Morgunblaðið - 07.02.1990, Page 35

Morgunblaðið - 07.02.1990, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1990 35 * _____ __ Olafíir B. Barkar- son - Kveðjuorð Fæddur 12. ágúst 1972 Dáinn 13. janúar 1990 Það er sárt að hugsa til þess að vinur okkar, Ólfur Börkur Barkar- son sé horfinn fyrir fullt og allt. Óli Börkur, eins og við kölluðum hann, var uppeldisbróðir okkar hjá þeim góðu hjónum Drífu Kristjáns- dóttur og Ólafi Einarssyni á Torfa- stöðum, þar sem gleði og grátur tengdi okkur óijúfanlegum böndum og er sársaukafullt að hugsa til þess að Óli sé horfinn að eilífu. Það er varla hægt að hugsa sér Torfastaði án þess að hann skjóti upp kollinum, því þar leið honum vel eins og okkur innan um hreina náttúruna og dýrin sem gerðu hon- um auðveldara að sættast við sjálf- an sig. Þar sáum við hans bestu hliðar sem svo sannarlega voru margar og góðar og erum við þakk- lát fyrir að hafa kynnst honum svo vel sem raun bar vitni. En upp úr mun þó standa minningin um glað- væran og traustan vin sem ávallt á hólf í hjörtum okkar. „Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur“ er málsháttur sem á vel við á þessari stundu því hann var okk- ur kær. „Kveðjustundin brennir mig eins og logi um nótt, en að vera kyrr er að fijósa fastur, verða lík af ljósi og bundinn duftinu. Feginn vildi ég taka með mér allt sem hér er, en það get ég ekki.“ (Úr Spámanninum) Bjarni Þórðarson frá Flateyri - Minning Við viljum votta foreldrum, systkinum og ættingjum hans, okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Jean Adele og Kristinn Bjarni. Karitas E. Guðmunds- dóttir - Minning Fædd 5. mars 1897 Dáin 22. janúar 1990 Kara, eins og hún oft var nefnd, fæddist að Finnbogastöðum í Tré- kyllisvík. Ein af sex bömum þeirra Þuríðar Eiríksdóttur og Guðmundar Guðmundssonar bónda og útgerð- armanns. Kara minntist bernskuár- anna ætíð með gleði, þaðan átti hún sínar fegurstu minningar. Um tvítugt fór hún til Reykjavíkur að afla sér menntunar, hún nam við Kvennaskólann og að loknu námi hvarf hún aftur heim til æskustöðv- anna, um tíma tók hún að sér ráðs- konustarf hjá bróður sínum, Þór- ami, að Gunnarsholti á Rangárvöll- um. Þaðan flyst hún til Akureyrar þar sem hún fékk atvinnu á sauma- stofu og heimili hjá systur sinni, Guðrúnu, Melstað, og manni henn- ar, Eggert Melstað. Eg sem þetta rita kynntist Köru þegar ég ellefu ára gömul kem fyrst í Oddagötu 3, á heimili þeirra frænda míns og Guðrúnar þar sem mér var tekið af mikilli ástúð af þeim hjónum. Ég man það glöggt, hve faðmlagið var hlýtt er ég fékk hjá þessari spengilegu og hressu konu og þau ár er ég fékk að njóta samvista við Köru urðu mér lær- dómsrík. Drengskapur hennar, hreinlyndi ásamt óþrjótandi um- hyggju, verkuðu vel á ómótaða barnssál, og með hveiju árinu er leið átti Kará stærra og stærra pláss í hjarta mínu og á ég henni mikið að þakka. Kara var stórbrotin kona, hún var fjölhæf og stórvirk sama að hveiju hún gekk. Eftir langan vinnudag á verkstæðinu tók hún ætíð að vinna við sitthvað sem beið hennar heima fyrir. Það voru marg- ir vinimir er nutu aðstoðar hennar, ávallt var hún tilbúin að hjálpa og mörg flíkin varð til í höndum henn- Leiðrétting í fyrirsögn á kveðjuorðum hér í blaðinu í gær, þriðjudag, varð mis- ritun. Greinin er um Petreu Krist- ine Guðlaugsson, en í fyrirsögn stendur Guðlaugsdóttir. Beðist er velvirðingar á misrituninni um leið og hún er leiðrétt. VINKLAR Á TRÉ ar, fyrir utan allt sem hún heklaði. Allt gaf Kara frá sér, hún safnaði ekki þessa heims auði. Umhyggja Köru fyrir bemsku- heimilinu að Finnbogastöðum var til fyrirmyndar. Þegar voraði tók Kara fram ferðatöskuna og pantaði far með strandferðaskipinu. Sumar- fríinu eyddi hún í sveitinni sinni við Trékyllisvík og gekk að hveiju því verki er vinna þurfti af mikilli elju, það var líkt og hún tvíefldist við að koma heim. Hún stóð við slátt, ef þess gerðist þörf og veittist henni það leikur einn. Kraftar hennar virt- ust óþijótandi og aldrei sáust á henni þreytumerki, ætíð tilbúin að takast á við verkefnin hver sem þau voru. Kara giftist aldrei, bjó alla tíð hjá systur sinni og naut umhyggju hennar og bama hennar, þegar hún eltist voru það barnabörnin sem hún helgaði krafta sína. Nú hefur hún dvalið á elliheimilinu Seli um nokk- urra ára skeið. Þar var annast um hana eins og best var á kosið. Og nú er starfi hennar lokið, það er stórkostlegt að hafa fengið að njóta samvista svo elskulegrar konu sem Kara var. Að morgni 24. janúar kvaddi elsku afi minn, Bjarni Þórðarson frá Flat- eyri við Önundarfjörð, eftir erfiðar vikur, sæll að fá að kveðja, og sáttur við Guð og menn. Stuttu fyrir jólin léit ég við hjá honum og var hann þá nokkuð hress og sagði við mig: Jæja, ég er búinn að sjá ljósið og húsaskipan þarna hinumegin og tilbúinn að fara, og þar fæ ég nóg að gera. Svona var afi, að hafa nóg að gera var hans aðal einkenni í lífinu og að hugsa um að amma hefði það sem best, enda hans síðasta verk að flytja hana Guju sína á Hlíf, þar gæti hún haft það gott þegar hann væri farinn. Alla daga stóð afi við bekkinn í kjall- aranum sínum á kambinum á Flat- eyri og eftir veikindin í fyrrahaust komst hann aftur niður og þegar maður spurði hvort hann væri alltaf að vinna var svarið, það er nú Iítið. Hann stóð frá 9 til 19 alla daga en tók frí á sunnudögum. Alltaf kátur, ekki að æðrast, því sem var skeð breytti enginn og ekki um annað en halda ótrauður áfram. Fyrir nokkrum dögum segir hann við mig hvort við getum ekki tekið bátinn inn að Að- gerðareyri. Þá hefur hugurinn verið kominn á æskustöðvarnar í djúpinu að Kleifakoti í Mjóafírði þar sem hann var tílj.7 ára aldurs, þaðan fer hann til Bolungarvíkur og síðan til Flateyrar 1924. Þar var hann í rúm 65 ár eða þar til í september síðast- liðnum. Nú er þraut á enda og hann fijáls til ferðar inn í ljósið og nýjan heim og getur tekið til starfa á ný. Amma mín, guð styrki þig þegar afi er farinn. Eg veit hann þakkar allar stundirnar sem hann hefur átt með þér og sérstaklega í veikindum sínum. Minningin um góðan mann lifír. Elsku afa þakka ég fyrir að hafa átt hann að og færi honum þakkir fyrir allt. G.G. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, NARFI ÞÓRÐARSON húsasmíðameistari, Nýlendugötu 23, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 8. febrúar kl. 15. Siguriaug Jónsdóttir, Guðrún Erna Narfadóttir, Jón Sturla Ásmundsson og barnabörn. t Ég veit að ég tala fyrir munn allra er nutu umhyggju hennar og þeir voru margir. Sérstaklega þakka ég ástúð hennar við dóttur mína sem dvaldi á Finnbogastöðum nokkur sumur og alla okkar fjöi- skyldu. Við minnumst Köru öll með virð- ingu og þakklátum hug. Hún mun eiga góða heimkomu. Systrum hennar og öðrum ást- vinum sendi ég samúðarkveðju. Margrét Ingunn Ólafsdóttir Sambýliskona mín, móðir okkar og systir, ANNA SKÚLADÓTTIR, Hafnargötu 6a, Keflavfk, sem lést 1. febrúar, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstu- daginn 9. febrúar kl. 14.00. Kristinn Óskarsson, Sherry Inga Halterman, Margrét Kristín Halterman og systkini hinnar látnu. Danmarks ambassade er lukket i dag, onsdag den 7. februar, i anledning af Danmarks ambassa- dörs bisættelse. Danska sendiráðið er lokað í dag, miðvikudaginn 7. febrúar, vegna útfarar sendiherra Danmerkur. Þ.ÞQR6RÍMSS0N&C0 ARMJLA29, SiMI 38640 Heimilistækin frá eru sannkallaðir dýrgripir sem endast milli kynslóða K JÚHANN ÓLAFSSON & CO. HF. 43 Sundaborg 13 -104 Reykjavík - Sími 688588

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.