Morgunblaðið - 21.02.1990, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1990
Arnarflug;
Fimm hluthafar o g
stjórnarmenn kaupa
Arnarflug innanlands
FIMM hluthafar og stjórnar-
menn í Arnarflugi hf. hafa keypt
Arnarflug innanlands hf. Stefht
er að því að auka hlutafé félags-
ins og að starfsfólk, einstakling-
ar og fyrirtæki komi inn sem
viðbótarhluthafar.
Þeir Hörður Einarsson, stjómar-
formaður Amarflugs og fram-
kvæmdastjóri Fijálsrar fjölmiðlun-
ar hf., Sveinn R. Eyjólfsson, stjóm-
arformaður Fijálsrar fjölmiðiunar,
Jóhann G. Bergþórsson, forstjóri
Hagvirkis hf., Gísli Friðjónsson hjá
Hagvirki hf. og Óttar Yngvason
hjá íslensku útflutningsmiðstöðinni
hf. keyptu Amarflug innanlands
hf. í síðustu viku.
Jóhann Bergþórsson sagði við
Morgunblaðið, að þessi kaup væru
liður í að styrkja Amarflug hf.
Jóhann vildi ekki gefa upp kaup-
verðið, en samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins var það rúmar 20
milljónir. Nafnverð hlutafjár Arn-
arflugs innanlands er 9,9 milljónir
króna.
Ekki hefur enn fengist niður-
staða í tilraunum' forráðamanna
Arnarflugs hf. til að finna lausn á
fjárhagsvanda félagsins. Magnús
Bjamason, aðstoðarframkvæmda-
stjóri Amarflugs, sagði við Morg-
unblaðið að ýmsir möguleikar væru
skoðaðir í því sambandi, þar á
meðal að erlendir aðilar kæmu inn
með hlutafé.
Morgunblaðinu er kunnugt um
að Svavar Egilsson, aðaleigandi
Ferðamiðstöðvarinnar Veraldar,
hefur undanfarið átt í viðræðum
um kaup á Amarflugi.
Aðalfundur Arnarflugs innan-
lands hf. fyrir árið 1988 verður
næstkomandi laugardag og fyrir
þann tíma er stefnt að því að fá
inn fieiri hluthafa. Starfsfólk fé-
BSRB-samningar:
Allir sam-
þykktu nema
Seifyssingar
ÖLL aðildarfélög BSRB hafo nú
greitt atkvæði um kjarasamninga.
Samningarnir voru samþykktir
alls staðar nema á Selfossi.
Félög ríkisstarfsmanna, níu að
tölu, samþykktu samningana í alls-
heijaratkvæðagreiðslum. Samning-
arnir nutu mestrar hylli hjá flug-
málastarfsmönnum, tæp 80% þeirra
samþykktu þá. Minnsta fylgið við
kjarasamningana, þegar miðað er
við starfsmannafélög ríkisins, var
meðal lögreglumanna, eða 59%.
Starfsmenn 24 bæja, allra nema
Selfoss, samþykktu samningana.
Þar féllu atkvæði þannig að 89,5%
voru á móti en tæp 8% með. Fund-
inn sóttu 42,2% félagsmanna. Sex
blönduð félög, þar sem m.a. eru ljós-
mæður og fóstrur, hafa einnig sam-
þykkt samningana.
Borgarráð:
Dekk verða
þvegin á ný
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt að taka upp á ný tjöru-
þvott á dekkjum.
Á fundi borgarráðs í gær
kom fram tillaga frá Siguijóni
Péturssyni, Alþýðubandalagi,
um að embætti gatnamála-
stjóra yrði falið að taka upp á
ný dekkjaþvott á bílum með
sama hætti og gert var í fyrra-
vetur og var tillagan samþykkt.-
lagsins hefur verið í viðræðum um
að koma inn með viðbótarhlutafé
og einnig fyrirtæki og einstakling-
ar. Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins íhugar OLÍS hf. m.a.
að koma inn með hlutafé.
í stjórn Amarflugs innanlands
hf. eru Jóhann Bergþórsson, Krist-
inn Sigtryggsson, framkvæmda-
stjóri Arnarflugs, og Magnús Odds-
son, svæðisstjóri Arnarflugs.
Norðurlandaráðsþing undirbúið:
Prentsmiðju komið
fyrir í Háskólabíói
Einni nýbyggingunni breytt í 10
skrifstofur fyrir 140 starfsmenn
ÞING Norðurlandaráðs verður sett í Reykjavík næstkomandi þriðju-
dag 27. febrúar. Um 700 erlendir gestir eru væntanlegir hingað
vegna þingsins. Að auki munu um 150 íslendingar sækja það, þaiin-
ig að alls verða um 850 manns á einn eða annan hátt starfandi við
þinghaldið. Þingmenn og ráðherrar Norðurlandanna, hinir eiginlegu
þingfulltrúar, verða 160 talsins. Mikil undirbúningsvinna hefur farið
fram vegna þingsins, að sögn Snjólaugar Ólafsdóttur á skrifstofu
Norðurlandaráðs, og mun til dæmis Háskólabíó, sem verður þingstað-
urinn, taka miklum stakkaskiptum á meðan. Þar verður meðai ann-
ars komið upp 10 skrifstofum fyrir 140 manna starfslið og prent-
smiðju til að prenta um 300 þúsund síður af þingskjölum og gögn-
um. Undirbúningsfiindir þingsins verða á mánudag og þinginu lýkur
föstudaginn 2. mars.
Aðalsal Háskólabíós verður
breytt þannig að á aðra hveija
sætaröð í hluta salarins verða sett
borð og hafa þau þegar verið
smíðuð. 160 sæti verða með borðum
fyrir framan. Að auki er þriðja hvert
sæti tekið upp til þess að hægt sé
að ganga á milli raða.
Nokkur samskiptakerfi verða
sett upp. Atkvæðagreiðslukerfi
verður tekið á leigu frá útlöndum,
einnig tveggja rása talkerfi fyrir
túlka. Sérstakt símakerfi verður
sett upp, 25 beinar línur verða þar,
skiptiborð með 40 línum og telefax.
Fjórir sjónvarpsskjáir verða settir
upp til að hægt verði utan aðalsalar
að fylgjast með umræðum.
Þeim hluta nýbygingar Háskóla-
bíós, sem Landsbankinn á að fá,
er verið að breyta í skrifstofusvæði
og verður því rými skipt með laus-
um veggjum, sem verða teknir nið-
ur að þinginu loknu. Þama þarf að
koma fyrir borðum, stólum, lömp-
erlendu gestirnir gista á hótelum í
Reykjavík.
Snjólaug Ólafsdóttir sagði áætl-
aðan kostnað við þinghaldið vera
um 20 milljónir króna, þar af
greiddi Norðurlandaráð um það bil
fimmtung.
L
Reykjavíkur-
borg kaupir
hluta Skála-
fellsafKR
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt að kaupa austurhluta
skíðasvæðis KR í Skálafeili,
fyrir rúmlega 44,8 milljónir
króna.
- Að sögn Hjörleifs Kvaran,
framkvæmdastjóra lögfræði-
og stjórnsýsludeildar
Reykjavíkurborgar, dragast
styrkir borgarinnar, rúmlega
11,3 milljónir, til skíðadeildar
KR á árunum 1983 til 1988,
frá kaupverðinu. Af þeim 33,5
milljónum króna sem eftir
standa greiðast 3,5 milljónir
út við undirskrift kaupsamn-
ings. Þá tekur borgin yfir 13
milljóna króna lán deildarinn-
ar til fimm ára hjá Lands-
banka íslands en skuldabréf
til 10 ára verða gefín út fyrir
17 milljónum.
Á skíðasvæðinu er þjón-
ustumiðstöð, þijár skíðalyftur,
stólalyfta og tvær diskalyftur,
snjótroðarar og vélsleðar en
skíðaskáli KR á vestursvæðinu
fylgir ekki með í kaupunum.
Áð sögn Hjörleifs verða á
næstunni teknar upp viðræður
við Bláfjallanefnd um enn
frekara samstarf milli svæð-
anna en þegar er fyrir hendi.
um, tölvum og öðru því sem þarf
til skrifstofuhalds. Alls verða um
140 manns starfandi á þéssum
skrifstofum, en þær eru tíu talsins.
Auk þingfulltrúanna og starfs-
mannanna eru skráðir 170 frétta-
menn erlendir og innlendir sem
segja fréttir af þinginu, 30 til 40
heiðursgestir og loks um 350 starfs-
menn ráðuneyta.
Sett verður upp prentvél í Há-
skólabíói til þess að prenta gögn
þingsins. Búist er við að þar verði
prentaðar um 300 þúsund síður á
meðan þingið stendur yfir. Að auki
verður eitthvað um ljósritun og loks
verða margvíslegar skýrslur fyrir-
liggjandi við upphaf þingsins.
Nokkrar rútur verða í förum á
milli gististaða þingfulltrúa og
-starfsmanna og þingstaðar, auk
þess sem boðið verður upp á akstur
frá þingstað í Borgarleikhús þegar
bókmennta- og tónlistarverðlaun
Norðurlandaráðs verða afhent. Allir
Atvinnutryggingarsj óður:
Lán afgreidd til 5
fiskeldisfyrirtækja
10 til viðbótar bíða afgreiðslu
Atvinnutryggingarsjóður af-
greiddi á mánudaginn lán til
Qórtán fyrirtækja, þar af fimm
flskeldisfyrirtæþj a. Samtals nam
lánsupphæðin um 440 milljónum
króna.
Lánin voru að mestu skuldbreyt-
ingarlán. Gunnar Hilmarsson,
stjórnarformaður sjóðsins, sagði við
Morgunblaðið að um 270 milljónir
hefðu runnið til fiskeldisfyrirtækj-
anna. Önnur tíu fiskeldisfyrirtæki
biðu afgreiðslu en um helmingur
þeirra væri líklega of illa staddur
til að sjóðurinn gæti bætt þar úr.
Sjóðurinn afgreiddi einnig lán til
tveggja iðnfyrirtækja og sjö fisk-
vinnslufyrirtækj a.
Gunnar sagði að Atvinnutrygg-
ingarsjóður hefði nú úthlutað um
7.600 milljónum frá því að hann tók
til starfa fyrir rúmu ári. Þar af
hefur sjóðurinn veitt um 5.000 millj-
ónum í skuldbreytingarlán, en um
2.700 milljónum í lán til hlutafjár-
kaupa. Þar með væri að mestu
búið það fé, sem sjóðurinn hefði
yfir að ráða til hlutaijárkaupalána,
en um 40 fyrirtæki væru óafgreidd
hjá sjóðnum, mörg þeirra á loka-
stigi afgreiðslu hjá hlutafjársjóði
Byggðastofnunar.
Apótekarafélagið gagn-
rýnir Laugavegsaþótek
„Persónuleg óvild,“ segir Oddur Thorarensen apótekari
ODDUR Thorarensen, apótekari í Laugavegsapóteki, sagðist í gær
íhuga að höfða skaðabótamál á hendur þeim sem létu birta í blöð-
um yfírlýsingu vegna auglýsinga apóteksins á heimsendingu Iyfja.
í yfirlýsingunni segir m.a. að þessi afgreiðslumáti lyfja skapi
hættu á mistökum og sé brot á reglum um lyfjameðferð. Undir
yfirlýsinguna skrifar stjórn Apótekarafélags Islands.
Jón Björnsson, formaður Apó-
tekarafélagsins, segir að yfirlýsing-
in hafi verið samþykkt á félags-
fundi 26. janúar. Betur hafi þótt
fara á að apótekarar hefðu sam-
starf um auglýsingar á heim-
sendarþjónustu lyfja en að einn
aðili tæki sig út úr. Þjónustan sé
ekki sérstök fyrir Laugavegsapó-
tek, í nokkur ár hafi lyfjaverslanir
á höfuðborgarsvæðinu sent heim
til þeirra sem um það biðja og ekki
eiga heimangengt. Þessu hafi
nokkrir apótekarar viljað koma á
framfæri.
Að sögn Jóns Ejörnssonar er það
álitamál hvort auglýsingar á heim-
sendingarþjónustu brjóti í bága við
lyfjalög, en því er haldið fram í
umræddri yfirlýsingu. Aðspurður
um hvað átt sé við með því í yfirlýs-
ingunni að hætta skapist á mistök-
um í heimsendingarþjónustu, segir
Jón að öruggara megi telja að fag-
fólk afgreiði lyfin í hendur sjúkling-
anna, ekki aðeins upp í sendibíl.
Oddur Thorarensen í Lauga-
vegsapóteki segir að heimsending-
arþjónustan sé veitt með fullri
heimild heilbrigðisráðuneytis og
Lyfjaeftirlits ríkisins. Samkvæmt
upplýsingum hans sé yfirlýsingin
ekki frá stjórn Apótekarafélagsins
komin, persónuleg óvild nokkurra
kollega virðist búa að baki birting-
arinnar. Lyfjafræðingar apóteksins
hafi beðið sig að taka strangt á
málinu og hann íhugi málshöfðun.
Aðspurður um hvort rétt sé að
stjórn Apótekarafélagsins hafi ekki
komið yfirlýsingunni á framfæri
við fjölmiðla, segir Jón Bjömsson
að ætlunin hafi verið að birta yfir-
lýsinguna. Hún hafi einungis birst
degi fyrr en fyfirhugað var.
Óskar Jónsson
Lést af
slysförum
MAÐURINN, sem lést í
vinnuslysi á Eiðismýri á
mánudag, hét Óskar Jónsson,
fæddur 4. júní 1960, til heim-
ilis að Austurströnd 12, Sel-
tjarnarnesi.
Óskar, sem var starfsmaður
Hagvirkis, lætur eftir sig eigin-
konu, sem er þunguð, og
þriggja ára son.