Morgunblaðið - 06.02.1990, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990
27
Púðurtunnur í
Austur-Evrópu
NÚ þegar Járntjaldið svokallaða rís koma í ljós gömul vandamál í
Austur-Evrópu - deilur um landamæri og ólga þjóðarbrota. Þessi
vandamál má rekja til hruns Tyrkjaveldisins og Austurríkis-Ung-
veijalands, Versala-samningsins eftir heimsstyrjöldina fyrri, griða-
sáttmála Sovétmanna og Þjóðveija árið 1939 og Jöltu-samningsins
eftir heimsstyrjöldina síðari árið 1945.
Grikkir eru í Albaníu, Júgó-
slavíu og Búlgaríu; Albanir í Júgó-
slavíu; TYrkir í Búlgaríu; Ungverj-
ar í Rúmeníu, Tékkóslóvakíu og
Sovét-Úkraínu; Þjóðveijar í Pól-
landi, Tékkóslóvakíu, Ungveija-
landi og Rúmeníu; Rúmenar í Sov-
étlýðveldunum Moldavíu og Úkr-
aínu; og Pólveijar í Tékkóslóvakíu
og Sovétlýðveldunum Úkraínu,
Hvíta-Russlandj og Litháen.
JÚGÓSLAVÍA - Eijur milli
serbneska minnihlutans og alb-
anska meirihlutans í Kosovo-héraði
hafa valdið hættu á borgarastyij-
öld. Slóvenar eiga einnig í illdeilum
við Serba og krefjast aukinnar sjálf-
stjórnar. Kommúnistaflokkur Slóv-
eníu hefur sagt skilið við móður-
flokkinn í Belgrað.
BÚLGARÍA - Samskipti Búlg-
ara og Tyrkja, sem eru um 8,5%
landsmanna, eru mjög slæm. Þótt
flöldaflótti Tyrkja úr landinu hafi
valdið vöruskorti og efnahags-
þrengingum halda þjóðemissinnaðir
Búlgarar áfram að mótmæla aukn-
um réttindum Tyrkja. Við landa-
mærin að Júgóslavíu eru einnig
margir Makedoníu-menn.
RUMENÍA - Ungverska þjóð-
arbrotið var beitt kúgunum á valda-
tíma Nicolae Ceausescus, fyirum
einræðisherra, en hefur nú snúið
vörn í sókn. í ráði er að stofna
háskóla og fleiri menntastofnanir,
þar sem töluð verður ungverska,
og talið er að þau áform mæti
harðri andstöðu Rúmena. Einnig
er líklegt að rúmensk stjómvöld
krefjist þess að Sovétlýðveldið
Moldavía verði sameinað Rúmeníu.
Moldavar em nátengdir Rúmenum.
UNGVERJALAND - Flestir
nýju stjórnmálaflokkanna í landinu,
sem taka þátt í kosningunum í ár,
em hlynntir því að ungversk stjóm-
völd taki málstað fimm milljóna
Ungveija sem búa í nágranna-
löndunum. Þetta gæti valdið
milliríkjadeilum.
TÉKKÓSLÓVAKÍA - Sam-
skipti Tékka og Slóvaka gætu
versnað ef komið yrði á umbótum
í átt til fijáls markaðsbúskapar.
Búast má við harðri andstöðu Slóv-
aka ef dregið verður úr fjárstreym-
inu til Slóvakíu, þar sem um þriðj-
ungur íbúa landsins býr. Tékkar
kvarta þegar yfír því að of miklir
fjármunir komi í hlut Slóvaka. Einn-
ig er hætta á erjum milli Slóvaka
og ungverska þjóðarbrotsins í
Slóvakíu.
PÓLLAND - Líkur em á mik-
illi þjóðaólgu í landinu hafni pólsk
stjórnvöld kröfum úkraínskra,
hvítrússneskra og þýskra íbúa
landsins um eigin skóla og stofnan-
ir. Ef Þýskaland yrði sameinað
gæti svo farið að Þjóðveijar gerðu
tilkall til vesturhluta Póllands. Pól-
veijar gætu aftur á móti krafíst
landsvæðis, sem nú er innan Sov-
étríkjanna, þar á meðal Vilnius,
höfuðborgar Litháens.
SOVÉTRÍKIN - Eystrasalts-
þjóðirnar feta sig áfram í átt til
sjálfstæðis, Moldavar vilja samein-
ast Rúmenum og aðskilnaðarsinnar
láta æ meir á sér bera í Iöndunum
við rætur Kákasusfjalla - Georgíu,
Armeníu og Azerbajdzhan. Hljóti
ofangreind lýðveldi sjálfstæði má
búast við hörðum viðbrögðum
Rússa, sem þar búa. Til að mynda
em Rússar í meirihluta í Riga, höf-
uðborg Eystrasaltslýðveldisins
Lettlands. Öll vandamálin verða því
ekki leyst með því einu að veita
þessum lýðveldum sjálfstæði eða
aukið sjálfræði.
Heimild: International Herald
Tribune.
SIEMENS
Öflug rvksuga!
VS91153
• Stillanlegur sogkraftur
(250- 1100 W).
• 4 fylgihlutir í inn-
byggðu hólfi.
• Fjórföld sýklasía í
útblæstri.
• Sjálfinndregin snúra
og hleðsluskynjari.
• SIEMENS framleiðsla
tryggir endingu og gæði.
• Verð kr. 16.500,-
SMUH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
Fmnskir bankar lokað-
aðir vegna verkbanns
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins.
VERKBANN hefur lokað öllum viðskiptabönkum og sparisjóðum í
Finnlandi. Aðeins Póstbankinn starfar eins og venjulega en 7.000
starfsmenn hans geta varla annað öllum bankaviðskiptum lands-
manna þegar 50.000 bankamenn eru útilokaðir frá vinnustöðum
sinum. Almenningur hefur tekið vinnudeilunni fremur rólega hingað
til og hún hefiir haft lítil áhrif á viðskiptalífið. Flest fyrirtæki bor^
guðu laun fyrirfram til þess að menn gætu tekið út peningana áður
en bankarnir lokuðu á miðvikudaginn. Mörg atvinnufyrirtæki hafa
einnig fært viðskipti sín yfír í Póstbankann, sem er ríkisbanki en
starfar áfram eins og venjulega.
Vinnudeila bankamanna annars
vegar og vinnuveitenda, þ.e. einka-
bankanna og sparisjóða landsins,
hins vegar hefur staðið í nokkrar
vikur. Bankamenn hafa neitað að
framkvæma ýmsar aðgerðir, t.d.
gírófærslur milli banka. Einnig til-
kynntu bankamenn um verkfall frá
miðjum febrúar en vinnuveitendur
náðu að hefja vinnubann þegar í
stað.
Bankamenn segjast vera
óánægðir með þau kjör sem samið
var um í allsheijarsamningum er
voru undirritaðir um miðjan janúar.
Flest öll stéttarfélög samþykktu litl-
ar launahækkanir til þess að koma
í veg fyrir verðbólgu á næstunni.
Bankastarfsmenn eru aðallega kon-
ur og teljast launakjör þeirra mun
lakari en gengur og gerist í öðrum
stéttum. Þess vegna hafa þeir farið
fram á 10% launahækkun sem er
4-5 sinnum meira en í allsheijar-
samningunum. Vinnuveitendur og
ríkisvald hafa þar af leiðandi ekki
sýnt óskum bankamanna samúð.
Nota reiðufé á ný
Tvísýnt er um hvað samfélagið
þoli langt verkbann eða verkfall í
öllum helstu bönkum. Finnar eru
vanir því að láta banka sjá um allar
greiðslur. Mikið hefur dregið úr
notkun reiðufjár á síðastliðnum
árum. Menn nota gíró eða ýmiss
konar greiðslukort. Mjög algeng eru
bankakort, þ.e. „debetkort" sem eru
notuð til að borga með í búðum og
á veitingastöðum, beint af banka-
reikningi viðskiptavinarins.
Nú hafa Finnar orðið að venjast
reiðufé aftur og hafa bankar borgað
út of fjár á síðustu vikum fyrir
verkbannið. Lögreglan hefur miklar
áhyggjur af fjölgun afbrota. Bæði
er búist við að þijótar bijótist inn
hjá mönnum til þess að ná í pen-
inga en líka verður hætta á mis-
notkun greiðslukorta þegar erfitt
verður að fylgjast með innstæðu á
reikningi. Hingað til hafa flestir
kaupmenn tekið við greiðslukortum
en staðan getur breyst ef vinnudeil-
an dregst á langinn.
■ PARÍS - Óveðrið sem gekk
yfir Frakkland og hluta Þýskalands
á laugardag kostaði 30 manns
lífið, 23 í Frakklandi og 7 í Þýská-
landi. Tugir slösuðust og um 60
þúsund heimili voru rafmagnslaus
fram á sunnudagskvöld. Veður-
hamurinn fór að ganga niður á
sunnudag.
■ KAUPMANNAHÖFN - SAS-
flugfélagið hefur gengið frá fimm
ára áætlun um flug til Austur-
Evrópulanda og er gert ráð fyrir
að flytja þangað 150.000 norræna
farþega á þessu ári. Á síðustu fimm
mánuðuni liðins árs flutti SAS
63.000 farþega til Austur-Evrópu
en fram til 1995 á að bæta við fímm
nýjum áfangastöðum.
Næturkrem
Dagkrem
BIO REPAIR er andlitskrem í sérflokki.
BIO REPAIRfrá^/odro^y hjálpar húðinni
að öðlast fyrri mýkt, stinnleika og raka,
svo er Bio Repair Complex fyrir að
þakka.
Komdu með auglýsinguna til okkar
og fáðu 10% afslátt út á hana.
Þetta tilboð okkar gildir
til 20. febrúar 1990.
Bankastræti 3.
S. 13635.
Útsölustaðir: Brá, Laugav. 74, Ingólfsapótek, Kringlunni,
Stella, Bankastræti 3, Lilja Högnadóttir, snyrtistofa, Akranesi,
Kaupfélag Skagfirðinga, Kaupfélag Eyfirðinga, Húsavíkurapó-
tek,
Vestmannaeyjaapótek, Snyrtist., Rauðarárstíg 27.