Morgunblaðið - 14.03.1990, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1990
35
UnnurA. Amadóttir
Akranesi — minning*
Fædd 19. febrúar 1913
Dáin 6. inarz 1990
í dag verður Ásta Árnadóttir lögð
til hinstu hvíldar í Akraneskirkju.
Gengin er góð kona.
Því miður hef ég ekki tök á að
vera viðstödd kveðjuathöfnina og
vil því með þessum orðum kveðja
og minnast ömmu minnar.
Ásta fæddist í Bolungarvík 19.
febrúar 1913 og voru foreldrar
hennar hjónin Sigríður Guðmunds-
dóttir húsmóðir og Árni Sigurðsson
sjómaður. Ásta var elst 5 systkina
sem nú kveðja systur sína.
Ásta giftist Sigmundi Ingvars-
syni 1931, Sín fyrstu búskaparár
bjuggu þau fyrir vestan en fluttust
búferlum á Skagann 1943 og
bjuggu þar síðan. Eignuðust þau
einn son, Ingvar, fæddur 1931.
Einnig tóku þau í fóstur Árnýju
Kristjánsdóttur og ólu upp sem sína
eigin dóttur. Sigmundur starfaði
lengst af sem vörubílstjóri. Hann
lést árið 1975 eftir löng veikindi.
Heimilið og börnin (seinna barna-
börn og barnabarnabörn) lágu Ástu
næst hjarta og í því fólst lífsstarf
hennar. Hún var mikil húsmóðir og
hélt heimili með reisn. Komu gestir
aldrei að tómum kofunum, heldur
var boðinn matur og kaffi að göml-
um sið.
Ásta var sú kona sem mótaði
ömmuímyndina í mínum huga. Ást,
umhyggja, hlýja og öryggi er það
sem urnlék mig þegar ég var í heim-
sókn hjá ömmu. Þýí fylgdi alltaf
tilhlökkun að koma til hennar og
vera hjá henni, hvort sem um var
að ræða styttri eða lengri tíma.
Amma hafði alltaf tíma til að sinna
því sem barnssálinni lá á hjarta og
var þá ekkert mál of lítið eða of
stórt. Enda fundu börn fljótt hvaða
sál hún hafði að geyma og hænd-
ust að henni.
Á erfiðri stundu huggaði ég dótt-
ur mína með þeim orðum að nú liði
ömmu vel, hún væri orðin engill hjá
Guði eins og afi og saman horfðu
þau niður til okkar og pössuðu okk-
ar. Barnstrúin er einlæg og huggar
unga sem aldna þegar á reynir.
Mér var jafnmikil huggun í þessum
orðum eins og dóttur minni. Ömmu
líður vel, en við sem eftir lifum
syrgjum liðna tíð og söknum þess
sem var.
Ég er þakklát fyrir þær sam-
verustundir sem ég átti með henni
og öllu því sem hún miðlaði mér.
Ég og fjölskylda mín sendum
samúðarkveðjur til vina og vanda-
manna á íslandi. Megi minning
hennar lifa í hjörtum okkar allra.
Margs er að rainnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
(V. Briem)
Gunnur Helgadóttir
og fjölskylda.
í dag verður jarðsungin frá Akra-
neskirkju, Unnur Ástríður Árna-
dóttir, fædd 19. febrúar 1913 í
Bolungai-vík við ísafjarðardjúp.
Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness,
eftir stutta legu 6. marz 1990.
Foreldrar hennar woru heiðurs-
hjónin Sigríður Guðmundsdóttir og
Árni Sigurðsson sjómaður, búandi
þá í Bolungarvík, þau eru bæði lát-
in, blessuð sé minning þeirra. Ásta,
eins og hún var alltaf kölluð af fjöl-
skyldunni, var elst sex barna, sem
foreldrar okkar eignuðust og kom-
ust til fuliorðinsára, þijár dætur og
þrír synir. Það varð því fljótt hlut-
verk Ástu að hjálpa til og annast
yngri systkini sín. Var hún fórnfús
og ljúf við þau störf bæði þá og
síðar. Árin liðu, foreldrar okkar
fluttust til ísafjarðar þegar börnin
stækkuðu og þörf varð fyrir fram-
haldsnám þeirra. Þar kynntist Ásta
verðandi eiginmanni sínum Sig-
mundi Ingvarssyni bílstjóra, ágætis
manni, og giftu þau sig 1931. Þau
eignuðust einn son, Ingvar Sig-
mundsson, sem búsettur er á Akra-
nesi, giftur Steinunni Kolbeinsdótt-
ur frá Stóra Ási í Borgarfirði. Stein-
unn og Ingvar eiga þijár dætur og
barnabörnin orðin sjö. Ennfremur
ólst upp hjá Ástu og Sigmundi,
Árný Kristjánsdóttir frá unga aldri
til manndómsára. Árný e_r dóttir
Guðmundu yngri systir Ástu og
hennar manns Kristjáns Sigurgeirs-
sonar. Árný er gift Helga Sigurðs-
syni og eiga þau tvær dætur og tvö
barnabörn. Fyrir hönd látinnar syst-
ur okkar, viljum við færa fram alúð-
arþakkir til Ingvars, Steinunnar,
Árnýar, Helga, bamabarna og ann-
arra fyrir allt það fórnfúsa og góða
er þau gerðu fyrir hana.
Árið 1943 fluttu þau Ásta og
Sigmundur suður til Akraness, og
komu sér þar vel fyrir á Suðurgötu
115 og undu hag sínum vel. Ásta
missti mann sinn 1975, hún bjó
áfram í sínu húsi og hélt ölju í
góðu horfi til síðasta dags. Ásta
t
Sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og afi,
ÁSTÞÓR ÆGIR GÍSLASON,
Hávegi 5,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju fimmtudaginn 15. mars
kl. 13.30.
ÓmarÆgisson,
Jón Guðni Ægisson,
Gísli Theodor Ægisson,
Álfheiður Hulda Ægisdóttir,
Guðný Ægisdóttir,
Svala Lind Ægisdóttir,
móðir, tengdabörn,
systkini og barnabörn.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
SIGURVEIG GUÐMUNDSDÓTTIR
HAMMARSTRÖM,
Lötgatan 6,
Sundbyberg,
Svíþjóð,
lést á heimili sínu 1. mars sl.
Jarðarförin hefur farið fram.
Karl Gustav Hammarström,
Ulla og Kristinn Hammarström
og börn.
var mjög vel gerð kona, dugleg,
skapmild og góð, vildi öllum gott
gera, og alltaf var nóg húsaskjól
og góðgerðir á þeim bæ. Það var
oft margt um manninn hjá Ástu
og fjölskyldan hændist að henni.
Sonardætur hennar voru mikið hjá
Ástu ömmu, sín byijunar mann-
dómsár. Ásta var trúuð kona, og
því mótlæti sem að bar á lífsleið-
inni, tók hún með guðs hjálp 'af
skapfestu og þolinmæði.
Nú þegar elskuleg systir okkar
er öli og leiðir skilja að sinni, viljum
við minnast með virðingu allra góðu
samverustundanna í bernsku og
síðar á lífsleiðinni. Við þökkum inni-
lega langa og trausta samleið og
munum ylja okkur við góðar minn-
ingar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir .allt og allt.
(V. Briem)
Systkini hinnar látnu.
t
Eiginkona mín og móðir okkar,
GUÐRÚN HELGA JÓNSDÓTTIR,
Staðarbakka, Miðfirði,
verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju, Hafnarfirði, föstudaginn 16.
mars kl. 15.00. Sætaferð verður frá Laugarbakka sama dag kl.
9.00.
Magnús Guðmundsson
og börn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
för föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GUÐMUNDAR HELGASONAR,
Akraseli 18,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Ástrós Guðmundsdóttir,
Eygló Guðmundsdóttir,
Magnea Guðmundsdóttir,
Helgi Magnússon,
Ágústa Magnúsdóttir,
Páll Björgvinsson,
Bragi Kristinsson,
Guðmundur Símonarson,
Guðrún Björnsdóttir,
Gunnar Örn Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför föður okkar, tengdaföður og afa,
FRIÐRIKS Ó. PÁLSSONAR,
Dvalarheimiiinu Felli,
Skiphoiti 21,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Páll Friðriksson, Susie Bachmann,
Kristján Friðriksson, Concordia Konráðsdóttir,
Einar Friðriksson,
Ólafur Þór Friðriksson,
Bjargdís Friðriksdóttir, Karl Kristinsson,
Jón Friðriksson, Randy Friðriksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
F Iræðslumiðstöð
RAUÐA KROSS ÍSLANDS
IS]tarfslok
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ RAUDA KROSS
ÍSLANDS gengst fyrir námskeiði um
STARFSLOK að Hótel Lind laugardaginn
17. mars 1990 frá kl. 10-16.
IdJagskrá
1. Trygginga- og lífeyrismál aldraðra
Margrét H. Sigurðardóttir fulltrúi.
2. íbúðamál aldraðra
Asgeir Jóhannesson framkvæmdastjóri.
3. Fjármál við starfslok
Fjárfestingarfélag íslands.
4. Nýtt skipulag á þjónustu við aldraða í
Reykjavík.
Sigurbjörg Sigurðardóttir félagsráðgjafi.
5. Undirbúningur starlsloka
Erla Friðriksdóttir hjúkrunarfræðingur.
6. Ábyrgð á eigin heilsu
Grímur Sæmundsen læknir.
8. Námskeið fyrir eldri borgara íbanda-
rískum háskólum og Háskóla íslands
Margrét S. Björnsdóttir
endurmenntunarstjóri H.í.
9. Önnur námstækifæri
Guðrún Halldórsdóttir skólastjóri.
10. Kynning:
Félag eldri borgara, Bergsteinn Sigurðsson.
Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra,
Soffía Stefánsdóttir íþróttakennari.
Umræður, námskeiðsmat og námskeiðssiit.
Námskeiðsgjald er kr. 1.000. -
Vinsamlegast skráið ykkur í síma
91 -2 6722 fyrir kl. 17 á föstudag.
Námskeiðið er öllum opiö en fólk sem
komið er um og yfir sextugt er sérstaklega
velkomið.