Morgunblaðið - 06.02.1990, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990
' SÍMI 18936
LAUGAVEGI 94
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ!
í dag cr miðaverð á Skollalcik og Draugabana
kr. 200. — Magnús kr. 400.
Popp og kók er á kr. 100.
SKOLLALEIKUR
MORÐ!!!
SÁ BLINDI SÁ ÞAÐ EKKI,
SÁ HEYRNARLAUSI HEYRÐI ÞAÐ EKKI,
EN BÁÐIR VORU ÞEIR EFTIRLÝSTIR!
★ ★★★ L.A. TIMES. - ★★★★ N.Y. TIMES.
★ ★★★ HOLLYWOOD REPORTER.
DREPFYNDIN OG GLÆNÝ GAMANMYND MEÐ TVÍEYK-
INU ALRÆMDA RICHARD PRYOR OG GENE WILDER f
AÐALHLUTVERKUM í LEIKSTJ ÓRN ARTHURS HILLER.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
LÆKNANEM-
ARf VANDA
kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Læknanemar („Gross
Anatomy"). Sýnd í Bíó-
höllinni. Leikstjóri:
Thom Eberhardt. Aðal-
hlutverk: Matthew Mod-
ine, Christine Lahti og
Daphne Zuniga.
Þroskasögur bandarísku
menntaskólamyndanna eru
óðum að komast í háskól-
ann þar sem í staðinn fyrir
unglingabreim og fengi-
tímalæti kemur alvara
lífsins með ákvörðunum
um framtíðina og stefnuna
sem þú vilt taka í lífínu og
verða þegar vel tekst til
aðeins vitrænni skemmtun.
Læknanemar eftir Thom
Eberhardt er ein af þessum
og segir í stíl gamandram-
ans frá hópi nema við
læknaskóla og hvemig
vandamál þeirra fléttast
saman á tveimur misserum
og hefur áhrif á framtíð
þeirra. I fyrstu eru líkur á
að hér sé óvenjuleg mynd
á ferðinni með hinum glað-
beitta og einstaklega góða
Matthew Modine í farar-
broddi læknanemanna en
þegar frá líður verður ljóst
að myndin er lítið frá-
brugðin Hollywoodmynd-
um meginstraumsins og
kemur í fáu á óvart.
Myndin er mjög vel leik-
in og Modine er vítamín-
sprauta fyrir hana, geisl-
andi af skemmtilegu sjálf-
strausti og orku þess sem
reynist auðvelt að læra og
virðist ætla að sóa hæfí-
leikum sínum í staðinn fyr-
ir að einbeita sér að nám-
inu. Hugarfar læknisins
skortir hann alveg. Þegar
hann er spurður að því
hvað hann mundi segja
dauðvona manni er svarið:
Vertu sæll, þetta er erfíður
heimur. Myndin greinir
öðrum þræði frá umbreyt-
ingu hans og vinnur sér
mat úr læknasiðfræði og
átökunum sem það kostar
að velja og hafna í lífínu
en vantar jafnvægi á milli
gamans og dramans og í
lokin verða lausnimar of
einfaldar og fyrirsjáánleg-
ar og myndin snertir þig
furðulega lítið.
Oðram vandamálum er
skipt jafn á milli aukaleik-
aranna en sá hópur er sér-
staklega góður með hina
ágætu Christine Lathi í
fararbroddi kennara sem
snýr Modine á rétta braut.
■ FLUGLEIÐIR og SAS
hafa gefíð út bæklinginn
Ferðaáætlun sérfargjalda.
I honum er listi yfir fjölda
viðkomustaða, sem félögin
bjóða ferðir til á sérfargjöld-
um. Farþegar sem hafa
áhuga á að fara til
Montevideo, Budapest,
Stuttgart, Varsjár, Bang-
kok, Brussel, Hamborgar,
Moskvu, Tokyo eða tuga
annarra staða í Evrópu,
Ameríku og Asíu geta í
þessum bæklingi fengið upp-
lýsingar um brottfarar- og
komutíma, flugnúmer og
ieiðjri Bæklingurinn liggur
frammi á öllum söluskrifstof-
um flugfélaganna og á ferða-
skrifstofunum. Hann gildir
fyrir tímabilið janúar til mars
1990 og þá er ætlunin að
halda útgáfunni áfram.
BLAÐAUMSÖGN:
„SPENNAN ER MJÖG GÓÐ, HASARINN HRAÐUR OG
HARÐUR. SVART REGN ER ÁGÆTIS AFÞREYING
STUNDUM SÚPER.
★ ★★ AI. MBL.
Aðalhlutverk: Michael Douglas, Andy Garcia, Ken Taka-
kura og Kate Capshaw. — Leikstjóri: Ridley Scott.
Sýnd kl. 5,7.30 og 10. — Bönnuð innan 16 ára.
INNAN FJÖLSKYLDUNNAR
Myndin ólgar af lífi og losta,
jarðarförum, brúðkaupum,
áflogum og ástarævintýrum
bæði leyndum og ljósum."
★ ★★ PÁ.DV.
BRÁDFYNDIN GAMAN-
MYND UM ALVARLEG MÁL-
EFNL ÞAU EIGA HEILMIKID
SAMEIGINLEGT. KONAN
HANS SEFUR HJÁ MANNIN-
UM HENNAR.
Aðalhlutverk: Ted Danson
(Staupasteinn), Sean Toung
(No Way Out), Isabella Rossell-
ini (Blue Velvet).
Leikstjóri: Joel Schumacher.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Félagar úr Lionsklúbbi Fáskrúðsíjarðar ásamt heilsu-
gæslulækni. Frá vinstri eru Vignir Hjelm, Baldur Rafns-
son, Þorleifúr K. Kristmundsson, Sigurður Þorgeirsson,
Friðmar Gunnarsson, Albert Kemp, Sigurður Guðjónsson
læknir, Geir Helgason, Sölvi Olason, Skafti Skúlason,
Agnar Jónsson og Guðlaugur Kristinsson.
Fáskrúðsfj örður:
I i( l < I I
SÍMI 11384 - SNORRABRAUT 37
★ ★★★ AI Mbl. - ★ ★★★ AI Mbl.
★ ★★y* HK. DV. - ★★★I/z HK. DV.
Sýnd kl. 5,7.30 og 10.
ELSKAN ÉG
MINNKAÐIBÖRNIN
BEKKJARFÉLAGIÐ
FRUMSÝNIR STORMYNDINA:
MÓÐIR ÁKÆRÐ
D I A N E K E A T O N The Gooe ) MOTHER
TölCHSTON'E-PiCTtRb' SILVEJ?SCRÉEN’PaRTXFRSIV • '
'LEÖXARDMMOl ■
•. ÁR.V0LD GLIMCHER -
DIANEKEAT0N THE G00D M0THES"
ÚAM XEESON 1AS0N- K0BARDT
RALPHBEliAMY . ELMER BERXSTEtV fmm m fl
'■■■• ' STAN J0LLF1 ■ . ÝDAVIDUATKI.V • v wm
•■ SLE MlllER ' MIGHJEL B0RTMAV' "• w WL
■' AR\0LD GLIMCHER
: LE0NARD MM0Y "
★ ★★★ L.A. DAILY NEWS. - ★ ★ ★ ★ WABCTV.NY.
Hinn frábæri leikstjóri LEONARD NIMROY (THREE
MEN AND A BABY) er hér komin með stórmyndina
„The Good Mother" sem farið hefur sigurför víðsvegar
um heiminn.
ÞAÐ ER HIN STÓRKOSTLEGA LEIKKONA
DIANE KEATON SEM FER HÉR Á KOSTUM
ÁSAMT KEMPUNNI JASON ROBARDS.
„THE GOOD MOTHER" STÓRMYND FYRIR ÞIG!
Aðalhlutverk: Diane Keaton, Liam Neeson, Jason
Robards, Ralph Bellamy.
Framl.: Arnold Glimcher. — Leikstj.: Leonard Nimroy.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Lionsklúbburinn gefur hjartalínurita
Fáskrúðsfirði.
FÉLAGAR í Lionsklúbbi
Fáskrúðsfjarðar afhentu
nýlega Heilsugæslustöð-
inni á staðnum hjartalínu-
rita að gjöf en slíkt tæki
hafði ekki verið í eigu
stöðvarinnar alllengi.
Félagar úr Lionsklúbb-
num hafa oft áður gefið tæki
til stöðvarinnar á undanförn-
um árum. Hjartalínuritinn
er af nýjustu gerð og mjög
handhægur, er hægt að fara
með hann úr stöðinni og í
heimahús ef með þarf.
— Albert
Skráning fyrirtækja verði ekki féþúfa ríkissjóðs
„Stjórn SIVÍ, Smáfyrir-
tækja innan Verslunarráðs
íslands, mótmælir harðlega
allt að fjórtánfijldun á
skráningargjöldum fyrir-
tækja til ríkissjóðs, sem
fjármálaráðherra stóð fyrir
um síðustu áramót. Þessi
opinbera gjaldtaka er nú
augljósiega orðin þröskuld-
ur í vegi þeirra sem ætla
að stofna smáfyrirtæki,"
segir í ályktun sem Morg-
unblaðinu hefúr borist.
„Skráning hvers konar fyr-
irtækja hjá hinu opinbera var
margfölduð og kórónuð með
því að hækka gjald fyrir
skráningu hlutafélaga og
samvinnufélaga úr 6.800
krónum í 100.000 krónur.
Með flöturn skatti af þessu
tagi, óháð stærð fyrirtækj-
anna, beinist þessi aðgerð sér-
staklega gegn stofnun smá-
fyrirtækja, sem eru víðast
hvar í sambærilegum þjóð-
félögum metin helsta upp-
spretta nýjunga og aflvaki
áræðis í atvinnulífinu, at-
vinnuskapandi frumkvæði.
Af þessu tilefni og vegna
fleiri opinberra aðgerða und-
anfarið sem höggva í sama
knérann, mælist stjórn SIVÍ
eindregið til þess að ríkis-
stjórnin geri opinberlega
grein fyrir stefnu sinni í at-
vinnumálum og afstöðu sinni
til smáreksturs í landinu.
Ohjákvæmilegt er að fá úr
því skorið, hvort fjármálaráð-
herra sé að framfylgja stefnu
sem ætlað sé að knésetja
smárekstur einstaklinga og
samtaka þeirra með álagn-
ingu refsiskatta og beitingu
reglugerðarákvæða smá-
rekstrinum sérstaklega í
óhag.
Stjórn SIVI skorar jafn-
framt á ríkisstjómina að snúa
þegar við blaðinu og færa
skráningargjöld fyrirtækja tii
samræmis við raunverulegan
kostnað við skráninguna. Með
engu móii verður fallist á að
nýsköpun og áræði í atvinnu-
lífinu verði gerð að sérstakri
féþúfu fyrir ríkissjóð - eða
að ríkið beiti afli sínu til þess
að bregða fæti fyrir þennan
vaxtarbrodd atvinnulífsins,"
segir í ályktuninni.
■ KVENNADEILD
Barðstrendingafélagsins
heldur aðalfund sinn á Hall-
veigarstöðum í dag, þriðju-
dagjnn 6. febrúar kl. 20.00.