Morgunblaðið - 06.02.1990, Side 42
MORÓUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. aprfl) **
Þér gengur erfiðlega að lynda
við valdamikinn aðila í dag. Forð-
astu að taka skyndiákvarðanir.
Þér getur orðið sundurorða við
vin þinn út af Qármálum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Óþolinmæði þín og undanbrögð
einhvers samferðamanns þíns
geta leitt til uppgjörs. Ummæli
kunna að verða ranglega túlkuð
og óvæntir atburðir gætu leitt
til breytingar á áætlunum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 5»
Þú getur ient í deilum á vinnu-
stað og karpi út af peningum.
Farðu varlega á fjármálasviðinu.
Krabbi
(21. júní - 22. júií)
Þér sinnast við maka þinn.
Leggðu þig fram um að sýna
samstarfsvilja. Þeir sem eru ein-
hleypir taka margir hveijir af-
drifaríka ákvörðun um ástarsam-
band sitt.
Ljón
(23. júlf - 22. ágúst)
Þú hefur engan tíma aflögu fyr-
ir sjálfan þig í dag sökum annrfk-
is. Hafðu stjórn á skapi þínu og
sýndu öðru fólki þolinmæði.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú tekur ákvðrðun um hvort þú
heldur áfram með ákveðið verk-
efni eða hættir við það. Ástvinur
þinn krefst athygli og þú verður
ef til vill að breyta fyrirætlunum
þínum í einhvetju.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Taktu enga fjárhagsiega áhættu
í dag. Dokaðu við áður en þú
hendir meiri peningum f vonlaust
fyrirtæki. Vandamál heima fyrir
getur sett tímaáætlun þína úr
skorðum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember) 9K(S
Það er stutt f gremjuna þjá þér
núna og þú getur lent í deilum.
Eitthvað sem þú ætlaðir að gera
heima fyrir kann að koma þér í
vandræði.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Þú skalt forðast að taka áhættu
í fjármálum f dag og varast
hæpin viðskiptaáform. Vandræð-
in fyrirfínnast á hinum ólíkle-
gustu stöðum. Láttu sanngirnina
ráða ferðinni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Peningar valda ósætti milli þín
og vinar þó að afbrýðisemi komi
þar einnig við sögU. Forðastu að
sýna þínum nánustu yfirgang.
Nýttu sjálfstæði þitt á skapandi
hátt.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Deiia við samstarfsmann kann
að tefja fyrir framgangi mála.
Vertu ekki með ýtni. Reyndu að
hafa stjóm á atburðarásinni til
að koma f veg fyrir afturkipp.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Afhjúpun leyndarmáls veldur þér
óþægindum og gefur þér nýja
sýn á lífið í kringum þig. Af-
skiptaleysi kemur engu áleiðis.
Láttu skapið ekki leiða þig í gön-
ur.
AFMÆLISBARNIÐ er metnað-
argjam einstaklingur, en á auð-
velt með að vinna með öðrum.
Þvf hlotnast oftlega leiðtogahlut-
verk i krafti þessara eiginleika
sinna. Það er dýrmætur starfs-
kraftur í opinberu lífi og hyllist
oft til þátttöku í stjómmáium.
Það er áköf hugsjónavera og er
tilbúið til að leggja mikið á sig
til að vinna að framgangi áhuga-
mála sinna. Leikiistargyðjan er
því ákaflega mikils virði, en
heimilið og fjölskylcian standa
því næst hjarta.
Stjörnuspána á að lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staóreynda.
TOMMI OG JENNI
SMÁFÓLK
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Arangur í sögnum ræðst af
tvennu: Annars vegar vel út-
færðu kerfí, sem fyrst og fremst
snýr að „tveggja-manna-talinu“
milli samspilaranna, og hins veg-
ar skilningi á virkni spilanna í
baráttustöðum, þar sem allir við
borðið hafa eitthvað til málanna
að leggja. Spilamat er lykilorðið
þegar rætt er um baráttustöður.
Það kemur með reynslunni, en
það er fróðlegt að sjá hvað
margfaldir meistarar geta verið
ósammála í algengum sagnstöð-
um. Næstu daga skulum við líta
á nokkur sagndæmi, sem Ter-
ence Reese hefur valið úr tíma-
ritinu The Bridge World og gef-
ið sjálfstætt út á bók með eigin
þurru athugasemdum.
Austur gefur; NS á hættu.
Sveitakeppni.
Þú átt í suður:
Norður
♦ 753
VD1087
♦ 2
♦ Á10973
Vestur Norður Austur Suður
— — 1 tígull Pass
1 spaði 2 þjörtu 2 spaðar ?
Hvað skal segja? Kerfí mót-
heijanna er eðlilegt.
Frumgreining: Makker hlýtur
að eiga allgóð spil þegar hann
stingur sér inn á hættunni. Auk
þess á hann í mesta lagi tvo
spaða, svo ijögur hjörtu ættu
að hafa góða möguleika.
Um þetta voru allir speking-
amir sammála og þar með að
spilin séu nógu góð til að segja
íjögur hjörtu. En vandinn er af
taktískum toga. Andstæðing-
amir gætu nefnilega hæglega
farið í fjóra spaða, sem er leið-
indamál.
Margir vildu því læðupokast
og segja þijú hjörtu, láta ýta sér
í geimið. Aðrir stungu upp á
þremur laufum eða jafnvel
þremur tíglum. Tilgangurinn
með þremur laufum er að gefa
makker færi á að meta samleg-
una, og þrír tíglar áttu að und-
irbúa stungu í vörninni gegn
fjórum spöðum. Reese fussar við
þessum sögnum, segir þær gefa
andstæðingunum of mikið svig-
rúm og vill stökkva í geimið og
láta makker um framhaldið.
Það kom á óvart að enginn
skyldi nefna fjögur lauf. Við
blasir að sú sögn lofar hjarta-
stuðningi og hefur tvennt fram
yfír flögur hjörtu: (1) Makker
getur betur metið hvort rétt sé
að beijast í fímm hjörtu yfír fjór-
um spöðum, og (2) ef hann kýs
að veijast, veit hann hvar best
er að koma út.
P.S. í rauninni er fráleitt að
benda á tígulútspil með þremur
tíglum, því makker á hugsanlega
DlOx í litnum eða jafngildi þess
sem fer þá fyrir lítið. Auk þess
er tími til að skipta yfír í tígul
í öðrum slag ef út kemur lauf.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á Skákþingi Norðurlands í
fyrra, sem fram fór á Skaga-
strönd, kom þessi staða upp í skák
Akureyringanna Rúnars Sigur-
pálssonar (2.140), sem hafði hvítt
og átti leik, og Reimars Péturs-
sonar (1.830).
þá 24. Hxf7! - Hxf7, 25. Dd8+
— Hf8, 26. Bd5+ og mátar) 24.
Bfl og svartur gafst upp, því eft-
ir 24. - b5, 25. Bxb5 - Db6, 26.
Hb7 tapar hann manni. Þór Val-
týsson, Akureyri, varð Skákmeist-
ari Norðlendinga 1989.