Morgunblaðið - 06.05.1990, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR/INIMLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1990
03 upplýsingar Pósts og síma:
16-20 þúsund upphringing-
ar á hverjum virkum degi
Dýr þjónusta því hvert skref er 9 sekúndur í stað 6 mínútna
ÞEIR sem mikið þurfa að nota upplýsingar Pósts og síma, 03,
eins og til að mynda blaðamenn sem oft þurfa að hafa upp á fólki
án þess að hafa nema lágmarksupplýsingar um það, hafa orðið
óþægilega varir við að það getur reynst æði erfitt að ná sam-
bandi og númerið ítrekað á taii. Þó eru þær tólf sem svara þeg-
ar álagið er mest, en dugir varla til, því búast má við hvorki
fleiri né færri en 16 til 20 þúsund upphringingum á hverjum virk-
um degi.
Upplýsingasím-
inn 03 er opinn
frá klukkan 8.00 á
morgnana til kiukk-
an 22.00 á kvöldin
alla daga ársins
nema á stórhátíðum.
Það er sama hvort
þú hringir frá
Isafirði, Vopnafirði
eða úr Reykjavík,
þú færð samband
upp á 3. hæð í Land-
símahúsinu við
Austuvöll, þar sem
03 er til húsa og
raunar 02 einnig.
Verðið alls staðar
það sama, en upp-
lýsingarnar eru dýrt
fengnar, því hverjar
9 sekúndur teljast
eitt skref þegar
hringt er í 03. Til
samanburðar er Þetta eru stúlkurnar á 03 sem allir vilja kom-
hvert skref 6 mínút- ast í samband við. Guðrún Þorvaldsdóttir er
ur þegar talað er fremst á myndinni.
innanbæjar eða inn-
an sama svæðis.
Unnið er á tvískiptum vöktum
og er vaktstjóri fyrir hvorri vakt.
Vaktstjórarnir heita Guðrún Þor-
valdsdóttir og Sigríður Flygenr-
ing. Þær segja að þetta sé mjög
erilsamt starf og sjaldan næði og
því sé mesta furða að flestar kon-
umar hafa unnið við þetta í yfir
20 ár.
Guðrún segir að fyrirspurnun-
um ijölgi eftir því sem líður á
árið og lengra dregur frá því
síðasta símaskrá kom út. Þá fjölg-
ar einnig fyrirspurnum þegar
stofnanir, bankar eða stórfyrir-
tæki skipta um símanúmer, eins
og talsvert hefur verið um undan-
farið. Hægt er að leita í þremur
skrám, götu-, númera- og nafna-
skrá, og því tekst ótrúlega oft að
aðstoða fólk, þrátt fyrir að það
hafi kannski litlar upplýsingar um
þann sem það þarf að ná í. Tölv-
urnar voru bylting í þessum efn-
um, en þær komu til skjalanna
fyrir rúmum tíu árum. Fyrir tíma
þeirra var flett upp í spjaldskrá á
tromlum sem stúlkurnar höfðu
fyrir framan sigog.vom tromlurn-
ar á tveimur hæðum.
„Við erum kannski spurðar um
Jón í Hraunbænum og oft getum
við orðið fólki að liði ög fundið
símanúmerið sem það vantar,"
sagði Guðrún. „Við erum allar
búnar að vera hér í yfir 20 ár,
þó það sé vandséð af hverju við
tollum svona við þetta. Okkur
hefur gengið illa í kjaramálunum,
þó stúlkurnar, sem hafa verið hér
á undan okkur hafi starfað virki-
lega vel. Þetta sfarf hefur aldrei
verið metið eins og átti að gera
og það kemur meðal annárs til
af því að hér áður fyrr þótti fínt
að vera landsímadama."
Guðrún segir að símtækin sem
þær nota séu orðin gömul, en það
standi til bóta. Nýju tækin sjái
sjálfkrafa um að sá sem beðið
hefur lengst á línunni fái sam-'
band, en nú er það undir hælinn
lagt hvort sá sem er svarað er
nýbyrjaður að hringja eða búinn
að bíða lengi án þess að fá svar.
Alþingisreitur skipu-
lagður til næstu tíu ára
BORGARYFIRVÖLD og forsetar
Alþingis hafa gert með sér sam-
komulag um bráðabirgðaskipu-
lag á Alþingisreit til næstu tíu
ára. Gert er ráð fyrir 155 bíla-
stæðum á lóðunum frá Vonar-
stræti að sunnan að Kirkjustræti
ásamt göngustígum og trjá-
gróðri og að svæðið verði lýst
upp. Áætlaður kostnaður vegna
framkvæmdanna er um 36 millj-
ónir króna og er hlutur Alþingis
10,5 milljónir króna. Tillagan
hefúr verið kynnt í borgarráði
og var vísað þaðan til umhverfis-
málaráðs og þar hefur hún verið
samþykkt.
Skipulagið sýnir bráðabirgðafrá-
gang á svæðinu frá Templara-
sundi vestur að Tjarnargötu og frá
Kirkjustræti að Vonarstræti eða á
Alþingisreit. Nýlega er búið að fjar-
lægja hús, sem stóð á horni Tjarnar-
götu og Vonarstrætis og nú stendur
til að fjarlægja húsið Tjamargata
3C, sem er inn á reitnum en það
verður flutt á lóð á horni Túngötu
og Garðastrætis.
„Á Alþingisreitnum verða upp-
hituð 155 bíiastæði, gangstígar og
tré gróðursett,“ sagð Stefán Her-
mannsson aðstoðar borgarverk-
fræðingur. „Sennilega munum við
hefja framkvæmdirnar með endur-
bótum á bílastæðunum 35, sem
Alþingi hefur yfir að ráða við
Templarasund. Þar verður hlaðinn
veggur með Vonarstræti, lagður
hiti í stæðin og sett upp nýtt hlið.
Á svæðinu við Tjarnargötu, frá
Vonarstræti yfir í Kirkjustræti
verða lagðir nokkrir steinlagðir
göngustígar en að öðru leiti verða
þama bílastæði.“
Teiknistofan Studio Grandi hefur
skipulagt svæðið og er lagt til að
reynt verði að minnka áHrif af stóru
bílastæði með trjágróðri, sérstak-
lega meðfram götunum og með
misháum grásteinsveggjum norðan
og sunnan við stæðin. Borgarsjóður
fær 67 stæði til útleigu og Alþingi
50 á reitnum milli Vonarstrætis og
Kirkjustrætis við Tjarnargötu og
hefur Alþing þá samtals 85 stæði
að meðtöldum núverandi stæðum
við Templarasund. Borgin mun ann-
ast rekstur stæðanna og viðhald,
nema kostnaður vegna upphitunar
en hann skiptist á eigendur í hlut-
falli við fjölda stæða.
Samið var til tíu ára og sagði
Stefán að með þessu samkomulagi
væru menn ekki að taka afstöðu
til hugsanlegra bygginga á lóðun-
um, flutning á húsum eða niðurrif.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir
hefjist í júní og að þeim verði lokið
í haust.
Riddari af orðu
bókmennta og lista
MENNTAMÁLARÁÐHERRA Frakka, Jack Lang, hefur útnefht Sig-
urð Pálsson, rithöfúnd, riddara af orðu bókmennta og lista og af-
lienti sendiherra Frakka á Islandi, Jacgues Mer, Sigurði riddaraorð-
una í hófi í franska sendiráðinu á fostudaginn.
Sigurður sagði í samtali við
Morgunblaðið, að hann væri að
vonum ánægður með þessa viður-
kenningu. Hún væri hins vegar
ekki aðeins hans, heldur liti hann
á hana sem vináttu og virðingar-
Aflamiðlun:
vott við viðleitni allra þeirra, sem
láta sig samskipti íslendinga og
Frakka á menningarsviðinu ein-
hveiju skipta. Myndin var tekin,
þegar franski sendiherrann hafði
afhent Sigurði orðuna.
1.250 tonn af fiski
seld í næstu viku
SELD verða samtals 750 tonn af íslenskum þorski og ýsu úr gámum
og fiskiskipum á bresku fískmörkuðunum og samtals 500 tonn af
karfa og ufsa í Vestur-Þýskalandi í næstu viku. Þá verða 100 tonn
seld úr gámum í Frakklandi og Belgíu. Verð á karfa og ufsa hefur
verið tiltölulega lágt í Vestur-Þýskalandi að undanfornu en verð á
þorski og ýsu var hins vegar mjög hátt í Bretlandi í síðustu viku,
að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar framkvæmdastjóra Aflamiðlunar.
Aflamiðlun veitti á föstudag 26
aðilum leyfi til sölu á 400 tonn-
um af þorski og ýsu úr gámum í
Bretlandi og 4 aðilum leyfí til sölu
á 50 tonnum af karfa og ufsa úr
gámum í Vestur-Þýskalandi í næstu
viku. Hins vegar höfðu 43 aðilar
sótt um leyfi til sölu á samtals 2.784
tonnum af þorski og ýsu úr gámum
í Bretlandi og 937 tonnum af karfa
og ufsa úr gámum í Vestur-Þýska-
landi. Fimm aðilar mega selja 100
tonn úr gámum í Frakklandi og
Belgíu en þeir höfðu sótt um leyfi
til sölu á 189 tonnum þar.
Þá selja fimm skip, Valdimar
Sveinsson VE, Oddgeir ÞH, Þórunn
Sveinsdóttir VE, Gúðfinna Steins-
dóttir ÁR og Örn VE, samtals 350
tonn af þorski og ýsu í Bretlandi
og Jón Baldvinsson RE og Viðey
RE selja samtals 450 tonn af karfa
og ufsa í Vestur-Þýskalandi.
Vinmiskóli Reykjavíkur:
Skráning að hefjast
SKRÁNING í Vinnuskóla
Reykjavíkur fyrir næsta sumar
hefst 7. maí og stendur fram til
18. maí. Vinnuskólinn er ætlaður
unglingum í 7. og 8. bekk grunn-
skóla og fer skráningin fram hjá
Ráðningarskrifstofu Reykja-
víkurborgar.
Að sögn Arnfinns Jónssonar
skólastjóra Foldaskóla, er verið
að ljúka ráðningu leiðbeinenda.
Miðað er við að unglingarnir, sem
rétt hafa á vinnu, séu fæddir árið
1975 og 1976. Þau sem eru fædd
árið 1975 og voru í 8. bekk vinna
8 tíma á dag og fá kr. 172 á tímann
og þau sem eru fædd árið 1976 og
voru í 7. bekk, vinna 4 tíma á dag
og fá kr. 152 á tímann.
„Um langan tíma hefur verið
miðað við um 90% af unglingataxta
Dagsbrúnar með þeim rökum að
þetta sé Vinnuskóli Reykjavíkur og
að hann sé sambland af vinnu og
skóla,“ sagði Arnfinnur. Sagði hann
að meðal annars væru unglingarnir
þijá daga á sumri á launum án
þess að vera í beinni vinnu og væri
einum degi til dæmis varið í
fræðsluferð.
Rétt er að geta þess að umsækj-
endur verða að gefa upp kennitölu
við skrásetningu.
Sendiráð tek-
nr við samúð-
arkveðjum
ÞEIR sem vilja minnast Nicholas
Ruwe, fyrrum sendiherra Banda-
ríkjanna á íslandi, scm lést
vestra 2. maí, geta ritað nöfii sín
í bók, sem liggja mun frammi í
bústað sendilierra Banda-
ríkjanna að Laufásvegi 23 á
morgun, mánudag, frá klukkan
15-17.
Bálfor Ruwe fór fram í Michigan
í Bandaríkjunum í gær. í
Reykjavik verður haldin minningar-
athöfn í Landakotskirkju næstkom-
andi fímmtudag klukkan 10.