Morgunblaðið - 14.03.1990, Side 27

Morgunblaðið - 14.03.1990, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1990 27 Fjárfestingar erlendra aðila á íslandi; „Erlent áhættufé í stað- inn fyrir erlent lánsfé“ Islenzkir ríkisborgarar einir í útgerð og fiskvinnslu ÞORSTEINN Pálsson og sjö aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokks og Flokks frjálslyndra hægri manna hafa lagt fram frumvarp til laga um fjárfest- ingar erlendra aðila á íslandi. Flutningsmenn segja að með frum- varpinu sé stigið mikilvægt skref í þá átt að erlent fjármagn geti í ríkara mæli komið í sfaðinn fyrir erlent lánsfé við fjármögnun atvinnu- rekstrar hér á landi. Islenzkir ríkisborgarar einir geta þó stundað útgerð og fískvinnslu og eignarhluti útlendinga i dagblöðum, útvarps- stöðvum og bönkum skal bundinn við 25% hlutafjár. Áhrif á vöxt og þróunarskilyrði fyrirtækja Þáverandi forsætisráðherra skip- aði nefnd í september 1987 til semja frumvarp um fjárfestingu erlendra aðila hér á landi. Nefndin skilaði fullbúnu frumvarpi í bytjun árs 1988. Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur vóru tilbúnir til að leggja frumvarpið fram en málið strandaði á þriðja stjórnarflokknum, Framsóknar- flokknum. Forsætisráðherra lagi frumvarpið samt sem áður fram til kynningar vorið 1988. Þetta frum- varp er nú endurflutt. í greinargerð segir m.a.: „Nefndin telur að með því frum- varpi, sem hér liggur fyrir, sé stigið mikilvægt skref í þá átt að erlent áhættufé geti í ríkara mæli komið í staðinn fyrir erlent lánsfé við fjár- mögnun atvinnurekstrar hér á landi. Frumvarp þetta mun því, ef að lögum verður, hafa mikilvæg áhrif á vaxt- ar- og þróunarskilyrði atvinnufyrir- tækja innan fjölmargra atvinnu- greina. Auknir möguleikar innlendra fyrirtækja til samvinnu við erlendra aðila, einkum í framleiðslu- og út- flutningsgreinum, geta skapað ný tækifæri, sem leitt geta til aukinnar verðmætasköpunar innan lands og þar af leiðandi til aukinnar hagsæld- ar þjóðarbúsins í heild, svo sem vegna aukinna skatttekna, hærri vinnulauna, aukinnar þekkingar og lækkaðs verðlags svo eitthvað sé nefnt. Er og vert að hafa hugfast í þessu sambandi að fáar þjóðir eru svo háðar utanríkisviðskiptum sem við íslendingar. Fer í vöxt að íslenzk- ir aðilar reki og taki þátt í atvinnufyr- irtækjum í öðrum löndum ... “ Takmarkanir á erlendri Qárfestingu Fjárfesting erlendra aðila, sam- kvæmt frumvarpinu, er háð ýmsum takmörkunum: 1) Fiskveiðar í fiskveiðilandhelgi íslands mega íslenzkir ríkisborgarar einir stunda. 2) Sama gildir um fiskvinnslu. Erlendum aðilum skal óheimilt að eiga hlut í íslenzku atvinnufyrirtæki, sem rekur fiskvinnslu, ef það stundar jafnframt útgerð. Eignarhlutur í fiskvinnslufyrirtæki, sem ekki á hlut að útgerð, má ekki fara yfir 50%. 3) Eignarhlutur ífyrirtækjum sem gefa út dagblöð eða reka útvarps- stöðvar má ekki vera meiri en 25%. 4) Hlutafjáreign í viðskiptabanka má ekki vera meiri en 25%. 5) Fjölmargar aðrar takmarkanir eru í frumvarpinu, svo sem um heild- arfjárfestingu erlends aðila, fjárfest- ingar erlendra ríkja o.fl. Ábyrgðardeild fískeldislána: Hafbeitarlaxinn kominn! Atkvæði um breytingartillögur í dag Fj ár málaráðher ra harðorður í garð meirihluta þingnefiidar Stjórnarfrumvarp um breytta skipan fiskeldislána kom til annarrar umræðu í neðri deild Alþingis í gær. Fyrir liggja breytingartillögur við frumvarpið frá meirihluta ljárhags- og viðskiptanefhdar. Guðmund- ur G. Þórarinsson (F-Rv) stendur að þessum breytingartillögum, ásamt stjórnarandstöðuþingmönnum og Stefán Valgeirsson (SJF-Ne) lýsti yfir stuðningi við breytingartillögurnar í gær. Ólafur Ragnar Grímsson, ljármálaráðherra, mælti hins vegar hart gegn sumum þeirra. Breyting- artillögurnar koma til atkvæða á Alþingi klukkan tvö í dag, miðvikudag. Friðrik Sophusson (S-Rv) vakti athygli á því að hér væri á ferð stjórnarfrumvarp til heimildalaga. Sérstök stjórnarnefnd, sem fjármála- ráðherra skipi, fer yfir allar umsókn- ir um sjálfskuldarábyrgðir og af- greiðir þær á grundvelli ítarlegs mats á stöðu og rekstraröryggi um- sækjenda. Nefndin ákveður kjör og form lána sem sjálfskuldarábyrgð er veitt fyrir. Fjármálaráðherra ákveður iðgjöld, sem greidd eru fyrir veitingu ábyrgðar. Friðrik mælti fyrir breytingartil- Gjaldþrot 1988 og 1989: Hundruð milljóna tapast - í afskrifiiðum opinberum gjöldum MÖRG hundruð milljónir króna af söluskatts- og dráttarvaxtaskuldum hafa verið afskrifaðar í gjaldþrotamálum 1988 og 1989. Arið 1988 vóru að auki afskrifaðar um 190 m.kr. í þinggjöldum einstaklinga og fyrir- tækja. Vitað er um 60 m.kr. hliðstæða afskrift 1989, en þar eru ekki öll kurl komin til grafar, vantar t.d. afskriftir þess árs í höfúðborginni. MÞMKSI Fjármálaráðherra hefur svarað fyrirspurn Margrétar Frímannsdótt- ur (Abl-Sl) um fjárhæðir, sem hafa tapast af opinberum gjöldum í gjald- þrotamálum sl. tvö ár. I svari ráð- herra kemur m.a. fram að afskriftir á söluskatti vegna gjaldþrota árið 1988 námu rúmum 110 m.kr. og árið 1989 rúmum 118 m.kr. Að auki hafa tapazt um 270 m.kr. af dráttar- vöxtum þessi tvö ár. Þá kemur fram í svari ráðherra að afskrifuð þing- gjöld 1988, vegna gjaldþrota, námu um 190 m.kr., þar af 95 m.kr. hjá fyrirtækjum og 95 m.kr. hjáeinstakl- ingum. Samsvarandi upplýsingar fyrir árið 1989 liggja ekki fyrir frá Reykjavík, en annars staðar hafa verið afskrifaðar rúmar 56 m.kr. af þinggjöldu.m þess árs. lögum, sem m.a. miða að því, að ábyrgðarheimildin geti spannað allt að 50% ábyrgð í stað 37,5% og að sólarlagsákvæði ábyrgðarinnar leng- ist um eitt ár, verði íjögur ár í stað þriggja. Með breytingartillögunum er stigið skref í þá átt, sagði Friðrik, að tryggja eldisfyrirtækjum sam- bærileg afurðalán og tíðkast í helztu samkeppnislöndum okkar. Ólafur Ragnar Grímsson, fjár- málaráðherra, sagði breytingartillög- ur meirihluta nefndarinnar auka ábyrgðarþunga og áhættu ríksins verulega og ganga þvert á þau sjón- armið serh Sjálfstæðisflokkurinn hafi fram sett varðandi ríkisforsjá og það, að atvinnulífið eigi að standa á eigin fótum. Ráðherra taldi hins veg- ar að breytingartillagan um lengingu sólarlagsákvæðisins styddizt við efn- isleg rök. Guðmundur G. Þórarinsson (F- Rv) sagði raunalegt að hiusta á grundvailéirmisskilning ijármálaráð- herrans. íslenzka ríkið hefur ekkert íjármagn lagt í fískeldi, sagði þing- maðurinn, og engar ábyrgðir axlað. Mergurinn málsins væri að búa fisk- eldi sambærilega starfsaðstöðu og það nyti hvarvetna annars staðar, m.a. í EFTA- og EB-ríkjum. Deilan snýst um veð í lifandi físki, sagði þingmaðurinn. Stefán Valgeirsson (SJF-Ne) sagði að frumvarpið, óbreytt, væri spor aftur á bak. Óhjákvæmilegt væri að binda ábyrgðarákvæði við 50%. Þórhildur Þorleifsdóttir (SK- Rv) sagði tilburði fjármálaráðherr- ans til að þvo af sér ríkisforsjársvip- inn og setja upp fijálshyggjuandlit nánast bijóstumkennanlega. Ekki væri verið að senda fiskeldisfyrir- tækjum óútfylltan víxil á ábyrgð skattgreiðendá. Hér væri um heim- ildafrumvarp að ræða og heimildim- ar háðar ákvörðunum fjármálaráð- herrans sjálfs. Fleiri tóku til máls, þótt ekki verði frekar rakið. Atkvæðagreiðsla um breytingartillögur meirihluta fjár- hags- og viðskiptanefndar fer fram kiukkan tvö í dag í neðri deild Al- þingis. Stuttar þingfi-éttir ■ BORN VINNI EKKl HÆTTULEG STÖRF: Guðrún Agnarsdóttir og Danfríður Skarp- héðisdóttir flytja frumvarp til breyt- ingar á lögum um aðbúðnað, holl- ustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Fmmvarpið varðar ákvæði iaga um vinnu barna og unglinga. Sam- kvæmt frumvarpinu má aðeins ráða börn yngri en 14 ára til léttari og hættulítilla starfa. Ekki má láta börn á aldrinum 14 og 15 ára, né heldur yngri börn, vinna við hættu- legar vélar né við hættulegar að- stæður. Stjórn Vinnueftirlits ríkis- ins setur leiðbeinandi skilgreiningar um hvað teljast létt og hættulítil störf, hættulegar aðstæður og hættulegar vélar, að höfðu samráði við barnaverndarráð Islands. Vertíðin sunnan- og vestanlands: Rysjótt en þokkalegur afli ef gefiir RYSJÓTT tíð hefur hamlað veiðúm minni báta, einkum við Snæfellsnes og Suðurnes, það sem af er vertíðar. Afli hefur verið svipaður og í fyrra þegar gefúr, þó meiri hjá Þorlákshafnar- og Sandgerðisbátum. Almennt búast menn við að iiskurinn fari að ganga að ráði upp úr miðjum mán- uði og binda vonir við næstu þijár vikur. Þó eru dæmi þess, einkum frá Sandgerði, að bátar séu langt komnir með kvóta og menn óttist verkefúaleysi síðari hluta árs. Morgunblaðið kannaði aflabrögð í gær og ræddi við vigtarverði á nokkrum vertíðastöðum sunnan- og vestan- lands. I Ólafsvík höfðu alls borist á land 3.605,5 tonn á mánudag í 740 lönd- unum. Þar af lönduðu trillur 464,5 tonnum. 25 bátar, stærri en tíu tonn, leggja upp í Ólafsvík og 16 trillur. Aflahæstu bátar á mánudag voru Lómur með 253 tonn í 27 róðrum, Garðar II með 234 tonn í 28 róðrum og Steinunn með 216 tonn í 30 róð- rum. Heildaraflinn er nokkru minni en á sama tíma í fyrra, þegar um 4.600 tonn höfðu borist á land þann 12. mars. Loðnan er nú farin að láta sjá sig við Snæfellsnesið og í gær- morgun voru bátar að leita og kasta rétt utan við Ólafsvík. Á Rifi höfðu um 2.500 tonn borist á land á mánudag í 378 róðrum. Aflinn er svipaður og í fyrra. I fyrra- dag voru bátar að koma inn með allt upp í 22 tonn, þrír höfðu yfir 20 tonn. 18 bátar Ieggja upp á Rifi, þar af þijár trillur frá Patreksfirði. Hæstu bátar eru Rifsnes með 387 tonn í 31 róðri, Hamrasvanur með 360 tonn í 28 róðrum og Tjaldur með 340 tonn í 28 róðrum. Vertíðin hefur verið heldur daufleg á Akranesi, þó hefur veiðin giæðst síðustu daga í netin. Línubátar hafa kroppað sæmilega og fengið nær ein- göngu steinbít, sem ér óvenjulegt á þessum slóðum. Nokkrir hafa prófað að fara á handfæri, en lítið eða ekk- ert fengið. Um 40 bátar leggja úpp á Akranesi, allir undir 30 tonnum. Aflabrögð eru heldur lakari en í fyrra, enda miklar ógæftir. Ekki lágu fyrir aflatölur í gær. Afli Keflavíkurbáta hefur verið svipaður og undanfarin ár. Ekki liggja fyrir aflatölur, þar sem nokkur hluti aflans fer í gáma og er ekki skráður á vigtina. Þá landa bátarnir oft annars staðar, svo að ekki er hægt að fá afla einstakra báta. Ógæftir hafa verið miklar, minni bátar og trillur jafnvel ekki komist á sjó nema tvisvar til þrisvar í viku. Einn bátur rær enn á línu, aðrir eru komnir á net. 5 til 6 vertíðarbátar leggja að jafnaði upp í Keflavík og 12 til 15 minni bátar. Til Sandgerðis höfðu borist 5.488,3 tonn úr 1.003 sjóferðum um síðustu mánaðamót og er það aukning um 2.215,1 tónn frá sama'tíma f fyrra, þegar 3.273 tonn höfðu borist á land úr 673 sjóferðum. Skýringin er að fleiri bátar leggja þar uþp nú og afli er meiri á bát. Þar eru menn farnir að óttast verkefnaleysi í vor, þar sem nokkrir bátar eru þegar langt komn- ir með kvóta sinn. Allmargir bátar hafa landað í Sandgerði, 106 það sem af er marsmánuði. Þar af eru 45 bátar stærri en 12 tonn. Tveir norðan- bátar róa frá Sandgerði, frá Húsavík og Ólafsfirði. Aflahæstu bátar í San- gerði um síðustu mánaðamót voru Arney með 449,9 tonn í net í 41 sjó- ferð og Einir með 273 tonn á línu í 17 sjóferðum. Þeir hafa báðir landað einhverju annars staðar þannig að aflinn er meiri en þessar tölur gefa til kynna. Þá hefur Jón Gunnlaugs landað 266,4 tonnum úr 18 róðrum. Janúar og febníar bárust 4.780 tonn á land í Þorlákshöfn. Þar af voru 950 tonn loðna og 545 tonn úr togurum. Þetta er nokkru meiri afli en í fyrra. Þá var landað 3.750 tonn- um í febrúarmánuði, þar af 1.300 tonnum af loðnu. í febrúar síðastliðn- um komu alls 4.038 tonn á land í Þorlákshöfn. Allajafnan landa um 25 bátar á dag í Þorlákshöfn og eru þeir af öllum stærðum, hefur afli þeirra farið upp í 44 tonn í róðri. Þeir stærstu róa langt, draga tvisvar til þrisvar í róðri og landa því ekki daglega. Hæstu bátar voru síðastlið- inh laugardag Jóhann Gíslason með 597 tonn í 19 löndunum, Friðrik Sig- urðsson með 397 tonn í 19 iöndunum. hann hefur landað nokkru að auki í gáma og hluti aflans er slægður físk- ur, Fróði með 341 tonn í 37 löndunum og Arnar með 315 tonn í 26 löndun- um. Vestmannaeyjabátar hafa sumir verið að flýja þorskinn vegna kvóta og sótt í ufsann. Reytingsafli hefui verið í troll og koli er farinn að gefa sig, einn bátur landaði um 15 tonnun af kola í gám nýlega. Trillur hafa sömuleiðis reytt sæmilega þegar viðr- ar, en rysjótt tíð hefur tafíð þær frá. Önnur aflabrögð eru svipuð og i fyrra. Engar tölur liggja fyrir um heildarafla eða afla einstakra báta, þar sem mikið af fiskinum fer ýmist í gáma, til Reykjavíkur á markað, eða annað. ■' 1'

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.