Morgunblaðið - 21.02.1990, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRUAR 1990
43
KORFUBOLTI
Grindvík-
ingar reka
Ron Davis
Reyna að fá annan
erlendan leikmann
Ron Davis, bandaríska leik-
manninum í liði Grindvík-
inga, var sagt upp í gær. og lék
hann siðsta leik sinn með liðinu
í gær. Davis hef-
FráFrímanni ur reyndar ekki
Ólafssyni leikið nema tíu
iGrindavík leiki með
Grindvíkingum í
deildinni en hann tók við af Jeff
Null sem var rekinn eftir ellefu
umferðir.
„Davis stóð ekki undir þeim
væntingum sem gerðar voru til
hans og því var ákveðið _að láta
hann fara,“ sagði Ægir Ágústs-
son, stjómarmaður í kðrfuknatt-
leiksdeild UMFG. Hann sagði
að þeir myndu róa að því öllum
árum að fá annan bandarískán
leikmann fyrir leikinn gegn
Keflvíkingum á sunnudaginn en
Grindvikingar þurfa að sigra í
þeim leik til að eiga möguleika
á efsta sæti A-riðils. Hjálmar
Hallgrímsson, bakvörður
Grindvíkinga, leikur ekki með
liðinu gegn ÍBK en hann er í
leikbanni.
Grindvíkingar höfðu grennsl-
ast fyrir um leikmann frá Pú-
ertó Ríkó en sá var að leika með
landsliðinu og komst því ekki.
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
URSUT
UMFIM-Haukar 95:76
íþróttahúsið í Njarðvík, úrvalsdeildin í
körfuknattleik, þriðjudaginn 20. febrúar
1990.
Gangur leiksins: 0:2, 6:2, 12:8, 16:17,
27:17, 35:33, 43:36, 46:40, 53:40, 58:45,
69:49, 75:55, 82:63, 90:70, 95:72, 95:76.
Stig UMFN: Patrick Releford 30, Jóhannes
Kristbjömsson 17, Teitur Örlygsson 14,
Friðrik Rúnarsson 11, Friðrik Ragnarsson
8, Ástþór Ingason 7, Helgi Rafnsson 4,
Agnar Olsen 2 og Rúnar Jónsson 2.
Stig Hauka: Jonathan Bow 31, Henning
Henningsson 17, Pétur Ingarsson 8, Eyþór
Ámason 6, Ingimar Jónsson 4, Jón Amar
Ingvarsson 3, Pálmar Sigurðsson 3, Tryggvi
Jónsson 2 og ívar Ásgrimsson 2.
Áhorfendur: Um 150.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Kristinn
Albertsson.
UMFG-Valur 95:92
Iþróttahúsið ( Grindavík, úrvalsdeildin í
körfuknattleik, þriðjudaginn 20. febrúar
1990.
Gangur leiksins: 0:2,10:4, 19:13, 29:19,
39:33, 51:42. 60:48, 71:60, 87:73, 92:77,
92:88, 95:92.
Stig ÚMFG: Ron Davis 30, Steinþór Helga-
son 26, Guðmundur Bragson 20, Hjálmar
Hallgrímsson 11, Bergur Hinriksson 4,
Marel Guðlaugsson 2 og Rúnar Ámason 2.
Stig Vals: Chris Behrends 30, Matthías
Matthfasson 12, Ari Gunnarsson 10, Einar
Ólafsson 8, Svali Björgvinsson 8, Ragnar
Jónsson 7, Guðni Hafsteinsson 7, Svein-
björn Sigurðsson 6 og Björn Zoega 4.
Áhorfendur: Um 250.
Dómarar: Kristján Möller og Sigurður
Valgeirsson. Dæmdu þokkalega.
Steinþór Helgason, UMFG. Chris Behrends,
Val. Patrick Releford og Teitur Örlygsson,
UMFN. Jonathan Bow, Haukum.
Guðmundur Bragason, Hjálmar Hallgríms-
son og Ron Davis, UMFG. Matthías Matt-
hfasson og Ari Gunnarsson, Val. Helgi
Rafnsson og Jóhannes Kristbjörnsson,
UMFN. Henning Henningsson, Haukum.
1. deild karla:
ÍS-UMFL.........................79:92
1. deild kvenna:
UMFN-ÍBK........................44:69
NBA-deildin
Mánudagur:
Chicago Bulls — Houston Rockets... 107:102
Dallas — Cleveland Cavaliers... 96: 87
Sacramento — LA Clippers....... 99: 97
Detroit Pistons — MiamiHeat.... 94: 85
Denver — Golden State Warriors.114:109
Utah Jazz — Philadelphia........115:102
Tvær breytingar frá
því í Frakklandi
Leifur Dagfinnsson og ÖskarÁrmannsson bætast í hópinn
BOGDAN Kowalczyk, þjálfari
íslenska landsliðsins íhand-
knattleik, tilkynnti í gær hvaða
16 leikmenn hann hefur valið í
íslenska landsliðið fyrir heims-
meistarakeppnina íTékkósló-
vakíu sem hefst eftir rétta viku.
Litlar breytingar eru á hópnum
síðan í B-keppninni í Frakklandi
en Óskar Ármannsson og Leif-
ur Dagfinnsson koma í stað
Birgis Sigurðssonar og Hrafns
Margeirssonar.
Hópurinn sem Bogdan valdi
kom ekki á óvart enda er hann
skipaður þeim leikmöniium sem
mesta hafa leikið síðustu vikurnar.
Gunnar Beinteinsson, Konráð Olav-
sson, Sigurður Bjamason og Berg-
sveinn Bergsveinsson verða eftir
heima en þeir hafa lítið fengið að
spreyta sig í síðustu landsleikjum
íslendinga.
Landslið íslands fyrir heims-
meistarakeppnina í Tékkóslóvakíu
HANDBOLTI
Sigurður
ekkimeðgegn
Hollendingum
Sigurður Sveinsson leikur ekki
með íslenska landsliðinu í
handknattleik gegn Hollendingum
í Laugardalshöllinni um helgina.
Sigurður er að leika með liði sínu,
Dortmund, gegn Hameln í 2. deild-
inni í vestur-þýsku deildinni á föstu-
daginn og kemst því ekki í leikina.
Sigurður hefur fengið leyfi til að
sleppa leik með Dortmund 3. mars
en verður að leika með liðinu þann
8. og því getur hann ekki verið með
í síðasta leik íslenska landsliðsins í
keppninni.
Sigurður hefur lítinn þátt tekið
í undirbúningi landsliðsins og aðeins
verið með í tveimur leikjum liðsins,
gegn Norðmönnum um áramótin,
en þá lék hann samtals í rúmar
fimm mínútur. „Ég hef ekki verið
mikið með í kerfunum og veit nú
satt að segja ekki hvort nokkur
ástæða er til þess, enda ekki mikið
spilað,“ sagði Sigurður. „En þetta
var ljóst allan tímann að ég yrði
ekki með í þessum leikjum og Bogd-
an vissi það þegar hann valdi mig
í liðið," sagði Sigurður.
Sigurður kemur til móts við fé-
laga sína í London eða Prag og
heldur áfram með þeim til Zlien,
þar sem forriðlarnir eru.
er skipað eftirtöldum leikmönnum.
Markverðir:
Einar Þorvarðarson..........Val
Guðmundur Hrafnkelsson.......FH
Leifur Dagfinnsson............KR
Hornamenn:
Guðmundur Guðmundsson ..Víkingi
Bjarki Sigurðsson........Víkingi
V aldimar Grímsson...........Val
Jakob Sigurðsson.............Val
Línumenn:
Þorgils Óttar Mathiesen.......FH
Geir Sveinsson........Granollers
Útileikmenn:
Alfreð Gíslason..........Bidasoa
Héðinn Gilsson................FH
Júlíus Jónasson.........Asnieres
Sigurður Gunnarsson..........IBV
Óskar Ármannsson..............FH
Kristján Arason.............Teka
Sigurður Sveinsson....Dortmund
Landsliðið heldur utan á sunnu-
daginn og gistir eina nótt í London
en áætlað er að liðið komi til Zlien
síðdegis á mánudegi, tveimur dög-
um fyrir fyrsta leikinn, gegn Kúbu.
Leifur Dagfinnsson.
KNATTSPYRNA
Páll tekur
fram knatt-
spymuskóna
PÁLL Ólafsson, landsliðs-
maður í handknattleik, hefur
ákveðið að taka aftur fram
knattspyrnuskóna og leika
með KR-ingum í 1. deildinni í
sumar. Páil lék síðast knatt-
spyrnu með Þrótti í 2. deild
1986.
Páll sagði að knattspymuá-
huginn hafi alltaf blundað í
sér. „Mig hefur lengi langað til
að prófa knattspymuna aftur og
sjá hvar ég stend. Það fer hver
að verða síðastur. Ég hef því
ákveðið að reyna mig með KR í
surnar," sagði Páll.
Páll lék alls 83 leiki með meist-
araflokki Þróttar og skoraði í
þeim 29 mörk. Hann á að baki
tvo A-landsleiki, þrjár U-18 ára
og ijóra U-16 ára leiki. Hann er
því enginn nýgræðingur í knatt-
spymunni, þó svo hann hafi ekki
leikið í fjögur ár.
Páll Ólafsson ætlar að snúa sér
að knattspymunni í sumar.
KÖRFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILDIN
Njarðvíkingar aftur í gang
Njarðvíkingar sýndu á köflum
skínandi leik þegar þeir sigr-
uðu Hauka frá Hafnarfirði 95:76 í
Njarðvík í gærkvöldi. Haukar, sem
hafa sýnt ágæta
FráBimi leiki að undanförnu,
Blöndal stóðu í heimamönn-
i Njarðvík um fram undir miðj-
an fyrri hálfleik, en
síðan ekki söguna meir.
Njarðvíkingar náðu ágætum
kafla um miðjan fyrri hálfleik og
náðu þá 10 stiga forskoti, en í hálf-
leik var staðan 46:40. í síðari hálf-
leik náðu heimamenn fljótlega 20
stiga forskoti sem þeir héldu allt
til ieiksloka enda mótspyrnan ákaf-
lega lítil af hálfu Hafnfirðinga.
Sem fyrr voru þeir Patrick Rele-
ford og Teitur Örlygsson aðalmenn
Njarðvíkinga, sem virða,st vera að
ná sér á strik aftur eftir misjafnt
gengi.
Lítið fór fyrir baráttunni hjá
Haukunum að þessu sinni og Pálm-
ar Sigurðsson sem verið hefur einn
besti maður liðsins á undanförnum
árum kom lítið við sögu að þessu
sinni og lét sér nægja að skora
aðeins þijú stig í öllum leiknum.
Grindvíkingar á bigurbraut
G rindvíkingar unnu Valsmenn í
úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik í gærkvöldi með 95:92. Sigur-
inn var öruggari en lokatölur gefa
til kynna en
Frá Frimanni Grindvíkingar slök-
Ólafssynii uðu á í lokin eftir
Grindavík að kafa nað f 5 stiga
forskoti rétt fyrir
leikslok.
Grindvíkingar léku ágætlega og
hittu vel í fyrri hálfleik og gerðu
m.a. sjö þriggja stiga körfur og
staðan í leikhléi var 51:42,
Grindvíkingum í vil. Svipaður mun
ur var á liðunum í seinni hálfleik
fram undir lokin þegar Valsmenn
náðu að klóra í bakkann.
Steinþór Helgason átti mjög góð-
an leik í liði UMFG og gerði sex
þriggja stiga körfur. Ron Davis var
dijúgur í stigaskori í síðasta leik
sínum að sinni.
Chris Behrends var sem fyrr að
almaðurinn hjá Valsmönnum en
Matthías Matthíassoh og Ari Gunn-
arsson áttu góða spretti.
Óskar Ármannsson.
ÍÞRÓmR
FOLK-
■ ENDURNÝJUN í landsliðinu í
handknattleik er nokkuð markviss,
eða um tveir leikmenn á ári. Átta
af sextán leikmönnum íslenska
landsliðsins frá heimsmeistara-
keppninni í Sviss 1986 eru enn í
liðinu, 11 af 15 sem voru í liðinu á
Ólympíuleikunum í Seoul 1988 og
fjórtán af sextán úr liðinu sem sigr-
aði í B-keppninni í Frakklandi í
fyrra.
■ ÞRÍR landsliðsmenn hafa eign-
ast böm síðusta vikumar, Guð-
mundur Guðmundsson og Einar
Þorvarðarson í janúar og loks
Bjarki Sigurðsson í fyrradag. Allir __
hafa þeir eignast stóra og stæðilega'
stráka.
■ UM eitt hundrað íslendingar
hafa sótt um vegabréfsáritun til
Tékkóslóvakíu fyrir heimsmeist-
arakeppnina. Þá er einnig búist við
að íslendingar sem búsettir em á
meginlandi Evrópu fylgist með
íslenska landsliðinu í heimsmeist-
arakeppninni.
■ GUNNAR Gunnarsson, stjórn-
armaður í HSÍ, verður blaðafulltrúi
íslands í keppninni. Hlutverk hans
einskorðast ekki við íslensku blöðin,
heldur mun hann einnig kynna er-
lendum_ fjölmiðlum ýmislegt er
varðar ísland og helstu stuðnings-
aðila landsliðsins.
■ ÞRJÚ sæti em laus í ferð frá
Kaupmannahöfh á heimsmeistara-
keppnina í handknattleik í Tékkó-
slóvakíu. Tveir íslendingar, bú-
settir í Danmörku, standa fyrir
ferðinni. Lagt verður af stað frá
Kaupmannahöfn 3. mars og komið
aftur þann 12. Ferðin kostar um
28.000 ísl. kr. og innifalið í verðinu
er hótel með hálfu fæði, miðar á
fimm leiki og rútuferðir. Hægt er
að boða þátttöku í síma 42-652096
og 33-321244 í Danmörku.
■ KOSTNAÐUR HSÍ vegna und-^
irbúnings landsliðsins fyrir heims-
meistarakeppnina er um 20 milljón-
ir króna. Á móti hefur HSÍ fengið
tekjur af landsleikjum og auglýs-
ingasamningum. Þá hefur
Reykjavikurborg ákveðið að fella
niður um 800 þúsund króna kostnað
vegna húsaleigu. Gert er ráð fyrir
því að kostnaður vegna ferðarinnar r
til Tékkóslóvakíu verði tæplega
fjórar milljónjr.