Morgunblaðið - 21.02.1990, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRUAR 1990
15
mikla og sterka fjölmiðli sem sjón-
varpið er. Könnun eins og hér er
lögð til krefst þess að ofbeldið sé
skilgreint. Það getur vafist fyrir-
mönnum en það er nauðsynlegt til
þessa ð vekja umhugsun um og
útiloka ofbeldi. Hlutverk Kvik-
myndaeftirlits ríkisins er m.a. fólg-
ið í því að skilgreina og útiloka
ofbeldi en starfsmenn þess hafa
um margra ára skeið unnið afar
mikilvægt starf þrátt fyrir mjög
þröngan fjárhag og bágborinn
tækjakost. Brýna nauðsyn ber til
að veita raunhæfar fjárupphæðir
til rekstrar þessarar starfsemi og
stjórnvöld bera bæði ábyrgð og
skyldur í þessum efnum. Þeim ber
að framfylgja lögum um bann við
ofbeldiskvikmyndum nr. 33/1983
og þeim ber í víðtækum skilningi
að standa vörð um þau réttindi
barna að vera vernduð gegn of-
beldi. Eftir að lögin um bann við
ofbeldiskvikmyndum gengu í gildi,
hefur Kvikmyndaeftirlitið bannað
um það bil 100 kvikmyndir sem
samkvæmt skilgreiningu laganna
teljast ofbeldismyndir.
Helsti ávinningur af setningu
þessara laga var sá að innflutning-
ur grófra ofbeldismynda snar-
minnkaði og jafnt framleiðendur
ytra sem innflytjendur hér heima
vita af þessum lögum og reyna að
halda sig innan löglegra marka.
Efni þessarar tillögu hlaut góðar
undirtektir í umræðum á Alþingi
þó ekki væru margir þingmenn
viðstaddir. Einnig tók mennta-
málaráðherra vel undir efni tillög-
unnar. Það er von okkar Kvenna-
listakvenna að hún nái fram að
ganga og megi stuðla að því að
vernda börn gegn óhóflegu ofbeldi
í umhverfi sínu.
Ilöfundur er þingkona
Kvennalistans.
Þ.Þ0RGRÍMSS0N&C0
ARMA
PLAST
ÁRMÚLA 1 6 OG 29, S. 38640
SKIPA PLÖTUR - INNRÉTTINGAR
SKIPAPLÖTUR í LESTAR
BORO-SERVANT PLÖTUR
IWCHÓLF ME0 HURÐ
BAÐHERBERGISÞIUUR
LAMETT Á GÓLF - BORÐPLÖTUR
NORSK VIÐURKENND HÁGÆÐA VARA
Þ.ÞORGBlHSSON&CO
Ármúla 29 - Múlatorgi - s. 38640
KYOLIC
Eini alveg lyktarlausi hvítlaukurinn.
2ja ára kælltæknivinnsla (20 mán.
+ 4 mán.) sem á engan sinn líka í
veröldinni.
Hefur meiri áhrif en hrár hvítlaukur.
Er gæðaprófaöur 250 sinnum á
framleiðslutímanum.
Á að baki 35 ára stööugar rann-
sóknir japanskra vísindamanna.
Lífrænt ræktaður í ómenguðum
jarðvegi án tilbúins áburðar eöa
skordýraeiturs.
Öll önnur hvítlauksframleiösla notar
hitameðferð.
Hiti eyðileggur hvata og virk efna-
sambönd (hvítlauk og ónýtir
heilsubætandi áhrif hans.
- KYOLIC DAGLEGA -
Þaö gerir gæfumuninn
KYOLIC fæst í heilsuvöru- og lyfja-
verslunum og víðar.
Heildsölubirgðir
LOGALAND
heildverslun, Símar 1 -28-04.
Heilahimnubólgufar-
aldur í Uganda:
Ferðamenn þurfa
bólusetningn
ALVARLEGUR heilahimnu-
bólgufaraldur hefur brotizt út í
Mið-Afríkuríkinu Uganda, og er
ferðamönnum ráðlagt að verða
sér úti um bólusetningu, sé ferð-
inni heitið þangað.
Ólafur Ólafsson landlæknir sagði
í samtali við Morgunblaðið að það
væru einkum börn, sem þyrftu bólu-
setningar við, en fullorðnir ættu
varla á hættu að smitast af heila-
himnubólgunni. Fólk getur snúið
sér til Heilsuvemdarstöðvarinnar í
Reykjavík eða til heilsugæzlulækna
til að fá vörn við sjúkdómnum.
T I M
Rl
E M A N A
Vomátnskeið verður haldið á vegum Stjórn-
tmarfélags íslands mánudag og þriðjudag, 26.
og 27.febrúar n.k. kl. 9-18 á Hótel Loft-
leiðum. Leiðbeinandi er hitt vinsœla Attne
Bögelund-Jensen, yftrleiðbeinandi hjá Tittte
Manager International.
G
E R
Skráning stendur yfir
i síma 621066
Stjórnunarfélag
íslands
Ánanaustum 15
Hefurþig aldrei langað tilað reyna eitthvað nýtt, kynnastöðrum heimsálfum og öðruvísi fólki?
Um páskana liggurleiðin til Thailands, í sextán daga ógleymanlega ævintýraferð.
Töfrar Thailands
5. apríl verður flogið til Kaupmanna-
hafnar, stigið upp í þægilega breiðþotu
SAS og ekki lent fyrr en í Bangkok. Þar
verður gist í 2 nætur á fyrsta flokks
hóteli, HótelMenam. Boðið verðurupp á
skoðunarferðir til markverðustu hluta
Bangkokborgarog nágrennis, t.d. á
fljótandi markað, í konungshöllina og í
hof Gullbuddans.
Við fljúgum í skoðunarferð
tilChiangMai
8. apríl fljúgum við til hinnarfornu
höfuðborgar Thailands, Chiang Mai,
við rætur Himalayafjalla. Þarerdvalið í
5 daga og gistáglæsihótelinu
Mae-Ping, um leið og færigefstáað
kynnast landi og þjóð frá gjörólíkri hlið.
Síðan liggur leiðin til Pattaya
strandarinnar - perlu austursins -þar
sem dvalið verður í 7 næturá hinu
vinatega fyrsta flokks hóteli Siam
Bayview. Enn erboðið upp á
skoðunarferðir, enda afnógu að taka.
Auðvitað geturðu tekið það rólega á
gullinni ströndinni og notið veðursins
eða nýtt hin endalausu tækifæri til
vatnasports, verslunar og
skemmtunar sem þérbjóðast í Pattaya.
Reglan er: Þú hefurþað alveg eins og þú vilt.
Veður- og verðlag: Frábært!
Veðurerákjósanlegtáþessum tíma,
hitastigið 23-30gráðurog hægir
Monsúnvindar úr norð-austri.
Verðlag er með ólíkindum lágt og
Thailendingar viðræðugóðir kaupmenn,
þannigað hægt erað gera reyfarakaup á
handverki í skartgripa-, list- og
fataiðnaði. Þú geturmeira að segja
prúttað um leigubílinn!
Nú er tækifærið til að láta drauminn
rætast: Að heimsækja Asíu. í þessari
ævintýraferð hjálpar allt til við að gera þér
hana ógleymanlega - þú lofar þér
örugglega að fara einhverntíma aftur!
Verðí tvíbýlikr.
Verð í einbýlikr.
119.795,-
141.300,-
Verð miðast við staðgreiðslu
og gengi 10. janúar 1990.
Innifalið í verði erflug,
gisting með morgunverði,
íslensk fararstjórn
og allur akstur í Thailandi.
Brottför: 5. apríl.
Heimkoma: 20. apríl.
Fararstjóri: Svavar Lárusson.
Ath. Hægt er aö framlengja
dvöl í Singapore.
Láttu drauminn um ævintýraferdina rætast um páskana
m/s/is
Samvinnuferóir-Landsýn
Reykjavík: Austurstræti 12, s. 91 -691010, Innanlandsferðir, s. 91 -691070,
póstfax 91 -27796, telex 2241, Hótel Sögu við Hagatorg,
S. 91 -622277, póstfax 91 -623980.
Akureyri: Skipagötu 14, s. 96-27200, póstfax 96-27588, telex 2195.