Morgunblaðið - 14.03.1990, Page 25

Morgunblaðið - 14.03.1990, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1990 25 ingarhættu og hann snertir spurn- ingarnar: Hvað á að gera við kjarn- orkuúrganginn? og Hvernig er geng- ið um fiskimiðin?" Um 60 manns tóku þátt í flutn- ingi þessa áhugaverða verks og hljóta heilar þakkir. _ „ . . Söngleikurinn Líf og frið- ur fluttur í Olafsvíkurkirkiu Ólafsvík. SÖNGLEIKURINN Líf og friður var fluttur í Ólafsvíkurkirkju á æsku- lýðsdaginn við húsfylli og mikla ánægju kirkjugesta. Flytjendur voru Barnakór Grunnskóla Ólafsvíkur undir stjórn Völu Gísladóttur og kór Ólafsvíkurkirkju undir stjórn Elíasar Davíðssonar sem sá um heildar- stjórnun tónlistar. Leikendur voru nemendur Grunnskóla Ólafsvíkur ásamt fleirum og fjórir ungir liljóðfæraleikarar er léku á harmoniku, trompet og þverflautu. Leikstjóri var sóknarpresturinn sr. Friðrik J. Hjartar og Sigurlaug Jóhannsdóttir sá um búninga en þeir voru frá Leikfélagi Bolungarvíkur. Söngleikurinn Líf og friður er eft- ir Per Harling og Lars Collmar í þýðingu Jóns Ragnarssonar og í íslenskri trúsetningu Þórunnar Bjömsdóttur. Efni söngleiksins er fengið úr Biblíunni þannig að Örkin hans Nóa er leiksviðið og hin ýmsu dýr leggja til textann sem er mjög vekjandi til umhugsunar um þá ógn sem steðjar að umhverfi mannsins, mest fyrir atbeina hans sjálfs. Sr. Friðrik J. Hjartar segir meðal annars í ávarpi í leikskrá: „Söngleikurinn hefur skírskotun til olíumengunar- slyssins á dögunum svo og skógar- eldanna. Hann höfðar einnig til þeirra dýra og fugla sem eru í útrým- Morgunblaðið/Björn Guðmundsson Örkin hans Nóa er leiksviðið í Ólafsvíkurkirkju en þar flutti Grunnskóli Ólafsvíkur söngleikinn Líf og friður. Fjárhagsvandi fóðurstöðvanna: Getur komið niður á gotinu í vor - segir Reynir Barðdal formaður Samtaka fóðurstöðva STJÓRNENDUR fóðurstöðva loðdýraræktarinnar telja sig hafa fengið vilyrði fyrir aðstoð Byggðastofnunar við fóðurstöðvarnar við afgreiðslu laganna um skuldbrcytingu hjá loðdýrabændum sem samþykkt voru fyrir lok síðasta árs. Forstjóri Byggðastofhunar segir að Byggðastofh- un hafí ekki peninga til að styrkja fóðurstöðvarnar. Reynir Barðdal á Sauðárkróki, formaður Samtaka fóðurstöðva, sagði við Morgunblaðið í gær að staða fóðurstöðvanna væri slæm. Ekkert hefði verið ofsagt þegar fjall- að var um fjárhagsvanda þeirra í utandagskrárumræðu á Alþingi í fyrradag. Loðdýrabændur gætu ekki greitt fyrir fóðrið, meðal annars vegna þess að þeir fengju ekki afurðalán. Fóðurstöðvarnar gætu ekki keypt hráefni eða greitt raf- magn eða aðra kostnaðarliði og reksturinn stöðvaðist næstu daga ef ekkert breyttist. Hann taldi að ýmis efni vantaði í fóðrið sem nú væri framleitt í stöðvunum og gefið dýr- unum á pörunartímanum. Búast mætti við að það kæmi niður á rekstri búanna í vor vegna lélegra gots en annars hefði orðið. Reynir sagði að loðdýrabændur hefðu treyst á og talið sig hafa vil- yrði fyrir stuðningi Byggðastofnunar við fóðurstöðvarnar. Meðal annars hefði slíkt komið fram í nefndaráliti landbúnaðarnefndar efri deildar við afgreiðslu skuldbreytingalaganna fyrir áramót. Byggðastofnun hefði hins vegar vísað þessu frá. Guðmundur Malmquist, forstjóri Byggðastofnunar, sagði að stofnunin hefði enga peninga til að bjarga fóð- urstöðvunum. Fjórar þeirra eiga í mestum erfiðieikunum, stöðvarnar á Sauðárkróki, Dalvík, Egilsstöðum og Selfossi. Aðrir framleiddu einnig loð- dýrafóður en ættu ekki í sömu erfið- leikum. Hann sagði að misskilningur hefði orðið á milli sín og landbúnað- arnefndar efri deildar Alþingis og sagðist hann hafa leiðrétt hann bréf- lega strax daginn eftir, enda væri ekki hægt að afhenda Byggðastofn- un fóðurstöðvarnar með nefndaráliti í þinginu. Byggðastofnun væri aftur á móti tilbúin til að veita loðdýra- bændum sömu aðstoð við skuldaskil og Stofnlánadeild landbúnaðarins veitti. Stofnlánadeildinni hefur verið heimilað að fella niður allt að 40% höfuðstóls veðskulda lóðdýrabænda og fóðurstöðva. Guðmundur staðfesti það að at- hugun Byggðastofnunar á fóður- stöðvunum sýndi að þær væru í greiðsluþroti. Þar dygðu engii/ lán því veð væru ekki til en Byggðastofn- un hefði enga styrktarpeninga til að leggja í þessi fyrirtæki. Guðmundur sagði að samdráttur í loðdýraræktinni hefði kippt rekstr- argrundvellinum undan fóðurstöðv- unum. Sú mikla fjárfesting sem í þeim væri bundin nýttist enn verr en áður. Reynir Barðdal sagði að fóðurstöðvar hefðu verið byggðar upp þegar loðdýraræktin var að byggjast upp og miðað við þær for- sendur sem þá voru. Dýnistu stöðv- amar, eins og til dæmis Melrakki á Sauðárkróki, skulduðu mikið en þær ættu líka miklar eignir. Miðað við stöðu greinarinnar nú gætu menn sagt að ekki hefði átt að byggja svona upp, en alltaf væri hægt að koma eftirá og segja slíkt. Jón G. Guðbjörnsson og Magnús B. Jónsson, sem vinna að skuld- breytingu hjá loðdýrabændum, hafa skrifað Byggðastofnun bréf þar sem þeir segja frá vinnu við skuldbreyt- inguna og vekja athygli á því að þar sé tii lítils baríst ef ekki tekst að tryggja rekstur fóðurstöðvanna jafn- hliða. í bréfinu segja þeir að í þeirri umræðu sem fór fram um setningu skuldbreytingarlaganna hafí verið gert ráð fyrir að Byggðastofnun tæki að sér að treysta rekstrargrund- völl fóðurstöðvanna og út frá því hafi verið gengið í vinnunni á vegum Framleiðnisjóðs. Telja þeir brýnt að þær aðgerðir séu samstiga skuld- breytingu lausaskulda bænda. Jón Guðbjörnsson sagði við Morgunblað- ið að óvissan með fóðuröflunina gerði það að verkum að bændur ættu er- fitt með að taka ákvarðanir um áframhaldandi búrekstur. Jón sagði að það gæti hjálpað mikið til ef Byggðastofnun keypti af fóðurstöðvunum þau skuldabréf sem þær fengju vegna breytinga á lausaskuldum bænda í föst lán. Öðruvísi gagnaðist fóðurstöðvunum ekki þessi skuldbreyting. Taldi hann ekki öruggt að sú aðstoð dygði, en hún hjálpaði verulega til. Forstjóri Byggðastofnunar sagðist eiga bágt með að sjá að stofnunin gæti keypt þessi bréf. „Á hún að taka til þess erlend lán á allt öðrum kjörum? Það er ekki hægt að leggja allt á Byggða- stofnun,“ sagði hann. Skuldbreyting lausaskulda loðdýrabænda: * IsaQörður: Sólrisuhátíð NÚ stendur sem hæst sólrisu- hátíð á vegum nemendafélags Menntaskólans á Ísafírði. Að sögn Eiríks Sverris Björnsson- ar menningarvita MI hefur hátíðin, sem hófst á sunnudag, farið vel af stað, þrátt fyrir að aðsókn hafi verið köflótt. Hátíðin hófst með listamanna- kvöldi. Eiríkur sagði að svo óheppilega hefði hist á að kvik- myndasýning var einnig á dag- skrá hátíðarinnar sama kvöld, svo aðsókn að listamannakvöld- inu varð minni en vonast hafði verið til. Á sólrisuhátíð starfrækir nem- endafélag MÍ útvarpsstöð er ber nafnið Ml-flugan. Seldir eru aug- lýsingatímar í útsendingum stöðvarinnar, og eru tekjur af þeim þáttur í að láta enda ná saman vegna kostnaðar við há- tíðina. „Við erum bjartsýn á að það gangi upp, í það minnsta erum við enn réttum megin við núllið," sagði Eiríkur að lokum. FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA 13. mars. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 84,00 82,00 83,00 41,605 3.453.248 Þorskur(ósf) 95,00 68,00 75,31 20,405 1.536.675 Ýsa 120,00 94,00 109,02 10,735 1.170.351 Ýsa(ósl.) 119,00 60,00 101,69 1,675 62.389 Karfi 48,00 40,00 45,82 3,388 155.220 Ufsi 39,00 39,00 39,00. 2,811 109.612 Steinbítur 50,00 44,00 46,22 3,388 156.586 Steinbítur(ósf) 50,00 43,00 48,99 2,560 125.420 Langa 56,00 56,00 56,00 0,258 14.416 Koli 61,00 48,00 56,13 0,216 12.123 Keila 38,00 33,00 34,44 2,134 73.502 Keila(ósf) 38,00 25,00 37,25 1,675 62.389 Hrogn 255,00 255,00 255,00 0,367 93.585 Samtals 78,72 92,730 7.299.510 FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 81,00 51,00 78,43 17,966 1.408.990 Þorskur(ósf) 77,00 51,00 68,99 26,053 1.797.344 Ýsa . 105,00 89,00 98,18 11,083 1.088.102 Ýsa(ósf) 117,00 59,00 100,10 0,866 86.686 Karfi 38,00 36,00 36,52 13,637 498.051 Ufsi 28,00 25,00 27,31 3,686 100.673 Steinbítur 53,00 45,00 49,21 2,305 113.432 Hlýri+steinb. 53,00 45,00 47,89 10,695 Langa 43,00 43,00 43,00 1,304 56.072 Skarkoli 30,00 30,00 30,00 0,325 9.750 Keila 31,00 31,00 31,00 0,702 21.762 Hrogn 135,00 115,00 131,47 1,469 193.135 Rauðmagi 80,00 65,00 74,65 0,866 64.650 Samtals 66,20 90,039 5.960.340 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 130,00 • 69,00 80,65 91,405 7.372.113 Þorskur(4.n.) 35,00 35,00 35,00 2,500 87.500 Ýsa 131,00 40,00 108,67 12,169 1.322.345 Karfi 51,00 15,00 42,58 0,794 33.812 Ufsi 40,00 15,00 31,64 16,158 511.275 Steinbítur 50,00 15,00 47,30 4,098 193.842 Langa 53,00 45,00 50,36 1,353 68.136 Lúða 355,00 100,00 332,05 0,281 93.305 Skarkoli 60,00 51,00 57,13 0,358 20.454 Keila 37,00 10,00 34,66 4,680 162.224 Rauðmagi 100,00 70,00 91,79 0,179 16.430 Hrognkelsi 6,00 6,00 6,00 0,029 174 Náskata 23,00 23,00 23,00 0,029 667 Hrogn 230,00 230,00 230,00 0,496 114.080 Samtals 73,95 136,461 10.091.101 Heimilt er að veðsetja 100% af matsverði eigna Yfir helmingnr bænda hættir loðdýrabúskap MEIRA en helmingur þeirra loðdýrabænda sem óskað hafa eftir skuld- breytingu hafa skorið niður stofn sinn. Aðrir hafa minnkað verulega við sig. Um áramót voru 95 af þeim 202 bændum, sem svöruðu bréfi Framleiðnisjóðs þar sem áhugi á skuklbreytingu var kannaður, enn með loðdýr og síðan hafa 5-10 hætt. Af þeim rúmlega 200 sem svöruðu Framleiðnisjóði óskuðu um 180 eftir skuldbreytingu. Jón G. Guðbjörnsson starfsmaður Framleiðnisjóðs og Magnús B. Jóns- son á Hvanneyri hafa að undanförnu verið að meta fjárhagsstöðu þeirra bænda sem óskuðu eftir skuldbreyt- ingu. Jón sagði að þeir væru búnir að setja saman tillögur að skuld- breytingu og senda út til þeirra bænda sem enn eru með loðdýrabú- skap og væru að vinna að sams kon- ar tillögum fyrir þá sem eru hættir. Hann sagði að bændumir leituðu síðan eftir samningum á þeim grund- velli við lánardrottna sína og sagðist hann ekki hafa heyrt annað en að þeim hefði verið vel tekið. Enn hefðu þó ekki borist nema fá svör. Fram- leiðnisjóður framkvæmir síðan skuld- breytinguna í samræmi við lög sem samþykkt voru á Alþingi fyrir ára- mótin. Skuldbreytingin nær til lausa- skulda loðdýrabænda, annarra en afurðalána og skulda sem tryggðar eru með veði í fasteignum viðkom- andi. Allt að 60% lausaskuldanna verður breytt í lán til fimmtán ára með ríkisábyrgð. Ríkisábyrgðarsjóði er heimilt að ábyrgjast allt að 300 milljónir kr. í þessu sambandi og telur Jón Guðbjörnsson að sú fjárhæð dugi miðað við þær reglur sem settar hafa verið. Vandræði hafa verið við undirbún- ing skuldbreytingarinnar vegna þess að loðdýrabændur eru almennt það skuldsettir að þeir hafa ekki getað lagt fram tryggingar fyrir skuld- breytingalánunum sanikvæmt al- mennum reglum Ríkisábyrgðarsjóðs. Því gaf fjármálaráðherra á dögunum út sérstaka reglugerð um skuld- breytingu loðdýrabænda sem hefur í för með sér að Ríkisábyrgðarsjóður getur tekið veð í eignum bændanna allt að matsverði þeirra. Þannig er hægt að veðsetja 100% eignanna en hin almenna regla Ríkisábyrgðar- sjóðs er að veðsetning ríkissjóðs og þær skuldir sem hvíla á fyrri veðrétt- um megi ekki fara yfir 75% af mats- verði eignanna. Sex eða sjö loðdýrabændur á ríkis- jörðum hafa óskað eftir því við lanfl- búnaðarráðuneytið að ríkið kaupi fasteignir þeirra á jörðunum en þeir fái að búa þar áfram. Því hefur ver- ið vel tekið í ráðuneytinu, að sögn Jóns Höskuldssonar deildarstjóra lögfræði- og eignasviðs ráðuneytis- ins, enda væri ráðuneytið skyldugt að kaupa þessar eignir ef bændurnir flosnuðu upp af jörðunum. Jón sagði að loðdýrabændur á ríkisjörðum fengju sömu afgreiðslu við skuld- breytingu lausaskulda og aðrir bændur og þyrftu því að fá leyfi til að veðsetja ríkisjarðirnar enda væru eignir þeirra ekki sérgreindar. Jón sagði að nú væri unnið að mati á eignum þessarra bænda og ekki end- anlega ljóst með verðmæti þeirra. Ljóst er að það skiptir tugum millj- óna kr. Jón sagði að ríkið greiddi þessar eignir væntanlega að mestu með yfirtöku á skuldum sem á þeim hvíla en sagðist ekki vita hvað þyrfti mikla peninga tíl að koma þessum skuldum I skil. Haukur Halldórsson formaður Stéttarsambands bænda kvaðst harma þann drátt sem orðið hefði á skuldbreytingu loðdýrabænda. Nauðsynlegt hefði verið að ljúka henni fyrir 1. mars þannig að bænd- ur hefðu getað ákeðið hvort þeir héldu áfram loðdýrabúskap eða ekki fyrir pörun dýranna sem nú væri hafin. Við pörun féllu til dæmis högnaskinnin mjög í verði. Stéttar- sambandið býður loðdýrabændum upp á fjármálaaðstoð og hefur lög- fræðing og löggiltan endurskoðanda í þjónustu sinni í þeim tilgangi. Haukur sagði að það hefði verið gert til að tryggja samræmd vinnu- brögð við þessi erfiðu mál.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.