Morgunblaðið - 14.03.1990, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1990
Táragasi beitt til að yfirbuga pilta:
Réðust gegn lögregl-
unni með hnífa á lofti
KRAFIST var í gær gæsluvarðhalds í 10 daga yfir tveimur þeirra
fjögurra pilta á átjánda ári sem fíkniefnalögregla handtók í húsi við
Austurberg í fyrrakvöld, vegna gruns um dreifíngu og sölu á fíkni-
efnum. Þegar lögreglan knúði dyra á heimili piltanna tveggja réð-
ust þeir vopnaðir hnífum að lögreglunni og þurfti að beita táragasi
til að yfírbuga þá. Þetta er í fyrsta skipti sem fíkniefnadeild lögregl-
unnar hérlendis mætir vopnaðri mótspyrnu í starfí sínu. Lögreglu-
menn slösuðust ekki en hlutu skrámur í átökum við piltana. Rann-
sóknarlögreglu ríkisins hefúr verið falin rannsókn málsins. Sakadóm-
ur Reykjavíkur tekur afstöðu til gæsluvarðhaldskröfunnar í dag.
Að sögn Arnars Jenssonar lög-
reglufulltrúa í fíkniefnadeild er
þetta í fyrsta skipti sem fíkniefna-
lögreglumenn hérlendis mæta vopn-
aðri mótspyrnu í starfi sínu. Arnar
sagði að lögreglan hefði mætt á
staðinn eins og jafnan óvopnuð og
með húsleitarheimild. Þegar við-
brögð piltanna hefðu orðið þau að
grípa til hnífa og ógna lögreglu-
mönnum hefðu þeir dregið sig í hlé
og kvatt til tvo meðlimi sérsveitar
lögreglunnar, sem jafnan væru til
taks ef svo færi að fíkniefnalögregl-
an mætti andspymu af þessu tagi.
Sérsveitarmennirnir hefðu beitt
táragasi og þá hefðu piltarnir gefist
áfram ganga óvopnuð til húsleita
og annarra starfa sinna, en hins
vegar gera ráðstafanir til að tryggja
öryggi sitt svipaðar þeim og hefðu
í fyrradag sannað gildi sitt, gegn
vopnaðri mótspyrnu afbrotamanna.
Tveir piltanna, þeir sem nú hefur
verið krafist gæsluvarðhalds yfir,
em bræður og búsettir í húsinu.
Þeir gripu til hnífanna. Tveir piltar
á sama aldri voru gestkomandi en
höfðu sig minna í frammi. Þeir
hafa verið látnir lausir. í húsinu
fundust nokkur grömm af kanna-
bisefnum og talsvert af áhöldum
sem tengjast fíkniefnanotkun.
Vorboði á vetri
ÆRIN Sokka frá Brúarhlíð í Blöndudal bar á mánudaginn tveimur lömbum. Var þar um að ræða botnótt-
an brút og flekkótta gimbur, sem á meðfylgjandi mynd kúra í fangi þeirra Ingibjargar Steinunnar Guð-
mundsdóttur og Haralds Eyþórssonar í Brúarhlíð. Sokka, sem er þriggja vetra, hélt þar með upp á af-
mæli þriggja íbúa í Blöndudal á mánudag. Þess má geta til gamans að Sokka bar sínu fyrsta lambi í apríl
í fyrra.
upp.
Arnar Jensson sagði að lögreglan
legði mikla áherslu á að ganga
óvopnuð til starfa sinna og vinna
að málum af þessu tagi á eins frið-
samlegan hátt og unnt væri. Hann
sagði að fíkniefnadeildin mundi
Friðrik Sophusson:
Sambærileg
eldislán og í
samkeppnis-
löndunum
Breytingartillögur meiri-
hluta fjárhags- og viðskipta-
nefndar neðri deildar Alþingis
við stjórnarfrumvarp um
Ábyrgðardeild fískeldislána
koma til atkvæða í þingdeild-
inni í dag. Friðrik Sophusson
segir að breytingartillögurn-
ar, sem varða ábyrgðarhlut-
fall og lengd ábyrgðartíma,
eigi að færa framleiðslugrein-
ina nær jafnstöðu, að þessu
leyti, við fiskeldi í samkeppn-
isríkjum.
Breytingartillögumar fela það
m.a. í sér að heimildarákvæði
til sjálfskuldarábyrgðar er
hækkað úr 37,5% af verðmæti
eldisstofns í 50% og að ábyrgð-
artíminn lengist úr þremur árum
í fjögur, það er sem svarar eldis-
ferli í 4—6 kg. lax.
Sjá frásögn á þingsíðu, bls.
27.
Leyfi til saltfískútflutnings verði
veitt með ströngum skilyrðum
- segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra
„ÉG GERI ráð fyrir að þegar
einokun Sölusambands íslenskra
fískfí'amleiðenda á saltfískút-
flutningi verður aflétt verði leyfi
til útflutnings á saltfíski veitt
með ströngum skilyrðum,“ sagði
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra í samtali við
Morgunblaðið. Hann sagðist
engu vilja spá um það hvenær
einokun SÍF yrði aflétt en að
sumu leyti væri vandi þeirra fyr-
irtækja, sem flutt hefðu út fersk-
an, flattan físk, brýnn og aðkall-
andi. „Ég hef hins vegar fullan
hug á að hafa samráð við SÍF
og taka tillit til þeirra sjónarmiða
eftir því, sem tök eru á.“
Utanríkisráðherra fundaði á
mánudag með fulltrúum SÍF og
þeirra, sem sótt hafa um leyfi til
útflutnings á saltfiski. „Þetta voru
upplýsingafundir, þar sem þeir
fluttu sitt mál og sín rök og ég
lýsti mínum viðhorfum. Við tökum
hins vegar ekki ákvarðanir fyrr en
að vandlega athuguðu máli.“ Jón
Baldvin sagði það rétt að hann hefði
skrifað SÍF bréf fyrir réttu ári, þar
Norrænir utanríkisráð-
herrar hitta Mandela
JÓN Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra mun ásamt starfs-
bræðrum sínum á hinum Norður-
löndunum eiga fund með blökku-
mannaleiðtoganum Nelson Mand-
ela í Stokkhólmi í dag, miðviku-
dag.
Utanríkisráðherra sagði í samtali
við Morgunblaðið að ætlunin hefði
verið að Mandela hitti ráðherrana
er þeir funduðu í 'Turku í Finnlandi
fyrir skömmu en ekki hefði getað
orðið af því. Suður-afríski leiðtog-
inn hefði sjálfur óskað eftir fundin-
um; Norðurlönd hefðu ávallt verið
í fararbroddi þeirra sem stutt hefðu
frelsisbaráttu blökkumanna í Suð-
ur-Afríku. Mandela vildi því ráðgast
við fulltrúa Norðurlandanna um það
hvemig lokatakmarki Afríska þjóð-
arráðsins (ANC), fullu frelsi og
mannréttindum blökkumanna, yrði
náð.
sem segi meðal annars að ekki séu
uppi ráðagerðir um breytingar á
sölufyrirkomulagi saltfisks á hefð-
bundnum mörkuðum SÍF.
„Ég skrifaði þetta bréf að þeirra
beiðni þegar þeir voru í viðkvæmum
samningum og töldu sig þurfa að
vita með vissu hvort þeirra skilyrði
yrðu óbreytt á næstunni. Síðan
hafa nú aðstæður breyst verulega.“
Jón Baldvin sagði að sér væri ekk-
ert að vanbúnaði að ræða þetta
mál í ríkisstjórninni. Hins vegar
væri stefnumörkun í utanríkisvið-
skiptum, þar á meðal veiting út-
flutningleyfa, í höndum utanríkis-
ráðuneytisins og hann bæri ábyrgð
á þvi.
Jón Baldvin sagði að reglugerð,
sem Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra setti nýlega um bann
við útflutningi á ferskum, flöttum
fiski með skipum, hefði ekki verið
sett í samráði við utanríkisráðu-
neytið. „Halldór lét mig hins vegar
vita af reglugerðinni örskömmu
áður en hún var sett. Mér þótti
þessi reglugerðarsetning tillitslaus
og ég hef gagnrýnt það að fótunum
skuli vera kippt undan starfsemi
fyrirtækja, sem hafa byggt upp
starfsemi og markaði í góðri trú á
nokkrum tíma og tel að það hefði
átt að gefa þessum mönnum lengri
aðlögunartíma," sagði Jón Baldvin.
Jón Ásbjörnsson, Jón Ármann
Héðinsson hjá Hreifa, Björgvin
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
íslensks nýfísks, Helgi Einarsson,
framkvæmdastjóri Hafnfirðings,
Ævar Guðmundsson, forstjóri Seifs,
Jósteinn Elíasson hjá Toppfíski og
Kristinn Kristinsson, framkvæmda-
stjóri Pólar-Frosts, gengu á fund
utanríkisráðherra á mánudag en
þeir hafa sótt um leyfí utanríkis-
ráðuneytisins til að flytja út léttsalt-
aðan fisk og fullunninn saltfísk.
Jón Ásbjörnsson sagði að hart
væri lagt að utanríkisráðherra að
veita leyfi til að flytja út léttsaltað-
an físk. „Það þýðir að hægt yrði
að flytja fiskinn út, eins og gert
hefur verið, en í stað þess að setja
ís í körin yrði fiskurinn saltaður og
hann verkast á leiðinni út. Þá er
gæðaspursmálið náttúrulega úr
sögunni," sagði Jón.
Hann sagði að einnig hefði verið
lagt hart að utanríkisráðherra að
veita leyfi til útflutnings á fullunn-
um saltfiski gegn ákveðnum ströng-
um skilyrðum, til dæmis í sambandi
við verð og pökkun. „Enda þótt
mönnum verði gefinn kostur á að
senda út fullunninn fisk yrðu nán-
ast engir, sem gætu uppfyllt þessi
skilyrði," sagði Jón Ásbjörnsson.
Á annað hundrað framleiðendur
á saltfiski hafa skorað á utanríkis-
ráðherra að breyta ekki núverandi
sölufyrirkomulagi á saltfiski, þar
sem það hafi tryggt íslenskum
framleiðendum stöðugleika og
sterka stöðu á erlendum mörkuðum.
Áhafnir á 19 línubátum hafa hins
vegar sent utanríkisráðherra og
sjávarútvegsráðherra bréf, þar sem
þeir mótmæla banni á útflutningi á
ferskum, flöttum fiski og telja það
aðför að fijálsum fiskmörkuðum.
Reynslan hafi sýnt að auka þurfi
frelsi í viðskiptum með fisk.
Þá ritaði Ingjaldur Hannibalsson,
framkvæmdastjóri Útflutningsráðs
íslands, utanríkisráðherra bréf í
gær, þar sem hann leggur til að
utanríkisráðuneytið sendi fulltrúa í
kynnisferð á saltfiskmarkaði við
Miðjarðarhaf áður en ákvörðun um
breytt sölufyrirkomulag verði tekin.
Segir Ingjaldur m.a. að fyrirvara-
lítil breyting gæti valdið skaða.
Skuldbreyting loðdýrabænda:
Heimilt er að veð-
setja allt að 100%
LOÐDÝRABÆNDUR sem breyta lausaskuldum sínum í föst lán
með ríkisábyrgð fá að veðselja jarðir sínar og hús 100% vegna
skuldbreytingarlánanna. Almennar reglur Ríkisábyrgðarsjóðs
segja til um að veðsetning sjóðsins og þau lán sem hvíla á fyrri
veðréttum megi ekki fara yfír 75% af matsverði eignanna. Loðdýra-
búin eru svo veðsett að skuldbreytingin hefði ekki náð fram að
ganga með þessum skilyrðum og gaf Ijármálaráðherra þá út sér-
staka reglugerð þar sem í þessu tilviki var heimilað að veðselja
eignirnar til fúlls.
Við framkvæmd skuldbreyting-
arinnar, sem fram fer samkvæmt
lögum sem samþykkt voru á Al-
þingi fyrir áramót, hefur komið í
ljós að meirihluti bænda hefur hætt
loðdýrabúskap og margir þeirra
sem eftir eru hafa minnkað veru-
lega við sig. Um áramót voru enn
með dýr aðeins 95 af þeim 202
bændum sem svöruðu fyrirspurn
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins um
áhuga á skuldbreytingu og 5-10
hafa síðan hætt.
6-7 Ioðdýrabændur sem búa á
ríkisjörðum hafa óskað eftir því að
ríkið kaupi fasteignir þeirra á jörð-
unum en þeir fái að búa þar áfram.
Því hefur verið vel tekið í land-
búnaðarráðuneytinu. Jafnframt
liggur fyrir að þeir fá að veðsetja
ríkisjarðirnar fyrir skuldbreytinga-
lánum.
Sjá fréttir á bls. 25.
Jaftit hjá Norð-
urlöndum og
Sovétmönnum
VIÐUREIGN Sovétmanna og
Norðurlanda í stórveldaslagnum í
skák lauk með jaihtefli, 5:5.
Englendingar unnu Bandaríkja-
menn. Sovétmenn eru efstir með
22,5 vinninga, Bandaríkjamenn með
21 v., Englendingar með 20 v. og
Norðurlönd með 16,5 v. Fimmta
umferð verður tefld í kvöld.