Morgunblaðið - 14.03.1990, Síða 28

Morgunblaðið - 14.03.1990, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1990 ATVIN N \3AUGL ÝSINGAR Atvinna Nemar í framreiðslu Gaukur á Stöng óskar eftir að ráða ungt og hresst fólk á samning í framreiðslu. Upplýsingar veittar á staðnum í dag og á morgun milli kl. 15-16. Ath. ekki í síma. Patreksfjörður Umboðsmaður óskast til þess að sjá um dreifingu blaðsins. Upplýsingar í síma 94-1149 eða á afgreiðslu blaðsins í síma 83033. Óskum að ráða aðstoðarfólk í brauðgerð. Vinnutímar frá kl. 05-15 og frá kl. 08-16. Einnig í ræstingar. Vinnu- tími frá kl. 14-18. Upplýsingar á staðnum hjá verkstjóra, ekki í síma. Brauð hf., Skeifurmi 19. Hjúkrunarfræðingar Lausar stöður: Fræðslustjóra 50% starf. Möguleiki á auknu stöðuhlutfalli við hjúkrun. Aðstoðardeildarstjóra 80-100% starf. Hjúkr- unarfræðinga, starfshlutfall eftirsamkomulagi. Skjól er nýtt hjúkrunarheimili aldraðra. Þar er góð starfsaðstaða og miklir möguleikar á uppbyggingu hjúkrunar og fræðslu. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 688500. Sölumenn óskast Við seljum vel þekktar vörur beint til við- skiptavinarins og þurfum nú fleiri sölumenn. Eins og er höfum við áhuga á þér sem býrð á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Gott starf! -Hvað þýðir það fyrir þig? - Hærri laun? - Eigin ábyrgð? - Samgang við fólk? - Þroskar hæfileikana? Ef þú svarar þessum spurningum játandi og ert þar að auki á aldrinum 20-40 ára og hefur ökuréttindi og eigin bifreið, getum við boðið þér gott sölustarf á Stór-Reykjavíkur- svæðinu. Þú þarft ekki að hafa unnið við sölumennsku áður, þú getur í dag verið starf- andi í verslun, við iðnað, á skrifstofu eða eitthvað sambærilegt. Ef þú ert metnaðar- gjarn og röskur, getum við gert þig að góðum sölumanni. Hringdu í síma 688166 og spurðu eftir Ómari Sigurðssyni. Sundþjálfari Sundfélag Hafnarfjarðar óskar að ráða aðal- þjálfara; þarf helst að geta byrjað 1. maí. Góð aðstaða, tvær 25 metra laugar og þrek- æfingaaðstaða með sundbekkjum o.fl. Upplýsingar gefur Sævar Stefánsson í síma 91-52631 eða 985-31676. Danshúsið í Glæsibæ óskar eftir starfsfólki í eftirtalin störf: 1) Markaðs- og veitingastjóri. Viðkomandi þarf að vera framreiðslumaður og hafa reynslu í stjórnun. 2) Framreiðslumenn á bar. 3) Ræstingar. Unnið er á daginn við þrif á eldhúsi og veislu- sölum. Góð laun. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl., merktar: „Danshúsið - 7653“, fyrir 20. mars. Farið verður með allar umsóknir sem trúnað- armál. LANDSPÍTALINN Barna- og unglinga- geðdeild Landspítalans Hjúkrunarfræðingar óskast á unglingageð- deild nú þegar og í sumarafleysingar. Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu. Hjúkrunarfræðingar, fóstrur og þroska- þjálfar óskast á legudeild nú þegar og í sumarafleysingar. Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu. Upplýsingar um ofangreindar stöður gefur Anna Ásmundsdóttir, hjúkrunarfram- kvæmdastjóri, í síma 602550. Umsóknir sendist hjúkrunarframkvæmdastjóra. Reykjavík, 11. mars 1990. Frá menntamálaráðuneytinu Auglýst er eftir umsóknum um störf nám- stjóra í grunnskóladeild menntamálaráðu- neytisins (áður skólaþróunardeild). Á verk- sviði deildarinnar eru einkum þróunarverk- efni á grunnskólastigi, sbr. aðalnámskrá grunnskóla. Bæði er um að ræða 4-5 stöður við deildina og hins vegar verkefnaráðingu til ákveðins tíma. A) Fjórar til fimm stöður námstjóra: Verkefni þeirra verða: Að stuðla að almennri skólaþróun og stjórna og vinna með starfshópum, sem sinna þróun í ákveðnum námsgreinum, námsgreinaflokk- um og á ákveðnum aldursstigum. Námsstjórar: - Vinna með fræðsluskrifstofum, skólum, sem annast kennaramenntun, Námsgagna- stofnun og öðrum sem sinna skólaþróun. - Skipuleggja og hafa með höndum eftirlit og ráðgjöf. - Fylgjast með þróun skólamála innanlands og utan. - Miðla upplýsingum um skólamál. Ráðið er í þessar stöður frá 1. ágúst 1990. B) Ennfremur er auglýst eftir umsóknum um störf námsstjóra, sem ráðið verður í tíma- bundið í eitt til fjögur ár frá 1. ágúst 1990 til að sinna sérstökum verkefnum. Ráðning í hálft starf kemur til greina. Þau verkefni, sem fyrst um sinn verður lögð áhersla á eru eftirfarandi: Ráðgjöf um námsmat, umsjón með sam- ræmdum grunnskólaprófum og könnunar- prófum, íslenska, stærðfræði, list- og verk- greinar, umhverfismennt. Auglýst er eftir fólki í öli þessi störf, sem hef- ur menntun í uppeldis- og kennslufræðum, menntun á ákveðnum greinasviðum og reynslu af störfum í skólakerfinu. Störfin krefjast frum- kvæðis, sjálfstæðra vinnubragða og skipulags- hæfni. Mjög reynir á samstarf við aðra. Um laun fer samkvæmt launakerfi ríkisins. Umsóknarfrestur er til 30. mars nk. Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu sendar til menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. FERÐAFELAG ^ ÍSIANDS WLfNNSLA Vélritunarkennsla Ný námskeið eru að hefjast. Vélritunarskólinn, s. 28040. Wélagslíf I.O.O.F. 7 = 171314872 = 9.0. □ GLITNIR 59901437 = 1. I.O.O.F. 9 = 171314872 = □ HELGAFELL 59903147IVA/ 2 Stúkan Einingin nr. 14 Munið árshátíðina í Hallarseli í kvöld kl. 20.00. Æt. ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533 Vetrarfagnaður F.í. Vetrarfagnaður F.í. verður hald- inn í góðum salarkynnum í Ris- inu, Klúbbnum, Borgartúni 32, laugardaginn 17. mars. Dag- skráin hefst með fordrykk kl. 19.30 og borðhald hefst kl. 20.00. Það verða sannarlega „söguleg" skemmtiatriði í um- sjón skemmtinefndar F.l. Enginn ætti að missa af vetrarfagnaðin- um. Hljómsveit leikur fyrir dansi fram á nótt. Frábær skemmtun fyrir alla aldurshópa. Miðar á skrifstofunni. Ennfremur verða miðar seldir á aðalfundinum á miðvikudagskvöldið. Pantið tímanlega. Ferðafélag íslands. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn kl. 20.00. samkoma í kvöld m Útivist Helgarferðir 16.-18. mars Húsafell - Þingvellir Gönguskíðaferð. Fyrstu nóttina verður gist í húsi, síðari nóttina i tjaldi. Spennandi ferð fyrir frískt fólk. Undirbúningsfundur miðvikud. 14. mars á skrifstofu Útivistar, Grófinni 1, kl. 20. Helgarferð að Húsafelli Gist í góðu húsi, sundlaug á staðnum. Tilvalið að taka önguskíðin með. Útivistarferð eru allir velkomnir. Árshátfð Útivistar verður laugard. 24. mars að Efstalandi, Ölfusi. Fordrykkur i hlöðunni. Ljúffengur matur. Óvæntar uppákomur. Stöðin mætir á staðinn. Hrókarnir leika fyrir dansi. Miðar á skrifstofu, Grófinni 1, sími/símsvari 14606. Sjáumst! Útivist. 1 Stefánsmót - stórsvig verður haldiö helgina 17.-18. mars. Á laugardag verður keppt í flokkum 13-14 ára og 15-16 ára. Sunnudag keppt í flokkum 9-10 ára og 11-12 ára. Nánari dagskrá verður afhent á fararstjórafundi í KR-heimilinu, Frostaskjóli, föstudaginn 16. mars kl. 19. Þátttökutilkynningar berist í síma 54066 fyrir kl. 22, fimmtudag. Stjórnin. Reykjavíkurmeistaramót í 30 km skíðagöngu verður hald- ið laugardaginn 17. mars kl. 13 í Skálafelli. Skráning og upplýs- ingar í síma 75971. Skíðadeild Hrannar, Skálafelli. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Bibjíulestur í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. SAMBAND ÍSLENZKFiA KRISTNIBOÐSFÉLAGA Kristniboðssamkoma verður [ Seltjarnarneskirkju i kvöld kl. 20.30. Jesús og Nikódemus. Upphafs- orð: Baldvin Steindórsson. Ræðumaður: Benedikt Arnkels- son. Efni: Jónas Þórisson um Eþiópíu. Allir velkomnir. FERÐAFÉLAG ÍSIANDS ÖLDUGÖTU 3 S-11798 19533 Aðalfundur Ferðafélagsins Aðalfundur Ferðafélags íslands verður haldinn í Sóknarsalnum, Skipholti 50a, miðvikudaginn 14. mars og hefst hann stundvíslega kl. 20.30. Venjuleg aðalfundar- störf. Ath.: Félagsmenn sýni ársskírteini frá árinu 1989 við innganginn. Stjórn Ferðafélags íslands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.