Morgunblaðið - 07.02.1990, Síða 5

Morgunblaðið - 07.02.1990, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1990 5 Loðnuskipin fylla sig á mjög skömmum tíma LOÐNUFLOTINN heldur áfram að veiða vel. Skipin eru komin vestur að Ingólfshöfða og fylla sig að jafnaði á skömmum tima. Auk þeirra skipa, sem áður er getið, tilkynntu eftirtalin um afla á Reykjavík; Samið við Istak hf. um yfirstjórn við ráðhúsið Reykjavíkurborg hefur undirritað samning við Istak hf. um yfirstjórn verka og rekstur á vinnustað við áframhaldandi framkvæmdir við ráðhúsið. í frétt frá skrifstofu borgar- verkfræðings segir, að borgar- ráð hafi samþykkt tillögu verk- efnisstjómar um fyrirkomulag framkvæmda. Verkkaupinn kaupir beint og leggur til nokkra stóra efnisþætti en að öðru leyti er samið við Istak hf., sem aðalverktaka, en allir helstu verkþættir verða boðnir út til undirverktaka. Næstu verkþættir, raflagnir, pípulagn- ir loftræstikerfi og múrverk, verða allir boðnir út í lokuðum útboðum að loknu forvali. „Með þessu fyrirkomulagi fæst góð samfelldni í verkið og undir- verktakar geta byijað á sínum verkum á sama tíma og aðal- verktakinn lýkur við uppsteypu og önnur verk sem áður hefur verið samið um,“ segir í frétt- inni. mánudag: Kap II VE 700 tonn til Eyja, Guðmundur Ólafur ÓF 590 til Ólafsfjarðar, Húnaröst ÁR 780 til Siglufjarðar, Sunnuberg GK 640 til Grindavíkur, Grindvíkingur GK 1.000 til Seyðisfjarðar, Beitir NK 1.200 til Skotlands og Víkingur AK 1.350 til Akraness. Síðdegis á þriðjudag höfðu eftir- talin skip tilkynnt um afla: Gígja VE 740, Sighvatur Bjarnason VE 700 og Sigurður RE 1.400 til Eyja, Björg Jónsdóttir ÞH 540 til Nes- kaupstaðar, Hólmaborg SU 1.400 og Jón Kjartansson SU 1.100 til Eskifjarðar, Helga II RE 1.000, Albert GK 750, Huginn VE 580, Hilmir SU 1.300, Skarðsvík SH 630 ogPétur Jónsson RE 1.100, löndun- arstaður óákveðinn. Guðmundur VE og Bjarni Ólafsson AK á miðunum. Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson Bifreiðahlunnindi: Allt að 43 þús. krónur í staðgreiðslu á mánuði DYRASTI bíllinn í bifreiðaskrá sem ríkisskattstjóri gefúr út vegna skattmats bifreiðahlunninda er Mercedes Benz 500 SEL og talinn kosta 6,5 milljónir kr. Maður sem hefúr fúll og endurgjaldslaus afnot af þann- ig bíl hjá fyrirtæki þarf að reikna sér 1,3 milljónir kr. í tekjur á árinu vegna hlunnindanna og greiða tæplega 520 þúsund í staðgreiðslu þar af, eða yfir 43 þúsund á mánuði. Ríkisskattstjóri hefur gefið út 24 síðna leiðbeiningabækling fyrir launagreiðendur vegna mats á þess- um hlunnindum. I bæklingnum er skrá yfir flestar fólks-, skut- og jeppabifreiðir sem fluttar eru til landsins enda eru hlunnindin metin eftir verði bifreiðanna og aldri. Af bifreið sem tekin var í notkun á árunum 1988 og 1989, eða tekin verður í notkun í ár, skal meta hlunn- indi sem 20% af kostnaðarverði nýrr- ar samskonar bifreiðar. Af eldri bif- reið skal reikna til tekna 15% af þessu kostnaðarverði. Hlunnindin dreifast á tólf mánuði og á að draga ' staðgteiðsluna af þeim mánaðarlega. Greiði launamaður eldsneytiskostnað og smurningu bifreiðarinnar er hlunnindamatið lækkað um 4%, það er í 16% eða 11% eftir aldri bifreiðar- innar. Greiði hann einnig annan rekstrarkostnað má lækka hlunn- indamatið um fjárhæð þess kostnað- ar. Range Rover árgerð 1989 er í bif- reiðaskránni metinn á 3,1 milljón kr. Maður sem hefur full umráð og end- urgjaldslaus afnot af slíkri bifreið í eigu vinnuveitanda síns þarf að greiða staðgreiðslu af hlunnindum að fjárhæð 621 þúsund kr. á árinu, alls tæp 250 þúsund, eða rúmar 20 þúsund krónur á mánuði. BMW 535i árgerð 1990 er metinn á tæpar 4. milljónir kr. og hlunnindi til tekna eru því tæplega 800 þúsund á árinu. Af þessu þarf að greiða tæplega 317 þúsund í staðgreiðslu, eða rúm 26 þúsund á mánuði. Lada safír árgerð 1989 telst varla „forstjórabíll" en hún er metin á tæp 307 þúsund í bifreiðaskránni. Hlunn- indi af henni eru rúmlega 61 þúsund kr. og staðgreiðsla á árinu tæplega 25 þúsund, eða 2 þúsund kr. á mánuði. • • AF-NYSKOPUN ...önnurmeð hnausþykkum, hreinum jarðarberjasafa... ...ogsúþriðja með sex komtegundum og stœrðar ferskjubitum MKMJOLK SPÁNNÝR SPÓNAMATUR... Mildsýrð, hnausþykk, bragðljúf holl og nœringarrík mjólkurafurð með BIOgarde®gerlum sem öllum gera gott. Spcendu í þig eina! Ein er með stórum epla- og perubitum...

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.