Morgunblaðið - 21.02.1990, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRUAR 1990
fólk í
fréttum
KVENNARAÐ
Kalli
þáði koss-
innenekki
rósina
Karl Bretaprins leyfði konu
sem ruddist framhjá lífvörð-
um hans að kyssa sig á kinnina
en þáði hins vegar ekki rauða rós
sem hún hugðist gefa honum.
Atvikið átti sér stað á pólóleik í
Vero Beach á Flórída í Banda-
ríkjunum sl. sunnudag. Konan er
bresk og heitir Anita Littler.
Fluttist hún til Flórída fyrir ára-
tug og ók 250 km til þess að sjá
prinsinn sem var heiðursgestur á
leiknum. Hann komst úr jafnvægi
þegar konan óð skyndilega að
honum, hikaði og reyndi að stíga
til hliðar, en sá þó fljótt að ekki
þýddi að hopa því slíkur var ák-
afi konunnar að komast í snert-
ingu við hann. Tók hann í fyrstu
við rósinni en rétti hana svo til
baka. Myndin var tekin er konan
var í þann mund að kyssa hinn
konunglega vanga.
ÞORRABLOT
Fjölmennasta
þorrablótið
í Lundúnum
Fyrir nokkru héldu íslendingar í Lundúnum og næsta nágrenni
þorrablót. Var það að sögn hið fjölmennasta sem íslendingar hafa
haldið í Bretlandi til þessa og tóku um 250 manns þátt í því. Björgúlf-
ur Thorsteinsson formaður Islendingafélagsins í Lundúnum og Helgi
Ágústsson, hinn nýi sendiherra íslands í Bretlandi, ávörpuðu gesti og
að loknu borðhaldi lék hljómsveitin Strax fyrir dansi ásamt söng-
konunni Steinunni Bjamadóttur.
Egill og Steinunn taka „Út á stoppustöð" af mikilli innlifun.
SKAUTADANS
Einsog
að horfa
átvo
trúða
Skautadrottningin austur-
þýska, Katarina Witt, æfir
enn af kappi og sýnir listdans
á skautum þótt hún hafi lagt
keppnisskautana á hilluna ef
þannig mætti að orði komast.
Hún hefur tekið saman við
bandaríska skautadansarann
Brian Boitano á faglegum
grandvelli og æfa þau nú af
kappi vegna mikiilar sýninga-
ferðar sem hefst 15. apríl næst-
komandi. Boitano segir Kata-
rinu vera hinn mesta grallara,
þannig eigi hún það til er þau
æfa saman og sá er gállinn á
henni, að bregða sér hvað eftir
annað þannig að hann stingist
á svellið. Svo þegar hann staul-
ist á fætur, „eins og asni“,
spyiji hún með glott á vör,
„hva, geturðu ekki staðið á fót-
unum?“ „Stundum er það eins
og að horfa á tvo trúða er við
eram að æfa,“ segir Boitano.
Boitano og Witt á fullri ferð.
David Able t.v. og James Franchino.
FOTLUN
Vinátta
gefiir nýja von
David Able heitir 10 ára gamall
drengur vestur í Banda ríkjun
um. Vegna mistaka við lyfjagjöf er
móðir hans gekk með hánn vanskap-
aðist hann alvarlega, fæddist eins
og myndin ber með sér án handa og
fóta. Hann er sagður fjallhress þrátt
fyrir alvarlega fötlun. Hann segir
árið 1989 hafa verið viðburðaríkt í
lífi sínu, sitt besta ár hingað til.
Hann hóf að ganga í skóla með ófötl-
uðum, fékk inngöngu í yrðlngaflokk
heimabæjar síns, Colombíu í Suður-
Karólínu, fékk inngöngu í hverfakór
og leiklistarklúbb. En það sem mest
er um vert, David eignaðist sérstakan
vin, James Franchino frá Massa-
husets, sem er 9 ára gamall og fædd-
ist með sams konar fötlun.
Linda Franchino móðir James litla
segir vináttu þeirra vera guðsgjöf.
Hún hafí oft reynt að stappa stálinu
í James með því að segja honum að
hann væri ekki einn á báti, líkt væri
með fleirum komið, en hún hafi ævin-
lega átt fá svör við spurningu James
hvar þá væri eiginlega að finna.
Fundum þeirra James og Davids bar
saman eftir að tímaritð People ritaði
grein um David Able. Franchino-
fjölskyldan las greinina og hafði
strax samband. Þeir David og James
hafa nú þegar hist nokkrum sinnum
og tala daglega saman í síma. Þeir
hafa heitið hvor öðrum vináttu til
æviloka. Báðir segja það auðvelda
tilveruna að vita hvor af öðrum, það
sé mikilsvert að vita að þeir standi
ekki einir.
RfMNGUSUl
Rýmingarsalan
opin út þessa viku
Opið frú kl. 10-18
Bertelsen hf,
(■■ijllll heildverslun fE]
Fosshálsi 21 — Sími 674522