Morgunblaðið - 21.02.1990, Blaðsíða 20
20
MOHGUNBLAÐIÐ MIÐVÍKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1990
Atökin á Norður-Irlandi:
IRA-leiðtogar vilja ræða
við Breta um vopnahlé
Dublin. Reuter.
HERRÁÐ írska lýðveldishersins
(IRA) kom aðfaranótt þriðjudags
á framfæri ósk um viðræður við
bresk stjórnvöld um vopnahlé og
frið á Norður-írlandi. IRA hefiir
krafist sameiningar landshlutans
við lýðveldið írland og stundað
BASIL Boothby, er var sendi-
herra Breta á Islandi frá 1962
til 1965, er látinn 79 ára að aldri.
Basil Boothby var fæddur þann
9. september 1910. Menntun sína
hlaut hann í Cambridge en ungur
hóf hann að starfa erlendis fyrir
bresku ríkisstjómina. Var hann
lengst af í Kína og Indlandi. Árið
1945 gerðist hann starfsmaður
bresku utanríkisþjónustunnar og
starfaði að málefnum Sameinuðu
þjóðanna og breska samveldisins.
Síðar var hann skipaður sendifull-
trúi Breta í Burma. Árið 1954 gerð-í
ist hann starfsmaður sendiráðsins
í Brussel og var þá sérstakur
áheyrnarfulltrúi Breta í viðræðum
sex ríkja um stofnun Efnahags-
bandalags Evrópu. Frá 1962 til
1965 var hann sendiherra á Is-
landi. Þegar því starfi lauk var
hann skipaður fastafulltrúi Breta
við Evrópuráðið í Strasborg. Árið
1969 hætti hann störfum í þágu
hins opinbera og gerðist kennari
hryðjuverk gegn fólki af mót-
mælendatrú og breskum her-
mönnum í rúm 20 ár.
Tilboðið barst í hendur Peters
Brooke, þess ráðherra í stjórn
Margaret Thatcher sem fer með
málefni N-írlands, fyrir tilstuðlan
Basil Boothby
við Morley College. Þar kenndi hann
einkum heimspeki, menningarsögu
Evrópu og sögu Rússlands. Síðustu
árin vann hann einkum að því að
skipuleggja fullorðinsfræðslu við
Háskólann í Lundúnum.
milligöngumanns í Dublin, höfuð-
borg írlands. Milligöngumaðurinn
sagði í samtali við írska fréttastofu
að engin skilyrði yrðu sett fyrir við-
ræðunum og þær ættu að vera
milliliðalausar. „Hægt yrði að koma
á vopnahléi á nokkrum klukku-
stundum. IRA gerir heldur ekki að
skilyrði að breskir hermenn verði
kallaðir heim til bækistöðva sinna,"
sagði milligöngumaðurinn en nafn
hans var ekki gefið upp.
Þetta var í annað sinn á einum
sólarhring sem IRA gaf í skyn að
samtökin yildu viðræður og er talið
að verið sé að endurskoða baráttu-
aðferðir í æðstu stjórn IRA. Vara-
formaður Sinn Fein-flokksins á ír-
landi, sem er pólitískur armur IRA,
ræddi opinberlega um helgina þá
kosti sem Brooke ætti fyrir höndum
ef IRA legði af hryðjuverk.
Um 3.000 manns hafa týnt lífi í
skæruhernaði IRA gegn breskum
yfirvöldum síðastliðna tvo áratugi.
Breska stjómin hefur ítrekað fyrri
afstöðu sína sem er að ekki sé
hægt að ræða við Sinn Fein fyrr
en hann afneiti hryðjuverkum sem
pólitískri baráttuaðferð. Leiðtogar
Sinn Fein hafa að undanförnu látið
í ljós áhyggjur vegna hjaðnandi
fylgis flokksins. Hann fékk 9% at-
kvæða er síðast var kosið á N-
írlandi og aðeins einn af hundraði
á írlandi. Traustir fylgismenn Sinn
Fein hafa harðlega gagnrýnt fjölda
sprengjuárása IRA á óvopnaða
borgara sem hafa kostað tugi
manna lífið síðan þær hófust 1987.
Basil Boothby látinn
Reuter
Tveir SÞ-gæsluliðar
drepnir í Líbanon
Talsmaður friðargæslusveita Sameinuðu þjóðanna í Líbanon, Timor
Goksel, sagði í gær að samtökin teldu Israela bera ábyrð á drápi
tveggja friðargæslumanna frá Nepal á mánudag. Þarna hefði verið
að verki Suður-Líbanonherinn, herflokkur sem fengið hefði vopnabún-
að frá ísraelska herliðinu syðst í Líbanon. Þar ráða ísraelar lögum
og lofum á Iandræmu við mörk ríkjanna tveggja. Goksel tók þó fram
að fremur virtist sem um mistök en árás af ásettu ráði hefði verið
að ræða. Innbyrðis bardagar héldu áfram í gær í Austur-Beirut
milli kristinna hersveita Michels Aouns hershöfðingja og liðsmanna
Samirs Geagea. Alls hafa 700 manns fallið og um 2.500 særst eftir
að átökin hófust í janúarlok. Á myndinni sjást tvö kristin börn við
rústirnar af heimili sínu í borgarhlutanum.
Leitið til okkar:
SMITH &NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
J'éáS$2!S»-
evo «•_£ (íavu\e'öa°
^°enn
siasvsia > - o r3ö2V- nn
sgísgg
5
\eka
V&0
Bretland:
Vandræði við gerð jarð-
ganga undir Ermarsund
St. Andrcws. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Sljórnarformaður Eurotunnel,
íyrirtækisins sem sér um gerð
jarðganga undir Ermarsund,
sagði um helgina, að svo kynni
að fara, að göngunum yrði aldrei
lokið. Reynt var að leysa vanda
fyrirtækisins um helgina.
Margvísleg vandræði steðja að
fyrirtækinu Eurotunnel. Áætlaður
Utanríkisráðherrar Evrópu-
bandalagsins (EB) samþykktu í
gær að senda nefhd til Suður-
Afríku til að kanna ástandið þar
en höfnuðu tillögu Breta um að
falla frá refsiaðgerðum. Douglas
Hurd, utanríkisráðherra Bret-
lands, sagði í gær að Bretar
myndu aflétta einhliða banni við
nýjum fjárfestingum í S-Afríku.
Stjórnarerindrekar sögðu að ut-
anríkisráðherrarnir hefðu sam-
þykkt að réðherrar frá írlandi, ít-
alíu og Frakklandi heimsæktu Suð-
ur-Afríku til að meta umbætur þar-
lendra stjórnvalda eftir að blökku-
mannaleiðtoganum Nelson Mandela
var sleppt úr fangelsi.
Talsmaður írsku stjómarinnar
sagði að ráðherrarnir hefðu ekki
komist að samkomulagi um að af-
létta refsiaðgerðum gegn Suður-
Afríku. Hann sagði ákvörðun yrði
tekin um slíkt eftir að allir póli-
kostnaður við gerð jarðganganna
var upphaflega 4,8 milljarðar sterl-
ingspunda en er nú 7,2 milljarðar
punda eða ríflega 720 milljarðar
íslenzkra króna. Verulegar tafir
hafa orðið á gerð ganganna, sér-
staklega Bretlandsmegin. Miklir
samstarfsörðugleikar hafa komið
upp á milli yfirmanna Eurotunnel
tískir fangar landsins yrðu látnir
lausir og neyðarlögum yrði aflétt.
Kaupmannahöfii:
Lítil flugvél
hrapar á hús
Kaupmannahöfn. Rcuter.
LÍTIL flugvél hrapaði á hús í
Amager-hverfinu í suðurhluta
Kaupmannahafnar á mánudag
aðeins örfáum minutum eftir að
kona sem þar bjó hafði farið að
heiman ásamt átta ára gamalli
dóttur sinni.
Flugmaðurinn fórst og húsið
brann til kaldra kola. Flugvélin, sem
var eins hreyfils, var með fulla elds-
neytisgeymana er hún hrapaði
skömmu eftir flugtak. Ekki er vitað
um orsakir slyssins.
og Transmanche-Link, sem er fyrir-
tæki í eigu 10 verktaka og sér um
framkvæmdir við göngin.
Verktakarnir kröfðust þess í
síðustu viku, að framkvæmdastjóra
Eurotunnel, Alastair Morton, yrði
vikið úr starfi. Hann hefur verið
aðalsamningamaður fyrirtækisins
við verktakana. Samningurinn um
þennan hluta ganganna var á föstu
verði og Morton hefur neitað að
greiða allan kostnað umfram samið
verð. Verktakamir segja, að aukinn
kostnaður sé til kominn vegna við-
bótarkrafna Eurotunnel.
í síðasta mánuði var þessi ágrein-
ingur leystur, en verktakamir vilja
ekki sætta sig við Alastair Morton.
I síðustu viku höfðuðu verktakarnir
mál á hendur Eurotunnel í Frakk-
landi vegna vangoldinna 60 milljóna
sterlingspunda. Dómstóllinn var
sammála verktökunum. En verk-
takamir hafa einnig neitað að skrifa
undir samkomulagið frá í janúar,
fyrr en ágreiningurinn um Morton
leystist. Undirskrift þess samnings
var skilyrði þess, að bankar héldu
áfram að lána Eurotunnel fé.
Eurotunnel gaf út tvær yfirlýs-
ingar á mánudag. í annarri, sem
gefin var út á fjármál'amörkuðum
í París og London, sagði, að allar
líkur væru á því, að gerð ganganna
lyki. Búið væri að leysa allan
ágreining. í hinni var tilkynnt um
breytingar á framkvæmdastjórn
fyrirtækisins. Talið var líklegt, að
þessar breytingar myndu leysa
vandann.
Bankastjóri Englandsbanka,
Robert Leigh-Pemberton, gekk í að
leysa þennan vanda um síðustu
helgi að undirlagi þeirra 208 banka,
sem lagt hafa fé í gerð ganganna.
Suður-Afríka:
Bretar falla frá refsi-
aðgerðum en EB ekki
Dublin. Reuter.