Morgunblaðið - 07.02.1990, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.02.1990, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1990 Suður-Afríka: Stj órnin hyggst af- létta neyðarlögum Jóhannesarborg, Paarl. Reuter. ALLAN Boesak, prestur og blökkumannaleiðtogi í Suður- Afríku, ræddi í þijár stundir við Nelson Mandela, leiðtoga AJríska þjóðarráðsins (ANC), í fangelsi hins síðarnefnda í bænum Paarl, skammt frá Höfðaborg, í gær. Boesak sagðist telja að Mandela myndi ekki gera það að skilyrði fyrir því að yfirgefa fangelsið að neyðarlögum yrði aflétt í landinu. Haft hefur verið eftir eiginkonu blökkumannaleiðtog- ans, Winnie Mandela, að hann hafi sett slíkt skilyrði. Sljórnvöld í Suður-Afríku sögðust í gær ætla að aflétta neyðarlögunum, sem hafa verið í gildi í laudinu í þrjú ár, héti ANC því að hætta öllum skæruhernaði. Þau gáfu einnig tíl kynna að tll greina kæmi að afnema flokkun Suður- Afríkumanna eftir kynþáttum, en hún hefúr verið undirstaða að- skilnaðarstefiiunnar. James Baker kynnir að- stoð Bandaríkj astj ór nar Prag. Reuter. JAMES Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom til Prag, höfuðborgar Tékkóslóvakíu, í gær í opinbera heimsókn. Atti hann samdægurs fund með Vaclav Havel forseta en í dag, miðvikudag, ætlar hann að flytja ræðu um aðstoð Bandaríkjastjórnar við lýðræð- isþróunina í landinu. Baker sagði fundinn með Havel hafa verið sérlega gagnlegan en þeir ræddust við í 90 mínútur. Að sögn Bakers lagði Havel fram til- lögu sem kveður á um að allt her- lið Sovétmanna og Bandaríkjanna verði kallað heim frá Evrópu. Haft er eftir bandarískum emb- ættismönnum, að Baker muni í dag, miðvikudag, skýra frá hug- myndum Bandaríkjastjórnar um endurreisn tékknesks efnahagslífs og hvernig markaðskerfi og lýð- ræðislegir stjómarhættir verði festir í sessi. Frá Prag fer Baker til Moskvu þar sem hann mun eiga viðræður við ráðamenn um samein- ingu Þýskalands, þeirra fyrstu í áratugi. Er það haft fyrir satt, að Baker getist vel að hugmyndum Hans-Dietrichs Genschers, ut- anríkisráðherra Vestur-Þýska- lands, um að sameinað Þýskaland verði í Atlantshafsbandalaginu en hermönnum bandalagsins verði bannað að vera í austurhlutanum, jafnvel, að sovétstjórnin fái að hafa þar her áfram. Háttsettur maður í forystu ANC, Thabo Mbeki, sagði í Stokkhólmi í gær að eiginkona Mandela hefði vafalaust misskilið mann sinn er hún ræddi við hann á sunnudag. Boesak segir líklegt að Mandela verði látinn laus á föstudag eða laugardag. Helstu leiðtogar suður- afrískra blökkumanna hafa sagt að úmbætumar sem F.W. de Klerk, forseti landsins, kynnti á föstudag séu ekki nægjanlegar og krafist þess að Mandela verði sleppt úr fangelsi þegar í stað. Pik Botha, utanríkisráðherra landsins, sagði í gær að stjórnin væri reiðubúin að aflétta neyðarlög- unum ef Afríska þjóðarráðið afneit- aði vopnaðri baráttu. Stjórnin segir að neyðarlögin hafí verið sett til að kveða niður vopnaða andstöðu blökkumanna og Afríska þjóðarráð- ið hefur Iýst því yfir að það hygg- ist halda áfram skæruhernaði til Reuter Séra Allan Boesak, einn af frammámönnum réttindabaráttu blökkumanna, á blaðamanna- fundi þar sem hann skýrði frá viðræðum sinum við Nelson Mandela. að knýja á stjórnvöld um afnám aðskilnaðarstefnunnar. Gerrit Viljoen, sem fer með stjórnarskrármál í Suður-Afríku- stjórn, sagði í gær að stjórnin væri reiðubúin til viðræðna við andstæð- inga aðskilnaðarstefnunnar um lög frá árinu 1950, sem kveða á um að skrá beri alla íbúa Suður-Afríku eftir kynþætti við fæðingu. Þau lög eru undirstaða 40 ára lögbundinnar kynþáttamismununar í landinu. Vaelav Havel, forseti Tékkóslóvakíu, tók á móti James Baker, ut- ánríkisráðherra Bandaríkjanna, í gær. Tékkóslóvakía: Frelsisbarátta Polisario-hreyfíngarinnar í V-Sahara: Blóðbaðið óskaplegt o g fómimar takmarkalausar - segir Mohamed Sidati, utanríkisráð- herra Arabíska lýðveldisins í V-Sahara TÆP 15 ár eru nú liðin frá því að frelsissveitir Polisario-hreyfíng- arinnar tóku að beijast gegn hernámsliði Hassans Marokkó- konungs í Vestur-Sahara sem áður nefiidist Spænska-Sahara. Hassan ákvað að hernema svæðið er Spánveijar höfðu sig á brott en frá aldaöðli hefur fólk af Sahrawi-ættbálknum byggt þennan hluta eyðimerkurinnar. Stríð þetta hefur aldrei farið hátt í vest- rænum fjölmiðlum og hefur af þeim sökum oftlega verið neftit „stríðið gleymda". Sahrawi-fólkið stofnaði sjálfstætt ríki og nefn- ist það Arabíska lýðveldið í Vestur-Sahara (SADR). Á vegum Sameinuðu þjóðanna hefur á undanförnum árum verið unnið ötul- lega að því að koma á friði. Á síðasta ári náðust sættir um að fram færi þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíð þessa landsvæðis en stjórnvöld í Marokkó sviku gerða samninga um frekari viðræð- ur að sögn þeirra Mohameds Sidati, utanríkisráðherra Arabíska lýðveldisins og Lamine Baali, fulltrúa Polisario-hreyfingarinnar í Lundúnum. Þeir voru teknir tali í gær en hingað tií lands komu þeir til að skýra fúlltrúum íslenskra sfjórnvalda frá ástandinu í heimalandi þeirra og gangi friðarviðræðna. Morgunblaðið/Sverrir Lamine Baali, fúlltrúi Polisario-hreyfingarinnar í Lundúnum (t.v) og Mohamed Sidati, utanríkisráðherra Arabíska lýðveldisins í Vestur-Sahara ræða við fréttamenn í gær. Að sögn Mohameds Sidai lágu nokkrar ástæður að baki því að Hassan konungur ákvað að her- nema Vestur-Sahara. Raunar tóku Máritaníu-menn einnig þátt í hemáminu en þeir sömdu um frið við Polisario-hreyfínguna árið 1979 eftir að hafa farið mjög halloka í bardögum við frelsis- sveitimar. „í fyrsta lagi vildi Hassan konungur láta stórveldis- drauma sína rætast auk þess sem stjómvöld í Marokkó hafa löngum haft augastað á náttúruauðlindum þeim sem þarna er að finna. Í þriðja Iagi vildi Hassan draga úr spennunni heima fyrir og fá her- foringjum sínum ný verkefni en skömmu áður, 1971 og 1972, höfðu verið gerðar tilraunir til að steypa honum af stóli.“ segir Lamine Baali. Þúsundir manna hafa fallið „Stríð hefur kostað óskaplegar fómir. Það er tæpast til fjölskylda í Vestur-Sahara og í Marokkó sem ekki hefur þurft að færa fómir vegna hernámsins. Þúsundir manna hafa fallið,“ segir Moh- amed Sidati. Hann kveður baráttu Sahrawi-fólksins snúast um frelsi og sjálfsákvörðunarrétt þjóðar- innar. Stríðið hafi á hinn bóginn aldrei náð athygli fjölmiðla á Vesturlöndum vegna þess að það snúist ekki um baráttu risaveid- anna um skilgreind áhrifasvæði þeirra. Um 65.000 manns af Sahrawi- ættbálknum búa á þessu svæði. Tungumálið nefnist „Hassanie" og er að stofni til klassísk arabíska. Að auki tala flestir íbú- anna spænsku, sem er opinbert tungumál í Arabíska Iýðveldinu auk arabísku. Auk íbúanna dvelj- ast rúmlega 100.000 manns í flóttamannabúðum í nágrann- aríkjunum, flestir í Alsír en stjóm- völd þar í landi hafa stutt Polis- ario-hreyfinguna frá því hún var stofnuð 10. maí 1973. Um 160.000 hermenn frá Marokkó em á hernámssvæðinu auk þess sem um 130.000 innflytjendur frá Marokkó hafa sest þar að. Hernámið hófst raunar með því að Hassan konungur sendi þús- undir manna gangandi til Vestur- Sahara og nefndi það ferðalag „Grænu gönguna". Hermenn og sveitir lögreglu fylgdu í kjölfarið. Þáttaskil í deilunni Á síðasta ári urðu þáttaskil í deilu þessari er Hassan konungur samþykkti að eiga fund með her- foringjum Polisario og talsmönn- um Arabíska lýðveldisins og sam- komulag náðist um að þjóðarat- kvæðagreiðsla færi fram þar sem kannað væri hvort íbúamir vildu heyra undir ráðamenn í Marokkó eða stjómvöld í Arabíska lýðveld- inu. „Þessi fundur fór fram í byrj- un janúar og þá var ákveðið að efna til frekari viðræðna. Polis- ario-hreyfingin ákvað að sýna samningsvilja sinn með því að bjóðast til að sleppa 200 stríðsföngum en Hassan vildi ekki taka við þeim,“ segir Mohamed Sidati. „Hassan ákvað að hundsa allar frekari viðræður og þetta hefur leitt til þess að bardagarnir hafa harðnað á ný. Við höfum neyðst til að hleypa á ný fullum krafti í frelsisbaráttu okkar auk þes sem við höfum leitað eftir pólitískum stuðningi erlendis frá.“ Að sögn Lamine Baali snýst deilan einkum um ’ fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslunnar og þar ber mikið á milli. Liðsmenn Polisario krefjast þess að allt her- lið Marokkó verði kallað frá Vest- ur-Sahara og innflytjendumir fluttir á brott áður en atkvæða- greiðslan fer fram. Aðeins á þann hátt megi fá fram vilja Sahrawi- fólksins því að öðram kosti geti stjómvöld í Marokkó haft áhrif á úrslit kosninganna. Enn hefur ekkert komið fram sem bendir til þess að Hassan konungur geti fallist á þessa kröfu íbúanna þó svo vitað sé að stríðsreksturinn er að sliga efnahag Marokkó. Skuldasöfnunin erlendis hefur a.m.k. verið gríðarleg. Þá er enn- fremur deilt um hveijir skuli taka þátt í atvæðagreiðslunni en full- trúar Arabíska lýðveldisins hafa lagt til að stuðst verði við mann- tal sem Spánveijar létu gera árið 1974. Stjórnvöld í Marokkó telja á hinn bóginn að innflytjendur hafi ótvíræðan rétt til að taka þátt í kosningunum. Viðurkenning erlendis frá Rúmlega 70 ríki hafa nú viður- kennt Arabíska lýðveldið í Vest- ur-Sahara en íslendingar eru ekki á meðal þeirra þó svo þeir hafi ævinlega verið hliðhollir málstað Polisario-hreyfingarinnar hjá Sameinuðu þjóðunum, að sögn þeirra Mohameds Sidati og Lam- ine Baali. „Ég tel að íslendingar skilji málstað okkar því þjóðin þekkir sjálf hvernig það er að beijast fyrir frelsi og sjálfstæði. Aðstæðurnar eru ef til vill ekki jafnólíkar og virðast kann í fyrstu og við vonumst vitaskuid eftir því að íslendingar haldi áfram að sýna frelsisbaráttu okkar skiln- ing,“ segir Mohamed Sidati, ut- anríkisráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.