Morgunblaðið - 21.02.1990, Blaðsíða 35
35
MORGUNBtAÐIÐ MIÐVIKUDAQUR 21. FEBRÚAR 1990
Kveðjuorð:
Benedikt Guðmunds-
son, Staðarbakka
Benedikt Guðmundsson bóndi á
Staðarbakka lést í sjúkrahúsinu á
Hvammstanga að morgni 17. jan-
úar sl. á 85. aldursári.
Hann hafði kennt sér lasleika um
nokkurn tíma. Eigi að síður kom
fráfall hans á óvart eins og oft vill
verða þegar fólk er kvatt burt af
þessum heimi. Tveim dögum fyrir
andlát Benedikts heimsótti ég hann
að Staðarbakka, hann hafði þá dag-
inn áður komið heim af sjúkrahús-
inu á Hvammstanga eftir nokkurra
daga veru þar. Hann var þá hress
og eins og ætíð áður fróðlegt og
gaman við hann að ræða.
Þegar góður vinur hverfur héðan
á braut þyrpast fram minningar lið-
inna daga sambland af trega og
eftirsjá eftir ónotuðum tækifærum
til samvista. Við fráfall þessa mæta
manns hverfur af sjónarsviðinu
litríkur sveitahöfðingi og drengur
góður sem ætíð reyndi að leysa
hvers manns vanda ef til hans var
leitað og vann ómetanleg störf fyr-
ir sveit sína og hérað.
Benedikt fæddist 30. nóvember
1905 í Hnausakoti í V-Hún. Hann
var sonur hjónanna Guðmundar
Gíslasonar bónda þar og síðar
bónda og hreppstjóra á Staðar-
bakka og konu hans Margrétar
Elísabetar Benediktsdóttur. Bene-
dikt fluttist með foreldrum sínum
að Staðarbakka 1907 og hefur átt
þar heimili æ síðan.
Hann stundaði nám við Bænda-
skólann á Hvanneyri og varð bú-
fræðingur þaðan 1931. Eftir lát
föður síns 1930 stóð hann ásamt
Gísla bróður sínum fyrir búi móður
sinnar til ársins 1945 er hann ásamt
eiginkonu sinni Ásdísi Magnúsdótt-
ur frá Torfastöðum í Núpsdal hóf
búskap á hálfri jörðinni Staðar-
bakka og ráku þar myndarbú þar
til fyrir nokkrum árum að sonur
þeirra Rafn tók við jörðinni.
Benedikt gegndi fjölda trúnaðar-
starfa fyrir sveit sína og hérað og
verður hér aðeins fátt eitt nefnt:
Hann átti sæti í hreppsnefnd Ytri-
Torfustaðahrepps í 25 ár og var
oddviti hennar í mörg ár. I sýslu-
nefnd V-Hún. frá 1961-1978,
hreppstjóri Ytri-Torfustaðahrepps í
12 ár. Fulltrúi á fundum Stéttar-
sambands bænda og Búnaðarsam-
bands V-Hún. um ijölda ára. For-
maður fasteignamatsnefndar
V-Hún. í stjóm Sparisjóðs Vestur-
Hún. og í stjórn Veiðifélags Mið-
firðinga frá 1938-1973 þar af í
ijórðung aldar formaður.
Öllum þessum störfum ásamt
ijölda annarra starfa sem honum
voru falin gegndi Benedikt af trú-
mennsku og alúð. Honum var sér-
staklega lagið að setja niður deilur
og ganga þannig frá málum að all-
ir mættu vel við una. Hann var
rökfastur og hélt vel á sínu máli
og óragur að láta sínar skoðanir í
ljósi. Hann var víðlesinn og marg-
fróður og miðlaði þar mörgum af,
því andlegu lífsþreki og skýrri hugs-
un hélt hann til hinstu stundar.
Þegar Ungmennafélagið Grettir
var stofnað 1928 þótti Benedikt
sjálfsagður formaður þess og þar
vann hann mikið og óeigingjarnt
brautryðjendastarf og undir hans
stjórn starfaði félagið að ýmsum
framfara- og menningarmálum.
Hann var þátttakandi í flestum
þeim leiksýningum sem ungmenna-
félagið stóð fyrir allt frá þeirri
fyrstu til hinnar síðustu. Benedikt
hafði mikla ánægju af söng og var
í Karlakór Miðfirðinga og kirkjukór
um margra ára skeið.
Á Staðarbakka hefur verið kirkja
um langa tíð. Sú kirkja sem þar
stendur nú verður 100 ára á þessu
ári. Benedikt var safnaðarfulltrúi
og í sóknarnefnd Staðarbakkasókn-
ar í fjölda ára og lengst af formað-
ur. Hann annaðist málefni kirkjunn-
ar eins og allt annað af sérstakri
alúð og umhyggju. Þau hjón Bene-
dikt og Ásdís beittu sér fyrir því
að kirkjan var að verulegu Ieyti
endurbyggð fyrir nokkrum árum
og dreg ég í efa að það verk hefði
verið unnið ef áhugi og framtak
þeirra hjóna fyrir því verki hefði
ekki komið til. Ætíð stóð heimili
þeirra hjóna opið öllum kirkjugest-
um. Þar var tekið á móti gestum
af hlýhug og einlægni og þeim boð-
ið að veisluborði.
Benedikt var maður hógvær og
hið mesta prúðmenni í allri fram-
komu, greindur vel, góðlátlega
glettinn, vinsæll og vinmargur enda
var hjálpfýsi hans og drenglund
viðbrugðið.
Þau Benedikt og Ásdís eignuðust
ögur börn. Þau eru: Margrét, gift
lafi H. Jóhannssyni, búsett í
Reykjavík. Ingimundur, kvæntur
Matthildi Sverrisdóttur, búsett í
Reykjavík, Jón Magnús, kvæntur
Þorbjörgu Ólafsdóttur, búsett í
Mosfellsbæ og Rafn, kvæntur Ingi-
björgu Þórarinsdóttur, bóndi á
Staðarbakka. Benedikt gaf börnum
sínum gott veganesti út í lífíð, það
hafa þau sýnt því öll eru þau hinir
mætustu þjóðfélagsþegnar.
Lokið er löngum og gifturíkum
ferli og eftir standa merkin um
ómetanleg störf og margir munu
minnast með hlýjum hug hins mæta
manns og sveitahöfðingja sem nú
er horfinn okkur á vit almættisins.
Þeim Staðarbakkahjónum færi
ég og fjölskylda mín innilegar þakk-
ir fyrir hlýhug og velvilja í okkar
garð. Einnig þakka ég þeim fyrir
þá ræktarsemi sem þau ætíð sýndu
foreldrum mínum.
Ég kveð Benedikt með virðingu
og þakka honum samstarfið á liðn-
um árum. Blessuð sé minning hans.
Ásdísi og börnum þeirra og
vandamönnum sendum við hjónin
einlægar samúðarkveðjur.
Jóh. Björnsson
Þegar mér barst þau tíðindi, að
Benedikt Guðmundsson á Staðar-
bakka væri allur, setti mig hljóðan.
Ég hafði ekki þekkt hann lengi,
aðeins síðustu 14 ár ævi hans. Samt
fann ég til verulegs tómleika við
fregnina og fann einnig að nú var
genginn maður, sem hafði haft
veruleg áhrif á umhverfi sitt. Um
hugann þutu ýmis samskipti í gegn-
um árin, við þennan góða og
greinda mann. Kynni okkar hófust
veturinn 1976-77 þegar við lékum
saman í leikritinu „Landabrugg og
ást“ sem sett var upp á vegum UMF
Grettis. Þá var Benedikt kominn á
áttræðisaldur. Samt var hann hrók-
ur alls fagnaðar, með sinni hæ-
verska „húmor“ og kitlandi hlátur
sem kom öllum í gott skap. Á sama
tíma vann ég við nýbyggingu Rafns,
sonar hans og var í fæði hjá þeim
hjónum Ásdísi og Benedikt. Um
margt var þá spjallað og þá helst
um sögu liðinna tíma í Miðfjarðar-
sveitum. Benedikt var víðlesinn
maður og haugsjór af fróðleik. Þeg-
ar komið var inn á málefni sveitar-
innar og þjóðfélagsmál, fann maður
að þar fór traustur maður með fast-
mótaðar skoðanir. Með sinni ein-
stöku hógværð og rökfestu bar
maður ósjálfrátt mikla virðingu fyr-
ir þessum mæta manni. Eru mér
þessar stundir í eldhúsinu á Staðar-
bakka ákaflega hugljúfar. Eftir að
við hjónin fluttum úr Miðfirði, vest-
ur til Súgandafjarðar, höfum við
alltaf reynt að koma við á Staðar-
bakka, þiggja kaffi og meðlæti og
ræða málin. Það hafa ævinlega
verið ánægjulegar stundir og til-
hlökkunarefni. Með þessum fátæk-
legu orðum vil ég kveðja öðlings-
manninn og sveitarhöfðingjann
Benedikt Guðmundsson. Ég og fjöl-
skylda mín vottum Ásdísi, börnum
og fjölskyldum þeirra innilegustu
samúð og biðjum þeim Guðs bless-
unar.
Ragnar Jörundsson
ATHYGLISVERÐASTA AUGLÝSING ÁRSINS 1989
Auglýsingasamkeppni ÍMARK, íslenska markaðsklúbbsins,
verður haldin föstudaginn 23. febrúar kl. 16:00 í Borgarleikhúsinu.
ímarkfélagar, fólk sem starfar á sviði auglýsinga- og markaðsmála
og annað áhugafólk—fjölmennið!
Gefendur verðlauna í ár eru:
Fróði hf., íslenska útvarpsfélagið, Morgunblaðið, Póstur og sími, Prentsmiðjan Oddi,
Stöð 2, Útflutningsráð íslands, Verslunarráð íslands.
• Kynnir: Gísli Blöndal.
• Flosi Ólafsson flytur ávarp.
• Heiðursgestur: Gylfi Þ. Gíslason.
Að lokinni verðlaunaafhendingu verður boðið
uppáléttarveitingar.
IMARK*
(SLENSKI MARKAÐSKLÚBBURINN
SÍÐASTA VIKA ÚTSÖLUNNAR
— Meiri há.tta.r verðlækkun —
40% afsláttur af öllum HSlRIRíRl IRÍÍKII
GaAJNiT vörum. SNORRABRAUT 56 SÍM11 35 05