Morgunblaðið - 21.02.1990, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1990
Fiskverkendur
Til sölu sprautusöltunarvél og salt-
dreifarar frá Traust hf.
Upplýsingar gefur Guðmundur í síma
97-81885.
hádegisverðartilboð
LJÚFFENGT
O G Ó D Ý R T
SUPA & SALAT
val i'ir 5 salalréttimi
695 kr.
SUPA & PASTA
val úr 10 pastaréttum
695 kr.
SÚPA & BRAUÐLOKA
val.úr 4 brauðlokutn
695 kr.
PASTA & SALAT
val itr 10 pastaréttum
650 kr.
Hugsum okkur nær
Til Velvakanda.
Nú þegar ljóst er að við íslend-
ingar ætlum að gefa kindakjöt til
Rúmeníu, þá get ég ekki lengur á
mér setið og mér blöskrar vægast
sagt gæði okkar. Mín skoðun er sú
að við ættum að hugsa okkur nær.
Þá á ég við að gefa þeim íslending-
um kjötið sem eiga vart ofan í sig
eða á.
Það er failegt og göfugt að gefa
þeim sem bágt eiga og eiga um
sárt að binda einhverra hluta vegna.
En að þurfa að sýna mátt okkar
og megin á erlendri grund þegar
margir eru þurfandi hér heima
finnst mér keyra um þverbak.
Hjálpum þeim sem þurfa hér heima
áður en við förum að dreifa mann-
gæskunni út um allan heim. Ég
efast ekki um að einhveijir væru til
í að þiggja obbulítið brot af þessu
kjöti. Það væri þó allavega ein
máltíð, jafnvel tvær handa þeim
sem þurfa.
Svona fyrst ég er byijuð að skrifa
þá er ég á þeirri skoðun að fækka
beri alþingismönnum og ráðherrum.
Og án efa mætti stokka upp víða
í ríkisbákninu. Það er þó alltaf leið
til sparnaðar, en ekki á ég von á
því að svo verði; enginn vill missa
sneið af sinni köku. Ef endurskipu-
lagning ætti sér stað í ríkisgeiran-
um og einhver afgangur yrði, þá
gætum við með glöðu geði sent út
um allan heim afgangsaurana. Og
þá værum við vonandi búin að leysa
vanda þeirra fátæku hér heima
fyrst. Og svona til tilbreytingar
væri í lagi að byija efst í valdapír-
amídanum en ekki neðst eins og
virðist vera lögmái þegar kemur að
niðurskurði eða endurskipulagn-
ingu.
Hafdís L. Pétursdóttir
Skýjakljúfur
í Reykjavík
Kæri Velvakandi
Viltu vinsamlega birta þetta opna
bréf til borgarstjóra:
Sæll kæri Davíð! Ég hef fengið
hugmynd, þar sem þú stendur nú
alltaf í stórræðum. Hún er þessi:
Byggjum 110 hæða skýjakljúf (láttu
Lottóið borga) fyrir aldraða í heimin-
um á stað sem ég nú nefni: á gamla
Framvellinum fyrir neðan Sjómanna-
skólann við Skipholt. Þakka allar
þínar gjafir, en gjöf er gæfa.
Svo er annað mál sem snertir
borgina og ríkið. Geðlæknir sagði
mér, að það kostaði 16.000 kr. á
sólarhring að dvelja á sjúkrahúsi.
Betra væri að auka heimahjúkrun,
fækka deildum á sjúkrahúsum og
hækka örorku- og ellilaun. Um leið
og ég kem með þessa tillögu vil ég
vekja athygli á húsnæði Geðhjálpar.
Mætti líkja því við Kaliforníu (Cali-
fomia is cold and damp), sem sagt
húsið er kalt og hriplekt.
Húsaleigan er alltaf að hækka svo
við þessir „fjallaindíánar" eigum
senn hvergi höfði að halla, hvorki
hér né nokkurs staðar innan Banda-
ríkjanna.
Vinur minn og_ ég höfum þaul-
hjugsað tvennt: í fyrsta lagi að
byggja hitaelement yfir Reykjavík
svo að fólk krókni ekki úr kulda í
vetrarsnjó eins og skáldið kvað:
Það eru örlög íslendings,
að ösla vetrarsnjó,
margur karlinn krapsins beið
króknaði og dó
(Leifur Jóelsson)
og í öðru lagi: Byggja brýr yfir gat-
namót þar senm nú loga götuvitar
þannig að umferð skerist ekki á gat-
namótum, sem þýðir (non stop
traffic) viðstöðulausa umferð.
Pálmi Orn Guðmundsson.
HJÁOKKUR \
FERVELUMFÓLK \
ÍVIÐSKIPTAERINDUM!
Gistiaöstaöa er glsesileg á
Hótel Sögu. í herbergjunum
er góö vinnuaðstaöa og öll
þægindi þar fyrir hendi.
A veitingastöðum okkar
bjóðum við mat og þjónustu í
sérflokki og fundaraðstaða á
hótelinu er eins og best
veröur á kosið.
Hafðu samband
í síma 29900.
Leítið til okkar
SMITH &NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300