Morgunblaðið - 07.02.1990, Síða 44

Morgunblaðið - 07.02.1990, Síða 44
Tillögnr um 1200 milljóna niðurskurð ríkisútgjalda: Framlög tíl vegamála minnkí um nálægt 400 milljónir króna Ráðherrar sem ekki vilja skera niður útgjöld verða að segja af sér, segir Karl Steinar Islenskt ákavíti & hverfiir af markaði Ekki útilokað að eitthvað af léttvín- um verði selt á niðursettu verði ÁFENGIS- og tóbaksvershin ríkisins hefiir ákveðið að hætta skráningn fjölmargra áfengis- tegunda í aðalsöluskrá þegar núverandi birgðir þijóta. Að sögn Höskuldar Jónssonar, for- stjóra ÁTVR, er þetta gert vegna þess að mikill samdráttur hefur orðið í sölu á víni og sterk- um drykkjum eftir að sala á bjór var leyfð. Meðal þeirra teg- unda sem hverfa af söluskrá eru hvannarótarbrennivín og ákavíti, sem hætt var að fram- leiða fyrir nokkrum árum. Höskuldur sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að 52 flöskur af ákavíti væru til á lager, en hins vegar væru til um 6 þúsund flösk- ur af gömlu ákavíti. Hann sagði að íslenskt ákavíti hefði ekki verið framleitt lengi, þar sem fram- leiðsla þess hefði ekki þótt hafa neinn grundvöll vegna minnkandi eftirspurnar. Þá hefði hvannarót- arbrennivín heldur ekki verið framleitt um nokkurt skeið, en ekki væri endanlega ákveðið hvort því yrði endanlega hætt. Meðal annars verður skráningu 16 rauðvínstegunda hætt hjá ÁTVR, 23 hvítvínstegunda og 12 viskítegunda, en alls verður skrán- ingu um 90 tegunda hætt. Hösk- uldur sagði að ekki væri útilokað að eitthvað af léttvínstegundunum yrði selt á niðursettu verði ef reynslan yrði sú að lítið gengi á birgðirnar. ÓLAFUR Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra kynnti á ríkisstjórn- arfúndi í gærmorgun tillögur sínar um niðurskurð á ríkisút- gjöldum, til þess að mæta auknum útgjöldum úr rikissjóði vegna ný- gerðra kjarasamninga. Ákveðið var á fundinum að fara leynt með tillögur fjármálaráðherrans um sinn, enda mikill ágreiningur um þær innan ríkisstjórnarinnar, samkvæmt heimildum blaðsins. Tillaga ráðherrans um 400 millj- óna króna niðurskurð á framlög- um til vegamála mun hafa mætt mikilli andspyrnu hjá flokksbróð- ur fjármálaráðherra, Steingrími J. Sigfússyni samgönguráðherra. Fjármálaráðherra gerði tillögur um samtals 1.200 milljóna króna niðurskurð í fjölmörgum liðum. Talið er að nýgerðir kjarasamningar hafi í för með sér um 890 milljóna króna útgjaldaauka fyrir ríkissjóð, en heim- ildir úr ríkisstjórn herma að fjármála- ráðherrann vilji hafa vaðið fyrir neð- an sig og ákveða niðurskurð sem sé liðlega 300 milljón krónum meiri en útgjaldaaukinn verður af kjarasamn- ingunum. Ekki eru gerðar tillögur um niðurskurð á lánsfjáröflun í þess- um tillögum, heldur einungis hróflað við framkvæmda- og rekstrarliðum. Þannig mun framlag til endurreisnar Bessastaðastofu verða eitthvað skert og einnig fleiri framkvæmdaliðir. Ríkisstjórnin stefnir að því að ná samkomulagi um þessar tillögur og viðræður verða innan og milli fag- ráðuneytanna næstu daga um þær. Þá verða þær kynntar fjárveitinga- nefnd, en ekki verður strax fjallað um þær innan þingflokka stjómar- flokkanna. Búist er við að tillögur fjármálaráðherrans verði aftur til umfjöllunar á ríkisstjórnarfundi , á föstudaginn. Umræður voru í gær og í gær- kvöldi í sameinuðu Alþingi um ný- gerða kjarasamninga. Stjórnarand- staðan gagnrýndi að við umræðurnar kæmi ekkert fram með hvaða hætti ríkisstjómin hyggðist skera niður ríkisútgjöld og ná fram lækkun fram- fræsluvísitölunnar. Þorsteinn Páls- son fomiaður Sjálfstæðisflokksins sagði að aðilar vinnumarkaðarins hefðu átt kröfu á svöram en ekki fengið og fyrir Alþingi lægju frum- vörp um hækkun skatta og nýja skatta, sem enn ætti eftir að af- greiða. Karl Steinar Guðnason þingmaður Alþýðuflokksins sagði að það kæmi á óvart að heyra ráðherra segja að ekki megi skera niður hjá þeim. Karl Steinar sagði að þetta væra nötulegar yfirlýsingar. Þeir ráðherr- ar sem ekki vildu taka þátt í því að skera niður útgjöld yrðu að segja af sér. Sjá nánar á þingsíðu bls. 27. Jökull á Höfii samþykkir samningana NÝGERÐIR kjarasamningar Al- þýðusambands íslands og vinnu- veitenda voru samþykktir í verkalýðsfélaginu Jökli á Höfn í Hornafírði í gærkveldi. 35 greiddu atkvæði með samn- ingunum, 5 voru á móti og einn seðill var auður. Jökull er fjórða verkalýðsfélagið sem samþykkir samningana. Eftirlit með sjón sykursjúkra: Arangur Islendinga vekur athygli á erlendum vettvangi Bandarískir augnlæknar vilja koma á sams konar eftirliti SAMTÖK augnlækna í Bandaríkjunum hafa sett sér það mark- mið að koma upp sams konar eftirliti með insúlin-háðum sykur- sjúklingum og rekið hefur verið hér á landi frá því sykursýkis- deild augndeildar Landakotsspítala tók til starfa árið 1980. Kem- ur þetta fram í viðtali Morgunblaðins í dag við þá Einar Stefáns- son, yfirlækni augndeildarinnar og prófessor í augnlæknum við HÍ og Friðbert Jónasson, yfirlækni göngudeildar augndeildarinn- ar. Sykursýkisskemmdir í augn- botnum eru nú algengasta orsök blindu hjá fólki á aldrinum 24 til 64 ára í Bandaríkjunum. Banda- rísku augnlæknarnir telja mjög brýnt að koma á bættu eftirliti ekki síst í ljósi þess að sjúk- dómurinn gerir fólk á besta aldri óstarfhæft þannig að tap þjóð- félagsins er mikið. Vonast þeir til að árið 2000 hafi þeim tekist að koma upp sambærilegu eftirliti með sykursjúkum og rekið hefur verið á íslandi í tíu ár. Eftirlit með sykursjúkum hér á landi þykir hafa tekist sérlega vel m.a. vegna þessa fyrirkomulags. Þá hafa einnig unnist merkir sigr- ar í baráttunni gegn glákublindu sem var algengasta orsök alvar- legrar sjóndepru á íslandi allt fram undir 1950. Að sögn þeirra Einars og Frið- berts er ellihrörnun í augnbotnum nú helsta orsök blindu á íslandi en þetta er sjúkdómur sem leggst á aldrað fólk. Meðferðarmöguleik- ar eru takmarkaðir og telja íslenskir augnlæknar brýnt að hafnar verði rannsóknir á þessum sjúkdómi. Vonast. þeir til að nýtt og endurbætt húsnæði göngu- deildarinnar, sem tekið var í notk- un í síðustu viku, geti orðið til þess að auka rannsóknir og efla forvarnarstarf hér á landi. Sjá viðtal á miðopnu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.