Morgunblaðið - 14.03.1990, Síða 40

Morgunblaðið - 14.03.1990, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1990 [h „ Léku feir hcrfnaboLtex, á, þessum bmur»Tv ... erfiðaðfótasigá. TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved ° 1990 Los Angeles Tlmes Syndicate Með morgnnkaffinu Nú hefúrðu dottið í það rétt Nú er pabbi alveg hættur að eina ferðina enn. blóta nefni hann þig á nafn ... HOGNI HREKKVISI „HANN HAFÐl ERKI TÍMA T>L AO BAÐA SIG. Þessir hringdu ... Gömlu góðu dagarnir Gestur hringdi: „Skemmtiklúbburinn Gömlu góðu dagarnir hefur starfað að undanfömu en sennilega vita fæst- ir af því. Þetta er 14 manna dans- hljómsveit, sem nokkrir áhugasam- ir menn eru að reyna að halda- gangandi. Þeir spila á sunnudags- kvöldum í Glym, annan og Ijórða- hvern sunnudag. Þetta er áhuga- starf hjá þeim og gefur áreiðanlega ekki mikið af sér í peningum. Hljómsveitin spilar vinsæl dægur- lög frá árunum 1930 til 1960 og hefur náð góðum tökum á þeim. Ég keypti mér mánaðarkort og hef farið á skemmtanir þeirra og eru þetta mjög menningarleg kvöld. Þegar ég fór á skemmtun hjá þeim í febrúar voru aðeins mættir 40 manns. Það er synd að ekki skuli nást meiri mæting því þetta gengur ekki nema fleiri komi. Ég vil hvetja menn til að koma og njóta góðarar tónlistar og styrkja þannig þetta framtak.“ Lyklakippa Lyklakippu með Nissan bíllykli merkt „JSJ“ tapaðist við hafnar- bakkann fyrir framan Hafnarhúsið, 2. mars. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 17368. Kvótakerfíð M.G. hringdi: „Fyrir nokkru var fjallað um sjávarútvegsmál í Velvakanda og kvótakerfið gagnrýnt harðlega. Sannleikurinn er sá að þrátt fyrir nokkra galla hefur kvótakerfið bjargað íslensku fiskistofnunum. Auðvitað hefur þetta kerfi sína annmarka, en væri ekki ráð að bæta úr þeim fremur en að spilla þeim árangri sem náðst hefur með því að leggja kerfið niður. Smá- fiskadrápið er sennilega það alvar- legasta og verður að leita leiða til að stemma stigu við því. Enginn hefur hag af því og smáfiskadrápið er allra tap þegar til lengri tíma er litið. Fiskimiðin eru sameiginleg eign íslensku þjóðarinnar og við verður að iæra að umgangast þessa auðlind okkar með virðingu." Kettlingur Grábröndóttu kettlingur með rauða ól tapaðist frá Rjúpuifelli sl. fimmtudag. Vinsamlegast hringið í síma 79483 ef hann hefur ein- hvers staðar komið fram. Mögnuð uppfærsla Ánægðir óperugestir höfðu samband: „Okkur langar að þakka ís- lensku óperunni fyrir frábæra skemmtun og magnaða uppfærslu á verkunum Carmina burana og Pagli acci. Oit hafa kraftaverk gerst í íslensku óperunni og þetta er eitt af þeim. Sem sagt frábær skemmtun og til hamingju.“ Páfagaukur Blár páfagaukur tapaðist. Vin- samlegast hringð í Ásgeir í síma 680780 að deginum eða síma 628010 eftir kl. 18. Hanskar Loðfóðraðir leðurhanskar töpuð- ust fyrir skömmu, sennilega á leið frá Akraseli að Engjaseli. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 685337. Frakki Frakki og leðurhanskar voru teknir í misgripum á veitingastaðn- um 22 við Laugaveg. Vinsamlegast hringið í síma 678512 eða 22722. I I /& % A Persónulegar árásir Til Velvakanda. Vegna náms míns í indó-evrópskri samanburðarhljóð- fræði hafði ég viðkomu í Lögbergi, húsi lagadeildar Háskóla íslands. Rakst ég þar á rit eitt sem gefið er út af laganemum og heitir Grímur geitskór. Ég vissi það fyrir að tilgangur blaðsins er að fjalla um hin ýmsu lögfræðilegu álitaefni svo sem tengsl lögfræðinnar og þjóðfélagsvísindanna og hugtök í stjórnsýslurétti sem taka stöðugum breytingum. Ég varð því ákaflega undrandi þegar ég opnaði blaðið og sá efnistök ritstjórnarinnar á hinum lögfræðilegu álitaefnum. Blaðið var uppfullt af persónulegum árásum á nafngreinda laganema. Ég bókstaf- lega trúi því ekki að nokkur laga- nemi með óbrenglaðan húmor geti brosað að slíkum ósóma. Ég beini því þeirri áskorun til hins heilbrigða laganema að stöðva þessar ritsmíð- ar og taka upp upphaflega tilgang blaðsins. 7155 4007 ( Víkverji skrifar Isíðustu viku ræddi Víkverji um þá skuggalegu hlið á ríkis- styrkjum til dagblaða, sem blasir við útgefendum málgagns breska kommúnistaflokksins Morning Star, eftir að Sovétstjórnin hætti að kaupa helming upplags blaðs- ins. Þar með er blaðið komið á vonarvöl. Morning Star hefur ekki þau tök á ráðamönnum í Kreml, að blaðið geti þrýst á og fengið þá til að eyða dýrmætum gjaldeyri til að styðja útgáfu blaðsins. Hér á landi sjást þess hins vegar glögg merki, að dagblöð, sem geta ekki lifað án þess að fá opinbera styrki, leit- ast við að telja mönnum trú um að þau séu ómissandi. Ráðamenn í Kreml hafa vafalítið tekið ákvörðun um að kaupa hálft upp- lagið af Morning Star og flytja það til Sovétríkjanna í því skyni, að blaðið gæti komið hinum helm- ingnum á framfæri í Bretlandi. Þessi stuðningur frá Kreml við blaðaútgáfu í Bretlandi leiðir hug- ann að umræðum um það hér hvort Sovétmenn eða fylgifiskar þeirra annars staðar í löndum kommúnista hafi stutt við bakið á útgáfustarfsemi hugsjónabræðra á Islandi. Hræðslan við hreínskiln- ar umræður um fortíð Þjóðviljans hefur komið í veg fyrir, að_ þetta mál sé brotið til mergjar. Á hinn bóginn á blaðið nú í miklum fjár- hagslegum erfiðleikum eins og Morning Star. Fer það ekki fram hjá neinum. XXX Maður af erlendu bergi brotinn sem hér er búsettur kom að máli við Víkverja á dögunum og lýsti undrun sinni yfir því að virð- isaukaskattur væri lagður á bæk- ur, sem einstaklingar pöntuðu eða fengju sendar beint frá útlöndum. Sagðist hann hafa verið í bóka- klúbbi í ættlandi sínu og hafi það verið mikilvægt fyrir sig að geta haldið þeim tengslum. Frá og með síðustu áramótum hefðu opinberar álögur á bækur, sem hann fengi, vegið svo þungt, að nú þyrfti hann að endurskoða þátttöku sína í krlúbbnum. Hér nefnir Víkverji aðeins eitt dæmi af mörgum um það, hver áhrif þessi furðulega skattheimta hefur. Þetta dæmi sýnir hins veg- ar í hnotskurn, hvers vegna menn^ ingarlegar ríkisstjórnir sem vilja stuðla að menntun og sköpun meðal borgara i löndum sínum gæta þess að leggja ekki stein í götu prentaðs máls með óhóflegri og ósanngjarnri skattheimtu. xxx Yikverji leyfir sér að fullyrða, að hinn þungi skattur sem | nú er lagður á bækur frá útlöndum verði til þess að lækka menntunar- stig þjóðarinnar auk þess sem ( hann brýtur í bága við grundvall- arsamþykktir um menningarsam- starf og mannréttindi. Á sama ^ hátt og ríkisvaldið getur haldið úti blöðum sem enginn vill kaupa með því að veita þeim opinbera styrki getur það drepið önnur, lamað útgáfustarf og svipt al- menna borgara lesefni með of háum sköttum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.