Morgunblaðið - 06.02.1990, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ VtDSKZPTI/AlVINN'UlÍF ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990
Hlutabréf
Ríkisskattstjóri viður-
kennir 41 almenn-
ingshlutafélag
Á SÍÐASTA ári fengu 41 hlutafélag viðurkenningu ríkisskattstjóra um
að einstaklingum sem kaupa hlutabréf í þeim sé heimilt að draga kaup-
verð þeirra frá tekju- og útsvarsstofni upp á vissu marki. Alls fengu
17 hlutafélög slíka viðurkenningu
að uppfylla eftirtalin skilyrði:
a) Hlutafé sé hærra en 12 millj. kr.
b) Fjöldi hluthafa sé a.m.k. 25.
c) Engar hömlur séu á viðskiptum
með hlutafé félagsins.
d) Ársreikningar séu aðgengilegir
öllum hluthöfum.
Eftirtalin félög hlutu staðfestingu:
Nafo Staður
Afurðastöðin í Búðardal hf. Búðard.
Almenna bókafélagið hf. Rvík
Almennartryggingarhf. Rvík
Æðardúnn
ínáðinni
LAUSN er fúndin á æðardúns-
deilu Islendinga og V-Þjóðverja,
og hafa innflytjendur íslensks
æðadúns þegar fengið undanþág-
ur til að flytja inn dún héðan frá
landi.
í frétt frá utanríkisráðuneytinu kem-
ur fram að því hafi borist þær upp-
lýsingar frá utanríkisráðuneyti V-
Þýskalands að framkvæmdastjóm
EB sé ekki andvíg undanþágu fyrir
íslenskan æðardún frá innflutnings-
banni á æðardúni. Ákvörðun þessa
efnis var tekin að undangengnu
samráði milli v-þýska umhverfís-
málaráðuneytisins og framkvæmda-
stjómar EB.
í fyrsta sinn en til þess þurfa félög
Alpan hf. Eyrarb.
Alþýðubankinn hf. Rvík
Árlax hf. Kelduneshr.
Amarflughf. Rvík
Bærhf., hótel Kirkjub.kl.
Drofn hf., skipasmíðast. Hafnarf.
Hf. Eimskipafélagíslands Rvík
Ferðaskrifstofa íslands hf. Rvík
Fiskeldifélagið Strönd hf. Akranesi
Fjárfestingarfélagíslands hf. Rvík
Flugleiðir hf. Rvík
Fróði hf. Rvík
Grandi hf. Rvík
Hampiðijan hf. Rvík
Heilsugarðurinn hf. Rvík
Hlutabréfasjóðurinn hf. Rvík
Hraðfr.hús Grundarfjarðar hf. Gmndarf.
Iðnaðarbanki íslands hf. Rvík
ísfellhf. Hafnarf.
íslenska úthafsútgerðarfél. hf. Bíldudalshr.
íslenska útvarpsfélagið hf. Rvík
Límtré hf. Flúðum
Miklilax hf. Fljótahr.
Olíufélagið hf. Rvík
Pólstækni hf. ísaf.
Samvinnubanki íslands hf. Rvík
Siglunes hf. Sigluf.
Sjóefnavinnslan hf. Hafnahr.
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. Rvík
Skagstrendingurhf. Skagastr.
Tollvörugeymslan hf. Rvík
Útgerðarfélag Akureyringa hf. Akureyri
Útgerðarfélagið Samstaða hf. Höfo, Homaf.
Útgerðarfélagið Þórdís hf. Blönduósi
Verslunarbanki íslands hf. Rvik
Yleining hf. Biskupst.hr.
Þróunarfélag íslands hf. Rvík
Þörungaverksmiðjan hf. Reykhólum
Raunávöxtun hlutabréfa
1987 % 1988 % 1989 % Meðaltal 1987-1989 %
Eimskip 101,9 70,0 11,3 61,1
Flugleiöir 175,5 41,8 -3,5 71,3
Hampiöjan 31,4 19,4 -2,2 16,2
Hlutabréfasjóðurinn 16,6 13,6 10,1 13,4
Iðnaðarbankinn 17,5 23,0 4,7 15,1
Skagstrendingur 24,2 60,8 42,5*
Tollvörugeymslan 33,6 -4,4 14,6*
Verslunarbankinn 15,6 14,8 11,8 14,1
*Meðaltal 1988-1989
Hlutabréfamarkaður
Gengi hlutabréfa á hraðri
uppleið það sem af er árinu
V
— hjá Eimskip, Sjóvá—Almennum og Olíufélaginu
FRÁ áramótum hefúr orðið talsverð hækkun á gengi hlutabréfa í
sumum þeirra fyrirtækja sem eru skráð hjá Hlutabréfamarkaðnum
HMARKI eins og fram kom í auglýsingu í blaðinu á fímmtudag. Mest
er hækkunin 6% á hlutabréfum Eimskips og Sjóvá—Almennra og 5%
á bréfúm Olíufélagsins. HMARKS vísitalan hefúr hækkað um 3,9% frá
áramótum.
Fyrir áramót var því spáð að gengi
hlutabréfa kynni í einhveijum tilvik-
um að lækka vegna mikils framboðs
á markaðnum eftir áramót. Þróunin
hefur á hinn bóginn orðið sú að lítið
hefur verið um endursölu hlutabréfa
og framboð virðist takmarkað um
þessar mundir. Skráð gengi hjá
HMARKI hefur því ýmist staðið í
stað eða hækkað.
í nýju fréttabréfi frá Verðbréfa-
markaði íslandsbanka er greint frá
raunávöxtun hlutabréfa í nokkrum
hlutafélögum á síðustu þremur
árum. Eins og sést á meðfylgjandi
töflu hefur raunávöxtun hlutabréfa
verið mjög hagstæð á síðastliðnum
þremur árum þó kjörin hafí verið
sveiflukennd milli ára.
Eigendur hlutabréfa í Fiugleiðum
virðast hafa borið mest úr bítum því
þeirra bréf hafa fært þeim 71,3%
raunávöxtun að meðaltali undanfar-
in 3 ár. Ávöxtunin dreifist hins veg-
ar afar ójafnt á þessi ár þannig að
bréfm rýrnuðu að raunvirði í fyrra
um 3,5%. Þá vekur athygli há raun-
ávöxtun hlutabréfa í Skagstrendingi
í fyrra.
í fréttabréfí VÍB segir að ástæður
lægri ávöxtunar á árinu 1989, en
árin á undan, megi rekja til þess að
hlutabréfamarkaður hér á landi sé
afar ungur. Ákveðinn tími líði þar
til jafnvægi komist á og ekki sé
óeðlilegt að á fyrstu árum markaðar-
ins séu verðhækkanir miklar, en
síðan hægi á þeim eftir nokkur ár.
Einnig beri að geta þess að afkoma
fyrirtækja árið 1989 hafi almennt
verið lakari en á árunum á undan
og endurspeglist það óhjákvæmilega
í verði hlutabréfa.
IISTI
x> m-
0:<£3
O:
Á MARKAÐI
Bjarni Sigtryggsson
Skyggnstinn íframtíðina
ÞAÐ ER yfirleitt að kasta pen-
ingum á glæ að auglýsa í sérút-
gáfúm dagblaða um tiltekin efiii.
Ástæðan er sú, að sérútgáfúrnar
eiga sér ekki fasta lesendahópa
með ákveðnar lestrarvenjur.
Þessar útgáfúr eru oftast einfald-
ar efnisumbúðir um auglýsingar.
Efiiið höfðar ekki til hins rétta
markhóps, allra síst þegar þar
er að finna greinar, eins og í
tölvublaði DV á dögunum, undir
fyrirsögninni: „Hvað er hug-
búnaður?" Sá sem veit það ekki
HLJÓÐKÚTAR 0G
PÚSTRÖR
frá viöurkenndum
framleiðendum i
Ameríku og Evrópu í
flestar gerðir bíla, t.d.:
* TOYOTA
* FORD SIERRA
* MAZDA
* FIAT
* MITSUBISHI
* SUBARU
* O.FL. O.FL.
GÆÐAVARA - GOTT VERÐ
PÓSTSENDUM
Oplð laugardaga kl. 10—13
Bílavörubóðin
FJÖÐRIN
Skeifan 2 sími 82944
les ekki þetta blað. Sá sem veit
það leggur blaðið strax frá sér.
J>róun í átt til sérhæfingar
Þróun í auglýsingabirtingum hef-
ur á undanförnum áratug öll verið
í þá átt að ná til sérhæfðs mark-
hóps. Sérritin voru þróun áttunda
áratugarins. Fréttabréfin sérkenni
níunda árartugarins. Gagnabankar
gætu orðið fróðleikslind síðasta ára-
tugar þessarar aldar. Beint sam-
band við viðskiptavin eða lesanda
er ákjósanlegasta form auglýs-
ingar. Beint samband, sem á ensku
nefnist „Direct Marketing“ heldur
án efa áfram að þróast með nýrri
tækni og betri greiningu á þörfum
neytenda eftir búsetu, starfi og
lífsstíl.
í Bandaríkjunum er háu hlutfalli
auglýsingafjár varið til að mæla
árangur. Hér á landi er sú grein
enn á bernskuskeiði. Hlustenda-
mælingar útvarps- og sjónvarps-
stöðva eru vísir að slíkum mæling-
um, en eru samt ófullkomnar. Þær
mæla til dæmis aðeins magn en
ekki gæði hlustunar. Þær segja
aðeins til um það á hvaða stöð sé
stillt, ekkert um það hvort boðskap-
urinn komist til skila.
Sú tækni sem næst kemst í gagn-
ið hér á landi verður eflaust tengd
skráningu og flokkun greiðslu-
kortaviðskipta og tölvutengingu
birgða og búðakassa.
Innlend spá (án ábyrgðar)
Eftir að sagan tók sprett í Aust-
ur-Evrópu í haust hafa menn orðið
djarfari við spádóma um hraða
framvindu heimsmála, og einnig
gætir þess líka í ýmsum spádómum
á öðrum sviðum. Það verður því að
teljast í lagi að leyfa sér hér í lokin
að spá líka örlítið um þróun fjöl-
miðla (les: auglýsingamiðla) hér á
landi við upphaf nýs áratugar. Rýn-
um í kúluna:
„Beint sam-
band við við-
skiptavin eða
lesanda er
ákjósanleg-
asta form aug-
lýsingar“
1. Sjónvarpsstöðvum mun fjölga,
en fækka að nýju með samruna.
2. Mikil uppstokkun verður á dag-
blaðamarkaði. Öldruð flokksblöð
verða lögð niður. Síðar verður ráð-
ist í stofnun nýs dagblaðs og hér
verða á markaði þijú dagblöð í stað
fimm.
3. Póstur og sími skilgreinir mark-
mið sín að nýju og gerist frumheiji
um nýja tækni í miðlun upplýsinga
og auglýsinga. Hættir að versla
með símtól og myndsenda en gerist
framfarasinnað fyrirtæki á upplýs-
ingaöld. Tilraunum til einkavæðing-
ar Pósts og síma verður frestað þar
sem ekki fmnast nógu öflugir kaup-
endur innanlands.
Tímaritum fækkar
4. Auglýsingastofum mun halda
áfram að fækka með samruna, en
síðan fjölgar þeim að nýju, vegna
nýrra tæknimöguleika. Hér verða
einkum stórar stofur, sem starfa í
alþjóðlegri samvinnu, og smáar ein-
staklingsstofur. Meðalstóru stof-
umar lifa ekki af hræringar næstu
ára.
5. Tímarit munu eiga erfitt upp-
dráttar á næstu tveimur árum en
ný tegund sérhæfðra tímarita, eins
konar fréttabréfa, nýtur vaxandi
vinsælda.
6. Spádómar um þróun auglýsinga-
markaðar munu reynast haldlitlir.