Morgunblaðið - 21.02.1990, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1990
Fyrsta Boeing 757-200-flugvél Flugleiða í samsetningarsal Boeing-verksmiðjanna í Renton í Seattle. Á
litlu myndinni sést sætaskipan flugvélanna. Alls eru sæti fyrir 189 farþega í hvorri vél, en þar af eru 22
sæti á Saga Class.
VEÐUR
Heimild: Veðurstofa fslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 21. FEBRÚAR
YFIRLIT í GÆR: Milli Jan Mayen og Noregs er 955 mb lægð á
leið norðaustur en minnkandi 970 mb lægð við suðurströndina.
Um 600 km norðvestur af írlandi er 978 mb lægð sem fer hratt
norðaustur. >
SPÁ: Norðaustan gola eða kaldi og él á víð og dreif um mest allt
land í kvöld og nótt, en fremur hæg breytileg átt, smá él við strönd-
ina en úrkomulítið inn til landsins á morgun. Hiti nálægt frost-
marki við suður- og austurströndina, en 1 til 5 stiga frost annars
staðar.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: Hvöss norðaustanátt og snjókoma um
norðvestanvert landið en heldur hægari suðaustan- og austanátt
og rigning eða slydda suðaustantil. Hlýnandi veður í bili.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Norðvestan- og vestanátt víða nokkuð
hvöss framan af degi. Purrt suðaustanlands en éljagangur í öðrum
landshlutum. Vægt frost.
■J0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
y Skúrir
*
V E'
EE Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—|* Skafrenningur
Þrumuveður
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
* Vindörín sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að isl. tíma
hiti veður
Akureyri +1 snjókoma
Reykjavík 0 snjókoma
Bergen 9 rigning
Helsínki 4 súld
Kaupmannah. 10 þokumóða
Narssarssuaq +10 skýjað
Nuuk +8 snjókoma
Osló 8 þokumóða
Stokkhólmur 10 skýjað
Þórshöfn 4 alskýjað
Algarve 19 heiðskfrt
Amsterdam 14 skýjað
Barcelona 16 mistur
Berlín 14 skýjað
Chicago +11 heiðskírt
Feneyjar 11 þokumóða
Frankfurt 16 léttskýjað
Glasgow 8 skýjað
Hamborg 14 skýjað
Las Palmas 27 heiðskírt
London ' 14 skýjað
Los Angeles 7 heiðskírt
Lóxemborg 14 léttskýjað
Madríd 14 þokumóða
Malaga 16 þoka
Mallorca 15 þokumóða
Montreal +17 léttskýjað
New York +2 léttskýjað
Orlando 18 þoka
París 16 léttskýjað
Róm 16 þokumóða
Vín 11 mistur
Washington 0 skýjað
Winnipeg +10 skafrenningur
Fyrsta Boeing 757-vél Flugleiða
væntanleg í byrjun apríl:
Fjárfesting 1 hveiju
sæti um 15 milljónir
FYRSTU Boeing 757-200 flugvél Flugleiða var ekið ut ur verksmiðju-
byggingu Boeing-flugvélaverksmiðjanna í Renton í Seattle í upphafí
þessarar viku, en ýmis aukavinna við vélina er eftir, auk stillinga
og flugpróiana. Áætlað er að flugvélin komi hingað til lands 10. apríl.
Samsetning tveggja annarra
Flugleiðavéla er nú hafin í verk-
smiðjunni, og hefur félagið aldrei
áður átt jafnmargar flugvélar í
smíðum í einu. Samanlagt verð-
mæti þessara þriggja flugvéla er
um 8 milljarðar króna. I þeim verða
samtals 534 sæti og er því fjárfest-
ing í hverju sæti um 15 milljónir
króna.
Búið er að ákveða afhendingar-
daga flugvélanna og verður fyrri
757-200-vélin afhent 4. apríl. Bo-
eing 737-400-flugvélin verður af-
hent 25. apríl og seinni 757-200-
flugvélin verður afhent 3. maí.
Skipaflutningar íyr-
ir ÁTVR boðnir út
Sambandið og Eimskip með flutningana nú
INNKAUPASTOFNUN ríkisins
auglýsir á næstu döguni útboð
á flutningum fyrir Afengis- og
tóbaksverslun ríkisins næstu
tvö árin. Eimskip og Skipadeild
Sambandsins hafa þessa flutn-
inga nú samkvæmt fyrri út-
boðum.
Á þessum tveimur árum gerir
ÁTYR ráð fyrir að flytja til lands-
ins 10 milljónir lítra af bjór, 8
þúsund tonn af áfengi, 5 þúsund
rúmmetra af tóbaki og 500 tonn
af ýmsum iðnaðarvörum. Flutn-
íngsgjöld skipta tugum milljóna á
þessu tímabili.
Höskuldur Jónsson forstjóri
ÁTVR segir að flutningsgjöld
stofnunarinnar hafí lækkað við
útboð á sínum tíma og telur hann
að þau séu hagstæð. Eimskip flyt-
ur nú allan bjórinn til landsins og
skipadeildin annað áfengi og tób-
ak. Þessir samningar eru nú útr-
unnir og segir Höskuldur eðlilegt
að bjóða flutningana út að nýju
til þess meðal annars að tryggja
stofnununni bestu kjör. Höskuldur
segir að um fimm flutningafyrir-
tæki hefðu lagt fram tilboð í
síðasta útboði. Hann segir að opið
yrði að bjóða í einstaka þætti flutn-
inganna og ákveðnar leiðir.
Húsbruninn;
Kviknaði í út
frá rafmagni
RANNSÓKN á upptökum elds-
ins í húsi við Lundargötu á
Akureyri er nú að mestu lokið
og bendir allt til þess að kvikn-
að hafí í út frá rafmagni.
Eldur kom upp í húsinu snemma
á mánudagsmorgun og gjöreyði-
lagðist það í brunanum. Það verð-
ur líkast til rifið á næstunni. Allt
innbú á efri hæð hússins eyðilagð-
ist í eldinum, en nokkrum munum
af neðri hæðinni tókst að bjarga.
Fj árniálaráðheiTa vill
fela sparnað vegna
kjarasamnínganna
- segir Davíð Oddsson borgarstjóri
„ÞAÐ er svo sem ekkert alvarlegt þótt ég hafi misskilið áhrif
kjarasamningana á fjárlagagerð," sagði Davíð Oddsson borgar-
sljóri, vegna fréttar frá fjármálaráðuneytinu um að samanburður
milli borgarsjóðs og ríkissjóðs væri ekki raunhæfur og að borgar-
stjóri misskildi áhrif kjarasamninganna á afkomu ríkissjóðs. En
borgarsljóri sagði í ræðu sinni við síðari umræðu um fjárhagsáætl-
un borgarinnar að sparnaður ríkisins vegna kjarasamninganna
væri meiri en útgjaldaaukinn. Að sögn Davíðs er Ijóst að fjármála-
ráðherra vill fela sparnað ríkissjóðs vegna samninganna. Eina
ástæðan sé sú að fjárlagafrumvarpið hafi verið gallað og að nota
eigi afrakstur samninganna til að fela hallann.
„Við sjáum ekki betur, sem
höfum verið að vinna að fjár-
hagsáætlun borgarinnar og höfum
verið að skoða lauslega fjárlögin,
en að fjármálaráðherrann hafí
annaðhvort illilega misskilið það
sem hann hafí verið að vinna að,
eða af ásettu ráði sett dæmið fram
með þessum hætti,“ sagði Davíð.
„Það er ekki hægt að komast hjá
því að sjá að forsendur frumvarps-
ins breytast, þannig að kjarasamn-
ingarnir ættu að hafa verulegan
sparnað í för með sér. Launatalan
ein segir til um það.
Mikið af tekjum ríkisins er ekki
bundið þessum þáttum. Til að
mynda allar tolltekjur ríkisins, þær
myndast af verðbólgu erlendis en
ekki af samningum hérlendis og
skapa ríkinu jafnar og öruggar
tekjur miklu frekar en sveitarfé-
lögunum. Þannig, að hafi sveitar-
félögin af þessu sparnað þá er ljóst
að ríkið hefur það í miklu ríkari
mæli. En af einhveijum ástæðum
vill ráðherrann fela hann og ég
get ekki séð neina ástæðu aðra
en þá að fjárlagafrumvarpið hafi
verið svo gallað fyrirfram og með
svo miklum innbyggðum halla að
það eigi að nota þennan mikla
afrakstur, sem samningarnir færa
ríkissjóði, til að fela þann halla
endanlega, en um leið er farið að
skera niður þætti, sem þessi svo-
kallaða félagshyggjustjórn hefur
verið afar montin af.“