Morgunblaðið - 14.03.1990, Síða 1
48 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
61,tbl. 78. árg.
MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sovétríkin:
Völd forsetans aukin og
einokun flokksins afhumin
Míkhaíl Gorbatsjov, for-
seti Sovétríkjanna, lagði
áherslu á orð sín þegar
hann sagði í þingumræð-
unum í gær, að ákvörðun-
in um að auka völd for-
setaembættisins og nema
úr gildi forræði kommún-
istaflokksins í þjóðfélag-
inu væri merkasta skrefið,
sem stigið hefði verið í
stjórnartíð hans.
Moskvu. Reuter.
SOVÉSKA þingið samþykkti í gær tillögur Míkhaíls Gorbatsjovs
um stóraukin völd forsetanum til handa og jafnframt, að 72 ára
valdaeinokun kommúnistaflokksins heyrði nú sögunni til. And-
stæðingar tillögunnar höfðu spáð því, að mjótt yrði á mununum
en sú varð ekki raunin. Var hún samþykkt með miklum mun, eða
1.817 atkvæðum gegn 133. Voru hlutföllin svipuð þegar ákveðið
var að svipta flokkinn forystuhlutverkinu og ryðja um leið braut-
ina fyrir Qölflokkakerfí í Sovétríkjunum.
Stuðningsmenn tillögunnar, þar
á meðal margir róttækir umbóta-
sinnar, héldu því fram í umræðun-
um í gær, að aðeins sterkur og
valdamikill leiðtogi gæti knúið fram
nauðsynlegar breytingar á efna-
hagslífinu og tryggt allsheijarfrið
og reglu á þeim óvissu tímum, sem
nú væru í Sovétríkjunum. „Ég óska
þinginu til hamingju," sagði Gor-
batsjov þegar úrslitin lágu fyrir.
„Þetta er stórt og mikilvægt skref
á leiðinni til lýðræðis."
Tillagan um nýja forsetaembætt-
ið felur í sérp að forsetinn verði
fyrsta sinni kjörinn af þinginu til
fimm ára en síðan í beinum kosn-
ingum allra landsmanna. Eru marg-
ir stuðningsmenn nýju skipunarinn-
ar óánægðir með, að Gorbatsjov
skuli ekki vilja efná til kosninga
strax og hafa flutt breytingartillögu
við það atriði. Verður líklegast tek-
ist á um hana í dag áður en þingi
lýkur.
Margt þykir benda til, að komist
hafi verið að einhverri málamiðlun
á bak við tjöldin milli Gorbatsjovs
og sumra andstæðinga tillögunnar,
þar á meðal fulltrúa Eystrasalts-
og Kákasusríkjanna og samtaka
róttækra umbótasinna. Er sagt, að
samið hafi verið um, að forsetinn
geti ekki lýst yfir neyðarástandi í
einhveiju lýðveldanna án samþykk-
is forystumanna þess og verði hann
þá að bera það undir þingið. Ef
rétt er á slíkur samningur ekki síst
við nú þegar Litháar hafa lýst yfir
sjálfstæði, hvatt Gorbatsjov til að
flytja burt sovéska hermenn og
leysa Litháa úr herþjónustu.
Atkvæðagreiðslan á sovéska
þinginu í gær er einn mesti sigur
Gorbatsjovs á fimm ára ferli hans
í valdastóli. Hann hefur losað sig
við flesta valdamenn frá Brezhnev-
tímanum, neytt ráðamenn í komm-
únistaflokknum til að horfast í augu
við kjósendur og nú loksins fengið
því framgengt, að forystuhlutverk
flokksins í sovésku þjóðfélagi hefur
verið afnumið. Perestrojkan, eða
efnahagsumbæturnar, virðast hins
vegar lítinn eða engan árangur
hafa borið og lífskjörin hafa fremur
versnað en hitt.
Reuter
Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands:
Bonnstjórnin mun kaupa spari-
fé Austur-Þj óð verj a á naftiverði
Alusuisse
hagnast vel
Ztirich. Frá Önnu Bjarnadóttur,
fréttaritara Morgunblaðsins.
REKSTUR Alusuisse-Lonza
gekk „óvenju vel á síðasta
ári“ sagði dr. Hans K. Juc-
ker, framkvæmdastjóri
svissneska ál- og efhafyrir-
tækisins, á fúndi með frétta-
mönnum í höfúðstöðvum fyr-
irtækisins í Ziirich í gær.
Móðurfyrirtækið var rekið
með 5,2 milljarða ísl. kr.
hagnaði 1989 eða 52,2%
meiri ágóða en árið áður og
dótturfyrirtækin með 18,6
milljarða hagnaði.
Góðæri, mikil eftirspurn,
hagkvæmni í rekstri og aukin
áhersla á verðmæta framleiðslu
stuðluðu að velgengni fyrirtæk-
isins. A-L framleiðir pú um
370.000 tonn af hrááli á ári eða
um 80% af eigin þörf. I árs-
skýrslu þess kemur fram að það
hafi dregið sig út úr undirbún-
ingshópum um álframleiðslu á
íslandi og í Kanada af hag-
kvæmnisástæðum.
Leipzig, Austur-Berlín, Bonn. Reuter.
VESTUR-þýsk stjórnvöld ætla að leggja vestur- og austur-þýska
markið að jöfhu hvað varðar sparifé í Austur-Þýskalandi. Helmut
Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, lýsti þessu yfir í gær á fjölmenn-
um fúndi í Gottbus í Austur-Þýskalandi, en á sunnudag, 18. mars,
verður gengið til fyrstu frjálsu kosninganna þar í landi í 40 ár.
Búist er við, að myntbandalag þýsku ríkjanna verði að veruleika
fljótlega eftir kosningar en samkvæmt síðustu skoðanakönnunum
fær enginn flokkur hreinan meirihluta á þingi.
Kohl lagði áherslu á, að'ákvörð-
unin um að gera mörkunum jafn
hátt undir höfði tæki aðeins til
sparifjár, ekki til alls efnahagslífs-
ins, en talið er, að sparifé Austur-
Þjóðverja sé um 170 milljarðar
austur-þýskra marka. Hafa Aust-
ur-Þjóðverjar óttast, að tilkoma
vestur-þýska marksins gerði sparifé
þeirra að engu enda er það austur-
þýska allt að sex sinnum verð-
minna. Jafnaðarmenn í Austur-
Þýskalandi hafa áður sagt, að
myntbandalagið megi ekki dragast
lengur en til 1. júlí en í gær sagði
Lothar de Maiziere, formaður kristi-
legra demókrata þar í landi, að því
yrði að koma á innan nokkurra
vikna. „Hver einasta vika kostar
okkur 10.000 manns,“ sagði hann
og átti þá við fólksflutningana tii
Vestur-Þýskalands.
Enginn einn flokkur fær meiri-
hluta á austur-þýska þinginu í kosn-
ingunum á sunnudag ef marka má
síðustu skoðanakannanir en þær
benda til, að jafnaðarmenn fái 30%
atkvæða, bandalag þriggja borg-
araflokka, sem njóta stuðnings
kristilegra demókrata í Vestur-
Þýskalandi, 21% og kommúnista-
flokkurinn fyrrverandi 15%. Kjós-
endur eru 12,2 milljónir alls og um
hylli þeirra og 400 sæti á þingi
beijast 24 flokkar.
Sjá „Hver verður.. . “ á bls. 21.
Reuter
Kohl var innilega fagnað þegar hann sagði í Gottbus, að Austur-
Þjóðverjar þyrftu ekki að hafa áhyggjur af sparifé sinu. Áætlað er,
að það sé um 170 milljarðar marka eða sem svarar til rúmlega sex
þúsund milljarða ísl. kr.
Sjálfstæði Litháens:
Óljós viðbrögð Moskvustjórnar
Moskvu. Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov segir að sú ákvörðun Litháa að ítreka sjálfstæðis-
yfirlýsinguna ft’á 1918, sé „ólögleg og ómerk“ og vísar á bug öllum
hugmyndum um tvíhliða viðræður Sovétstjórnarinnar við Litháa eða
aðrar Eystrasaltsþjóðir. „Við eigum aðeins viðræður við erlend ríki,“
sagði Gorbatsjov. Síðar í ræðu leiðtogans virtist liann þó milda afstöðu
sína nokkuð.
Einn af fulltrúum Lettlands mót-
mælti þegar orðum Sovétleiðtogans
og sagði að Moskvustjórnin yrði að
sætta sig við viðræður á jafnræðis-
grundvelli. Gorbatsjov sagði að sjálf-
stæðismál Litháa yrði tekið fyrir i
Æðsta ráðinu strax og fundi fulltrúa-
þingsins lýkur en það verður að
líkindum í dag, miðvikudag.
Arnold Rutel, einn af fulltrúum
Eistlands, sagði Gorbatsjov hafa tek-
ið vel í ósk þingmannahóps landsins
um að eiga aðild að nefnd sem fjalla
skal um sjálfstæðisyfirlýsingu Lit-
háa. Þingmennirnir hefðu einnig far-
ið fram á viðræður um sjálfræði Eist-
lands.