Morgunblaðið - 07.02.1990, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1990
Lögregiumaður klippir númeraplötur af bifreið fyrir utan Hótel Sögu í gær.
Morgunblaðið/Sverrir
Hert innheimta þungaskatts og bifireiðagjalda:
590 gjaldendur greiddu 9,6
milljónir hjá tollstjóra í gær
Númeraplötur klipptar af 20 bílum í Reykjavík
UM 590 manns greiddu rúmlega 9,6 milljónir króna í gjaldfallinn
þungaskatt og bifreiðagjald á skrifstofu tollstjórans í Reykjavík í
gær en þá hafði verið boðað að hertar innheimtuaðgerðir hæfúst
veg^na þessara gjalda. í vanskilum voru um 260 milljónir króna hjá
um fjögur þúsund gjaldendum, að sögn Grétars Guðmundssonar
deildarstjóra þjá tollstjóra. í Reykjavik klipptu tveir lögreglumenn
og tveir starfsmenn íjármálaráðuneytisins númeraplötur af 20 bif-
reiðum sem þessi gjöld höfðu ekki verið greidd af.
Mikil örtröð var í afgreiðslu toll-
stjóra í kjölfar frétta af innheimtu-
aðgerðunum, að sögn Grétars Guð-
mundssonar, en einnig er vitað að
fjölmargir greiddu þessi gjöld,
þungaskatt samkvæmt föstu gjaldi
eða ökumæli og bifreiðagjöld, með
gíróseðlum í bönkum í gær. Upp-
lýsingar um þær fjárhæðir munu
berast tollstjóra í dag. Algengast
mun að skuldir manna nemi nokkur
þúsund krónum, nokkuð mun vera
um óverulegar fjárhæðir en einnig
eru sögð dæmi þess að menn skuldi
hundruð þúsunda. Flestar skuldim-
ar eru frá síðasta ári en dæmi eru
um nokkurra ára skuldir.
Tveir lögreglumenn í Reykjavík
ásamt tveimur starfsmönnum fjár-
málaráðuneytisins, eftirlitsmönn-
um með ökumælum, fóru um borg-
ina milli klukkan hálfellefu og fjög-
ur í gær og klipptu númer af 20
bflum, sem voru á hinum langa lista
yfir skulduga. Að sögn Jónasar
Hallssonar, aðalvarðstjóra í lög-
reglunni í Reykjavík, verður að-
gerðunum fram haldið í dag og
næstu daga og þá af auknum
þunga.
Morgunblaðið hafði samband við
fimm lögregluembætti utan
Reykjavíkur í gær. Hvergi voru
aðgerðir hafnar en menn sögðust
vita að Iistar frá ráðuneytinu væru
á leiðinni og að látið yrði til skarar
skríða á næstunni. Víða hafði verið
annríki á sýsluskrifstofum, þar sem
þessi gjöld eru innheimt utan
Reykjavíkur.
Alþýðubandalagið í Reykjavík:
Tillaga um sam-
eiginlegt framboð
felld á félagsfundi
Alþýðubandalagið í Reykjavík felldi í nótt á félagsfundi tillögu um
að gengið yrði til viðræðna um sameiginlegt opið framboð á vegum
Alþýðuflokksins fyrir borgarstjómarkosningar í vor. Tillagan, sem var
lögð fram af Kristínu Olafsdóttur borgarfúlltrúa, var felld með 125 at-
kvæðum gegn 96. Fundurinn stóð enn þegar Morgunblaðið fór í prentun.
Önnur tillaga lá frammi frá stjóm
ABR um að hefja þegar undirbúning
að framboði G-lista, sem valið yrði
á að undangenginni almennri at-
kvæðagreiðslu flokksmanna. Sú til-
laga hafði ekki verið afgreidd þegar
blaðið fór í prentun.
Skoðanir ræðumanna á fundinum
skiptust í tvö horn. Svavar Gestsson
menntamálaráðherra var einn þeirra
sem hvöttu til að hafna viðræðum
um sameiginlegt framboð en bjóða
þess í stað fram G-lista. Guðrún
Helgadóttir forseti sameinaðs þings
var meðal þeirra sem voru á önd-
verðri skoðun.
Á fundinum las Stefanía Trausta-
dóttir, formaður ABR, upp bréf frá
Birgi Dýrfjörð, formanni fulltrúaráðs
Alþýðuflokksins, þar sem tekið var
fram, að málefnalistinn, sem Al-
þýðuflokkurinn kynnti á mánudag
sem grundvöll sameiginlegs fram-
boðs, væru aðeins hugmyndir Al-
þýðuflokksins. Flokkurinn væri til
viðræðu um breytingar á málefna-
grundvelli, verkefnaskrá og nafni
listans.
Á fundinum í gærkvöldi voru mun
fleiri en á félagsfundi ABR fyrir
þremur vikum, þegar ákvöðrun um
þetta mál var frestað. Um 150 manns
sátu þann fund.
íkveikja við
bensínstöð
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var
kallað út í gærkvöldi og tilkynnt
um eld í bensínstöð Esso við
Stóragerði.
Þegar á staðinn var komið var
enginn eldur, en merki um íkveikju
undir skyggni stöðvarinnar. Á sjálf-
sala sást að síðast höfðu verið tekn-
ir af honum tveir lítrar af bensíni
og ummerki bentu til þess, að það
hefði verið látið í dollu og kveikt
í. Sót sást á skyggni stöðvarinnar
og svo virtist sem dollunni hefði
verið sparkað um koll áður en bens- •
ínið var allt brunnið, þar sem rák
var í snjónum eins og eftir eld og
þar hjá sviðið ílát.
Guðrún Helgadóttir seg-
ir Þjóðviljann gjaldþrota
Oftúlkun Guðrúnar segir Svavar
GUÐRÚN Helgadóttir alþingis-
maður sagði á félagsfúndi Al-
þýðubandalagsins í Reykjavík í
gærkvöldi að ekki væri víst að
Þjóðviljinn kæmi út eftir helgina
Fjögur skip þurftu að aðstoða
4,5 tonna bát fyrir austan land
Tveir menn um borð grunaðir um ölvun - Farið með bátinn til Borgarfjarðar eystri
FJÖGUR skip þurftu tvívegis i gær að beiðni Slysavarnafélags íslands
að hafa afskipti af og aðstoða 4,5 tonna bát, sem hafði lagt upp firá
Seyðisfirði og lent í hafvillum, enda voru ekki sjókort um borð né
kunnátta til að nota lórantæki í bátnum. Bátnum var fylgt til hafnar
á Borgarfirði eystra í gærkveldi. Tveir menn voru um borð og leikur
grunur á að þeir hafí verið ölvaðir.
kunni ekki að fara með siglinga-
tæki og skuli tvisvar sinnum sama
daginn villast í hafi að ástæðulausu
svo kalla þurfi til fjöldann allan af
skipum og mönnum,“ sagði Hálf-
dán.
þar sem hann væri gjaldþrota.
Blaðið vantaði 50 milljónir króna
til að ná endum saman.
Hallur Páll Jónsson fram-
kvæmdastjóri Þjóðviljans lét lesa
upp yfírlýsingu á fundinum, þar
sem hann sagðist mótmæla rang-
færslum Guðrúnar. Þjóðviljinn væri
ekki gjaldþrota.
Guðrún Helgadóttir sagði að
þessar upplýsingar hefði Svavar
Gestsson komið með inn á þing-
flokksfund Alþýðubandalagsins á
mánudag. Svavar sagði við Morg-
unblaðið, að þetta væri oftúlkun
Guðrúnar. Fyrir lægi, að Blaða-
prent, sem er í eigú Þjóðviljans,
Tímans og Alþýðuflokksins, væri í
verulegum erfíðleikum, sem lentu
nú á blöðunum. Ekki lægi ljóst fyr-
ir, með hvaða hætti þessi vandi
yrði leystur en hann yrði leystur.
Það var klukkan rúmlega þijú í
gær sem Nesradíó hafði samband
við Slysavarnafélagið vegna báts
sem væri í hafvillum, en hjá honum
væri blindbylur og þungur sjór.
Mennirnir um borð gáfu upp tölur,
sem þeir sögðust hafa fengið úr
lórantæki um borð, en vissu ekki
hvað væru. Við athugun reyndust
þær vera lengdar- og breiddargráð-
ur, sem sýndu að báturinn væri í
mynni Seyðisfjarðar.
Slysavamafélagið hafði samband
við norska skipið Tananger, sem er
í leigu hjá Ríkisskip, og var á leið
fyrir Glettinganes. Það var beðið
að litast um eftir bátnum sem og
loðnubáturinn Grindvíkingur, sem
var á leið út Seyðisfjörð. Bæði skip-
in komu á svipuðum tíma að bátnum
í mynni Seyðisfjarðar og reyndu að
fá hann til snúa við, þar sem ljóst
þótti að ekki væri allt eins og það
ætti að vera um borð, að sögn
Háifdáns Heniýssonar hjá Slysa-
vamafélaginu. Mehnimir sögðust
hins vegar vera á leið til Akureyrar
og báðu um lórankort, sem ekki
voru til um borð í-Tananger. Þegar
það var ljóst setti báturinn stefnuna
í norður fyrir Glettinganes.
Hálfdán sagði að þeim hjá Slysa-
varnafélaginu hefði ekki litist á
blikuna og því beðið slysavarna-
sveitina Sveinunga að sjósetja
björgunarbát og litast um eftir
bátnum. Þá var hann kallaður upp
og kom í ljós að hann var villtur
aftur. Haft var samband við loðnu-
bátinn Albert sem var á leið til
Raufarhafnar með loðnu og eftir
um klukkutíma leit fundu þeir bát-
inn um sex sjómflur norður af
Kögri. Þegar þeir komu að bátnum
sigldi hann í hringi og þá var vax-
andi vindur, 6-7 af norðvestri.
Skömmu síðar kom björgunarbátur-
inn að bátnum og fór einn björgun-
arsveitarmaður um borð og var
haldið með bátinn til Borgarfjarðar.
Var lögregla jafnframt beðin að
vera til staðar til að taka skýrslur
af skipveijum þegar komið væri að
landi með bátinn.
„Það er mjög slæmt að menn
Viðskipti íslendinga og Sovétmanna:
Undirbúningnr hafínn að
næsta fímm ára samningi
Rúmlega milljarðs halli á sovétviðskiptunum í fyrra
UNDIRBÚNINGUR er nú hafínn að samningaviðræðum við Sovét-
menn um endumýjun fímm ára viðskiptabókunar á grundvelli
tvíhliða viðskiptasamnings íslands og Sovétrílyanna frá 1953. Þetta
ár er síðasta ár núgildandi fímm ára viðskiptabókunar ríkjanna.
Fulltrúar út- og innflytjenda,
sem mestra hagsmuna eiga að
gæta í sovétviðskiptunum, áttu
fund með Jóni Baldvin Hannibals-
syni utanríkisráðherra og Jóni Sig-
urðssyni viðskiptaráðherra í byijun
vikunnar, þar sem rædd voru við-
horf til viðskiptanna.
Jón Baldvin segir að hallað hafi
á íslendinga í þessum viðskiptum
um 17 milljónir dollara í fyrra, eða
um einn milljarð króna, og um 50
milljónir dollara síðustu ár. Það eru
úm þrír milljarðar króna.
Hann segir ennfremur að aðilar
hafi verið sammála um að stefna
beri að því að halda þessum við-
skiptum áfram og efla þau. Hann
segir stefnt að því, að formlegar
viðræður hefjist við Sovétmenn hér
í Reykjavík í sumar.
Að sögn Jóns Baldvins munu
íslendingar óska eftir því í viðræð-
unum, að viðskipti landanna verði
fjölþættari en nú er. Nú eru megin-
viðskiptin þau, að héðan eru flutt
matvæli, sem þrátt fyrir breytingar
í Sovétríkjunum lúta enn að mestu
miðstýringu þar, sama er að segja
um olíuviðskiptin. Ljóst sé að Is-
lendingar muni óska eftir því við
Sovétmenn, að þjónustuviðskipti
komi í auknum mæli inn í mynd-
ina. Til dæmis skipaviðgerðir, flug-
þjónusta, ferðamannaþjónusta „og
vissulega ræddum við mikið um
það samskiptaform sem mest er í
móð þessi misserin í Sovétríkjun-
um, það er að segja sameiginleg
áhættufyrirtæki," sagði Jón Bald-
vin Hannibalsson.