Morgunblaðið - 07.02.1990, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1990
25
Mývatnssveit:
Baldur Sig-
urðsson látinn
Frá afhendingu styrkja úr Rannsóknasjóði Krabbameinsfélagsins, talið írá vinstri Almar Grímsson formaður Krabbameinsfélags íslands,
Bjarni A. Agnarsson læknir, Helgi Tómasson tölfræðingur, Auðbjörg Helgadóttir sem tók við styrk fyrir hönd dóttur sinnar, Hildar Harðar-
dóttur læknis, Jóhannes Björnsson yfirlæknir og Davið Ólafeson formaður Visindaráðs Krabbámeinsfélagsins.
Styrkjum úthlutað úr Rannsóknasjóði
Krabbameinsfélagsins í annað sinn
Björk, Mývatnssveit.
NÝLÁTINN er Baldur Sigurðsson
í Reykjahlíð.. Hann var búinn að
dvelja um hríð á sjúkrahúsinu á
Húsavík og lést þar 29. janúar.
Baldur fæddist í Reykjahlíð 31.
júlí 1916. Foreldrar hans voru Sig-
urður Einarsson og Jónasína Jóns-
dóttir. Baldur stofnaði nýbýli á einum
þriðja hluta jarðarinnar, Reykjahlíð
II, árið 1962 ásamt eiginkonu sinni,
Helgu Finnsdóttir frá Jarðlangsstöð-
um í Mýrasýslu. Þau eignuðust tvo
syni, sem báðir hafa stofnað heimili
og eru búsettir í Reykjahlíð.
Baldur stundaði búskap um langt
skeið með bróður sínum Jóni Bjartm-
ari. Jafnframt vann hann allmikið
utan heimilis meðal annars hjá
Kísiliðjunni.
Útför Baldurs var gerð frá Reykja-
hliðarkirkju laugardaginn 3. febrúar
að viðstöddu fjölmenni.
Kristján
NÝLEGA var í annað sinn úthlutað styrkjum úr Rannsóknasjóði
Krabbameinsfélagsins, sem stoftiaður var í framhaldi af Þjóðarátaki
gegn krabbameini 1986, en hlutverk sjóðsins er að efla rannsóknir
á krabbameini. Vísindaráð Krabbameinsfélagsins fjallaði um umsókn-
irnar og gerði tillögu um afgreiðslu þeirra sem framkvæmdastjórn
Krabbameinsfélagsins samþykkti.
Þeir sem hlutu styrk úr sjóðnum
að þessu sinni voru: Helgi Tómas-
son, til rannsókna á sambandi notk-
unar getnaðarvarnarpillu og
krabbameins í brjósti. Hildur Harð-
ardóttir, til rannsókna á nýju ein-
stofna mótefni gegn krabbameins-
frumum upprunnum frá eggja-
! : i
■ FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM
6. febrúar.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 93,00 92,00 92,34 5,470 505.112
Þorskur(óst) 89,00 81,00 86,92 7,242 629.475
Þorskur(dbt) 85,00 50,00 70,96 3,239 229.854
Þorskur(smár) 66,00 66,00 66,00 0,246 16.236
Blandað 29,00 29,00 29,00 0,012 334
Ýsa 100,00 91,00 96,80 0,930 90.025
Ýsa(óst) 95,00 85,00 89,37 5,297 473.405
Karfi 20,00 20,00 20,00 0,007 130
Undirm. (ósl.) 56,00 56,00 56,00 0,263 14.728
Steinbítur 63,00 62,00 62,13 2,331 144.799
Steinbítur(óst) 70,00 62,00 65,47 0,667 43.666
Langa 55,00 55,00 55,00 0,044 2.393
Lúða 400,00 275,00 387,50 0,020 7.750
Keila(ósl.) 39,00 39,00 39,00 0,145 5.655
Keila 39,00 39,00 39,00 0,437 17.024
Rauðm. og grásl. 20,00 20,00 20,00 0,011 210
Samtals 82,74 26,358 2.180.796
í dag verður seldur karfi úr Oddeyrinni EA, 25 tonn, og bátafiskur.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur(st) 101,00 92,00 97,93 10,386 1.017.072
Þorskur(sl.dbt) 68,00 68,00 68.00 0,215 14.620
Þorskur(óst) 89,00 68,00 84,23 15,238 1.283.490
Ýsa (sl.) 109,00 70,00 103,34 3,129 323.352
Ýsa (sl. 1-2n.) 80,00 80,00 80,00 0,169 13.520
Ýsa (ósl.) 98,00 61,00 86,04 5,894 507.106
Undirmál 49,00 35,00 46,16 1,884 88.957
Ufsi 56,00 49,00 55,28 16,790 928.108
Blandað 20,00 20,00 20,00 0,010 200
Karfi 40,00 40,00 40,00 0,141 5.640
Steinbítur(óst) 67,00 67,00 67,00 0,922 61.774
Steinbíturog hlýri 75,00 63,00 67,38 1,054 71.022
Rauðmagi 140,00 140,00 140,00 0,043 6.020
Langa 63,00 56,00 58,87 6,913 407.008
Lúða (smá) 280,00 250,00 259,49 0,099 25.690
Keila(óft) 24,00 24,00 24,00 0,860 20.640
Keila (ósl.) 33,00 33,00 33,00 0,653 21.549
Hrogn 59,00 59,00 59,00 0,093 5.487
Samtals 74,41 64,493 4.799.255
í dag verður meðal annars selt úr Jóni Vídalín.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 101,00 66,00 85,26 56,333 4.802.760
Þorskur(2 n.) 63,00 63,00 63,00 1,166 73.458
Þorskur (3 n.) 65,00 65,00 65,00 4,000 260.000
Ýsa 100,00 50,00 84,73 11,179 947.166
Ýsa 79,00 79,00 79,00 0,067 5.293
Karfi 44,00 43,00 43,89 1,878 82.418
Steinbítur 61,00 47,00 55,33 3,256 180.154
Blálanga 66,00 66,00 66,00 3,361 221.851
Langa 56,00 46,00 54,94 1,015 55.769
Lúða 370,00 265,00 310,30 0,231 71.523
Skarkoli 63,00 59,00 61,47 0,081 4.979
Skarkoli 48,00 48,00 48,00 0,096 4.608
Karfi 50,00 45,00 48,43 99,120 4.800.686
Keila 33,00 19,00 31,98 1,164 37.229
Ufsi 44,00 39,00 42,89 0,452 19.388
Ufsi 38,00 38,00 38,00 0,350 13.300 .
Blandað 10,00 1Q.00 10,00 0,057 570
Hlýri 61,00 61,00 61,00 0,050 3.050
Lýsa 31,00 31,00 31,00 0,008 248
Undirmál 53,00 53,00 53,00 0,375 19.864
Rauömagi 86,00 86,00 86,00 0,024 2.064
Skata 60,00 60,00 60,00 0,020 1.200
Rauðmagi 40,00 40,00 40,00 • 0,040 1.600
Samtals 62,98 184,323 11.609.178
| í dag verður selt úr dagróðrabátum.
stokkum. Jóhannes Björnsson, til
rannsókna á lífhegðun, vefjaaf-
brigðum, ónæmisvefjafræði og
kjarnsýrueiginleikum btjósksark-
meina. Kristrún Benediktsdóttir,
Bjarni A. Agnarsson, Guðjón Bald-
ursson og Jón Hrafnkelsson, til
rannsókna á sarkmeinum í mjúk-
vefjum á íslandi.
Samanlögð upphæð styrkjanna
var 1.450 þúsund krónur. Tekjur
sínar hefur sjóðurinn einkum af
húsaleigu á jarðhæð Skógarhlíðar
8 auk vaxta af stofnfé.
Leiðrétting
Þau mistök urðu í frásögn af
ófærð á Vestfjöðrum á bls. 12 í
blaðinu í gær að sagt var að mynd
sem sýndi jéppa aka í gegnum há
snjógöng væri tekin í Bolungarvík.
Hið rétta er að myndin var tekin í
Súðavík og var það Haildór Jónsson
fréttaritari Morgunblaðsins sem tók
myndina.
Þröstur Þórhallsson skák-
meistari Reykjavíkur
SKAK
Karl Þorsteins
Þröstur Þórhallsson er skák-
meistari Reykjavíkur. Hann bar
sigur úr býtum í viðureign gegn
Steffen Lamm í síðustu umferð
mótsins eftir að skákin hafði farið
í bið og tryggði sér þar með sigur
á mótinu. Þröstur hlaut 10 vinn-
inga á Skákþinginu, leyfði aðeins
tvö jafntefli en lagði aðra and-
stæðinga að velli. Fast á hæla
hans fylgdi Hannes Hlífar Stef-
ánsson með 9'Avinning.
Baráttan um sigurlaunin á
mótinu var eingöngu á milli Þrast-
ar og Hannesar síðari hluta móts-
ins. Hannes hafði lengst af betur
en óvænt tap í næstsíðustu um-
ferð færði Þresti tækifæri sem
hann lét ekki úr greipum renna.
Þröstur og raunar þeir félagar
báðir hafa verið atkvæðamiklir á
mótum Taflfélags Reykjavíkur
undanfarin ár og verið einkar
fengsælir í baráttunni við skák-
borðið.
1. Þröstur Þórhallsson
10 vinningar af 11 mögulegum
9 '/a
8'A
8
8
8
7'A
7'A
7'A
7‘A
með ágætum. Var í hópi efstu
manna framan af mótinu en
hægði á sér undir lokin og hlaut
7 vinninga. Mikið efni hér á ferð.
2. Hannes H. Stefánsson
3. Þröstur Árnason
4. -6. Steffen Lamm
Lárus Jóhannesson
Dan Hansson
7.-10. Ingi Fjalar Magnússon
Pálmi R. Pétursson
Þór Örn Jónsson
Magnús Örn Úlfarsson
Mótið fór vel fram í alla staði.
Það var haldið í Félagsheimili
Taflfélags Reykjavíkur að Faxa-
feni 12 og ágætlega fór um hina
106 keppendur í opna flokknum.
Eina umkvörtunarefnið sem ' til
má nefna beinist að hversu hljóð-
bært er í húsinu. Úrbóta er þörf
á því sviði fyrir skákhátíðina í
næsta mánuði þegar flestir af
sterkustu skákmönnum heims
verða samankomnir í Faxafeni. í
unglingaflokki skákaði Helgi Áss
Grétarsson andstæðingum sínum
ærlega. Sigraði með yfirburðum,
vann allar skákir sínar og hlaut
9 vinninga. Helgi Áss tefldi að
auki í opna flokknum og stóð sig
Hvítt: Árni Á. Árnason
Svart: Héðinn Steingrímsson
Hér gefur að líta biðstöðu úr
10. umferð. Árni hafði tögl og
hagldir framan af viðureigninni
gegn hinum unga og efnilega
skákmanni. í dirfskulegri vinn-
ingstilraun skömmu áður en skák-
in fór í bið lagði Árni í gáleysis-
legt flakk með hvíta kónginn á
drottningarvæng til stuðnings
frípeðinu á b-línunni. Ef hvíti
kóngurinn væri staðsettur á e2
væri staðan jafntefli án nokkurra
vandkvæða, jafnvel án b-peðsins.
Á c3 stendur hvíti kóngurinn hins
vegar of íjarri peðunum á kóngs-
væng. Með snjallri taflmennsku í
áframhaldinu knúði Héðinn fram
vinning.
42. - Kg4!, 43. He8
Eini leikurinn. Eftir 43. Kd4
Kf3, 44. Kc5 Hbl, 45. Kc6 Kxf2,
46. Hf8 f5!, 47. b8D Hxb8, 48.
Hxb8 e3 eru svörtu peðin ofjarl
hróksins.
43. - Hxb7, 44. Hxe4+ - Kf3
44. - Kh3, 45. Hf4 f5, 46.
Ha4! var annar möguleiki. Hvitum
er lífsnauðsyn að hafa hrókinn
virkan, og hefur dálagleg færi til
jafnteflis vð slík skilyrði. 45. He2?
Kg2, 46. Kd3 Kf3 væri af þeim
ástæðum vonlaust.
45. Hf4+ - Kg2, 46. Hf6
Svartur hótaði einfaldlega að
leika 46. - f5!. Eftir 46. Kd4
f5!, 47. Ke5 Hb6! væri taflið tap-
Þröstur Þórhallsson
að. Meginafbrigðið er þá 48. Kd5
Hb2, 49. Ke5 Hxf2, 50. Kf6 Hxf4,
51. gxf4 Kg3, 52. Kxg6 Kg4! og
svartur vinnur. 46. g4 myndi engu
bjarga. Eftir 46. — hxg4, 47.
Hxg4 Kxf2 hindrar ólánleg stað-
setning hvíta kóngsins frekari
mótspyrnu.
46. - Hd7!, 47. Kc2 - Hd5!
Vinningsleikurinn. Svartur læt-
ur peð af hendi um stundarsakir.
Ef grannt er skoðað kemur í ljós
að kaupin eru ekki einhliða enda
eru hvítu peðin dæmd til að falla
sökum þess að hvítur má undir
engum kringumstæðum leyfa hró-
kauppskipti.
48. Hxf7 - Hf5, 49. Ha7 -
Hxf2+, 50. Kdl - Hf6!
Alls ekki 50. - Kxg3?, 51. Ha6
Kxh4, 52. Hxg6 og staðan er
fræðilegt jafntefli. Nú væri 51.
Ha3 svarað með 51. — Hf3, 52.
Ha2+ Kh3. Hvítu peðin á g3 og
h4 eru dæmd til að falla og svarta
staðan er auðunnin.
51. g4 - hxg4, 52. Hh7 -
g3, 53. h5 - gxhð, 54. Hxh5 -
Kfl, 55. He5 - g2, 56. Hel+ -
Kf2, 57. He2+ - Kg3, 58. He3+
- Hf3, 59. Hel - Hfl, 60. Ke2
— Hxel, 61. Kxel og hvítur gafst
upp.