Morgunblaðið - 21.02.1990, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1990
7
Eftir að veiða
um 200 þús.
tonnafloðnu
LOÐNUSKIPIN hafa mokveitt við
Reykjanes og Alviðru undanfarið
og síðdegis í gær, þriðjudag, höfðu
þau veitt um 491 þúsund tonn af
loðnu á haust- og vetrarvertíð-
inni, þar af um 436 þúsund tonn
frá áramótum. Loðnukvóti íslend-
inga yr 662 þúsund tonn, svo og
hafa íslendingar keypt 31 þúsund
tonna loðnukvóta af Grænlending-
um. Síðdegis í gær áttu Islending-
ar því eltir að veiða uin 200 þús-
und tonn af loðnu á vetrarvertí-
ðinni.
Síðdegis á þriðjudag höfðu þessi
skip tilkynnt loðnuafla: Húnaröst
770 tonn til Sigluíjarðar, Þórshamar
580, óákveðið hvert, Háberg 200 til
ýmissa aðila, Kefivíkingur 520 til
Faxamjöls hf., Víkingur 1.200 til
SFA, Helga II 1.000 til Siglufjarðar,
Kap II 400 til FIVE, Pétur Jónsson
1.050 til Noregs, Sunnuberg 850 til
ýmissa aðila og Gígja 600 til FES.
Síðdegis á mánudag tilkynnti Erl-
ing um 550 tonn til Eskifjarðar og
Beitir 1.140 til Neskaupstaðar.
Þjóðgarðurinn
í Skaftafelli:
Ferðalangar
láti vita af sér
Þ J ÓÐG ARÐS V ÖRÐURINN í
Skaftafelli hefur sent frá sér orð-
sendingu þar sem hann bendir
ferðalöngum sem dveljast í þjóð-
garðinum á tímabilinu frá sept-
emberbyijun til mailoka, að gera
þjóðgarðsverði viðvart um komu
sína og fyrirætlanir. Er gestum
bent á að þeim er skylt að hlíta
i einu og öllu fyi-irmælum þjóð-
garðsvarðar varðandi dvöl þeirra
og ferðir innan þjóðgarðsins.
Segir í orðsendingunni að bæði
þessi atriði séu í raun skilgreinar
skyldur ferðalanga samkvæmt
reglugerð þjóðgarðsins. „Hvað sem
lögum og reglum líður ætti öllum
að vera ljóst að veður og færð versna
mikið um leið og hausta tekur og
að það er aðeins krafa um heilbrigða
skynsemi aðrnenn geri þeim aðila
á staðnum, sem auðveldast á með
að fylgjast með ferðum fólks í þjóð-
garðinum, veðri og skilyrðum, við-
vart um ferðir sínar,“ segir Stefán
Benediktsson þjóðgarðsvörður í orð-
sendingu sinni.
Styrkir ÍSÍ
I ár eins og á liðnum árum,
mun íþróttasamband Islands
veita styrki til unglingaþjálf-
ara sem hyggjast sækja nám-
skeið erlendis. Veittir verða
þrír styrkir að upphæð 40.000
hver.
Umsóknir um styrki þurfa að
vera á sérstökum eyðublöðum
sem hafa verið send héraðs- og
sérsamböndum, og eru einnig
til á skrifstofu ÍSI.
Umsóknarfrestur er til 31.
mars næstkomandi.
(Fréttatilkynning)
Tryggðu þér
lægri ferðakostnað
með Veröld í
sumarleyfinu og
bókaðu strax
því nú fyllist óðum
í margar ferðir
Að ferðast í sólina í sumar er orðið mun ódýrara en í
fyrra og í mörgum tilfellum munar það tugum
þúsunda fyrir flölskylduna.
Bókaðu strax og njóttu lága verðsins.
BENIDORM
Þann 27. júní í fyrra fór 5 manna fjölskylda til
Benidorm, hjón með 3 börn 6-11 ára og gistu á
Chalets Admiral í 3 vikur.
Verð í fyrra: Kr. 267.080,-
Verðið í ár: Kr. 243.000,-
Lækkun samtals.kr. 24.080,-
MALLORCA
Þann 23. júní í fyrra kostaði fyrir manninn
miðað við hjón með 2 börn í íbúð
á Alcudia Beach . „ ~ ~ „
í3vikur...........kr. 62.050,-
í ár kostar fyrir . ro AAA
manninnaðeins. KT. O^.UUU,-
Lækkun samtals kr. 40.200,-
B Ó K A M AR K A Ð U R V ÖKU HEL GAFELL S
otrúi^.y* %. . a Qtto/o afslattur \lll llíí 9» !
Sertilboð áagsins: Wr^tí Takmarkað upplag -iMmLO Frábærbókumlífogllsthinskunna , ' I listamannsGunnlaugsBlöndal. |r Tilboðsverð: m
Síðastidagnr
markaðaiins
VAktó
HELGAFELL
Síðumúla 29 • Síml 688 300. 8