Morgunblaðið - 17.06.1990, Síða 20

Morgunblaðið - 17.06.1990, Síða 20
20 C MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 1990 FRANSKARENDUR- GERÐIR í HOLLYWOOD Frakkar eiga meira i bandarískri kvikmyndagerð en margan grunar. Myndir eins og „Three Fugitives" með Martin Short og Nick Nolte, „Cousins" með Ted Dan- son, „The Man with One Red Shoe“ með Tom Hanks og „Breathless" með Richard Gere urðu allar fyrst til i Frakklandi áður en Hollywood flutti þær vestur um haf og gerði að sínum. Sú, sem þekkir best til þessara mála, er franski kvenleikstjórinn Coline 1 Serreau. Hollywood hefur sérstakt dálæti á að endur- gera myndir hennar. Þrír menn og karfa varð að Þrír menn og bam með þremur Hollywoodstjörnum og nú stefnir önnur mynd hennar, Mamma, það er maður í rúm- inu þínu, á ameríska endur- gerð með Richard Dreyfuss í aðalhlutverki. Hvemig skyldi standa á Colin Serreau; tækifæri til að bæta myndirnar. því að það sem er svo töfr- andi og létt leikandi í frönsk- um myndum verður svo þyngslalegt í Hollywood? „Við skrifum á annan hátt í Frakklandi," segir hún. „Flestir leikstjórar eru líka handritshöfundar og búa við algert fijálsræði. Þeir skrifa sögur sem þeim finnst góðar. Hér í Hollywood gera menn ■ sögur sem þeir vona að þeir græði á.“ En af hveiju vill Serreau að myndir hennar verði líka til í amerískri útg- áfu? „Bandaríkjamarkaður er gersamlega lokaður er- lendum myndum. Ef þú gerir metsölumynd heimafyrir sjá hana örfá prósent þegar hún er sýnd vestra." Það er líka önnur ástæða: „Mér líkar að endurvinna hlutina," segir Serrau. „Þannig fær maður tækifæri til að bæta þá.“ Kóngulóarfælni í Kalíforníu Hvað skyldi koma út úr því þegar tvö helstu fyr- irtækin í Hollywood í gerð ævintýramynda, Amblin Entertainment Steven Spiel- bergs og Disney-fyrirtækið, leiða saman hesta sína í ævintýrahrelli? Hvemig líst ykkur á Kóngulóarfælni? Það er heitið á enn einni sumarmyndinni vestra en hún fjallar um það þegar gríðarlegur fjöldi af mannýg- um kóngulóm ræðst á kyrrl- átan smábæ í Kalífomíu, bæjarbúum til skefjalausrar hrellingar. Kóngulóarfælni mun ekki vera alræmd B-mynd ef marka má leikstjóra hennar, Frank Marshall (framleið- anda Spielbergmyndanna), sem vill frekar líkja myndinni sinni við Fuglana eftir Hitch- cock en eitthvað eins og Arás mannætutómatanna. Með aðalhíutverkin fara Jeff Daniels og tvær tegund- ir kóngulóa en önnur þeirra er fuglaæta! af ætt tarantul- unnar og var flutt inn frá Amazon-svæðinu í Brasilíu (hún var í alvöru fengin í gegnum fyrirtæki sem heitir Skordýraleigan í Los Ange- les). Frank Marshall hefur ekki leikstýrt áður en hann stjórn- aði þeim deildum Indiana Jones-myndanna er sáu um að útvega þúsundir leikara í snáka- og rottuatriðin. En hvernig var að vinna með litlu kvikindunum? „Það tek- ur á taugarnar," segir Dani- els. „Kóngulærnar ganga fyrir í öllu. Það er náð í þær fyrst á morgnana, þær eru fyrstar í förðunina, þær fara fyrstar í mat og þær fá stærsta húsvagninn." Það væsir ekki um stjöm- umar í Hollywood. Jeff Daniels berst við einn af samleikurum sínum í myndinni Kóngulóarfælni. JESUSI NÚTÍMAIMUM KANADÍSKILEIKSTJÓRINN Denys Arcand, sem gerði hina ágætu Hnignun og fall bandaríska heims- veldisins, hefur sent frá sér nýja, mikið lofaða mynd er hann nefnir Jesús frá Montreal. Hún er n.k. nútímafrá- sögn af Jesú og segir í alvörublöndnu gamni frá leikara að nafni Daniel sem fenginn er til að fara með hlutverk Frelsarans í upp: færslu á nýju leikriti. í framhaldi af því safnar Daniel um sig hópi leikara sem taka að sér að bæði leika og vera lærisveinar hans (einn finnur hann sem er að lesa inná klámmynd, annar leikur í auglýsingum) en þeir lifa sig mjög sterkt inm' söguna um Krist og finna nýjar merkingar í kenningum hans. „Lífið er ekki erfitt," segir Daniel í leikriti myndarinnar, „ef þú hættir að hugsa sífellt um sjálfan þig.“ „Þetta er mynd um leitina að einhveiju öðru en efnis- legum gæðum,“ segir Den- ys, „einhverri merkingu. Það getur ekki verið að til- veran snúist um það eitt að koma sér upp BMW og góðri íbúð. Það hlýtur að vera eitt- hvað meira við lífið.“ Loks endar myndin á krossfestingu Daniels/Jesú Leikstjórinn, Denys Arcand. en í stað upprisunnar er hann handtekinn af lögregl- unni fyrir að taka hlutverk sitt of alvarlega og bijóta allt og bramla í einhveiju auglýsingamusterinu. Arcand, sem heldur jafn- mikið uppá Woody Allen og Ingmar Bergman, vill að myndir sínar gefi fólki eitt- hvað til að hugsa um. „Bíó- mynd getur ekki breytt lífi þínu, en hún getur verið einn dropi i mælinn.“ ■ PYTHONMAÐURINN Terry Gilliam sem gert hef- ur myndir eins og Tímaþjóf- arnir og „Brazil" er byijaður á nýrri mynd í New York sem heitir „The Fisher King“ og er um leitina að hinum heilaga kaleik í stórborginni. Ekki taka þetta of alvarlega: Leikarar er Robin Williams og Jeff Bridges. Gott par það. ■ PRINCE he/nrgert nýja mynd. Hún heitir „Graffiti Bridge" en Prince er hand- ritshöfundur, leikari, aðal- stjama og dansari myndar- innar og hefur skrifað eitt- hvað 18 ný lög fyrir hana. ■ BRÆÐUJtNIR Charlie Sheen og Emilio Estevez, synir Martin Sheen, leika saman í nýrri mynd sem heit- ir „Men at Work“. Þeir eru öskukallar sem finna lík í mslinu og fela það á meðan þeir leysa málið. ■ EKKERT fréttist af framhaldsmynd „Chin- atown“, „The Two Jakes“, sem Jack Nicholson hefur leikstýrt. Frumsýningin hef- ur frestast nokkrum sinnum á meðan leikstjórinn hefur verið að fínpússa myndina. Hún átti að koma um jólin síðustu, síðan í mars og núna er beðið eftir henni í sumar. ■ LEIKSTJÓRINN Mike Nichols („Working Girl“) leikstýrir Harrison Ford í nýrri mynd sem tökur hefjast á vestra í sumar. Hun heitir „Regarding Henry“ og seg- ir frá hatursfullum uppa sem fær skot í höfuðið og verður allur annar og betri maður á eftir. ■ EDDIE Murphy ætlar jafnvel að leika í kúreka- mynd næst. Leikstjóri yrði Walter Hill, sem hefur ný- lokið við Murphy-myndina „Another 48HRS“, en ef af verður mun stjaman leika amerískan lögreglumann sem lætur til sín taka í mex- íkönsku byltingunni. í BÍÓ Það er rólegt yfir bíóun- um þessar vikumar enda vorið og fyrri partur sumars yfirleitt frekar daufur tími, millibilsástand frá þvi óskarsmyndirnar spila út og til þess er sum- armyndirnar að vestan sigla yfir hafíð. Það má þó alltaf finna eitthvað við sitt hæfi í bíó: Stálblóm skartar mörgum frægum nöfnum í trag- íkómískri vasaklútasögu; Siðanefnd lögreglunnar er hörkugóður þriller; Utan- garðsunglingar kemur ör- ugglega mörgum á óvart. Og ef enginn nennir í bíó í sumarfríinu má alltaf lesa bækur sem væntanleg- ar eru á hvíta tjaldið. Eymd og Uns sekt er sönnuð er t.d. ágætis byijun. KVIKMYNDIR /Hvem berad varast í bíómyndunumf UPPINNER FULL- KOMIÐILLMENNI SPURNING hvort hið glæsilega par Roy rolla og Trig- ger dolla, sem alltaf gátu séð út bófana (og bófahest- ana) í gamla daga af því þeir voru ekki eins smartir til fara, gætu þekkt varmennin frá góðmennunum í hinum nýju og rennilegu þrillerum dagsins. Bíómynd- irnar hafa getið af sér nýja tegund illmenna á undanf- örnum árum, sem hæfa vel tíðarandanum. Ekki treysta neinum með Rolex-gullúr. Það er Uppinn í myndinni og hann er morðinginn. Við höfum dæmi um einn slíkan í myndinni Siða- nefnd lögreglunnar í Há- skólabíói en í henni leikur Richard Gere af stakri ill- girni ger- spilltan lögreglu- mann sem hefur þann ávana að íifa langt umfram efni og fjármagn- eftir Arnafd Indriðason ar það með glæpum. Hann er dæmigerður uppakrimmi bíómyndanna, afslappaður, sjálfsöruggur og glæsilegur til fara. Hann dýrkar lífsþægindi og dýran munað og hefur gaman af áhættu en hefur þann galla að vera gersamlega siðlaus. Þegar Gere leggst á heiðarlegu lögguna Andy Garcia í „Siðanefndinni" og er með hótanir hefur hann fyrst og fremst gaman af því, svalur og öruggur um að hann sé yfír bráðina hafinn. Og það er eins og myndin geri ráð fyrir að maður sé fyrirfram innstilltur á uppakrimmann því hún hefur ekki fyrir því að skýra út persónuna að neinu leyti. Uppakrimminn getur líka verið kona (Glenn Close í Hættulegum kynnum) en hann er miklu algengari sem karlmaður. Ahorfendur ættu að vera farnir að búast við hinu versta þegar þeir sjá persónur sem bera vel- gengnina utan á sér í mynd- um allt frá „Crimes and Misdemeanors" Woody Al- lens til „The Handmaid’s Tale“ og „Blue Steel", sem vonandi eru væntanlegar hingað, og ekki síst „Bad Influence", sem bráðum verður sýnd í Regnbogan- um, en í henni þykir uppa- Rob Lowe í „Bad Influence"; uppakrimminn uppmálaður. krimminn koma hvað skýr- ast fram. Curtis Hanson er leik- stjóri en James Spader (Kynlíf, lygar og myndbönd) leikur Michael í myndinni, mann á uppleið í mjög stressandi starfi sem býr með fallegri konu í tísku- legri íbúð fullri af nýjustu græjum. Allt virðist í sjö- unda uppahimni þar til ann- ar sömu tegundar en mun illskeyttari birtist (leikinn af Rob Lowe), sem þegar fer að vinna að því að eyði- leggja veröld Michaels hreinlega af því hann hefur svo gaman af því. Hann hefur enga ástæðu og engan tilgang annan en að skemmta sér svolítið og brátt hafa samskipti þeirra leitt til morðs. Hræddur um að Roy og Trigger, dæmigerðir uppar úr vestrinu, ættu erfitt upp- dráttar í þessum nútíma- myndum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.