Morgunblaðið - 21.02.1990, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1990
Getur orðið býsna
spennandi verkefini
- segir Erling Aðalsteinsson klæðskeri
sem hlaut fyrstu verðlaun í hugmynda-
samkeppni atvinnumálanefiidar
„ÉG HEF gengið raeð þessa hug-
mynd í kollinum alla tíð frá því
ég byxjaði í þessu starfi, þetta
er eini raunverulegi möguleikinn
í fataframleiðslu hér,“ sagði Erl-
ing Aðalsteinsson klæðskeri, en
hugmynd hans um sérhæfða
buxnaverksmiðju hlaut fyrstu
verðlaun í hugmyndasamkeppni
atvinnumálanefiidar.
Erling Aðalsteinsson hefur rekið
Herrabúðina á Akureyri í tæp fimm
ár auk þess sem hann rekur tísku-
verslunina Amor, en áður var Erling
með verslunarrekstur í Reykjavík.
Hugmyndin gerir ráð fyrir að
framleiðslugeta verksmiðjunnar
yrði um 25 þúsund buxur á ári og
við verksmiðjuna gætu starfað
16-18 manns. Erling hélt utan til
Þýskalands í morgun, en þar ætlaði
hann m.a. að skoða sérhæfðar vélar
til framleiðslunnar og ræða við for-
svarsmenn fataverksmiðju þar í
landi um framleiðsluna og hvort
hugsanlega geti orðið um samstarf
þessara aðila að ræða. Þá yrði að
kanna vélakost þann sem fyrir
hendi er hér á landi og á hvaða
verði hægt yrði að fá þær á. „Þetta
getur orðið býsna spennandi verk-
efni og er framleiðslan er góð ætti
slíkt fyrirtæki að geta gengið,“
sagði Erling.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Erling Aðalsteinsson klæðskeri
hlaut fyrstu verðlaun í hug-
myndasamkeppni atvinnumála-
nefndar fyrir hugmynd sína um
að setja upp verksmiðju sem sér-
hæfði sig í framleiðslu á buxum.
Buxnaverksmiðja, minjagripamiðstöð, málmsteypa sem framleiddi listmuni og smyrsl úr vallhumli voru
þær hugmyndir sem hlutu verðlaun í hugmyndasamkeppni atvinnumálanefndar Akureyrar. Á myndinni
eru verðlaunahafar ásamt Hólmsteini Hólmsteinssyni formanni nefndarinnar og starfsmönnum hennar.
Verðlaun veitt í hugmyndasamkeppni atvinnumálanefiidar:
Buxnaverksmiðja og
smyrsl úr vallhumli
Opnir dagar í VMA:
Um 400 sóttu fyr-
irlestur um kynlíf
OPNIR dagar standa nú yfir í Verkmenntaskólanum á Akureyri og
eru fjölmörg atriði á dagskránni. Fyrirlestur Jónu Ingibjargar Jóns-
dóttur kynfræðings sem haldinn var í gær vakti mikla athygli og sátu
hann hátt í 400 nemendur skólans.
Á dagskrá í dag er fyrirlestur
Sigrúnar Stefánsdóttur um fjöl-
miðla. Þá verður gengið á Súlur,
haldin matvælakynning, handíða-
sýning, fræðsla um brunavarnir,
fallhlífarstökksnámskeið, og ljóða-
kvöld. Þá verður borðhaldsnámskeið,
útreiðartúr á vegum félagsskaparins
„Fram úr hófi“ og atvinnumálafund-
ur. Keppt verður í hárgreiðslu og
boðið upp á líkamsrækt. Málefni
Palestínumanna verða kynnt og sýnd
verður ný íslensk stuttmynd. Félags-
skapurinn Ljós í myrkri, heldur mið-
nætursamkomu.
Fyrirhugaðri ferð í Mývatnssveit
á vegum Opinna daga var frestað
vegna ófærðar. Þá er óvíst hvort
tekst að komast að Hólum í Hjaltad-
al, en þangað stóð til að fara í dag.
ERLING Aðalsteinsson klæðskeri á Akureyri hlaut fyrstu verðlaun
í hugmyndasamkeppni atvinnumálanefiidar Akureyrar fyrir hug-
mynd sína um að setja á fót Verksmiðju er sérhæfði sig í framleiðslu
á buxum. Úrslit í samkeppninni voru kynnt í fyrradag, en alls bár-
ust 35 hugmyndir í keppnina. Tilgangur keppninnar var að fá fram
hugmyndir sem orðið gætu grundvöllur að stofiiun nýrra fyrirtækja
eða þáttur í starfsemi núverandi fyrirtækja á Akureyri og markmið-
ið var að auka fjölbreytni starfa í bænum. Veitt voru þrenn verðlaun
auk sérstakra aukaverðlauna.
Erling Aðalsteinsson klæðskeri
hlaut fyrstu verðlaun, 300 þúsund
krónur, fyrir hugmynd sína um sér-
hæfða buxnaverksmiðju. Gert er
ráð fyrir í hugmyndinni að sett yrði
á fót verksmiðja sem sérhæfði sig
í framleiðslu á buxum og yrði fram-
leiðslan á þeirrrlínu sem ekki er
mjög háð tískusveiflum. Þá kemur
fram að mikilvægt sé að vera í
samstarf við erlenda aðila í sams-
konar framleiðslu, m.a. varðandi
snið og innkaup á efni. Að mati
dómnefndar eru forsendur til að
koma slíkri framleiðslu á fót á
Akureyri, m.a. er fyrir hendi sér-
Skákþingi Akureyrar lokið:
Rúnar Sigurpálsson varð
skákmeistari Akureyrar
RÚNAR Sigurpálsson varð skákmeistari Akureyrar, en Skákþingi
Akureyrar lauk á mánudagskvöld, þegar tefldar voru biðskákir
úr siðustu umferð. Eftir jafiia og tvísýna keppni í A-flokki urðu
þeir jafiiir og efstir Rúnar Sigurpálsson og Magnús Pálmi Örnólfs-
son með 6 'A vinning af 9 mögulegum. Magnús Pálmi er frá Bolung-
arvík og keppti sem gestur á mótinu og varð Rúnar því Skák-
meistari Akureyrar, en hann er nýlega orðinn 17 ára og sá
yngsti sem hlotið hefiir þennan titil síðan keppnin hófst, eða frá
1920.
í öðru sæti í A-flokki varð Bogi
Pálsson með 6 vinninga, Gylfi
Þórhallsson varð í þriðja sæti með
5'/a vinning og í 5-6 sæti urðu
Jakob Kristinsson og Reimar Pét-
ursson með 4 ‘A vinning.
í B-flokki sigraði Stefán Andr-
ésson frá Bolungarvík með 7 vinn-
inga af 9 mögulegum. Örvar
Amgrímsson varð í öðru sæti með
6 ‘A vinning og í 3.-4. sæti urðu
Smári Teitsson og Þorleifur Karls-
son með 6 vinninga. Júlíus Björns-
son fékk 5 vinninga og varð í
fímmta sæti. Af 90 skákum í A
og B-flokki lyktaði aðeins 20
skákum með jafntefli.
Akureyrarmeistari í unglinga-
flokki varð Þorleifur Karlsson með
6'/z vinning af 7 mögulegum.
Smári Teitsson o£ Örvar Arngr-
ímsson urðu í 2.-3. sæti með 5 'A
vinning og í 4.-5. sæti urðu Pétur
Grétarsson og Bjarki Albertsson
með 3 ‘A vinning. Keppni í dren-
gjaflokki var mjög tvísýn og fór
fram aukakeppni um efsta sætið.
í 1.-3. sæti urðu efstir og jafnir
Páll Þórsson, Magnús Ásbjörns-
son og Einar Jón Gunnarsson með
10'A vinning af 13 mögulegum.
í fjórða sæti varð Gestur Einars-
Rúnar Sigurpálsson
son með 10 vinninga og Hafþór
Einarsson og Halldór Ingi Kára-
son urðu í 5.-6. sæti með 9 ‘A vinn-
ing. í aukakeppni sigraði Páll ör-
ugglega og Magnús varð annar.
Keppendur á mótinu voru alls
42.
þekking frumkvöðuls, gott og stöð-
ugt vinnuafl, hefð í fataiðnaði og
húsnæði og myndi framleiðslan
falla vel að atvinnulífi bæjarins.
Einnig kemur fram að stofnkostn-
aður ætti ekki að vera mikill og
athygli er vakin á því að með notk-
un tölvutækni við hönnun, gerð
sniða og niðurefnun opnast nýir
möguleikar.
Tvær svipaðar hugmyndir komu
fram um að setja upp nokkurs kon-
ar minjagripamiðstöð, sem þrjá
konur sendu inn, en þær skiptu á
milli sín öðrum verðlaunum, 200
þúsund krónum. Guðný Gerður
Gunnarsdóttir og Guðrún H.
Bjamadóttir frá Akureyri sendu
sameiginlega inn slíka tillögu og
Halla Björk Reynisdóttir sendi einn-
ig inn svipaða tillögu. Hugmyndirn-
ar miða að því að koma skipulagi
á framleiðslu og markaðssetningu
minjagripa og er gert ráð fyrir því
að nýta fyrst og fremst íslenskt
hráefni og íslenska kunnáttu og
áhersla lögð á varðveislu íslenskra
þjóðhátta. Að mati dómnefndar
gæti slík starfsemi skapað þó nokk-
ur störf, hún myndi virkja vinnuafl
heimavinnandi fólks, m.a. eldra
fólks og fólks með skerta starfsorku
og einnig fólks til sveita.
Tveir karlar, þeir Jóhann Þórsson
Seltjarnamesi og Gunnar St. Gísla-
son hlutu þriðju verðlaun, krónur
100 þúsund fyrir hugmynd sína um
að setja á fót málmsteypu sem
framleiddi listmuni, minja- og verð-
launagripi, mestmegnis úr áli. Jon-
athan Roy Byron frá Akureyri hlaut
aukaviðurkenningu fyrir hugmynd
sína um framleiðslu á smyrsli úr
vallhumli, sem er þekktur sem góð
lækningajurt og af honum vex gnótt
í Eyjafirði. Honum er hægt að
safna, þurrka og búa til smyrsl, en
eftirspurn eftir náttúrulegum vör-
um hefur aukist mjög. Smyrsl úr
vallhumli er hvergi framleitt eins
og er.
Bæjarstjórn Akureyrar:
Tóbakströð skal
heita Steinatröð
TILLAGA byggingarnefiidar um heiti á nýrri götu vestan Spítalaveg-
ar varð tilefiii skriflegrar atkvæðagreiðslu í bæjarstjórn Akureyrar,
en bæjarráð hafði ekki fellt sig við þá tillögu neíhdarinnar að önnur
gatan af tveimur skyldi heita Tóbakströð. Baijarstjórn var hins vegar
sammála um ágæti nafiigiftar efri götunnar, en sú heitir Tónatröð.
Bygginganefnd lagði til á fundi lagði til að fram færi skrifleg at-
sínum nýlega að tvær nýjar götur
vestan Spitalavegar, neðan FSA
skyldu heita Tóbakströð og Tóna-
tröð. Sú síðamefnda í höfuðið á
þekktum söngvurum sem þar hafa
búið, en vísað er í heimsfrægt nafn
á þeirri fyrrnefndu.
Bæjarráð lagði til að í stað Tób-
akstraðar skyldi gatan heita
Stekkjatröð. í umræðum um heiti
götunnar kom fram tillaga um að
vísa liðnum aftur til bæjarráðs, en
hún var felld með sex atkvæðum
gegn fjórum. Sigríður Stefánsdóttir
kvæðagreiðsla um málið og minnti
á tillögu sem hún hafði flutt í bæjar-
ráði um að gatan hlyti nafnið Steina-
tröð.
Gísli Bragi Hjartarson kom fram
með tillögu um að gatna fengi nafn-
ið Tóbaks-Steinatröð og vísaði til
þekkts borgara á Akureyri. Skrifleg
atkvæðagreiðsla um götuheitið fór
þannig að fimm sögðu Steinatröð,
þrír Stekkjatröð, tveir Tóbakströð
og einn Tóbaks-Steinatröð. Gatan
mun því hljóta heitið Steinatröð.