Morgunblaðið - 06.02.1990, Side 31
MQRSUNBtAÐiEf ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1900
Ábendingar frá
LÖGREGLUNNI:
Ur dagbók lögregl-
unnar í Reykjavík
2.-5. febrúar 1990
Brotist var inn í Regnhlífabúðina
í Reykjavík og þaðan stolið tölu-
verðu magni af snyrtivörum.
Karlmaður var staðinn að því
að reyna að hnupla pela í verslun
ÁTVR í Kringlunni.
Nokkrir voru staðnir að hnupli
í Hagkaupum í Kringlunni.
Verðmætum var stolið úr bifreið
við Fornhaga.
Brotist var inn í verslun við
Hjarðarhaga og þaðan stolið 30
pökkum af vindlingum og ýmiss
konar sælgæti.
Ungur maður var handtekinn í
miðborginni eftir að hafa veitt öðr-
um áverka, að því er virtist að til-
efnislausu.
Eldur kom upp í þurrkara í
síldarverksmiðju Kletts.
Fjórir unglingar voru handteknir
eftir að hafa brotið rúðu í Vogue
í Mjódd.
Líkamsmeiðingar áttu sér stað á
skemmtistað við Gerðuberg. Karl-
maður var fluttur á slysadeild.
Maður var handtekinn eftir inn-
brot í Pósthússtræti 13.
Rúða var brotin i Hótel Borg.
Maður var handtekinn.
Kona datt af hesti á Suðurlands-
vegi við Baldurshaga. Hún meidd-
ist eitthvað og var flutt á slysa-
deildina.
Fimm menn í fangageymslu eft-
ir rúðubrot í verslun í miðborginni.
Slagsmál urðu á skemmtistað
við Ármúla. Einn fluttur á slysa-
deild og tveir í fangageymslu.
Tilkynnt var um eld í húsi við
Austurbrún. Reyndist vera reykur
frá útigrilli á svölum.
Karlmaður var færður á lög-
reglustöðina eftir að hafa verið
staðinn að því að veita bömum
áfengi.
Lögreglan hafði 103 afskipti af
ölvuðu fólki, sem ekki kunni fótum
sínum fo'rráð, ólíkt fólk í mjög mis-
munandi ástandi við allmisjafnar
aðstæður.
38 árekstrar voru tilkynntir til
lögreglu. Allflestir þeirra voru
síðan afgreiddir með tjónstilkynn-
ingareyðublöðum tryggingarfélag-
anna, án frekari afskipta lögreglu.
Þá voru tvö umferðarslys tilkynnt
til iögreglu; gangandi vegfarandi
varð fyrir bifreið á Gunnarsbraut
við Flókagötu um miðjan dag á
föstudag og ökumaður slasaðist í
árekstri þriggja bifreiða á
Tryggvagötu við Kalkofnsveg um
hádegisbil á laugardag. Bifreið
valt á Suðurlandsvegi við Litlu-
kaffistofuna, en meiðsli urðu ekki.
27 sinnum var fólk aðstoðað við
að komast inn eftir að hafa læst
sig úti.
Tilkynnt var um 7 innbrot, 12
þjófnaði og 6 búðarhnupl. Flestir
voru staðnir að verki við hnupl í
Kringlunni, en þar er m.a. virkt
eftiriit vegna hugsanlegra búðar-
þjófnaða.
27 voru kærðir fýrir að aka of
hratt, 8 vegna gruns um öivun við
akstur, 2 fyrir að aka réttindalaus-
ir, 17 fyrir akstur gegn rauðu ljósi
á gatnamótum og 7 vegna van-
rækslu á að færa ökutæki sín til
aðalskoðunar. Þá vora 14 ökumenn
sektaðir fyrir að leggja ökutækjum
sínum ólöglega og 11 ökutæki að
auki voru fjarlægð með kranabif-
reið vegna hættu, sem kynni að
skapast af stöðu þeirra.
Skemmdarverk voru framin á
þremur stöðum í borginni og á
öðrum 10 vora rúður brotnar.
10 líkamsmeiðsl voru tilkynnt
og voru flest þeirra afleiðingar
ryskinga og slagsmála fullorðins
ölvaðs fólks á „skemmtistöðum“
borgarinnar.
62 einstaklingum var boðin gist-
ing í fangageymslum um helgina
vegna ýmissa uppákoma, s.s. ölv-
unaróláta, innbrota og þjófnaða.
Þeir 14 sem þegið höfðu gistingu
vegna ölvunaróláta voru færðir
fyrir dómara og voru leystir út með
4.000-15.000 kr. sáttargreiðslum.
6 óskuðu sjálfir sérstaklega eftir
að fá afnot af aðstöðu fanga-
geymslunnar þar sem þeir áttu
ekki í önnur hús að venda.
FISKVERÐ A UPPBOÐSMÖRKUÐUM
5. febrúar.
FISKMARKAÐUR hf. í 1 Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 95,00 69,00 91,14 33,549 3.057.593
Þorskur(óst) 89,00 80,00 87,65 10,351 907.248
Ýsa 111,00 76,00 106,76 6,199 661.738
Ýsa(óst) 106,00 90,00 95,81 6,294 603.046
Karfi 60,00 35,00 50,67 0,393 19.914
Ufsi 46,00 46,00 46,00 0,195 8.970
Steinbítur 60,00 57,00 59,12 5,564 328.964
Samtals 83,05 78,846 6.547.836
í dag verður selt óákveðið magn úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 90,00 60,00 84,58 12,389 1.047.814
Þorskur(óst) 87,00 59,00 77,94 35,769 2.787.914
Ýsa 115,00 76,00 100,63 2,938 295.657
Ýsa(óst) 105,00 76,00 94,91 15,367 1.459.487
Ufsi 57,00 57,00 57,00 3,320 189.240
Hlýri+steinb. 71,00 59,00 61,09 4,561 278.624
Lúða 590,00 305,00 420,12 0,387 162.585
Samtals 81,09 79,724 6.464.724
í dag verður meðal annars selt óákveðið magn af þorski, ýsu og ufsa úr
Jóni Baldvinssyni RE og bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 95,00 80,00 91,25 47,848 4.366.018
Þorskur(óst) 92,00 36,00 77,01 123,671 9.524.073
Ýsa 100,00 49,00 93,75 3,961 371.325
Ýsa(óst) 106,00 36,00 88,67 23,108 2.048.831
Karfi 49,00 39,00 45,74 1,890 86.445
Ufsi 45,50 35,00 37,70 1,664 62.731
Steinbítur 67,00 57,00 61,87 2,625 162.421
Steinbítur(óst) 59,00 15,00 52,34 13,907 727.836
Samtals 78,17 228,204 17.838.791
í dag verða meðal annars seld 80 tonn af karfa úr Hauki GK.
SKIPASÖLUR í Bretlandi 29. janúar til 2. febrúar.
Þorskur 136,56 137,520 18.779.295
Samtals 136,53 139,515 19.048.250
Selt var úr Sólbergi ÓF í Grimsby 1. febrúar.
GÁMASÖLUR í Bretlandi 29. janúar til 2. febrúar.
Þorskur 146,31 414,949 60.712.034
Ýsa 190,36 100.084 19.051.928
Ufsi 91,32 16,676 1.522.930
Karfi 81,80 14,334 1.172.461
Koli 193,49 36,108 6.986.612
Grálúða 116,50 11,850 1.380.573
Samtals 152,39 642,806 97.955.477
Morgunblaðið/Silli
Bæjarstjórn Húsavíkur. Frá vinstri: Kristján Ásgeirsson, Orn Jóhannsson, Guðmundur Níelsson bæjarrit-
ari, Pálmi Pálmason, Valgerður Gunnarsdóttir, Þorvaldur Vestmann, forseti bæjarstjórnar, Guðrún K. -
Jóhannsdóttir, Hjördís Árnadóttir, Bjarni Þór Einarsson bæjarstjóri, Jón Ásberg Salomonsson og Tryggvi
Finnson.
Húsavíkurbær 40 ára
Húsavfk.
BÆJARSTJÓRN Húsavikur hélt
hátiðarfúnd miðvikudaginn 31.
janúar í tilefni af 40 ára kaup-
staðarréttindum Húsavíkur.
Fundurinn samþykkti svohljóð-
andi tillögu: „Bæjarstjórn Húsavík-
ur samþykkir í tilefni 40 ára kaup-
staðarréttinda bæjarins, að stofna
sjóð til kaupa á listaverkum. Stofnfé
sjóðsins er 500.000 krónur. Tekjur
sjóðsins skulu vera árlegt framlag
úr bæjarsjóði, sem nánar verði
kveðið á um í skipulagsskrá fyrir
sjóðinn.
Tilgangur sjóðsins er að afla
listaverka til að prýða stofnanir
bæjarins og umhverfi á Húsavík.
Bæjarstjórn skal setja sjóðnum
skipulagsskrá.“
Einnig var á fundinum ákveðið
að minnast afmælisins með hátíð
hinn 28. apríl næstkomandi og þann
dag mun forsetinn frú Vigdís Finn-
bogadóttir heimsækja Húsavík.
Að loknum hátíðarfundinum
bauð bæjarstjórnin þeim mönnum,
sem setið hafa í bæjarstjórn
Húsavíkur og eru nú búsettir þar,
til kvöldverðar á Hótel Húsavík.
- Fréttaritari
•>.-iJ&L -T
Q' ; ■Mtlil ÉÍlÉÖflÉffil
Morgunblaðið/Jón G. Gunnarsson
Eitt af þeim verkefrium sem núverandi bæjarstjórn tók ákvörðun um var bygging vatnstanks.
Hafiiardeild Sjálfstæðisfélags Austur-Skaftafellssýslu:
Kjörnefiid leggi firam tillögu að firam-
boðslista vegna bæjarslj órnarkosninga
Á FUNDI Hafnardeildar Sjálf-
stæðisfélags Austur-Skaftfell-
inga 30. janúar sl. var ákveðin
tilhögun að skipan framboðslista
vegna komandi bæjarstjórnar-
kosninga á Höfii.
Samþykkt var að fela stjórn fé-
lagsins að skipa kjömefnd „sem
sjái um skoðanakönnun meðal fé-
lagsmanna og stuðningsmanna
vegna kosninga að vori. Kjörnefnd
þessi mun ljúka störfum fyrir febrú-
arlok.
Fyrir síðustu sveitarstjórnar-
kosningar fór fram prófkjör á veg-
um félagsins og munu yfir 200
manns hafa tekið þátt í því.
í vor verður í fyrsta sinn kosið
til bæjarstjórnar á Höfn en Höfn
varð bær fyrir rúmu ári.
- JGG
Morgunblaðið/Þorkell
Gunnar G. Gunnarsson sýnir 15
monotypur á Mokkakaffi.
■ GUNNAR G. Gunnarsson sýn-
ir 15 monotypur á Mokkakaffi,
Skólavörðustíg 3a. Verkin eru unn-
in á síðasta ári. Sýningin opnaði
30. janúar síðastliðin.
Þijú nöfii
féllu niður
í frétt í Morgunblaðinu 1. febrú-
ar síðastliðinn, um úthlutun lista-
mannalauna, féllu niður eftirfarandi
nöfn: Gísli Sigurðsson, Jóhannes
Helgi og Óskar Aðalsteinn Guðjóns-
son.
Morgunblaðið biðst velvirðingar
á þessum mistökum.
Hj ónanámskeið
í Laugarneskirkju
A nokkrum undanförnum
misserum hafa Sr. Þorvaldur
Karl Helgason, Sr. Jón Dalbú
Hróbjartsson og Sr. Birgir Ás-
geirsson staðið fyrir hjónanám-
skeiðum. Hafa þau verið vel sótt
♦ ♦ ♦------
■ AÐALFUNDUR AFS á ís-
landi verður haldinn á Flúðum í
Hrunamannahreppi helgina 9.—11.
febrúar nk. Rúta fer frá skrifstofu
félagsins, Skúlagötu 61, kl. 19.00
og frá Flúðum á sunnudag kl.
15.00., Á föstudagskvöld fer fram
kynning á félaginu og þeim samtök-
um innlendum og erlendum sem það
er aðili að. Á laugardag verður
stefna félagsins næstu þrjú ár mót-
uð og á sunnudag fara fram hefð-
bundin aðalfundarstörf.
■ ITC-DEILDIN Björkin heldur
kynningarfund miðvikudaginn 7.
febrúar næstkomandi kl. 20.30 í
Lækjarbrekku, (Kornhlöðunni),
Bankastræti. Gestur fundarins
verður Kristín Kvaran, dagskrár-
gerðarmaður hjá Ríkissjónvarpi.
Hún mun reifa neytendamál á Is-
landi og svarar síðan fyrirspurnum.
Fundurinn er öllum opinn til kynn-
ingar á ITC-samtökunum.
og hafa nú yfir tvö hundruð
mánns tekið þátt í þeim.
Hér er um að ræða samveru-
stundir með hjónum á öllum aldri,
sem vilja fá tækifæri til þess að
ræða hjónaband og sambúð, fræð-
ast um eðli og tilgang hjúskapar
og skoða ýmis dagleg viðfangsefni..
bæði gleðileg og sorgleg, sem fyrir
kunna að koma í svo nánu sam-
félagi karls og konu, sem hjónaband
er. Námskeiðið er ætlað fólki, sem
hyggst ganga í hjónaband, er i sam-
búð eða hefur verið gift í skemmri
eða lengri tíma. Með námskeiðinu
er stefnt að því að auðga samskipt-
in í milli hinna tveggja einstakl-
inga, styrkja sambandið milli þeirra
og efla sjálfsvitund og stöðu gagn-
vart makanum.
Nú hefur verið ákveðið að halda
næsta námskeið í Laugarneskirkju,
nánar til tekið í safnaðarheimili
kirkjunnar og verður það haidið
næstkomandi laugardag, 10. febr-
úar. Það hefst kl. 13 og því lýkur
kl. 19.
Upplýsingar og skráningu annast
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson milli
kl. 15 og 17, þriðjudag til föstudags.
Athygli skal vakin á því að fólki
hvaðanæva að er heimil þátttaka.
(Fréttatilkynning.)