði m.a. að afnumið
yrði sjötta ákvæði sljórnarskrárinnar sem kveður á um forystuhlut-
verk kommúnistaflokksins. Samsvarandi ákvæði hafa þegar verið
numin úr stjórnarskrám nokkurra A-Evrópuríkja og Sovétlýðveld-
anna Litháens og um helgina einnig í Georgíu. Umbótasinninn Bor-
is Jeltsín, sem situr í miðstjórn kommúnistaflokksins, sagði að fiind-
ur, sem nú stendur yfír í miðstjórninni, væri síðasta tækifæri flokks-
ins til að breyta um stefnu, ella myndi hann glata öllum áhrifum.
Moskvuútvarpið ræddi við
nokkra þátttakendur og líktu sumir
þeirra stemmningunni meðal
göngumanna við fögnuðinn í Berlín
er múrinn var úr sögunni. Mið-
stjórnarmaður í kommúnistaflokkn-
FRAMTIÐ LIFEYRISMALA
Á ÍSLANDI
Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins og
Málfundafélagið Óðinn
halda sameiginlegan fund um lífeyrismál,
miðvikudaginn 7. febrúar, í Valhöll,
Háaleitisbraut 1. Fundurinn hefst kl. 18.00.
Framsögumenn:
Guðmundur H. Garðarsson, alþingismaður.
Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur
og verkalýðsráðs.
Pétur H. Blöndal, formaður Landssambands lífeyrissjóða.
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri V.S.Í.
Kl. 19.30 léttur kvöldverður. Umræður, fyrirspurnir.
Fundarstjóri: Kristján Guðmundsson, formaður Óðins.
Fundarritari: Guðrún Zöega, formaður Hvatar.
Allt sjálfstæðisfólk velkomið á meðan húsrúm leyfir.
Verkolýðsráð Sjálfstæðisf lokksins Málf undarfélagið Óðinn
um, Nikolaj Shíslín, sagði í samtali
við bandaríska sjónvarpsstöð að
hann teldi fjölflokkakerfi verða
komið á í landinu innan skamms.
Þeir sovésku fjölmiðlar, sem stutt
hafa umbótastefnu Gorbatsjovs af
mestum krafti, hafa að undanförnu
hert mjög árásir sínar á harðlínu-
seggi. Sovéska sjónvarpið sýndi
myndir frá útifundinum á sunnudag
og sagði fréttamaðurinn að umbóta-
stefnan tvíefldist nú í flokknum og
„gömlu harðlínuöflin" yrðu fyrir
hverju áfallinu á fætur öðru.
TASS-fréttastofan fordæmdi á hinn
15%
afsláttur út febrúar
Myndatökur frá kr. 6.500.-
Ljósmyndastofumar:
Myndarfólk Keflavík,
sími: 92-14290
Mynd Hafnarfirði,
sími: 54207
Barna og Fjölskylduljósmyndir,
sími: 12644
Ljósmyndastofa Kópavogs,
sími: 43020
Öllum okkar tökum fylgja tvær
prufustækkanir 20x25 cm.
bóginn aðgerðimar og sagði að þar
væru að verki „niðurrifsöfl“ og
„æsingaseggir."
„Þetta gengur ekki lengur,“
sagði Jeltsín sem var meðal þeirra
er fluttu ræður á hinu risastóra
Manezh-torgi fyrir utan Kreml.
„Það verður að endurskipuleggja
kommúnistaflokkinn. Flokksein-
ræðinu verður að linna.“ Jeltsín hét
því að verða málsvari alþýðunnar á
fundi miðstjórnarinnar. Sagnfræð-
ingurinn Júríj Afanasajev hyllti
„friðsamlega byltingu allra lands-
manna“ og hvatti til þess að um-
bótasinnar í Sovétríkjunum öllum
héldu áfram mótmælum næstu vik-
urnar.
Minnst var með stuttri þögn
þeirra sem týnt hafa lífi í þjóðernisr-
óstum í Kákasuslöndum Sovétríkj-
anna. Mikið bar á fánum Eystra-
saltsríkjanna þriggja og fleiri Sov-
étlýðvelda meðal göngumanna.
Einnig báru menn borða og spjöld
með slagorðum eins og „Niður með
KGB! [öryggislögregluna]“ og
„Niður með grein sex! [stjórnar-
skrárákvæðið um flokkseinræðið].
Einnig var minnt á baráttu Andrejs
Sakharovs fyrir mannréttindum og
afnámi einræðis kommúnista.
„Kommúnismi og lýðræði fara ekki
saman,“ stóð á einu spjaldinu. Víða
var krafíst sjálfstæðis til handa
Eystrasaltslöndunum og mótmælt
„fasisma“ í Sovétríkjunum.
Sjá mátti hvatningar til sovéska
hersins um að snúast ekki gegn
almenningi og kröfur um afsögn
Jegors Lígatsjovs, sem situr í æðstu
valdastofnun landsins, stjórnmála-
ráðinu, og er talinn forystumaður
afturhaldsafla í kommúnistafiokkn-
um. Vikublaðið Moskvufréttir, er
styður Gorbatsjov í einu og öllu,
birti í síðustu viku harkalega árás
á Lígatsjov og sagði hann vera einn
þeirra sem stæðu gegn umbóta-
stefnunni þrátt fyrir yfirlýsingar
um stuðning við hana.
Meðal þeirra hreyfínga er efndu
til mótmælanna var Lýðræðisvett-
vangur, umbótahópur innan komm-
únistaflokksins, Samtök kjósenda í
Moskvu og fleiri hópar. Margir her-
menn tóku þátt í mótmælunum.
Lögregla reyndi ekki að stöðva
gönguna eða dreifa útifundinum en
lagði þó strætisvögnum og vörubíl-
um við nokkur gatnamót til að
hindra aðstreymi. Einnig var mið-
stöðvum neðanjarðarlestanna lok-
að.
Málgagn Sovétstjórnarinnar, íz-
vestíja, sagði á sunnudag að komm-
únistaflokkurinn ætti nú fyrir hönd-
um erfiða tíma, e.t.v. sína mestu
eldraun frá upphafí.