Morgunblaðið - 06.02.1990, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 06.02.1990, Qupperneq 55
til vegna samninganna gæti því verið rúmlega 500 milljónir króna. Þá tölu verður hins vegar að skoða annars vegar með hliðsjón af niður- stöðutölu fjárlaga sem er hátt í 100 milljarðar og hins vegar í ljósi þess hagræðis sem ríkissjóður hefur af samningunum. Litlar kauphækkanir og minni verðbólga lækka bæði ríkisútgjöld og tekjur frá því sem áætlað hafði verið. Nafnvaxtalækkun og aukinn stöðugleiki skipta miklu máli hjá fyrirtækjum og stofnunum hins opinbera eins og fyrirtækjum í at- vinnulífinu. Samningurinn mun því að öllum líkindum verða til að treysta ríkis- fjármálin og engar forsendur eru til að halda því fram að hann setji ríkissjóð í aukinn vanda eða grípa þurfi til niðurskurðar í ríkisfjármál- unum sérstaklega hans vegna. Hvað um kj arasamninga annarra? Allt launafólk nýtur þeirra ávinn- inga af samningum ASÍ og BSRB. Því er eðlilegt að allt launafólk fylgi í kjarasamningum sínum þeirri línu sem lögð hefur verið af stærstu heildarsamtökum á vinnumarkaðin- um. Allir njóta lækkunar vaxta, óbreytts gengis, óbreytts búvöru- verðs, minni opinberra verðhækk- ana og aðhalds í verðhækkunum fyrirtækja. Eru þeir sem ekki vilja sætta sig við launahækkanirnar í samningun- um reiðubúnir til að borga áfram 30% vexti, greiða meira fyrir mjólk og kjöt, taka á sig meiri hækkanir í verðlagi opinberrar þjónustu og greiða hækkandi verð vegna geng- isfellinga frá degi til dags? Skiptir verðtrygging launa þetta fólk engu máli? Svarið við þessum spumingum er aðeins eitt. Það er rökrétt að allt launafólk fylgi samningnum og taki þátt í að tryggja að markmiðum hans verði náð. Varð hækkun á frítekjumarki almannatrygginga? Samkomulag varð við ríkisstjórn- ina um að frítekjumark gagnvart tekjutryggingu lífeyrisþega hækki úr tæplega 13 þús. kr. í 19 þús. kr. 1. júlí nk. og 1. janúar 1991 í 21.500 kr. Með því er dregið veru- Iega úr þeirri skerðingu sem nú er vegna lífeyris frá lífeyrissjóðum. Hveiju breytir ákvæðið í kjarasamningum um fæðingarorlof? Nú er í fyrsta sinn í heildarkjara- samningum samið um réttarstöðu fólks í fæðingarorlofi. Hingað til hefur verið litið svo á að fæðingar- orlof sé eins og hvert annað launa- laust leyfi, þannig að öll ávinnsla réttinda falli niður þótt ráðningar- sambandið haldist. Með lengingu fæðingarorlofs hefur þetta orðið alvarlegt vandamál. í samningnum er samið um að fjarvistir vegna fæðingarorlofs teljist til starfstíma við mat á veikindarétti, uppsagnar- rétti, starfsaldurshækkunum og rétti til greiðslu orlofs- og desem- beruppbótar. Þetta má skýra nánar með dæmi. Við getum hugsað okkur tvær kon- ur, A og B, sem hófu störf á sama tíma þann 1. nóvember 1986. A fór í 6 mánaða fæðingarorlof í ágúst og kom til starfa á ný þann 1. febrú- ar sl. Samkvæmt eldri túlkun mun- ar einum mánuði á veikindarétti og uppsagnarrétti þeirra, þar sem B hefur unnið í full þijú ár, en A ein- ungis í 2 ár og 9 mánuði. Með nýju ákvæði er þeim báðum tryggður sami réttur. í samningsákvæðinu er einnig kveðið á um að fæðingar- orlof skerði ekki rétt til oríofs. Nokkuð hefur borið á því, sérstak- lega eftir lengingu fæðingarorlofs, að atvinnurekendur hafa neitað starfsmönnum um fullt sumarfrí eftir að þeir hafa verið í iöngu fæð- ingarorlofi. Þegar kona hefur kom- ið úr 5 mánaða fæðingarorlofi og hefur viljað fá sitt 24 daga orlof hefur vinnuveitandi sagt að hún sé búin að vera svo lengi í burtu að hann leyfi ekki lengra orlof en það sem hún á rétt á launum, eða 14 daga. Með þessu samningsákvæði er öllum vafa um túlkun eytt. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990 KAUPMATTUR GREIDDS TIMAKAUPS MIÐAÐ VIÐ VÍSITÖLU FRAMFÆRSLUKOSTNADAR ASÍ ALLS 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1980=100 Hvernig nýtast breytt ákvæði um uppsagnarfrest þeim sem komnir eru á miðjan aldur? Nokkuð hefur borið á því að fólki sem komið er yfir miðjan aldur sé sagt upp störfum, jafnvel eftir ára- tuga starf hjá sama vinnuveitanda. Oft er erfiðleikum bundið fyrir þetta fólk að finna sér önnur störf, sér- staklega á stöðum þar sem atvinnu- ástand er ótryggt. Með lengingu uppsagnarfrests þeirra sem hafa verið a.m.k. 10 ár í samfelldu starfi um einn mánuð við 55 ára aldur, tvo mánuði við 60 ára aldur og þijá mánuði við 63 ára aldur er reynt að tryggja atvinnuöryggi þessa fólks. Þetta er sama regla og notuð hefur verið í Noregi. Þótt atvinnurekandi verði að lengja upp- sagnarfrestinn, getur launamaður eftir sem áður sagt starfi sínu lausu með þriggja mánaða uppsagnar- fresti. Verður erfiðara fyrir eldra fólk að ráða sig til starfa? Þrátt fyrir lengdan uppsagnar- frest fólks á miðjum aldri á reglan ekki að verða til þess að hindra ráðningu þessa hóps hjá nýjum at- vinnurekendum, því reglan er bund- in við þá sem hafa verið samfellt í 10 ár í starfi hjá sama vinnuveit- anda. Er komið til móts við óskir eldra fólks um að draga úr vinnu? í yfirlýsingu með samningnum segir að VSI og VMS muni beina þeim tilmælum til félagsmanna sinna að þeir leggi sig fram um að koma til móts við óskir starfsmanna um að fá að minnka starfshlutfall sitt á síðustu árum fyrir eftirlauna- aldur. Þetta er að vísu aðeins vilja- yfirlýsing, og ekki á nokkurn hátt bindandi, en er engu að síður undir- tekt við það sjónarmið ASÍ að reynt skuli að milda starfslok fólks eftir því sem kostur er.- Hvernig breyttist desemberuppbótin frá siðastgildandi samningum? Með nýju samningsákvæði um desemberuppbót er reynt að sam- ræma reglur milli kjarasamninga og eyða þeim ágreiningi sem uppi hefur verið um framkvæmd. 1. Desemberuppbót hækkar í kr. 10.000. Tekið er fram að sú tala er fost og tekur ekki breyt- ingum skv. öðrum ákvæðum. 2. Desemberuppbót greiðist þeim sem voru í starfi í fyrirtækinu síðustu viku nóvembermánaðar eða fyrstu viku desembermánað- ar. Þetta er þó ekki alltaf skil- yrði. Eftirtaldir eiga rétt á upp- bótinni þótt þeir séu ekki í starfi í nóvember eða desember: a. þeir sem láta af störfum á árinu vegna aldurs, b. þeir sem láta af störfum eftir 20 vikna sam- fellt starf á árinu hjá sama vinnuveitanda, c. þeir sem eru í fæðingarorlofi, d. þeir sem eru frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu vinnuveitanda lýkur. 3. Tekið er fram að uppgjörstíma- bilið sé almanaksárið. 4. Fullt ársstarf telst í þessu sam- bandi 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof. Starfsfólk með skemmri starfstíma fær greitt hlutfallslega miðað við starfs- tíma sinn. Hvernig breyttust samningsákvæði um orlofsuppbót? 1. Orlofsuppbót verður kr. 7.000 sumarið 1990, og kr. 7.500 sumarið 1991. Uppbótin er föst tala og tekur ekki launabreyt- ingum skv. öðrum ákvæðum. 2. Uppbótin greiðist þeim sem voru í starfi síðustu viku apríl eða fyrstu viku maí. Þetta er þó ekki skilyrði í eftirfarandi tilvik- um: a. láti starfsmaður af störf- um á orlofsárinu vegna aldurs, b. sé starfsmaður frá störfum vegna fæðingaroriofs, c. sé starfsmaður frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu vinnuveitanda lýkur. Er fjallað um vandamál gerviverktaka? Samtök atvinnurekenda lýstu því yfir að þau teldu það skaðlega þró- un að launafólk sé ráðið sem verk- takar. Þeir lýstu vilja sínum til að vinna gegn henni með því að setja á samningstímanum skýrar reglur og skilgreina stöðu launþega ann- ars vegar og verktaka og atvinnu- rekenda hins vegar. Hvaða breytingar verða á ríkisábyrgð á launum? Áform voru uppi af hálfu stjórn- valda um stórfellda skerðingu á ríkisábyrgð á launum við gjaldþrot. Til stóð að breyta lögunum þannig að tímabil ábyrgðar á launum auk uppsagnarfrests yrði skert um helming, að ríkisábyrgðin gæti aldr- ei numið hærri fjárhæð en 240 þ.kr. yfir allt tímabilið samanlagt og að ábyrgðin næði ekki til iðgjalda lífeyrissjóðanna. Þessum áformum hafði verið mótmælt _af hálfu aðila vinnumarkaðarins. í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er nú staðfest að ríkisábyrgðin skuli ná til sama laun- atímabils og áður og til iðgjalda- greiðslu í lífeyrissjóði. Þak verður þó sett á fjárhæð ríkisábyrgðar á laun þannig að hún verði aldrei fyrir hvern mánuð meira en þrefald- ar atvinnuleysisbætur, þ.e. um 120 þ.kr. á mánuði. Eiga þeir sem eru í starfsnámi rétt á atvinnuleysisbótum? Nu stendur yfir endurskoðun á lögum um atvinnuleysistryggingar. ____________________________55 Ennfremur eru uppi áform um laga- setningu um starfsmenntun í at- vinnulífinu. Mörgum þykir æskilegt að tengja þetta tvennt saman og gera fólki á vinnumarkaði kleift að stunda nám án þess að vera tekju- laust á meðan. í yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar er loforð um það aðf' kannað verði með hvaða hætti greiðslur úr Atvinnuleysistrygg- ingasjóði geti nýst til starfsnáms. Eiga atvinnulausir rétt á sérstökum launabótum? í yfirlýsingu ríkisstjómar segir að hún muni beita sér fyrir því að einstaklingar sem verið hafa at- vinnulausir í samtals fjóra mánuði eða lengur á tólf mánaða tímabili fái uppbót hliðstæða þeirri sem greidd verður til láglaunafólks skv. kjarasamningnum. Var fjallað um húsnæðismál í tengslum við kjarasamningana? í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og bréfi félagsmálaráðherra sem fylgir kjarasamningnum em áform um áætlun um hvernig auka megi framboð á félagslegu húsnæði til að félagslega húsnæðiskerfið geti leyst úr brýnustu þörfum. Kaupmáttarspá fyrir ASI - meðaltal m.v. samninga 1. febrúar 1990 Forsendur eru eftirfarandi: Launabætur og hækkun desember- og orlofsuppbótar eru metin á sam- tals 0,3% á árinu 1990. Gengi verður fast á samnings- tímabilinu. Kaupmáttur í des. 1989 var 0,4% hærri en í jan. 1990, eða 100,4. Samningurinn nær til 15. sept. 1991, en ekki er tekið tillit til nýrra samninga á þeim tíma. Gæta kann ónákvæmni í verð- bólguspá á milli einstakra mánaða. Launahækkun 1. feb. ’90 1,5% Launahækkun 1. júní ’90 1,5% Launahækkun 1. des. ’90 2,0% ' Launahækkun 1. mars ’91 2,5% Launahækkun 1. júní ’91 2,0% Árið 1990 Árið 1991 Kaup- Kaup- Kaup- Verð- máttar- Kaup- Verð- máttar- vísit. vísit. vísit. vísit. vísit. vísit. Janúar 100,0 139,3 100,0 105,5 148,0 99,3 Febrúar 101,5 141,4 100,0 105,5 148,6 98,9 Mars 101,5 142,9 98,9 108,1 149,1 101,0 Apríl 101,6 143,7 98,5 108,1 150,3 100,2 Maí 101,6 144,4 98,0 108,6 151,0 100,2 Júní 103,2 144,8 99,2 110,8 151,7 101,8 Júlí 103,2 145,4 98,8 110,8 152,9 101,0 Ágúst 103,2 145,8 98,6 110,8 153,5 100,5 Sept. 103,2 146,1 98,3 110,8 154,2 100,1 Október 103,3 146,6 98,1 110,8 154,8 99,7 Nóv. 103,3 146,9 97,9 110,8 155,2 99,4 Desember 105,5 147,2 99,8 110,8 155,5 99,2 Meðaltal 102,6 144,6 98,8 109,3 152,1 100,1 1. ársfj. 101,0 141,2 99,6 106,3 148,6 99,7 2. ársfj. 102,1 144,3 98,6 109,2 151,0 100,7 3. ársfj. 103,2 145,8 98,6 110,8 153,5 100,5 4. ársfj. 104,0 146,9 98,6 110,8 155,2 99,5 Dæmi 1. Lán tekið 1/1 1990 að upphæð kr. 1.000.000 með breytilegum vöxtum. Leiðl: Leið2: Mismunur: Hækkun launa 5,3% 20% Hækkun verðlags 6,2% 21% Staða 31/12 1990 1.147.500 1.292.000 144.500 Dæmi 2. Lán tekið 1/1 1990 að upphæð kr. 1.000.000 með lánskjaravísitölu. Leið 1: Leið 2: Mismunur: Hækkunlauna 5,3% 20% Hækkun verðlags 6,2% 21% Staða 31/12 1990 1.143.529 1.308.960 165.431 Dæmi 3. Ráðstöfunartekjur miðað við kr. 700.000 heildartekjur á verðlagi janúar 1990 og gert er ráð fyrir því að neysla í janúar 1990 kosti 80% af ráð- stöfunartekjum. Greiðslubyrðiafláni miðað við 12 afb.: lánskjaravísitala Sparnaður - vextir og verðb. 103.557 169.951 66.394 19.387 -48.194 -67.581 Dæmi 4. Ráðstöfúnartekjur miðað við kr. 1.000.000 heildartekjur á ári á verðlagi janúar 1990 og gert er ráð fyrir því að neysla í janúar 1990 kosti 80% af ráðstöfúnartekjum. Leið 1: Leið 2: Mismunur: Hækkun launa 5,3% 20% Hækkun verðlags 6,2% 21% Kaupmáttur -1,0% -1,0% Heildartekjur 717.964 768.012 50.048 - skatturo.fi. -66.497 -84.285 -17.788 Ráðstöfúnartekjur 651.467 683.727 32.260 - neysla (matur, o.fl.) -528.523 -561.970 -33.447 Sparnaður 122.944 121.757 -1.187 Greiðslubyrði af láni miðað við 12 af- borgarnir: nafnvextir 93.847 158.166 64.319 Sparnaður - vextir 29.097 -36.409 -65.506 Leið 1: Leið 2: Mismunur: Hækkun launa 5,3% 20% Hækkgn verðlags 6,2% 21% Kaupmáttur -1,0% -1,0% Heildartekjur 1.025.659 1.097.160 71.501 - skattur o.fl. -204.314 -231.710 27.396 Ráðstöfúnartekjur 821.345 865.450 44.105 - neysla (matur, o.fl.) -666.191 -708.337 -42.146 Sparnaður 155.154 157.113 1.959 Greiðslubyrði af láni miðað Við 12 afb.: nafnvextir 93.847 158.166 64.319 Sparnaður - vextir 61.307 -1.053 -62.360 Greiðslubyrði af Iáni miðað við 12 afb.: lánskjaravísitala 103.557 169.951 66.394 Sparnaður - vextir og verðb. 51.597 -12.838 -64.435 Frá undirritun samninganna. Fulltrúar Alþýðu- sambandsins og fúlltrúi Stéttasambands bænda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.