Morgunblaðið - 21.02.1990, Blaðsíða 23
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1990
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1990
23
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
BjörnJóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið.
Hjörðin
með óttasvip
Asíðustu dögum hefur
komið fram brestur í
stjómarsamstarfinu í tveimur
meginmálum. í báðum tilvik-
um á Alþýðuflokkurinn aðild
að ágreiningnum. í fyrra til-
vikinu deilir Jón Sigurðsson
iðnaðarráðherra við Ólaf
Ragnar Grímsson fjármálaráð-
herra um það, hver hafi átt
hugmyndina að orkuskatti. í
síðara tilvikinu deilir Jón Sig-
urðsson viðskiptaráðherra við
Steingrím Hermannsson for-
sætisráðherra um það, hvort
breyta eigi ríkisbönkum í
hlutafélagabanka.
Á sama tíma og deilt er um
þessi mál í sölum Alþingis
verður þess vart á forsíðu Al-
þýðublaðsins, að þar er slegið
upp ummælum um samstarfs-
menn Alþýðuflokksins í ríkis-
stjórn, sem varla verða talin
þessum ráðherrum til fram-
dráttar. Á dögunum var vitnað
til andstöðu Karvels Pálma-
sonar, þingmanns Alþýðu-
flokksins, við umhverfísráðu-
neyti án verkefna með þessum
orðum í flennifyrirsögn: Nýtt
ráðunejdi til að þjóna hégóma-
girnd. Og í tilefni af umræðum
á Alþingi um kaup Lands-
bankans á Samvinnubankan-
um birti Alþýðublaðið á forsíðu
gagnrýni Hreggviðs Jónsson-
ar, alþingismann Fijálslynda
hægriflokksins, á forsætisráð-
herra.
Þegar ríkisstjórn Steingríms
Hermannssonar var mynduð
haustið 1988 var það gert með
hátíðlegum yfirlýsingum um
samstöðu og markviss vinnu-
brögð undir góðri verkstjórn.
Deilurnar um orkuskattinn og
skipan eignarhalds á ríkis-
bönkunum benda hvorki til
mikillar samstöðu, markvissra
vinnubragða né góðrar verk-
stjórnar. Þá bera efnispunkt-
arnir sem Alþýðublaðið velur
í forsíðufyrirsagnir sínar ekki
með sér hlýtt hugarþel þar á
bæ í garð þeirra, sem verða
fyrir spjótalögunum.
Af öllu þessu verður aðeins
eitt ráðið. Innan Alþýðuflokks-
ins horfast menn í augu við
fylgishrun í komandi sveitar-
stjórnarkosningum og taka þar
mið af afar óhagstæðum tölum
flokksins í skoðanakönnunum.
Eins og kunnugt er hefur
flokkurinn gert samskonar til-
raun til að bjarga sér og
kommúnistaflokkar fyrir aust-
an tjald, alþýðuflokksmenn
hafa lýst sig reiðubúna til að
bjóða ekki fram í sínu eigin
nafni í Reykjavík. Eftir að
þessu tilboði var hafnað eru
uppi ráðagerðir um framboð í
nafni Alþýðuflokksins í höfuð-
borginni. Lögð hefur verið ný
lína: Gerð skal tilraun til að
fjarlægja flokkinn frá hinni
óvinsælu ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar og
sjá til þess að óvinsæl mál
hennar séu í fanginu á öðrum
en alþýðuflokksmönnum.
Þetta tilraunastarf er unnið
bæði í þingsölum og á síðum
Alþýðublaðsins.
Otti alþýðuflokksmanna við
veika stöðu eigin flokks veldur
þannig brestumú stjórnarsam-
starfinu. Athyglisvert er, að
það er Jón Sigurðsson sem fer
fyrir flokknum á Alþingi og
stofnar þar til ágreinings en
ekki Jón Baldvin Hannibalsson
flokksformaður, sem hefur til
dæmis enn sem komið er
heykst á því að veita heimild
til forkönnunar vegna vara-
flugvallar af ótta við viðbrögð
Alþýðubandalagsins.
FYrir þingkosningar vorið
1987 birtist viðtal við Jón
Baldvin Hannibalsson, for-
mann Alþýðuflokksins, í tíma-
ritinu Heimsmynd. Þar sagði
hann meðal annars: „Stjórn-
málaflokkar eru skrýtnar
skepnur. Þegar vel árar
hnappast hjörðin í kringum
forystusauðinn. Hjörðin velur
öryggi, frið og ró. Málamiðlun
er það sem gildir. Allt er slétt
og fellt. En þegar hætta steðj-
ar að, ég tala nú ekki um ef
lífsháski blasir við, þá gilda
önnur lögmál. Þá ræður sjálfs-
bjargarhvötin, sjálf lífslöngun-
in, ferðinni. Þá verður að taka
áhættu, leggja allt undir: Það
var ekki fyrr en flokkurinn
horfðist í augu við útgöngu-
versið, að hann leitaði til mín.
Þeir sjá ekki eftir því núna.
Ég hef strokið vanmetasvipinn
af andlitum þeirra. Nú eru
menn stoltir af því að vera
jafnaðarmenn.“
Þannig var talað skömmu
fyrir síðustu kosningar. Nú
þegar um 100 dagar eru til
sveitarstjórnakosninga er upp-
litið á jafnaðarmönnum annað,
þeir þora tæpast að bjóða fram
í eigin nafni og óttinn hefur
tekið við af vanmetasvipnum.
Negldir hjólbarðar, salt og umferðaröryggi:
Bann á nagladekk vinnur
ekki upp kostnað við óhöpp
ÞÓRIR Ingason, verkfræðingur hjá Rannsóknarstofnun bygginga-
riðnaðarins, hefur tekið saman innlendar og erlendar heimildir um
neglda hjólbarða, salt og umferðaröryggi í þeim tilgangi að sann-
reyna nauðsyn nagladekkja í vetrarakstri. Samanburðurinn hefur
meðal annars leitt í Ijós að bann við notkun nagladekkja og um leið
minni kostnaður vegna slits á götum vegur ekki uþp þann kostnaðar-
auka, sem verður af fjölgun umferðaróhappa.
„Þama er búið að safna saman
á einn stað þeim upplýsingum sem
til eru um notkun nagladekkja,"
sagði Þórir. „Ég reyni að finna sam-
kvæmt þeim heimildum sem ég hef
hvort nagladekk séu óþörf en sann-
leikurinn er sá að menn hafa kom-
ist að mismunandi niðurstöðum." í
samantekt Þóris kemur fram, að
notkun salts sem hálkuvörn hér á
landi hafi byrjað á stríðsárunum en
um 1970 hófst regluleg notkun
þess í Reykjavík. Saltnotkun
Reykjavíkurborgar er nú um 5.000
tonn á ári, þó mismunandi eftir
árferði en Vegagerðin notar um
1.200 tonn eingöngu í Reykjanes-
umdæmi. Allt frá 1980 notuðu
Danir mest salt á Norðurlöndum
eða um 325.000 tonn á ári og á
sama tíma notuðu Svlar rúmlega
200.000 tonn og Norðmenn um
20.000 tonn. í Vestur- Þýskalandi,
þar sem negldir hjólbarðar voru
bannaðir 1975, var notkunin ein
milljón tonn á ári um 1980. Fram
kemur að víða eru menn að hugsa
um að minnka saltnotkun.
Þá segir, „Flestar athuganir
benda til þess að ef negldir hjólbarð-
ar væru bannaðir, þar sem þeir eru
í notkun núna, myndi heildarkostn-
aður samfélagsins minnka. Mestur
sparnaður er fólginn í minna sliti
vega og gatna og minni kostnaði
vegna kaupa á vegldum hjólbörð-
um. Hins vegar leiða allar athugan-
ir í ljós að naglabann leiðir til auk-
ins kostnaðar vegna fjölgunar um-
ferðaróhappa. Þar er komið inn á
viðkvæmt mál vegna þess að í raun
er þar verið að leggja að jöfnu
kostnað mannslífa og kostnað
vegna slits gatna og kaupa á negld-
um hjólbörðum. Með því að taka
ákvörðun um að banna neglda hjól-
barða væri hægt að segja um sam-
félagið, að það væri tilbúið að fórna
nokkrum mannslífum til að spara
sér malbik.
Ef hins vegar væri tryggt að því
fé sem sparaðist yrði veitt til þess
að bæta umferðarmannvirki og í
aðrar aðgerðir sem myndu fækka
umferðaróhöppum almennt dygði
það, samkvæmt norskum athugun-
um, til þess að minnka heildarfjölda
óhappa aftur niður í það sem hann
var meðan negldir hjólbarðar voru
leyfðir. Á hinn bóginn virðist, sam-
kvæmt sænskum heimildum, einnig
vera hægt að ná árangri með því
að auka slitstyrk slitlaganna. í ljós
kom að á tímabilinu 1974 til 1980
breyttust niðustöður kostnaðar-
reikninga vegna banns þannig, að
sparnaður sem reiknaðist 1974 var
ekki lengur til staðar 1980, mest
vegna aukins styrks slitlaga."
Bent er á að vegna ókosta sem
bæði salt og negldir hjóbarðar hafa,
sé víða reynt að minnka áhrif þeirra
með ákveðnum notkunarreglum,
hvenær árs skuli leyfa neglda hjól-
barða og við hvaða aðstæður eigi
að salta. Ljóst sé að ekki er hægt
að draga þá ályktun að rétt sé að
banna neglda_ hjólbarða eða að
sleppa salti. Óvissuatriðin séu of
mörg og svör við þeim spurningum
sem vakna mismunandi. Ef til vill
mætti fá betri svör og einkum svör
sem gefa mynd af íslenskum að-
stæðum, ef lagt yrði í sérstakar
athuganir og rannsóknir hér á landi.
Atvinnumál á Suðurnesjum:
Samdráttur í sjávarútvegi
og umsvifum varnarliðsins
Verkalýðsfélögin mótmæla stöðvun ráðninga í störf hjá varnarliðinu
SAMDRÁTTUR í sjávarútvegi og lítið framboð á skrifstofu- og
þjónustustörfum á Suðurnesjum veldur forystumönnum verkalýðs-
félaga þar áhyggjum. Þar við bætist að talið er að í kjölfar at-
burðanna í Austur-Evrópu geti dregið úr umsvifum varnarliðsins
á Keflavíkurflugvelli, en þar vinna um 1300 Suðurnesjamenn.
Varnarliðið hefur stöðvað ráðningar, en verkalýðsfélögin hafa
mótmælt því og farið fram á að utanríkisráðherra finni lausn á
því máli, að sögn Karls Steinars Guðnasonar formanns Verkalýðs-
og sjómannafélags Suðurnesja. Fyrirtæki sem starfa á vegum varn-
arliðsins eru hins vegar ekki bundin þessu. Eiríkur Tómasson for-
maður Útvegsmannafélags Suðurnesja telur að fari varnarliðið
héðan hafi það mjög alvarlegar afleiðingar fyrir atvinnulíf á Suður-
nesjum.
Guðbjörn Guðbjörnsson tenór-
söngvari.
Guðbjöm Guðbjömsson:
Syngurinná
hljómplötu
í Ztirich
GUÐBIRNI Guðbjörnssyni tenór-
söngvara hefur verið boðið að
syngja hlutverk í óperunni „Fötin
skapa manninn" eftir Szmilinsky
á hljómplötu, sem vestur-þýska
hljómplötuútgáfan Teldec hyggst
gefa út. Á plötunni leikur
Fílharmóníuhljómsveitin í Ziirich
undir, en sljórnandi verður Ralf
Weikert, aðalstjórnandi óperunn-
ar í ZUrich.
„Hljóðritunin fer fram 17. júní,
og það hefur verið ákveðið að ég
syngi hlutverk lýríska tenórsins.
Rolf Weikert bað mig um að taka
að mér hlutverkið eftir að hann
heyrði í mér hérna við óperuna í
Ziirich. Þessi ópera er ekki mjög
þekkt, en hún var samin árið 1921
og hefur hún verið flutt alltaf af og
til síðan,“ sagði Guðbjöm, en hann
er nú á eins árs námssamningi við
óperuna í Zúrich, sem lýkur í vor.
Guðbjörn Guðbjörnsson hóf
söngnám hjá Magnúsi Jónssyni og
útskrifaðist úr Nýja tónlistarskólan-
um árið 1987, en síðan fór hann til
Austur-Berlínar, þar sem hann lærði
söng I einkatímum hjá prófessor
Hanne-Lore Kuhse. Hann hefur gert
tveggja ára samning við óperuna í
Kiel í Vestur-Þýskalandi, en þar
byijar hann að syngja næsta haust.
Karl Steinar Guðnason sagði
mikilvægast að gera ráðstafanir til
að sjávarútvegurinn nái vopnum
sínum aftur. Atvinna á svæðinu
hefur minnkað í kjölfar þess að
skip og bátar hafa streymt af svæð-
inu og mikill kvóti með þeim. Hann
sagði nauðsynlegt að snúa þessari
þróun við.
Karl Steinar kvað mikinn áhuga
á hvers konar iðnaðaruppbyggingu
á Suðurnesjum. Nágrenni
Straumsvíkur og Helguvík hafa
verið nefnd í sambandi við nýtt ál-
ver, en ekki er vitað hvar eigendur
þess vilja staðsetja það. Auk þess
er rætt um aðra kosti í iðnaði, t.d.
þilplötuverksmiðju, og sagði hann
að bæjarstjórinn í Keflavík væri í
nánu samstarfi við þá sem hafa
með þau mál að gera.
200 manns án atvinnu á
svæðinu
„Á félagssvæði Verkalýðs- og
sjómannafélags Suðumesja, í
Keflavík, Njarðvík, Vogum og
Höfnum, eru 200 manns á atvinnu-
leysisskrá. í Keflavík er mest at-
vinnuleysi og þar 'hefur bæjarstjórn-
in lagt fé í fyrirtæki til að reyna
að halda sjóinn," sagði Karl Steinar.
Það horfir illa með atvinnuástand
á Suðurnesjum," sagði Magnús
Gíslason formaður Verslunar-
mannafélags Suðurnesja. „Verslun-
arstörfum hefur fækkað, bæði hjá
kaupmanninum á horninu og í stór-
mörkuðunum og einnig skrifstofu-
störfum. Segja má að markaðurinn
fyrir verslunarfólk hér á Suðumesj-
um sé mettur."
Magnús sagði að það kæmi sér
mjög illa fyrir verslunarfólk ef sam-
dráttur verður einnig hjá vamarlið-
inu. Þar og hjá fyrirtækjum á veg-
um þess starfa yfir fjögur hundruð
félagar í Verslunarmannafélaginu.
„Á meðan ekki er farið að draga
úr framkvæmdum á Keflavíkur-
flugvelli hugsar fólk ekki alvarlega
um hvaða afleiðingar samdráttur
þar mun hafa á atvinnulífið hér. í
því sambandi er vert að íhuga að
nú er verið að byggja þar íbúðir
fyrir 250 fjölskyldur hermanna.
Þegar þessar fjölskyldur flytja
þangað eykst samkeppnin um störf-
in gífurlega vegna þess að makar
hermanna sækjast eftir sömu störf-
um og okkar félagsmenn."
Eiríkur Tómasson formaður Út-
vegsmannafélags Suðurnesja sagði
að menn hefðu geysilegar áhyggjur
af þróun mála í sjávarútvegi á
staðnum. Það væri ljóst að hann
tæki ekki við fleira verkafólki og
ekki væri annað séð en að það yrði
stóralvarlegt mál fyrir atvinnulífið
á Suðurnesjum ef varnarliðið færi.
Getum ekki misst herinn
vegna atvinnuástands
„Ég held að stjórnmálamenn
verði að horfast í augu við að við
getum ekki misst herinn vegna at-
vinnuástandsins," sagði hann.
Eiríkur sagði að til þess að auka
tekjur útgerðarinnar væri í stór-
auknum mæli fluttur óunninn fiskur
frá íslandi. Auk þess væri flutt út
mikið magn af flöttum fiski og flök-
uðum til landa innan Evrópubanda-
lagsins. Þar væri hann saltaður og
síðan sendur á markað suður til
Portúgal í samkeppni við íslend-
inga. Þetta væri gert til að komast
framhjá tollamúrum Efnahags-
bandalagsins.
Hann sagðist vita um fyrirtæki
í Danmörku sem auglýstu eftir
íslenskum fiskverkendum og út-
gerðarmönnum til samstarfs. Bæj-
aryfirvöld í Esbjerg.bjóða til dæmis
stuðning við slfkt fyrirtæki sem
veitir atvinnulausu fólki vinnu við
að salta fisk.
„Með þessu er bandalagið að
kippa grundvelli undan rekstri
vinnslustöðva hér á landi og at-
vinnumöguleikum íslensks verka-
fólks. En það er ekki óeðlilegt að
þeir sem vilja bjarga rekstri útgerð-
arfyrirtækja sinna taki þátt í slíku
samstarfi.
Það eru pólitísk mistök að íslensk
stjórnvöld taki ekki í taumana
vegna þess að með þessum hætti
nær Efnahagsbandalagið tökum á
okkur og við erum búin að missa
samningsstöðu okkar. Smám sam-
an fara fyrirtækin út I þennan hrá-
efnisútflutning og við lendum í hlut-
verki nýlendunnar."
Eiríkur sagði að fyrst og fremst
þyrfti að fá fleiri skip og meiri kvóta
til að efla atvinnulífið á Suðurnesj-
um.
Að lokum sagði hann dæmisögu
um ástandið. Á skrifstofu hans í
Grindavík var nokkrum mönnum
litið yfir höfnina og það var álit
þeirra að þar væri orðið svolítið
vertíðarlegt um að litast, en það
vantaði bara bátana.
í Keflavík er starfandi Atvinnu-
þróunarfélag Suðurnesja hf. Það
hefur meðal annars aðstoðað fyrir-
tæki sem eru að fjárfesta og veitt
fræðslu fyrir þá sem eru að stofna
fyrirtæki og haldið námskeið t.d.
fyrir skrifstofufólk.
Jón Unndórsson forstöðumaður
Atvinnuþróunarfélagsins sagði að
stjóm þess væri nú að skoða mál-
efni Bláa lónsins og nýrrar þilplötu-
verksmiðju sem fyrirhugað er að
setja á fót. Hann sagði að möguleik-
ar í sambandi við rekstur Bláa lóns-
ins væru margir og ljóst að störf í
sambandi við það gætu skipt tugum
á næstu árum.
Áður hefur félagið meðal annars
athugað hvort hugsanlegt væri að
koma á fót umskipunarhöfn á
Keflavíkurflugvelli fyrir flutnings-
fyrirtæki sem senda vörur yfir haf-
ið, t.d. milli Bandaríkjanna og Jap-
ans. Hugmyndin var að athuga
hvort slík fyrirtæki vildu hafa bæki-
stöðvar hér. Jón sagði að menn
hefðu verið tregir til að leggja pen-
inga í slíka könnun.
„Til þess að fyrirtækið geti sýnt
einhvern árangur er nauðsynlegt
að sveitarfélögin leiti meira til okk-
ar og feli okkur verkefni. Við viljum
ganga mun lengra í því sem við
emm að gera, leita eftir nýjum
hugmyndum og reyna að koma upp
nýrri atvinnustarfsemi. Til þess
þurfum við fé og tíma. Við fáum
til okkar ýmsar hugmyndir en við
þurfum að fá menn til liðs við okk-
ur sem hafa áhuga á að gera eitt-
hvað,“ sagði Jón.
Fiskyerðsákvörðun
í algjörri sjálfheldu
Strandar á átökum í ríkisstjórn um yfirstjóm aflamiðlunar
SEGJA má að mál hafi hlaupið í hnút í ríkissfjórninni í gærmorg-
un, hvað varðar fískverðsákvörðun og stofnun aflamiðlunar vegna
ágreinings um hvaða ráðuneyti eigi að fara með yfirstjórn aflamiðl-
unar og hvernig stjórn hennar skuli skipuð. Guðmundur J. Guðmunds-
son, formaður Verkamannasambands íslands, ritaði ríkisstjórninni
bréf í nafni stjórnar VMSÍ, þar sem því var harðlega mótmælt að
útgerðarmenn og sjómenn hefðu meirihluta í stjórn fyrirhugaðrar
aflamiðlunar og lagði til að í þess stað yrði ráðherraskipaður odda-
maður í stjórninni. Eða til vara að oddamaður yrði samþykktur af
öllum aðilum. Eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær var það
algjört skilyrði af hálfii hagsmunaaðila í verðlagsráði sjávarútvegs-
ins, að hér verði komið á fót aflamiðlun, sem stýrt verði af hagsmuna-
aðilum sjávarútvegsins.
Forsætisráðherra sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að lítið
væri hægt að segja um málið að
svo stöddu, en unnið væri að lausn
þess. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins leituðu ráðamenn að
hugsanlegum oddamanni I stjórn
aflamiðlunar, þannig að útgerðar-
menn fengju einn mann í stjórn, í
stað tveggja, sjómenn einn mann,
fískverkendur einn mann og fisk-
verkafólk einn mann. Var rætt um
það í gær að leita oddamanns, sem
hinir aðilarnir fjórir gætu sætt sig
við. Það liggur hins vegar fyrir að
hagsmunaaðilarnir munu ekki
sætta sig við þann hátt mála né
að aflamiðlunin verði áfram undir
stjórn utanríkisráðuneytisins. Því
virðist sem málið sé komið í algjöra
sjálfheldu.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Verkamannasambands-
ins, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að ofangreint bréf hefði ver-
ið ritað ríkisstjóminni, því ekki
kæmi til greina í huga fiskverkun-
arfólks að útgerðarmenn gætu
myndað meirihluta í stjórninni með
sjómönnum. „Við erum búnir að fá
nóg af þessu LÍÚ-valdi, sem fær
kvóta úthlutað með einkaleyfum og
ætlar svo líka að fara að stjórna
aflamiðlun, með liðstyrk fulltrúa
sjómanna. Það bara kemur ekki til
mála. Það er ekki hægt að ganga
endalaust á rétt fiskverkunarfólks.
Það er búið að gera það hér í gegn-
um tíðina. En þessi mikla sala afla
á erlendum mörkuðum er nú orðin
svo taumlaus, að það er farið að
vinna þennan afla erlendis. Á sama
tíma er fiskvinnslufólk atvinnulaust
hér, alls staðar á landinu. Það er
aldrei hugsað _um þetta fólk, heldur
bara LÍU. LÍÚ er engin heilög kýr
hjá okkur og það er mál að linni
þessu ofurvaldi þess.“
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra kynnti bréf formanns
VMSÍ I ríkisstjórninni í gærmorgun
og ritaði verðlagsráði sjávarútvegs-
ins bréf í kjölfar þess, þar sém
m.a. segir að ríkisstjómin muni að
sjálfsögðu koma á fót aflamiðlun
til að draga úr og stýra útflutningi
á óunnum fiski í samræmi við fyrir-
heit vejgna nýgerðra kjarasamn-
inga. „I stjórn aflamiðlunar munu
verða fulltrúar hagsmunaaðila í
sjávarútvegi. Ráðherra utanríkis-
viðskipta, sem nú fer með þessi
mál, er reiðubúinn að koma slíkri
aflamiðlun á fót, án tafar, með
reglugerð. Hins vegar með tilvísun
til bréfs VMSÍ .. . er óhjákvæmilegt
að kanna betur með viðtölum við
aðila hvernig best verði staðið að
skipun stjórnar, áður en reglugerð
verður gefin út,“ segir orðrétt i
bréfinu.
Yfírnefnd verðlagsráðs sjávarút-
vegsins ritaði forsætisráðherra
svarbréf á fundi sínum í gær, sem
stóð frá kl. 14.30 til liðlega 19. 1
bréfinu, sem birt er hér á síðunni,
kemur fram að aðilar telja þetta
svar ófullnægjandi. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins fara
skoðanir Verkamannasambandsins
og Jóns Baldvins Hannibalssonar
utanríkisráðherra saman í þessu
máli. Hann mun ekki vilja að út-
gerðarmenn hafi tvo menn í stjóm
aflamiðlunar og geti þannig mynd-
að meirihluta í stjórninni með sjó-
mönnum. Þetta mun vera höfuð-
skýring þess að hann er ekki sam-
þykkur því að yfirstjóm aflamiðlun-
ar flytjist úr utanríkisráðuneytinu
yfir til sjávarútvegsráðuneytisins,
sem svo aftur yrði framseld þaðan
I hendur hagsmunaaðila, eins og
greint var frá í Morgunblaðinú i
gær. Fulltrúar LÍÚ munu á hinn
bóginn jafn staðráðnir í því að una
hvorki yfirstjórn utanríkisráðuneyt-
isins í aflamiðlun né ráðherratil-
nefningu á oddamanni í stjórnina.
Ákveðnir viðmælendur Morgun-
blaðsins gengu svo langt i gær að
segja að þessi sjálfhelda gæti gert
það að verkum að hér yrði engri
aflamiðlun komið á fót, að minnsta
kosti ekki í bráð. Því var einnig
haldið fram að slik tilhögun væri
LÍÚ síður en svo á móti skapi. Á
hinn bóginn liggur það einnig fyrii
að fulltrúar fiskkaupendatelja afla-
miðlun algjöra forsendu fyrir því
samkomulagi sem þeir hafa sæst á
hvað fiskverð varðar.
Bréf yfirnefiidar til forsætisráðherra:
Svar ríkisstj órnarinn-
ar er ekki fullnægjandi
HÉR fer á eftir bréf, sem yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins
sendi Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra í gær:
un.
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins hefur móttekið bréf yðar
frá í dag með svari við málaleitun
nefndarinnar frá 19. febrúar 1990,
þar sem farið er fram á að komið
verði á aflamiðlun í tengslum við
ákvörðun fiskverðs.
Því miður er svar þetta ekki full-
nægjandi til að tryggja lausn máls-
ins.
Nefndin vill minna á að 28. febrú-
ar 1989 náðist samkomulag á yfir-
nefnd verðlagsráðsins um fiskverð
að undangengnum fundum sama
dag, annars vegar með sjávarút-
vegsráðherra og hins vegar með
utanríkisviðskiptaráðherra, (sem
mætti á fund nefndarinnar) þar sem
gengið var frá samkomulagi um að
fela samstarfsnefnd aðila verð-
lagsráðsins stjórnun á útflutningi á
ferskum fiski í gámum.
Að beiðni utanríkisviðskiptaráð-
herra var samþykkt þessi ekki birt.
Aðilar verðlagsráðsins háfa á
síðasta ári margítrekað óskað eftir
að við þetta samkomulag yrði stað-
ið.
Engar efndir hafa á þessu orðið
og hefur utanríkisviðskiptaráðherra
látið hafa eftir sér m.a. að fleiri
aðilar ættu að eiga aðild að afla-
miðlun, þ.m.t. fulltrúi fiskvinnslu-
fólks. Jafnframt hefur ráðherra
ítrekað að ekki yrði ásættanlegt
annað en siglingar skipa með ísfisk
yrðu einnig teknar með í aflamiðl-
Ákvörðun fiskverðs hefur verið
óvanalega erfið að þessu sinni
vegna aðstæðna í efnahagslífinu,
kjarasamninga og aukins misvægis
í tekjum sjómanna og útgerðar eft-
ir ráðstöfun aflans.
Verðlagsráðið hefur haldið 16
fundi þar sem leitast var við að
finna lausn á tekjumismun sjó-
manna og útgerðar og jafnframt
skapa aðstæður þar sem aukinn
afli leitaði til innlendrar fiskvinnslu.
Aflamiðlun hefur verið lykilatriði
í þessum samningum og hefur ver-
ið leitast við að ná samkomulagi,
sem væri ásættanlegt fyrir aðila
ráðsins og jafnframt taki tillit til
sjónarmiða utanríkisviðskiptaráð-
herra. Þannig hefur náðst sam-
komulag um að allur ferskur fiskur
falli undir aflamjðlun og Verka-
mannasambands íslands ætti aðild
að aflamiðluninni.
Ljóst Ci- að allir hafa þurft að
gefa nokkuð eftir til að ná heild-
stæðu samkomulagi um þetta mál.
Niðurstaða var kynnt fyrir ríkis-
stjórn með bréfí 19. febrúar.
Aðilar ráðsins harma þá afstöðu
að ríkisstjórnin skuli ekki geta sætt
sig við það samkomulag sem náðst
hefur, en í ljósi þeirrar alvarlegu
stöðu sem er að skapast í tengslum
við fiskverðsákvörðun vilja aðilar
málsins ítreka aftur ósk sína um
jákvæða niðurstöðu í samræmi við
áðurnefnt samkomulag, þannig að
yfirnefnd Verðlagsráðsins geti
ákveðið fískverð með samkomulagi.
Virðingarfyllst,
f.h. fískkaupenda
Magnús Gunnarsson,
Bjarni Lúðvíksson,
f.h. físksefjenda
Kristján Ragnarsson,
Óskar Vigfússon,
Guðjón A. Kristjánsson.
Borgarráð:
Tillaga um
íþróttahús í
Laugardal
LÖGÐ hefur verið fram í
borgarráði tillaga um, að
fjölnota íþrótta- og sýninga-
hús verði reist í Laugardal.
Alfreð Þorsteinsson, Fram-
sóknarflokki, lagði til í fram-
haldi af umræðu um staðsetn-
ingu fjölnota íþrótta- og sýn-
ingahúss vegna HM 1995, að
borgarráð lýsi áhuga sínum á
að slíkt hús verði reist í Laug-
ardal í Reykjavík. Jafnframt
lýsi borgarráð sig reiðubúið til
viðræðna við ríkisstjómina um
framkvæmd málsins.