Morgunblaðið - 14.03.1990, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1990
19
Arnar Jóhannsson, vélstjóri á
Stafhesi KE.
Andrés Guðmundsson, skipstjóri
á Þuríði Halldórsdóttur GK.
þekki þetta ékki þaðan. Ég held að
þessar tölur hljóti að vera komnir
annars staðar að en frá sjómönn-
um,“ sagði Guðmundur Gils.
„Mestu hlýtur þó að vera fleygt
á botnvörpuskipum, eins og gefur
að skilja. Á þeim veiðum ræður
maður minnst hvað kemur í veiðar-
færin og alls kyns drasl slæðist
með. En ég held að það sé fjarri
lagi að nokkru sem nemur sé hent
á línu-, neta- og snurvoðarbátum.“
„Menn sem hafa verið á togurum
og eru nú hættir vilja margir meina
að miklum aiía sé hent, kannski
ekkert í námunda við þessar tölur,
en töluverðu magni þó,“ sagði
Arnar. „Það er oft á mörkunum að
hluti af afla okkar komist í pakkn-
ingar en það hefur aidrei neinu
verið fleygt af þeim sökum.“
Bolungarvík:
Jarðboranir eftir sjó fyr-
ir vinnslu loðnuhrogna
Bolungarvík.
FYRSTU loðnuhrognin á þessari
vertíð voru unnin úr 600 lesta
farmi sem loðnuskipið Júpíter
kom með hingað til Bolungarvík-
ur í síðustu viku og fengust alls
um 15 lestir af hrognum úr þeim
afla.
A vegum íshúsfélags Bolung-
aiTÍkur hefur undanfarnar vikur
verið unnið að jarðborun eftir sjó
til að nota við hrognavinnsluna.
Loðnuhrogn hafa verið unnin hér á
Bolungarvík á hverri vertíð mörg
undanfarin ár, en til að fullnægja
hreinlætiskröfum við vinnsluna
hefur þurft að leggja leiðslu í sjó
fram allt að 200 metra út fyrir
fjöruborð til að tryggja að nógu
hreinn sjór fáist. Þessi aðferð er
kostnaðarsöm og sérstaklega hefur
hún þann galla að lítið má út af
bera til dæmis með veður til að
raska vinnsluöryggi.
Elías Jónatansson, verkfræðing-
ur hjá íshúsfélagi Bolungarvíkur,
hefur haft umsjón með þessari
borun. Hann sagði að fyrirtækið
ísbor hf. hafi verið fengið til þess
að annast þessa borun og hafi þeir
komið hingað með mjög fullkominn
bor í byijun febrúar en fyrirtæki
þetta hefur einkum verið í verkefn-
um fyrir laxeldisfyrirtæki og hita-
veitur í landinu. Elías sagði að
fyrst hefði verið gerð tilraun að
bora niður í sjávarkambinn rétt við
hús íshúsfélagsins. Þar_ hafi verið
borað niður í 75 metra. Árangurinn
úr þeirri holu var blandaður sjór,
líklega/a vatn og Vs sjór.
Elías sagði að það hefði komið
þeim nokkuð á óvart hversu móhell-
an, sem er þarna á 5-15 metra
dýpi, er þétt og hleypir illa í gegnum
sig, auk þess'virðist sem klöppin
undir móhellunni sé of lítið sprung-
in til að hleypa nægilegum sjó í
gegnum sig. Næst voru boraðar
tvær holur í hafnargarðinum þar
Loðnulirogn unnin á Bolung-
arvík.
sem loðnulöndunin fer jafnan fram.
Önnur þessara hola er 20-25 metr-
ar á dýpt, hin er um 12 metra
djúp. Báðar þessar holur gáfu góð-
an árangur og sinna þörfinni fyrir
þann sjó sem nota þarf við hrogna-
vinnsluna við skipshlið um leið og
löndun fer fram. Þá var boruð 31,5
metra djúp hola til öflunar fersks
vatns. Borað var við hliðina á holu
sem boruð var 1966 en var orðin
stífluð og því óvirk. Nýja holan
virðist gefa um 8 sekúndulítra af
mjög hreinu vatni. íshúsfélagið
fær nær eingöngu vatn úr borholum
og þessi nýja hola tryggir til muna
fersksvatnsöflun fyrir vinnsluna.
Elías Jónatansson sagði að fyrir-
tækið ísbor hefði skiláð verki sínu
vel, þrátt fyrir erfitt tíðarfar meðan
á þessari vinnu stóð og jafnframt
má geta þess að nokkuð blint var
gengið til verks þar sem lítil sem
engin forkönpun hefði átt sér stað.
Auk þessara framkvæmda var
gerður einskonar brunnur í fjöru-
borðið hér utanvert við byggðina. I
þennan brunn safnast hreinn sjór
sem síðan er dælt á vinnslustað
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Undanfarnar vikur hefúr verið
borað eftir sjó fyrir hrogna-
vinnslu á Bolungarvík.
hrognanna. Elías sagði að þessar
framkvæmdir bættu mjög alla að-
stöðu til hrognavinnslu og það er
þýðingarmikið þar sem hér er á
ferðinni verðmæt og vandmeðfarin
afurð sem einungis er hægt að
vinna í skamman tima, ár hvert og
því mikilvægt að tryggja sem best
vinnsluöryggið.
Frá því í nóvember hefur loðnu-
skipið Júpíter aflað um 21.000 lesta
af 28.000 lesta kvóta og hefur
skipið landað hér í Bolungarvík um
14.000 lestum af þeim afla.
Eins og kunnugt er keypti Einar
Guðfinnson hf., ásamt. Lárusi
Grímssyni skipstjóra, meirihluta í
skipinu á síðasta ári og hefur skip-
ið séð loðnubræðslunni hér á staðn-
um fyrir hráefni í vetur.
- Gunnar
MOSFELISBÆR
KÓPAVOGUR
Sólheimakot
GARÐABÆR
FossvaUaá
l.ækjarboinar
HAFNARFJÖRÐUR
* Tvístcinar
\ X^Sandfcll
fÞar af afréttur
Seltjarnarhrepps
hins forna
(Reykjavík s70%
Húsfellsbruni Kópavogur 15%
Garðabær 15%\^
KONUNGSLAND skv. larðabók (gögnum)
Árna Magnússonar og Páls Vídalíns
• BorS
/410
/ brm.
Hafravatn
/stsluiiufa
Selrain
Hllidavatn
V
Sdfjall
Heiðmörk
SaudskeiÚ
Mfiísfetl
J/ Hdkullui
10 krr
Skiptar skoðanir eru um mörk Garðabæjar, Kópavogs, Seltjarnarness, Reykjavíkur, Mosfellssveitar og Árnessýslu. Brotnu línurnar sýna
hugmyndir borgaryfírvalda í Reykjavík um mörk afréttarins og sýslumörk Árnessýslu.
og haldið er fram í jarðabók Árna
Magnússonar.
„Þá eiga menn eftir að átta sig
á hversu langt upp í Bláfjöll Vatns-
endalandið nær og aðrar þær jarð-
ir, sem eiga land næst afréttinum,
eins og til dæmis Elliðavatn," sagði
Hjörleifur. „Því hefur stundum
verið haldið fram að jarðirnar nái
að sýslumörkum, en ég held að
það sé ljóst að svo er ekki. Af
þessu má sjá að þetta þarf að
kanna vel og vandlega, enda eru
deilur um landamerki það sem Is-
lendingar hafa haft mest gaman
af á undanförnum öldum.“
Eldavélar
Örbylgjuofnar
Gœðatœki fyrir
þig og þína!
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
Stöu)
VtBRATORAR
steinsteypu.
Léttir
meðfærilegir
vióhaldslitlir.
AvalU fyrtriiggjsndi.
Þ.ÞORGRlMSSON&CO
Ármúla 29, Reykjavík, simi 38640