Morgunblaðið - 17.06.1990, Side 16
16 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JUNI 1990
27.880
... FRÍR
BÍLALEIGUBÍLl
í HEILA VIKU
Úrtökumótið í Moskvu:
Stríðsgæfa Islend-
inganna brást í lokin
Skák
Margeir Pétursson
LÉLEGUR endasprettur eyði-
lagði möguleika þeirrá Jóns L.
Árnasonar og Jóhanns Hjartar-
sonar á að tryggja sér sæti í
heimsbikarkeppninni 1991-92.
Jón var með pálmann í höndun-
um eftir sigur á Sovétmeistaran-
um Vaganjan í áttundu umferð.
hafði þá hlotið fimm vinninga.
Sex vinningar hefðu dugað hon-
um til að komast áíram, en hann
fékk aðeins eitt jafiitefli í þremur
síðustu skákunum. Jóhanni
vegnaði ekki eins vel, en eftir
sigur á Miles í níundu umferð
átti hann enn möguleika, en tap-
aði báðum síðustu skákunum.
Keppnisfyrirkomulagið í undan-
rásum heimsbikarkeppninnar hefur
verið harðlega gagnrýnt og það Var
stríðsgæfan í síðustu umferðunum
sem öllu máli skipti á mótinu. Dylst
ekki neinum sem fylgist með frétt-
um að í Moskvu ríkir nú skortur
og skálmöld og kom það niður á
framkvæmd mótsins. Aðstæður all-
ar voru mjög slæmar að sögn
íslensku þátttakendanna.
Við skulum skoða heildarúrslitin
á mótinu, sem voru býsna óvænt.
Aðeins fimm efstu Sovétmennirnir
komust áfram, en sjö efstu af öðr-
um þjóðernum. Efstu mönnum er
raðað niður í sæti eftir stigum sem
menn tóku með sér í mótið.
Beljavskíj naut þannig góðs af
góðri frammistöðu í síðustu heims-
bikarkeppni og náði að slá Ivant-
sjúk og Gelfand út með sigri í
síðustu umferð.
Úrslitin:
1. Speelman (Englandi) 7 v. af 11.
2. M. Gurevich 7 v.
3. Khalifman 7 v.
4. Azmaiparashvili 7 v.
5. Bareev 7 v.
6. Beljavskíj 6 iiv.
7. Portisch (Ungveijal.) 6 ii v.
8. Gelfand 6'A v.
9. Ivantsjúk 6 '/■■ v.
10. De Firmian (Bandar.) 6’A v.
11. Chandler (Englandi) 6'/z v.
12. Polugajevskíj 6 ‘A v.
13. Seirawan (Bandaríkjunum) 6 v.
14. Nikolic (Júgóslavíu) 6 v.
15. Kir. Georgiev (Búlgaríu) 6 v.
16. Chernin 6 v.
17. Dorfman 6 v.
18. Eingorn 6 v.
19-23. Jón L. Ámason, Dolmatov,
Gulko (Bandaríkjunum), A. So-
kolov og Vladimirov 5 'A v.
24-34. Akopjan, Gavrikov (Lithá-
en), Makaritsjev, Malanjuk,
Naumkin, Pigusov, Psakhis (ísra-
el), Sax (Ungverjalandi), Tal, Gen.
Timoshchenko og Vaganjan 5 v.
35-38. Jóhann Hjartarson, Miles
(Bandaríkjunum), Nogueiras
(Kúbu) og Geo. Timoshenko 4 'A v.
39-40. Hulak (Júgóslavíu) og
Tukmakov 4 v.
41. Spraggett (Kanada) 3'A v.
42. King (Englandi) 2 'A v.
Þátttakendur í næstu
heimsbikarkeppni
Það verður ekki endanlega ljóst
fyrr en eftir að stigalisti FIDE 1.
júlí verður birtur hveijir verða hin-
ir 24 þátttakendur í næstu keppni.
Þegar er þó vitað um 22 þeirra,
en nokkur óvissa ríkir um það
hveijir hreppa síðustu sætin tvö.
Úr síðustu keppni koma þeir Ka-
sparov, Karpov, Salov, Ehlvest,
Nunn og Ljubojevic. Frá Moskvu
þeir Speelman, M. Gurevítsj, Kha-
I síðustu umferðinni taldi Jón sig
þurfa að vinna Búlgarann Kiril
Georgiev með svörtu til að komast
áfram og tefldi um of í tvísýnu og
tapaði skákinni. Eftir á kom hins
vegar í ljós að jafntefli hefði dug-
að, því Boris Gulko tapaði sinni
skák nokkuð óvænt. Frammistaða
Jóns var þó mjög góð, meðalstig
andstæðinga hans voru mjög há,
eða 2.601 stig. Það var aðeins
Sovétmaðurinn Khalifman sem
þurfti að mæta öflugri andstæðing-
um en Jón.
U&’rmum SÓLSTOFUR
Sól og gróöur allt áriö í
EINANGRUÐUM ELITE-SÓLSTOFUM
Framleiddar í stæröum: 9,1-15,4 og 24,3 ferm.
Möguleikar á öörum stæröum samkv. sérpöntun.
Auðveldar í uppsetningu - Hagstætt verð.
HAFIÐ SAMBAND EF ÞIÐ ÓSKIÐ EFTIR
NÁNARI UPPLÝSINGUM
SINDRa/qiSTÁLHF
Pósthólf 880, Borgartúni 31, 105 Reykjavík, sími: 627222