Morgunblaðið - 06.05.1990, Page 29

Morgunblaðið - 06.05.1990, Page 29
JSHtrjgmíílfefoifr ATVINNU/RAÐ- OG SMÁAUGLÝSINGAR Leiklist Ferðaleikhúsið auglýsir í dag eftir umsækjendum um leikarastörf í sýningunum Lights Nights í sumar. Leitað er að fólki sem hefur góðar hreyfingar og hæfileika til að tjá sig í þöglum leik. Umsækjendur eru beðnir að koma til viðtals í dag milli kl. 19 og 20 eða á morgun í Tjarnarbíó. Framkvæmdastjóri Umbúðamiðstöðin hf. leitar að frarnkvæmdastjóra með tækni- og/eða viðskiptamenntun. í auglýsingu kemur fram að fyrirtækið var stofnað árið 1964 af Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og frystihúsunum sem eiga aðild að henni. Fjárhagsstaða þess er góð og starfsfólk um 40 manns. Framleiðslan er að mest öllu leyti á sviði umbúða og prentunar fyrir fiskiðnaðinn. Deildarstjóri neyt- endadeildar Verðlagsstofnun auglýsir eftir starfsmanni í stöðu deildarstjóra neytendadeildar stofnunarinnar. Lögfræði- menntun er áskilin og launakjör verða samkvæmt launa- kerfi starfsmanna ríkisins. Garðyrkjumaður Kópavogshæli óskar eftir að ráða skrúðgarðsmann til fastra starfa. Verkefnin felast í skipulagningu, ræktun og umhirðu lóðar hælisins. Þar á meðal er snjómokstur á veturna og verkstjórn á sumarvinnufólki. Lóðin er 17 hektarar og er mikið starf framundan að því er fram kemur i auglýsingu. Hluthafar í gistihúsi Leitað er að aðilum sem hafa áhuga á að gerast hlut- hafar í gistihúsi sem fyrirhugað er að reisa í kauptúni við hringveginn að því er fram kemur í auglýsingu í blað- inu í dag. Ráðgert er að taka húsið í notkun á næsta ári og mun það leysa annað eldra hús af hólmi. Tekið er fram að reksturinn hafi gengið vel og að önnur ferðaþjón- usta á staðnum sé mjög góð. Framkvæmdaslj óri starfsmannafélags Starfsmannafélag ríkisstofnana vill ráða framkvæmda- stjóra og er starfið laust nú þegar. Tekið er fram í aug- lýsingu að hér sé um að ræða krefjandi starf en um leið áhugavert fyrir þá sem séu vanir félagsmálum. Fuglaskoðunarferð Útivist gengst fyrir fuglaskoðunarferð á Garðskaga S dag og verður Sigurður Blöndal með í för. Væntanlegum þátttakendum er bent á að taka með sér kíki og fugla- handbók. Ennfremur verður farið í gönguferð eftir gam- alli þjóðleið sem lá frá Njarðvíkurfitjum til Grindavíkur. Gangan hefst við Stapafell og er gengið eftir varðaðri leið í Járngerðarstaðahverfi. Þetta er sögð mjög skemmtileg leið og er meðal annars farið yfir þrenns konar hraun- strauma. Ferðafélagið gengst einnig að vanda fyrír ferð- um í dag og má þar nefna göngu- og skíðaferð á Heng- il. Ennfremur verður farið í göngu- og jarðfræðiferð á Reykjanes. Þar er um að ræða létta strandgöngu í fylgd Jóns Jónssonar jarðfræðings sem sagður er manna fróð- astur um jarðfræði Reykjanesskagans. Tekið er fram í auglýsingu að hér sé um einstaka ferð að ræða við allra hæfi. V estmannaeyjar; Lítíð atvinnuleysi en minni yfírvinna Vestmannaejjjum. ATVINNUASTAND í Eyjum er þokkalegt um þessar mundir. Lítið atvinnuleysi er jafnan á þessum tíma árs enda vertíð enn ekki lokið. Þrír félagar í Verkalýðsfélagi Vestmannaeyja eru nú á atvinnuleysisskrá og tvær konur í Verkakvennafélaginu Snót. Jón Kjartansson, hjá Verkalýðsfélagi Vestinannaeyja segir að ástandið í atvinnumálum sé þokkalegt eins og yfirleitt á þessum árstíma og það hafi áður verið verra. A Ilokfebrúar voru 10-15 manns á atvinnuleysisskrá hjá Verkalýðs- félagi Vestmannaeyja en atvinna jókst á ný um leið og frysting loðnu og loðnuhrogna hófst. Vilborg Þor- steinsdóttir hjá Snót sagði að tvær konur væru nú á atvinnuleysisskrá hjá félaginu. „Það var mikið at- vinnuleysi hjá okkur í janúar en eftir að vinna fór að aukast í stöðv- unum lagaðist þetta fljótt“ sagði Vilborg. Hún sagði að þrátt fyrir lítið atvinnuleysi þá væri minni vinna hjá verkakonum í Eyjum nú en áður sem kæmi fram í færri yfirvinnustundum. Stærsti hluti at- vinnunnar væri dagvinna og væri það mikil breyting frá því sem áður var. „Það er því engin ijúkandi vinna en þetta gengur á dagvinn- unni og það er bara því miður ekki nóg fyrir alla,“ sagði Vilborg. Hjá skrifstofu Vestmannaeyja- bæjar fengust þær upplýsingar að í apríl hefðu verið skráðir 361 at- vinnuleysisdagar. Þar af voru 17 karlar atvinnulausir í 270 daga og 6 konur í 91 dag. Hér var um að ræða tvo sjómenn, fjóra verkamenn, þijár verkakonur, þtjár verslunar- konur og ellefu bílstjóra. Helstu breytingar í atvinnumál- um í Vestmannaeyjum milli ára eru þær að á síðustu árum hefur út- flutningur ferskfisks aukist þannig að atvinna í frystihúsum hefur held- ur dregist saman. Hefur þetta orðið til þess að minnka yfirvinnu sem oft á tíðum var mikil yfir vertíðina. Ekki eru allir á því að það sé al- vont og margir hafa á orði að erfitt sé orðið að fá stóran hluta fólks til að vinna mikla yfirvinnu nema í mjög stuttan tíma og er það þá helst meðan loðnu og loðnuhrogna- frysting stendur. í greinargerð sem fiskvinnslu- stöðvarnar í Eyjum hafa nýverið tekið saman kemur fram að árs- verkum í fiskvinnslunni hefur fækk- að talsvert á síðustu sex árum. Þó hafa síðustu þrjú ár heldur verið upp á við í þessum efnum. Arið 1983 voru ársverk í fiskvinnlu í Eyjum 788 talsins. Þeim fór síðan fækkandi til ársins 1986 er þau voru 643. Síðan þá hefur ársverkum heldur fjölgað og á síðasta ári voru þau 676. Þó atvinnuástand sé ágætt um þessar mundir er erfitt að segja hvað verður er kemur fram á sumarið. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins virðist útlitið vera dekkra en oft áður. Mikið er búið af kvóta Eyjabáta og mikið framboð verður af fólki þegar skólum lýkur. Það er því frekar dekkra útlit með atvinnu á sumri komandi en oft áður. Atvinnuástand hjá iðnaðarmönn- um í Eyjum hefur verið ágætt og horfa þeir þokkalega björtum aug- um á sumarið. Grímur Þorlákshöfii: Næg atvinna í vetur og vor ATVINNUÁSTAND í Þorláks- höfii hefiir verið gott í vetur og vor og ekki aðrir á atvinnuleys- isskrá en þeir sem vegna aldurs eða heilsuleysis geta ekki stund- að hvaða vinnu sem er. Afli báta og togara hefur verið góður eftir að gæftir urðu betri, en fyrri hluti vetrar var veðrasamur. Mikill og góður þorskur hefur fengist bæði á grunnslóð og dýpra. Nokkrir bátar urðu að taka upp net sín í mars vegna þess að þeir voru langt komnir með þorskkvótann og fóru þeir flestir á snurvoð. Afli snur- voðabátanna hefur líka verið góð- ur. Sumarið leggst nokkuð vel í fólk hér og segja atvinnurekendur að ekki sé ástæða til að óttast atvinnuleysi, en erfítt geti orðið að fá vinnu fyrir yngri skólakrakk- ana. Þorleifur Björgvinsson fram- kvæmdastjóri Glettings sagði að þar yrði svipað unnið í humri og í fyrra og þar fengju skólakrakkar vinnu. Salthúsin yrðu að mestu lokuð vegna breytinga, en mikið yrði fryst. Finnbogi Alfreðsson fram- kvæmdastjóri Meitilsins sagði að vel hefði gengið hjá þeim upp á síðkastið. Togararnir hefðu komið með fullfermi túr eftir túr og væru þeir nú á grálúðu fyrir vestan. Þeir eiga að fara í slipp í sumar, þannig að aldrei yrði nema annar á veiðum í einu. Hann taldi líklegt að unninn yrði hurnar. Guðmundur Hermannsson sveitarstjóri sagði að í athugun væri að færa aldurinn á börnum í unglingavinnunni upp í 13-14 ára í staðinn fyrir 11-12 ára. J.H.S. Unnið við löndun úr togara í Vestmannaeyjahöfii. Atvinnuleysi: Greiðslur fyrstu þrjá mánuði 370 milljónir GREIÐSLUR úr Atvinnuleysis- tryggingasjóði hafa aukist á fyrstu þremur mánuðum ársins miðað við fyrstu þrjá mánuði ársins 1988. Greiðslur fyrir jan- úar, febrúar og mars námu 373.120 milljónum króna, sam- anborið við 281 milljón króna á sama tímabili í fyrra. A Utborgaðar atvinnuleysisbætur voru mestar í janúar, 139.900 milljónir, í febrúar voru greiddar út 117.560 milljónir króna og í mars 115.660 milljónir króna. Þá greiðir Atvinnuleysistrygg- ingasjóður út 28.800 milljónir á mánuði í eftirlaun aldraðra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.