Morgunblaðið - 21.02.1990, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1990
STiÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hafðu hugann við vinnuna f dag.
Þú ert með eitthvað nýtt á ptjón-
unum og hefur hugrekki til að
fylgja því eftir. Haltu hiklaust
þínu striki.
Naut
(20. apríl - 20. maQ
Þú finnur til innblásturs í morg-
unsárið og vilt tala út um það
sem þér býr í bijósti. Samvinna
hjóna gengur vel í dag. Þú kannt
að fara í ferðalag sem tengist
starfinu.
j Tvíburar
I (21. maí - 20. júní)
í dag er heppilegt að gera
langtímaáætlanir í fjármálum.
Farðu að öllu með gát og taktu
ekki á þig of þungar skuldbind-
ingar.
Krabbi
(21. júní - 22. júU) H§g
Þér er einum of mikið í mun að
hrífa einhvem. Farðu ekki of
geyst. Maki þinn kann að biðja
þig um hjálp við eitthvert verk-
efni sem ljúka þarf í dag.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þetta verður góður starfsdagur.
Þú byijar á einhveiju nýju, auk
þess sem þú iýkur farsællega við
það sem þú hefur verið með í
takinu. Haltu áfram beint af aug-
um.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Skapandi einstaklingar eru bæði
innblásnir og afkastamiklir. Þú
færð tíma til að njóta ánægjulegs
viðburðar á áhugasviði þínu. Eitt-
hvað kallar að í sambandi við
bömin þfn.
(23. sept. - 22. október)
Þú ert í skapi til að ráðast í
meiri háttar verkefni heima við.
Hvort sem um er að ræða hrein-
gemingu eða endurskipulagn-
ingu verður árangurinn þér að
skapi.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú ferð ef til vill í stutt ferðalag
í dag. Þú ert alvarlega þenkjandi
og þér miðar vel áfram. Sjálfs-
traustið vex þegar þú nærð mark-
miði þínu.
Bogmaður
-v (22. nóv. - 21. desember)
Þú hugsar mikið um fjármá! í dag
þar sem þú ert að gera fjárhags-
áætlanir. Þú gerir góð kaup á
óvæntum stað.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Byijaðu daginn snemma, þá
gengur allt að óskum. Þér er í
mun að gera þér sem mestan
mat úr hæfileikum þfnum. Þú
byijar á nýju verkefni og nærð
góðum árangri.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Farðu að öllu með gát í viðskipt-
um í dag. Þú tekur þátt i ein-
hverri góðgerðarstarfsemi.
Hvíidu þig f kvöld, þú þarft á því
að halda.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) %£t
Þú ert á kafi í félagslffinu og
færð fleiri en eitt heimboð í dag.
Vinur þinn biður þig að gera sér
greiða. Sendu póstkort til vinar
sem þú hefur ekki haft samband
við um hríð.
AFMÆLISBARNIÐ er skapandi
og gefið fyrir ævintýri, en líkindi
eru til þess að tilviljunin ráði
miklu um starfsval þess. Það
ætti að leggja sig fram um að
byggja lff sitt á eigin hæfileikum.
Stundum eyðir það kröftum
sínum sjálfu sér til tjóns. Venju-
Iega gengur því betur að starfa
sjálfstætt en vera f vinnu hjá
öðrum. Leiklist eða samninga-
gerð verða oft starfsvettvangur
þess.
DÝRAGLENS
‘ímT0! cí . ©1990 Trlbunð Madía Sorvlces, Inc. All Rlght* Reserved — "í FV&IE6SFBU Av \ SEIM/CAÐI... EN/HéfcfX VAE TEE/NN T HALB \ ^5 \o/Vt STVHMe&ftttR) Í&C
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
1 gÚZíSiÍÉZ''?'**-BfcrA-
L TO/VMI SÉB&& l/CETT/e FA
KEICTA fcOTTO/F} Ccp At
% t V 1 - VV
LJÓSKA
r rvri .
Stjörnuspána á að lesa sem
dœgradvól. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindategra staðreynda.
Ef til þess kæmi, að við sæjum björn í dag, vona ég að einn ykkar hafi a.m.k. tekið eitthvað það með sér, sem
myndi hræða hann ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Amarson
Einn helsti frammámaðurinn
í bridslífi Breta, Nico Gardener,
lést í London í síðasta mánuði
81 árs að aldri. Gardener var
þekktur bridskennari í heima-
borg sinni og bridshöfundur.
Hann skrifaði meðal annars, í
samvinnu við Victor Mollo,
kennslubókina „Card Play
Technique", sem að margra
mati er ein sú besta sinrtar teg-
undar. En Gardener var ekki
bara góður leiðbeinandi; hann
var einnig mjög skæður rúbertu-
spilari, eins og eftirfarandi spil
ber með sér:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ ÁD32
¥ G972
♦ 1032
*D8
Vestur
♦ KG10965,
¥K3
♦ 6
+ 9764
Austur
+ 4
VÁD10865
♦ DG87
+ 52
Suður
+ 87
¥4
♦ ÁK954
+ ÁKG103
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 tígull
2 spaðar 2 grönd 3 hjörtu 4 lauf
pass 4 tíglar pass 5 lauf
pass pass pass
Útspil: hjartakóngur.
Gardener hélt á spilum suðurs
og einhverra hluta vegna taldi
makker hans að laufliturinn
væri lengri og skildi hann því
eftir í fimm laufum. Vestur hitti
á bestu vömina með því að spila
hjartakóng og meira hjarta og
stytta suður í trompinu.
Gardener tók fjórum sinnum
tromp, svínaði spaðadrottningu
og spilaði tígultíunni úr borðinu
— gosi og ás. Skiptingin var nú
sem opin bók, Gardener vissi af
fjórlitnum í tígli í austur og virt-
ist ekki geta fengið nema 10
slagi án þess að hleypa austri
inn. En hann fann fallegan milli-
leik: spilaði spaða og dúkkaði. í
þeirri stöðu átti vestur ekkert
nema spaða eftir, svo spaðaásinn
átti næsta slag og þvingaði aust-
ur um leið í rauðu litunum.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Finnar komu geysilega á óvart
á Evrópumóti landsliða í Haifa í
nóvember með því að skjótast upp
í fjórða sæti í lokin. Þessi staða
kom upp á EM í skák Finnans
Antti Nokso-Koivisto (2.320),
sem hafði hvítt og átti leik, og
ítalans Mario Lanzani (2.310).
30. Dxh7+! - Hxh7, 31. 17+ -
Kf8, 32. Hxh7 - Bg5, 33. Hh8+
— Ke7, 34. Hxa8 (Nú er björninn
unninn, hvítur hefur endurheimt
tvo hróka fyrir drottninguna.
Svartur gaf eftir:)
34. - Bh6, 35. Be5 - Dc5, 36.
He8+ - Kd7, 37. Hdl+.
Finnskir skákmenn áttu mikilli
velgengni að fagna á síðasta ári.
Þeirra öflugasti skákmaður, al-
þjóðlegi meistarinn Jouni Yrjölá,
náði t.d. stórmeistaraáfanga á
Norðurlandamótinu og verður á
8. borði hjá Norðurlandaúrvalinu
í stórveldaslagnum í næsta mán-
uði.
Finnska skáksambandið hefur
hins vegar legið undir miklu ámæli
í skákblöðum á Norðurlöndunum
fyrir það hvernig það stóð að
Skákþingi Norðurlanda sl. sumar.