Morgunblaðið - 21.02.1990, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1990
21
AFGASRULLUR
fyrir bílaverkstæði
Olíufélagið hf
681100
ÆFINGASTOÐVAR
margar gerðir.
Verð fró..........kr. 24.000,-
FJÖLNOTATÆKI - 16 ÆFINGAR
Róður, bakpressa, armréttur, armbeygjur,
hnébeygjur o.fl. Verð fró kr. 18.400,-
Stgr. 17.260,-
ÆFINGABEKKIR OG LÓÐ
Bekkur + 50 kg. lóðasett.
Verð fró kr. 11.700,- Stgr. 10.990,-
Bekkur með „legcurl" + 50 kg. lóðasett. Verð
fró kr. 15.300,- Stgr. 14.400,-
Armúla 40.
Sími 35320.
MAR
Þetta ætla hinir ákærðu að nota
sér til varnar. Einkenni réttarkerf-
is á Vesturlöndum hafi ávallt verið
að lög séu afturvirk. Það þykir
sannað að stríðsvarningur hafi
verið fluttur til landa sem áttu í
ófriði en þar sem þetta hafi verið
gert fyrir milligöngu aðila í „leyfi-
legum löndum“ eins og Svíþjóð og
Vestur-Þýskalandi fínnst veijend-
um rangt að tala um lagabrot. Á
þeim tíma sem hin meintu afbrot
ÞREKHJÓL I MIKLU ÚRVALI
Ódýrt samanbrotið....kr. 3.950,-
V-þýsk gæðahjól fró.kr. 11.250,-
625,-___________
Neue Ziircher Zeitung:
Óljósar efhahagsum-
bætur í Sovétríkjmium
ÝMISLEGT bendir til að róttækar efnahagsumbætur í Sovétríkj-
unum eigi enn langt í land segir í grein sem birtist nýlega í sviss-
neska dagblaðinu Neue Ziircher Zeitung. Þar er fjallað um steftiu-
yfírlýsingu Nikolajs Ryzhkovs forsætisráðherra um efhahagsmál
frá því í desember og á það bent að þar sé ekki horfíð með ein-
dregnum hætti ft'á helgustu kúm sósialisks efnahagskerfís.
Ekki var unnt að heyra á máli
Nikolajs Rhyzkovs forsætisráð-
herra Sovétríkjanna á fulltrúa-
þinginu í desember síðastliðnum
að segja ætti skilið við ríkisáætl-
unarbúskapinn, segir blaðið. Unn-
ið er að undirbúningi þrettándu
fimm ára áætlunarinnar sem
verður í gildi árin 1991-95. Áætl-
unina á að leggja fyrir Æðsta
ráðið í haust. Samkvæmt Rhyzkov
á t.d. að leggja mikla áherslu á
íbúðabyggingar. Auka á íbúðar-
húsnæði um 40% og framleiðslu
neysluvöru um 60-70%. Einnig er
stefnt að vexti í framleiðslu hrá-
efna til matvælaframleiðslu.
Gjaldeyrir til innflutnings
skorinn niður
í yfirlýsingunni drepur Ryzh-
kov á gjaldeyrisskort Sovétríkj-
anna og er hann rakinn til hárra
vaxtagreiðslna af erlendum lán-
um. Til þess að vega upp á móti
þessu segir í yfirlýsingunni að
komi til greina að skera gjaldeyri
til innflutnings niður um helming.
Fyrirtækin verði skikkuð til að
útvega sér sjálf þann gjaldeyri
sem þau þurfa til innflutnings.
Ryzhkov segist líta á hráefni og
hálfunnar vörur sem mikilvæg-
ustu uppsprettur gjaldeyris.
í yfirlýsingunni er ekki minnst
berum orðum á að gera þurfi rúbl-
una gjaldgenga. Leonid Abalkin
aðstoðarforsætisráðherra hefur
áður sagt að ekki sé hægt að
reikna með slíkum breytingum á
fyrri hluta tíunda áratugarins.
Þrátt fyrir að víða sé kveðið á
um tilfærslu í átt til fijáls markað-
ar, meira fjárhagslegt sjálfstæði
héraða og smærri eininga er ekki
hægj; að túlka orð Ryzhkovs svo
að róttækur umbótavilji sé fyrir
hendi, segir Neue Ziircher Zeit-
ung.
Að mati blaðsins verður próf-
steinninn á umbótavilja stjórn-
valda hver afdrif frumvarp um
eignarrétt fær í Æðsta ráðinu.
Frumvarpið hefur þegar mætt
töluverðri andstöðu innan flokks-
ins og er talað um það sem „svik
við byltinguna".
Mótmæli í Tævan
Keuter
Atök brutust út á milli öryggislögreglu og stjórnarandstæðinga fyrir utan þinghúsið í Taipei, höfuðborg
Tævans, í gær. Stjórnarandstæðingarnir kröfðust þess að svokallaðir „meginlandsfulltrúar" færu frá.
Meginlandsfulltrúarnir eru margir hveijir háaldraðir og hafa farið með völdin í landinu frá því stjórn þjóð-
ernissinna flúði Kína til Tævans eftir kínversku byltinguna árið 1949.
Kúbverskur andófsmaður:
„Umbótum“ ætlað að
treysta tök flokksins
Genf. Rcuter.
KUNNUR, kúbverskur andófsmaður sagði í gær, að umbæturnar,
sem Kúbustjórn kallaði svo, væru engar umbætur, heidur þvert á
móti ætlað að treysta tök flokksins á þjóðinni.
Réttarhöld yfir púður-
smyglurum í Finnlandi
Helsinki. Frá Lars Lundsten, firéttaritara
NÍU starfsmenn hjá fínnsku
efiiaverksmiðjunni Kemira voru
á mánudag dregnir fyrir rétt í
Helsinki sakaðir um smygl á
púðri og sprengiefhum fyrirtæk-
isins. Málið snýst um sölu varn-
ings til landa sem áttu í styijöld
þegar hún fór fram, m.a. til Ir-
ans, íraks, Ekvadors og Súdans.
Varningurinn var fluttur til
þessara landa um Svíþjóð og
Vestur-Þýskaland.
Smyglmálið fínnska líkist mjög
réttarhöldunum í Svíþjóð þegar
Nobel-fyrirtækið var sakað um
sams konar afbrot. Munurinn er
sá að ákvæði finnskrar löggjafar
eru mun óskýrari en samsvarandi
lagaákvæði hjá Svíum. Svíar hafa
búið við mjög nákvæmt eftirlits-
kerfi en Finnar virðast hafa selt
púður og önnur hergögn nokkuð
kæruleysislega þar til fyrir
skömmu.
Morgunblaðsins.
voru framin kröfðust fínnsk yfir-
völd þess ekki að fá vottorð um
endanlegan áfangastað varnings-
ins.
„Hér er ekki verið að losa um
eitt eða neitt, heldur skulu tökin
hert,“ sagði Ricardo Bofill, fyrrum
formaður óháðra mannréttinda-
samtaka á Kúbu þar til honum var
leyft að fara úr landi í október
fyrir tveimur árum. Bofill, sem er
52 ára gamall og sat í átta ár í
fangelsum Kastrós, sagði í viðtali
við fréttamann Reuters, að þeim
tveimur embættismönnum, sem
orðaðir hefðu verið við umbótaá-
huga, hefði nú augljóslega verið
ýtt til hliðar.
Nefndi Bofill sem dæmi, að
Sixto Batista hershöfðingi og fyrr-
um hugmyndafræðingur hersins
hefði tekið við af óbreyttum borg-
ara sem yfirmaður Varnarsveita
byltingarinnar en þeim er meðal
annars ætlað að uppræta „gagn-
byltingarmenn“. Einu umbóta-
mennirnir, sem Bofill vill kalla svo,
þeir Lionel Soto og Jaime Crom-
bet, hafa verið gerðir að varafor-
setum framkvæmdanefndar ríkis-
ins en Bofill segir, að það embætti
sé alveg valdalaust.
Soto, sem fór áður með efna-
hagsmál í miðstjórninni, er sagður
hafa rekið áróður fyrir umbótum
og Crombet vann það sér til frægð-
ar fyrir nokkrum árum að leyfa
bændum að selja umframbirgðir á
fijálsum markaði. Breyttist mat-
vælaúrval og -framboð strax til
batnaðar en Fidel Kastró Kúbuleið-
togi bannaði sjálfur þennan kapit-
alisma.
Bofill, sem situr ársfund mann-
réttindanefndar Sameinuðu þjóð-
anna í Genf, spáði því, að stjóm-
valda á Kúbu biðu sömu örlög og
kommúnista í Austur-Evrópu.
HEILSUVIKAIMARKINU
15%
staðgreiðsluafsláttur
10% afsláttur með
greióslukjörum
af þrek- og
æfingatskjum