Morgunblaðið - 21.02.1990, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1990
17
Píanótónleikar
_________Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
Islandsdeild Evrópusambands
píanókennara (EPTA) stóð fyrir
tónleikum að Kjarvalsstöðum og
að þessu sinni var það Öm Magn-
ússon, sem flutti tónlist eftir Bela
Bartók, Hróðmar Sigurbjömsson
og Claude Debussy. Fyrsta verkið
var 14 Bagatellur op. 6 eftir Bart-
ók. Bagatellurnar eni eins konar
tónsmíðaæfingar. Ópus 1 er
Rapsódía í stíl sem kenna má við
Franz Liszt og um svipað leyti
gerði Bartok nokkrar þjóðlaga-
raddsetningar og einnig píanó-
verk fyrir börn, svo að hér má
merkja hvernig tónmál hans er
að losna undan áhrifum af Franz
Liszt og þjóðlagatónlistin er að
renna saman við nútímalegra tón-
mál, sem hann nær fullum tökum
á í Allegro Barbaro.
Það sem einkenndi leik Arnars
var feiknalega vönduð en nokkuð
varfærin útfærsla á þessum elsku-
legu lögum, þar sem lögð var
áhersla á nákvæmni og mú-
síkalska útfærslu, m.ö.o. lagt
meira upp úr því að leita inn í
verkin sjálf, en minna gert af því
að sýna sjálfan sig í gegnum verk-
in.
Annað verkið á efnisskránni
var Tilbrigði eftir Hróðmar Sigur-
björnsson, en þetta ágæta verk
hefur Örn leikið nokkrum sinnum
og nú enn betur en fyrr. Síðast á
efnisskránni voru 12 prelúdíur (2.
hefti) eftir Debussy. Þessi meist-
Örn Magnússon
arastykki hafa stórpíanistamir
leikið af þvílíkri tæknisnilli að telja
verður það nokkuð djarft að velja
þær sem viðfangsefni. Þrátt fyrir
nokkra varfærni í hraðavali tekst
Erni að laða fram innviðu ver-
kanna með mikilli nákvæmni.
Oftar en ekki má heyra píanista
stefna sér fram á ystu brún leikni-
getunnar en hér velur Örn að
hugleiða efni verkanna og það
tekst honum á einstaklega sann-
ferðugan máta, svo að tónleikarn-
ir í heild verða eftirminniiegir fyr-
ir fallega og músíkalska túlkun
og, eins og einn hljómleikagesta
orðaði það, „algerlega nýjan tón“.
■ SAMTÖKUM um byggingu
tónlistarhúss barst nýlega gjöf að
upphæð kr. 100.000 frá Hjördísi
S. Kvaran. Gjöf þessa gefur Hjördís
til minningar um dóttur sina,
Þuríði Kvaran, sem lést 8. mars
1984, en hefði orðið fimmtug 23.
mars næstkomandi. Þuríður var
mikill tónlistarunnandi og tíður
gestur á tónleikum. Samtök um
byggingu tónlistarhúss meta mikils
þann hlýhug sem fylgir slíkri gjöf
og þakka hana af heilum hug, seg-
ir í frétt frá samtökunum.
Cp
\ i
\/ f
nMflrUllfflwFfan w-"' á r
Hjördís S. Þuríður
Kvaran Kvaran
1
9 9
Bíllinn sem geislar af
0
HONDA Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, S-689900