Morgunblaðið - 21.02.1990, Page 25
MORGUNBLAÐIg MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1990
25
/
Fjórar kvennalista-
konur í kynningarferð
til Bandaríkjanna
Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Mbl.
FJÓRIR fulltrúar Kvennalistans fara í fyrirlestra- og kynningarferð til
Minnesotaríkis í Bandaríkjunum í byrjun næsta mánaðar. Frá 5.-I4.
marz koma þær fram á fundum í 12 sveitarfélögum í Minnesota. Þær
koma bæði fram á almennum fundum og hjá skólanemum, ræða við
þingmenn og embættismenn í stjórnsýslu Minnesota, fiilltrúa viðskipta-
aðila og leiðtoga sveitarfélaga.
Fulltrúamir fjórir eru Elín Ólafs-
dóttir, borgarfulitrúi í Reykjavík,
Kristín Halldórsdóttir fyrrv. alþingis-
maður, Guðný Guðbjömsdóttir, að-
stoðarprófessor við Háskóla íslands,
og Vala Magnúsdóttir sálfræðingur
á Akureyri.
Það eru kvennasamtök í Minne-
sota, „Minnesota Worldwide Wö-
men“ sem standa að heimsókn
Fundur Röskvu
Kvennalistafulltrúanna. Þau samtök
vinna að því á ýmsan hátt að hvetja
konur til aukinnar þátttöku í hinum
ýmsu opinbem störfum í þjóðfélaginu
og hefur barátta og velgengni
Kvennalistans á íslandi vakið at-
hygli forráðamanna samtakanna.
Tugir einstaklinga, félaga og opin-
berra aðila í Minnesota hafa styrkt,
heimsókn íslenzku Kvennalistafull-
trúanna fjárhagslega. Undirbúnings-
nefnd skipuð 18 konum búsettum í
Minnesota, sumum af íslenzku bergi
brotnum, hefur undirbúið heimsókn
Gunnar M. Hansson (lengst til vinstri), Steingrímur J. Sigfússon og Jón Gunnar Ottósson velta fyrir sér
skógræktarmöguleikum á tölvunni.
FUNDUR um Stúdentaráð og
hagsmunabaráttuna verður hald-
inn á vegum Röskvu, samtaka
félagshyggjufólks í Háskóla ís-
lands, í Stúdenttikjallaranum í
kvöld, miðvikudagskvöld 21.
febrúar kl. 20.30.
(Fréttatilkynning)
íslenzku kvennanna.
I sambandi við heimsóknina verður
haldin listaverkasýning í WARM-
tistasafninu í Minneapolis frá 3.
marz til 14. apríl. Þar verða sýnd
listaverk tólf íslenzkra kvenna og níu
kvenna frá Minnesota.
Ingiberg Magnússon
sýnir í Gallerí Borg
FIMMTUDAGINN 22. febrúar
verður opnuð í Gallerí Borg,
Pósthússtræti 9, sýning á verkum
Ingibergs Magnússonar.
Ingiberg Magnússon fæddist
1944. Hann stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla íslands
1965-1970. Ingiberg hefur haldið
einkasýningar í Reykjavík 1972,
1978 og 1982, á ísafirði 1979, á
Egilsstöðum 1980, á Akranesi 1981
og í Kópavogi 1983. Einnig hefur
Ingiberg tekið þátt í fjölda samsýn-
inga hér heima og erlendis.
Verk Ingibergs er að finna í öll-
um helstu __ söfnum landsins, t.d.
Listasafni Islands, Listasafni ASI,
Listasafni Háskólans og Listasafni
Kópavogs.
Síðasta ár var Ingiberg útnefnd-
ur Listamaður Kópavogsbæjar.
Á sýningunni nú sýnir Ingiberg
teikningar og akrílmálverk. Sýning-
in er opin virka daga frá kl. 10-18
og um helgar frá kl. 14-18. Sýning-
unni lýkur þriðjudaginn 6. mars.
Við opnunina fimmtudaginn 22.
febrúar kl. 17-19 verða tónleikar
og upplestur.
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM
20. febrúar.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 95,00 82,00 85,38 5,703 486.930
Þorskur(smár) 53,00 53,00 53,00 0,284 15.052
Ýsa 125,00 100,00 114,99 2,734 314.381
Steinbítur 56,00 44,00 52,04 4,836 251.662
Steinbítur(ósl.) 30,00 30,00 30,00 0,362 10.860
Langa 55,00 55,00 55,00 0,152 8.360
Lúða 650,00 300,00 434,05 0,655 284.300
Keila 35,00 35,00 35,00 2,221 77.735
Keila(ósL) 30,00 28,00 28,54 3,494 99.736
Gellur 260,00 260,00 260,00 0,054 14.040
Kinnar 109,00 109,00 109,00 0,012 1.308
Samtals 76,55 20,539 1.572.164
í dag verða meðal annars seld 30-40 tonn af þorski, 18 tonn af ýsu og 3
tonn af ufsa úr Hjalteyrinni EA og bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 79,00 48,00 74,03 4,932 365.099
Þorskur(ósL) 85,00 70,00 82,78 1,200 99.330
Ýsa 94,00 89,00 92,82 0,650 60.332
Ýsa(ósl.) 116,00 97,00 110,97 0,591 65.581
Hlýri+steinb. 41,00 36,00 34,661 0,921 34.661
Langa+blál. 65,00 65,00 65,00 0,140 9.100
Lúða 330,00 315,00 327,06 0,158 51.675
Sólkoli 80,00 80,00 80,00 0,022 1.760
Keila 27,00 27,00 27,00 0,955 25.785
Rauðmagi 105,00 105,00 105,00 0,375 39.375
Gellur 260,00 260,00 260,00 0,020 5.200
Hrogn 190,00 120,00 211,67 0,021 4.445
Samtals 74,97 10,342 775.364
i dag verða meðal annars seld 10 tonn af ýsu, 15 tonn af karfa og 40 tonn af ufsa úr Ottó N. Þorlákssyni RE og óákveðið magn úr bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. ,
Þorskur 109,00 35,00 94,04 44,752 4.208.389
Ýsa 113,00 59,00 101,34 4,644 470.624
Karfi 45,00 26,00 38,61 5,138 198.389
Ufsi 51,00 37,00 46,28 9,791 453.158
Steinbítur 38,00 22,00 35,34 3,217 113.699
Langa 56,00 56,00 56,00 0,900 50.400
Lúða 575,00 355,00 397,91 0,090 35.613
Skarkoli 39,00 25,00 30,30 0,814 24.668
Keila 29,50 10,00 27,09 0,458 12.405
Skata 70,00 66,00 69,41 0,101 7.010
Skötuselur 180,00 118,00 149,79 0,039 5.842
Rauðmagi 90,00 87,00 87,17 0,161 14.034
Samtals 79,74 70,202 5.597.820
í dag verða meðal annars seld 30 tonn af þorski úr Skarfi GK.
Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins fær fyrstu IBM 486 tölvuna;
Skógræktin skipulögð
með nýju tölvuforriti
RANNSÓKNASTÖÐ Skógræktar
ríkisins á Mógilsá hefur tekið i
notkun nýjan tölvubúnað sem auð-
veldar skoðun á landkostum með
skógrækt í huga. Rannsóknastöð-
in keypti hina nýju IBM 486-tölvu
sem er öflug PS-tölva og hentar
vel í verkefiii sem þetta. Er það
fyrsta tölvan af þessari gerð sem
tekin er í notkun hérlendis og
heitir hún IBM 70 R21. IBM hafði
milligöngu um að koma á sam-
bandi milli Rannsóknastöðvarinn-
ar og nemenda Tölvuháskólans
um gerð forrits sem hefiir einnig
verið tekið í notkun.
Steingrímur J. Sigfússon land-
búnaðarráðherra, Gunnar M. Hans-
son, forstjóri IBM á Islandi, og Jón
Gun'nar Ottósson, forstöðumaður
Rannsóknastöðvarinnar, voru við-
staddir þegar tölvan var formlega
tekin í notkun. Var tölvuforritið
kynnt ráðherra og hinn nýi vélbún-
aður borinn saman við þann eldri
og kom vel í ljós hversu miklu fljót-
ari hin nýja gerð var að svara spurn-
ingum og .sérstaklega að leysa úr
flóknum tölfræðiþrautum en hjá
Rannsóknastöðinni fer fram mikil
tölfræðiúrvinnsla.
Þorbergur Hjalti Jónsson sérfræð-
ingur hjá Rannsóknastöð Skógrækt-
ar ríkisins segir að með þessu land-
kostalíkani fyrir skógrækt sé nú
hægt að kalla fram upplýsingar um
möguleika á skógrækt fyrir nánast
hvaða blett sem er á landinu. „Forri-
tið hefur að geyma veðurfarsgrunn
sem gefur okkur möguleika á að
bera saman veðurfar á ýmsum svæð-
um á landinu án tillits til þess hvort
þau eru nálægt eða íjarri veðurat-
hugunarstöðvum," segir Þorbergur.
„Við höfum að sjálfsögðu búið yfir
Haldínn fund-
ur um kvemia-
rannsóknir
ÁHUGAHÓPUR um íslenskar
kvennarannsóknir heldur fund
miðvikudagskvöldið 21. febrúar
og hefst hann kl. 20.30 í Skólabæ,
Suðurgötu 26.
Guðrún Olafsdóttir, dósent í
landafræði, segir frá fundi sem hún
sótti í Hollandi í desember á vegum
evrópsks tenglanets í kvennafræð-
um (ENWS eða European Network
for Womená Studies).
Þá verður umræða um úthlutun-
arreglur og kosning í úthlutunar-
nefnd vegna styrkja til kvennarann-
sókna árið 1990. Einnig verður
ijallað um rannsóknarstofu í
kvennafræðum.
þessum upplýsingum en með því að
hafa þær á tölvutæku formi er mun
fljótlegra að velta fyrir sér möguleik-
um til skógræktar og gildir það jafnt
um okkur sem vinnum að skipulegri
skógrækt og aðra sem vilja til dæm-
is rækta eitthvað í kringum sumar-
bústað sinn. Forritið þarf mjög
öflugan vélbúnað og höfum við feng-
ið hann með þessari nýju vél frá
IBM.“ Þorbergur segir þó að ekki
verði unnt að veita almenningi slíka:
upplýsingar strax, I fyrstu mun
starfsmenn Rannsóknastöðvarinnai
nota þennan búnað í starfí sínu
Næsta skref segir hann vera ac
tengja upplýsingar um vöxt og þril
tijáa við veðurfarsgrunninn. Að þv
loknu verður unnt að veita almenn
ingi mun betri ráð en nú er hæg
við val tegunda og væntanleg þrií
tijánna.
Tilkynnt var 35 árekstra til lög-
reglu um helgina. Auk þess var
tilkynnt um 6 umferðarslys.
Okumaður slasaðist í árekstri
tveggja bifreiða á Eiríksgötu við
innkeyrslu að Landspítalanum kl.
13.05 á föstudag. Þann dag slasað-
ist farþegi í bifreið, sem lenti í
árekstri fjögurra bifreiða á Lauga-
vegi við Bolholt. Aðfaranótt laug-
ardags lenti gangandi vegfarandi
fyrir bifreið á Miklubraut við
Snorrabraut. Skömmu áður hafði
rúmlega tvítugur karlmaður slas-
ast eftir að hafa fallið aftan úr
bifreið á Rauðarárstíg við Hrefnu-
götu. Hann hafði verið að gera sér
það að leik að hanga aftan í bifreið-
inni, án vitundar ökumanns. Um
nóttina varð maður, sem ætlaði
að stíga upp í bifreið á Bústaða-
vegi, með fótinn undir afturhjóli
hennar. Á sunnudag slasaðist far-
þegi eftir að bifreið hafði verið
ekið á ljósastaur á Eiðisgranda við
Grandaveg. Ökumaðurinn er grun-
aður um að hafa verið undir áhrif-
um áfengis.
43 einstaklingar gistu fanga-
geymslur lögreglunnar um helg-
ina, 21 á föstudagsnótt, 19 á laug-
ardagsnótt og 3 á sunnudagsnótt.
Á föstudagsnótt voru 7 ökumenn
í fangageymslunum eftir að hafa
verið stöðvaðir grunaðir um að
vera undir áhrifum áfengis. 3
fengu að dvelja í fangageymslun-
um þar sem þeir höfðu ekki í önn-
ur hús aðivenda. 13 voru færðir
fyrir dómara á laugardagsmorgun
og 5 á sunnudagsmorgun vegna
þess að þeir höfðu orðið uppvísir
af ölvunarólátum og mótþróa við
lögreglumenn. Mál þeirra voru af-
greidd með 3.000—12.000 kr. sátt-
argreiðslum. Nokkrir þeirra höfðu
verið handteknir í miðborginni
síðla nætur og orðið uppvísir af
miður góðri háttsemi. Þá þurfti
áfengisvarnarfulltrúi lögreglunnar
að taka fyrir mál nokkurra aðila, ;
sem handteknir höfðu verið á ,
heimilum sínum vegna ölvunar og |_
ófriðar.
Lögreglan varð að hafa afskipti
af meira en 60 ölvuðum éinstakl- j
ingum vegna slæmrar háttsemi, ,
utan þess sem að framan greinir. j -
Einungis þurfti að aðstoða 7 ;
einstaklinga eftir að þeir höfðu
læst lykla inn í bifreiðum sínum.
Tilkynnt var um 6 innbrot og 9 i
þjófnaði. M.a. var brotist inn í ,
barnaheimilið Sólbrekku við Suð- j
urströnd, verslunina Fellaís við |
Eddufell, í bifreið við Tiyggvagötu ;
og í kirkju. Alltaf virðist eitthvað !
um að stolið sé úr ólæstum bflum j
þar sem þeir eru yfírgefnir í stutt- ;■
an tíma. Þá voru íjórir staðnir að !
hnupli í verslunum. M.a. var rosk- !
in kona staðin að því að reyna að
hnupla orðabók í Hagkaupum og
drengur var staðinn að því að
reyna að hnupla peysu.
6 líkamsmeiðsl voru tilkynnt til
lögreglu um helgina, flest afleið-
ingar slagsmála og átaka. Slags-
mál nokkurra karlmanna urðu ut-
an við vínveitingahús við Gerðu-
berg aðfaranótt sunnudags.
20 ökumenn voru stöðvaðir
grunaðir um ölvun við akstur, þ.a. \
13 aðfaranótt laugardags.
15 voru kærðir fyrir of hraðan
akstur, 20 fyrir vanrækslu á skoð-
un og 45 fyrir önnur umferðarlaga-
brot, s.s. akstur gegn rauðu ljósi
og brot á stöðvunarskyldu. Þá voru
16 ökutæki fjarlægð með kranabif-
reið vegna sérstaklegra slæmrar ■
stöðu þeirra.
1 rúðubrot og 4 skemmdarverk ■
voru tilkynnt til lögreglu. Telst það ;
til tíðinda hve fá rúðubrot er um í
að ræða og mætti það verða til ;
eftirbreytni.
Mörgum var veitt aðstoð í >
ófærðinni um helgina, sérstaklega ;
í nágrenni við borgina.
UR DAGBOK
LÖGREGLUIMIMAR í REYKJAVÍK:
Helgin 16.-18. febrúar.