Morgunblaðið - 14.03.1990, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1990
15
Formrannsóknir
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Listhúsið einn einn á Skóla-
vörðustíg 4a kynnir fram til 15.
marz sýnishorn af pappírssamfell-
um Jóhanns Eyfells, auk nokkurra
skúlptúra og lágmynda.
Kjarninn í list Jóhanns Eyfells
er vafalítið glíman við sívirkar
einingar, eins og hlutirnir koma
fram í náttúrunni.
í einn stað eru rúmtaksmyndir
hans líkastar vörðum, eða eru eins
konar tákn viðkomustaða í tíma
og rými. Lífrænt kennileiti á veg-
ferð mannsins. Þær líkjast iðulega
storknaðri fyrirferð hraunsins og
hefur sá þáttur orðið meira áber-
andi á síðari tímum sbr. litlu vörð-
urnar á sýningunni, sem eru úr
bræddum málmi, en áður hjó hann
þær til og mótaði með eigin hönd-
um í hraunhellur, steypti og felldi
saman. Lágmyndir hans eru
líkastar byggingu jarðskorpunnar
(strúktúr) svo og lausari fyrirbær-
um og minnist ég þess er ég sá
hvernig náttúran fer að því að
móta og forma byggingu sína á
sýningunni Undrin, „fenomena", í
Zurich um árið. En á þeirri sýn-
ingu gat að líta tilorðningu og
ferli ótal fyrirbæra jarðar, sem
maður annars hafði einungis lesið
sér til og séð tilbúin.
Pappírssamfellurnar, sem verða
til við þrýsting: „Samloka er
þvinguð undir verulegt farg og
stöðugt álag aðdráttarafls í tíma-
bil sem varir í nokkrar vikur.
Samlokan er í þrem lögum. í
miðju er örk af mynd-gleypnum
pappír. Hann liggur á votu jarð-
rænu „bæli“ eða leðju. Ofan á
pappírinn kemur síðan „stimpill",
sem er skapaður á listræna vísu,
úr margvíslegum málmum og
málmblöndum." Þannig fást áhrif
sem minna ekki svo lítið á blettinn
sem við sjáum er við veltum við
steini úti í náttúrunni og hefur
verið manninum undrunarefni frá
ómunatíð og er enn. í sjálfu sér
er þetta það sem við nefnum
„natúralisma" út í fingurgóma,
Jóhann Eyfells
eða ein tegund hans, en hugsun
slíkra hefur ekki einungis verið
að endurgera náttúruna í hennar-
raunverulegu mynd, heldur og
einnig að skjalfesta núið á meðan
athöfnin átti sér stað og myndin
varð til á milli handa listamanns-
ins.
Það eru þannig til ýmsar hliðar
á náttúrustefnunni og það er
mögulegt að búa til hinar flókn-
ustu kenningar í kringum sköpun-
arferlið hvetju sinni. Á stundum
óvæntar og þess eðlis að vekja
skoðandann til vitundar utn hvað
á bak við hugsun gerandans ligg-
ur.
Jóhann Eyfells hefur lengi verið
vel metinn listamaður meðal
þeirra er fylgdust með athöfnum
hans á meðan hann dvaldist hér
og starfaði hluta úr sjöunda ára-
tugnum. Hann hélt þá eina stóra
listsýningu í Listmannaskálanum
gamla sem góða athygli vakti
meðal listamanna og hann var _að
auk virkur í sýningarnefnd FÍM
og sem kennari í myndmótun við
MHÍ.
Liststefnurnar List í landslagi
(Land Art) og Naumhyggja (Mini-
mal Art) ásamt fyrirbærinu „Tími
og rými“ hafa og gert það að
verkum að ungir hafa beint sjón-
um sínum að þessum listamanni
í auknutn mæli.
í raun og veru hafa öll fyrirbær-
in verið þekkt í athöfnum manns-
ins um þúsundir ára, en það rýrir
engan veginn gildi listastefnanna.
Hér er Jóhann Eyfells frumleg-
ur og upprunalegur listamaður,
sem verður er allrar athygli svo
sem þessi ánægjulega sýning
verka hans gefur til kynna.
Grindavík;
Listi Sjálf-
stæðismanna
lagður fram
Grindavík.
SJÁLFSTÆÐISMENN í
Grindavík samþykktu einróma
frainboðslista á almennum fé-
lagsfundi um helgina. Listinn er
mikið breyttur frá því síðast var
kosið og annar af tveimur bæjar-
fulltrúum sjálfstæðismanna gefúr
ekki kost á sér áfram.
Guðmundur Kristjánsson gefur
ekki kost á sér áfram en hann
hefur verið bæjarfulltrúi síðastliðin
tvö kjörtímabil. Eðvarð Júlíusson
skipat' fyrsta sætið sem áður en
aðrir á listanum eru: 2. Margrét
Gunnarsdóttir, 3. Birna Óladóttir,
4.Ólafur Guðbjartsson, 5. Jón Guð-
mundsson, 6. Pálmi Ingólfsson, 7.
Jóhannes Karlsson, 8. Guðmundur
Einarsson, 9. Jónína ívarsdóttir
10. Gísli Þorláksson 11. Guðbjörg
Eyjólfsdóttir 12. Guðmundur Guð-
.mundsson 13, Sigrún Sigurðardótt-
ir og 14. Guðmundur Kristjánsson.
Stemningar til-
finningaTífsins
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Sýningar í Listamannahúsinu,
þar sem áður var Hafnargallerí
við Hafnarstræti, hafa um langt
skeið legið niðri, og hélt ég sann-
ast sagna að upphaf þess hefðu
einnig markað endalokin. En nú
kveður sér þar hljóðs kornung
listspíra, Birgitta Jónsdóttir að
nafni, með 36 myndum af ýmsri
gerð, en þó að meginhluta til
þurrpastel.
Birgitta hefur sinnt skáldskap
og myndlist jöfnum höndum
undanfarin ár og hefur haldið
tvæi' sýningar áður, hina fyrri í
Jónshúsi í Kaupmannahöfn en
hina síðari í íslendingahúsinu í
Osló, báðar á sl. ári.
Almenna bókafélagið hefur
gefið út eina ljóðabók eftir hana,
„Frostdingla“, sem út kom í
október sl. Birgitta er sjálf-
menntuð í myndlistinni og bera
myndii’ hennar augljósan keim af
því.
Myndheimur hennar er í ríkum
mæli unggæðislegur og sjálf-
sprottinn og kann það að vera
styrkur hennar, einnig bera þær
keim af ýmsum hugmyndum
ungs fólks á síðustu tímum,
tengdum undirvitundinni og ýms-
um kunnuglegum táknum.
Þetta eru vissulega hugmyndir
og skynjanir ýmiss konar, en þó
tengjast þær vissri tjáningu lita-
tákna, sem eru kunn úr litafræð-
inni og trúarbrögðum. Hún upp.
Birgitta Jónsdóttir
götvar þannig lit sem tákn en
ekki endilega lit í sjálfu sér eða
sjálfstæðan heim í samspili og
samræmi, sem kallar á annan,
andstæðu sína eða hjálit.
Það er skáldlegur tónn yfir
þessari sýningu, en hér er enn
um ómótaða sál að ræða, sem
hefur af ríku tilfinningalífi og
tjáþörf að ausa. Hugmyndaflug
er gott að hafa, en er tjæpast
nægilegt veganesti, en best
kemst Birgitta sennilega frá
mynd og máli í myndinni „Fros-
tengill“, en henni fylgja þessar
ljóðlínur: „Undir storknaðri jarð-
skorpu / liggur hraundvergur /
og fylgist vökull / með ...
Hér kenni ég nævska kennd,
sem höfðar til mín fyrir mark-
vissari útfærslu myndrænna at-
riða en annað á sýningunni.
20%
VERÐLÆKKUN
VEGNA HAGSTÆÐRA MAGNINNKAUPA
Skerar, tennur og undirvagnshlutir í CATERPILLAR,
einnig í flestar aðrar gerðir og tegundir vinnuvéla.
T.D.: JCB <• KOMATSU <• JOHN DEERE <• INTERNATIONAL HARVESTER
FIATALLIS <• BANTAM <• CASE ♦ O&K « LIEBHERR <• HITACHI <• POCLAIN
■ FIMMTVDAGSKVÖLDIÐ 15.
mars verður svokallað listakvöld
SALI á vegum nemenda Myndlista-
og handíðaskóla íslands, Leiklist-
arskóla íslands, Tónlistarskóla Is-
lands og Söngskóla Reykjavíkur í
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar,
Laugarnestanga. Á listakvöidum
kynna nemendur skólanna hluta af
þeim verkefnum sem þeir eru að
vinna að þá stundina og gefst borg-
urum tækifæri til að beija þau aug-
um. Markmið SALÍ er að stuðla að
samvinnu listaskólanema og kynna
þá útávið. Dagskráin stendur yfir í
um klukkutíma og verður kaffiterían
opnuð strax á eftir. Byijað verður
klukkan 20.30 og eru allir velkomnir.
■ BÆJARINS bestu samlokur
eru 2ja ára um þessar mundir. í frétt-
atilkynningu segir meðal annars að
boðið sé uppá veisluþjónustu þar sem
á boðstólum verði smurt brauð og
margar tegundir af brauðtertum.
15% afsláttur verður veittur af
veisluþjónustunni til 1. maí. Þá verð-
ur frítt kaffi út marsmánuð.
Auglýsið ókeypis
í auglýsingablaðinu
NOTAD & NÝTT,
semkemur út á hverjum miðvikudegi.
Sími 625-444. Pósthólf 8925.
HEKLAHF
Laugavegi 170-174,
105 Reykjavík,
Sími 695500