Morgunblaðið - 14.03.1990, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 14.03.1990, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1990 17 Enn sígur á ógæfuhliðina í fi árinálastj órn Kópavogs eftir Sigurð Helgason Bráðabirgðauppgjör á reikning- um Kópavogs fyrir árið 1989 hefur verið lagt fram, en það sýnir að alvarlegt framhald er á skuldasöfn- un Kópavogs. Samkvæmt þessu uppgjöri eru nettóskuldir bæjarins komnar í 684.809 þús. og hafa aukist um 235.889 þús eða 52,5% milli ára. Rekstrartekjur voru árið 1989 samtals 1.264.014 þú§. kr. og höfðu því aukist um 30% og eru heildarskuldir eftir þessu upp- gjöri 1.286.884 þús. kr. Nettóskuld sem hlutfall af tekjum er 54% Þau sveitarfélög, sem fara yfir 50% af nettóskuld sem hjutfall af heildartekjum, eru ekki talin af fé- lagsmálaráðherra, Jóhönnu Sigurð- ardóttur, standa í stykkinu. Ástæð- ur eru margvíslegar en þar kemur fyrst til að slík fjármálastjórnun sýnir lítilsvirðingu gagnvart íbúum hyggðarlagsins og þá ekki síst, þegar kosningar eru framundan. Reynt er að sýna meiri framkvæmd- ir en eðlilegt megi teljast og því ber að setja löggjöf, sem bannar slíka fjármálastjórn og liggi vænt- anlega viðurlög við, ef út af er brugðið. Síðar í grein þessari verður sýnt fram á að fjárhagsstaða bæjar- ins er enn verri. Góðar tekjur í Kópavogi Nokkur sveitarfélög eiga við mikinn fjárhagsvanda að glíma. En þeim er mörgum vorkunn, þar sem atvinnulífið hefur hrunið vegna gjaldþrota aðalfyrirtækja staðarins og er hér einkum um rekstur frysti- húsa og útgerðarfyrirtæki að ræða. Rekstrartekjur, milljónir aður hafi vaxið óeðlilega og því beri að taka hann til rækilegrar endurskoðunar. Þetta getur stund- um verið erfitt, en öll stjórnun kallar á vissar aðhaldsaðgerðir, ef í ljós kemur að endar ná ekki saman í rekstri. Hin síðari ár og þá ekki síst fyrir tilkomu hinna nýju verðbréfa- markaða hefur komið í ljós að auðvelt er að fá lánsfé og þá ekki síst, ef viðkomandi sveitarfélög sætta sig við þau lánskjör sem bjóð- ast. Afkoman sýnd betri Nettóskuldir Kópavogsbæjar voru í árslok 1986 röskar 130 millj- ónir eða nettóskuld 24% sem hlut- fall af heildartekjum. En síðan hefur átt sér stað mikið fall niður á við og ekkert bólar á úrræðum til bóta. Það sem þó er alvarlegast er að forsvarsmenn bæjarins eru eins og úr öðrum heimi, þegar mál þessi ber á góma. Hefðu þeir kannast við mistökin og lofað bót og betrun, þá var það í raun eina leiðin til þess að öðlast traust kjósenda að nýju. En þess í stað er reynt að fegra ástandið leynt og ljóst, en eins og allir þekkja þá vill styttast biiið í beinar blekkingar. Tökum nokkur dæmi úr nefndu bráðabirgðauppgjöri. Langtímalán eru röskar 930 milljónir og afföll á árinu vegna þeirra eru röskar 48 milljónir. En nú eru langtímaskuldir taldar að- eins röskar 882 milljónir og afföllin dregin frá eða færð til eignar. Á þann hátt eru skuldir rangleg^tald- ar lægri. Rök munu eiga að vera þau, að afskrifa eigi þessi afföll á nokkrum árum. Þá hafa verið færð- ar á biðreikning 40 milljónir vegna Kópavogur Önnur sveitarfélög Ár Rekstrartekjur* hjá Kópavogsbæ borið saman við önnur sveitarfélög**. * Rekstrartekjur: sameiginlegar tekjur samkvæmt rekstrarreikningi ** Önnursveitarfélög: meðaltal fyrir önnur sveitarfélög á Islandi. sem hafa fleiri en 2500 íbúa (1988, n=89.151) Þá kemur og oft í Ijós að sveitarfé- lögin hafa gengið í ábyrgðir fyrir þessa aðila og síðan komið að gjald- dögum. Þá er það oft algengt að íbúar í viðkomandi byggðarlagi hafa ekki fengið greidd laun um lengri tlma og því eru vanskil mikil, sem bitnar síðan á sveitarfé- laginu. Vandamálin vaxa og verða nærri óviðráðanleg og því sýna flestir þessum sveitarfélögum bæði samúð og skilning. Hjá okkur í Kópavogi horfir málið allt öðruvísi við, því að hér vaxa tekjur ineir en í öðrum svéitarfélögum og við ætt- um að sýna góða afkomu sbr. hjá- lagt línurit. Rétt er að gera sér grein fyrir af hveiju á að taka hart á slíkri fjármálastjórn. Það er ljóst að sér- hvert sveitarfélag verður að sníða sér stakk eftir vexti og gera fyrst og fremst kröfur til sjálfs sín, ef lítið fé er til framkvæmda, sem ber oftast vott um að rekstrarkostn- Sigurður Helgason „Ljóst er að þegar grip- ið er til slíkra ráða til þess að fegra afkomu bæjarins, þá er voðinn vís og endar aðeins með því að bæjarfélagið verður sett á gjörgæsiu hjá Jóhönnu félags- málaráðherra.“ Ljóst er að þegar gripið er til slíkra ráða til þess að fegra afkomu bæjarins, þá er voðinn vís og endar aðeins með því að bæjarfélagið verður sett á gjörgæslu hjá Jóhönnu félagsmálaráðherra, sem hún hefur boðað að verði gert við sveitarfélög, sem ekki geta stjórnað sínum fjár- málum. Taka þarf út fjármálastöðu Kópavogs Það er ljósst að mikið er í húfi að forða bæjarfélagi okkar frá þeirri hneisu sem fyrirsjáanleg er undir áframhaldandi stjórn þeirra á fjármálum bæjarins næsta kjörtímabil. En það undrar kannski engan miðað við þessar aðstæður að núverandi meirihluti skirrist við að leggja fram endanlega reikninga fyrr en að kosningum liðnum. En þetta lánleysi verður að stöðva, að öðrum kosti kemur það harðast niður á bæjarbúum sjálfum og virð- ing Kópavogs er í húfi. Það er ljóst að aðeins með sameiginlegu átaki allra Kópavogsbúa munum við geta unnið okkur út úr þessum ógöngum á skömmum tíma. En fyrst verður að eiga sér stað raunhæf og sönn úttekt á fjármálum bæjarins, þar sem allt pukur er úr sögunni. Slík ítarleg fjármálaúttekt er forsenda þess að hægt verði að koma bæjar- félaginu á réttan kjöl að nýju. Höfundur er viðskipta- og lögfræðingur. útistandaridi útsvara og aðstöðu- gjalda, en í þessum tilvikum mun vera ljóst að viðkomandi sé gjald- þrota. En síðan er þessi biðreikning- ur færður til eignar á móti skuldum og á þann hátt er nettóskuld gerð minni. Kunnugir telja að enn vanti tugi milljóna á skuldir viðskipta- manna. Vitað er að Kópavogsbær færir ekki á rekstur bæjarins verðbætur á skuldabréfum, heldur bætir þess- um fjárhæðum við höfuðstólinn. Þetta fyrirkomulag er andstætt fyrirmælum Sambands íslenskra sveitarfélaga um færslu bókhalds sveitarfélaga, en er hér gert til þess að sýna betri rekstur en er í raun. Þeir hafa meira að segja birt opinberlega niðurstöður um útgjöld bæjarins, sem byggist á þessum útreikningum. Heildarskuldir eru því 1.365.297 þús. og nettóskuld rösk 60% sem hlutfall af tekjum. HEMLAUÓS í AFTLRGLUGGA ÖRYGGISBLINAÐUR SEM BORGAR SIG Auóveld og fljótleg isetning. — Festingar og leióslur fylgja meó. SAE, DOT og E viðurkenningar. — Passar í flestar tegundir bifreióa. Tryggöu öryggi þitt fyrir þeim, sem á eftir kemur — kauptu þér gluggahemlaljós! Eæst á bensínstöóvum Skeljungs. Mjög hagstætt veró.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.