Morgunblaðið - 23.06.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.06.1990, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B/LESBOK 140. tbl. 78. árg.___________________________________LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1990_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Í1W tu« jmftfii h m'.... Nýtillaga Sovétstjórnarinnar: Herstyrkur Þjóðveija verði takmarkaður Efiiahagssamruni þýsku ríkjanna staðfestur Austur-Berlín, Bonn. Reuter. EDÚARD Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, lagði í gær fram tillögu þess efnis að herafli bandamanna í Þýskalandi yrði kallað- ur heim í áföngum og að settar yrðu skorður við herstyrk Þjóðverja eftir að þýsku ríkin tvö hefðu sameinast. Tillögu þessa kynnti Shev- ardnadze á fundi með utanríkisráðherrum Bretlands, Bandaríkjanna, Frakklands og þýsku ríkjanna tveggja í Austur-Berlín. Embættismenn frá Bretlandi, Bandaríkjunum og Vestur-Þýskalandi sögðu að hugmynd ráðherrans hefði snimmhendis verið hafhað. Efri deild sambandsþings- ins í Bonn hefur lagt blessun sína yfir efiiahagssamruna þýsku ríkjanna Shevardnadze lagði til að helming- ur herliðs bandamanna í Þýskalandi yrði kallaður heim á þremur árum eftir að þýsku ríkin hefðu sameinast en flest bendir til, að það verði á þessu ári. Síðar yrði heraflinn allur, eða því sem næst, fluttur á brott. Þá kvað ráðherrann Sovétstjórnina vilja að sett yrði „þak“ á leyfilegan herstyrk hins nýja Þýskalands þann- ig að Þjóðveijar gætu ekki háð árás- arstríð. Loks yrði kveðið á um það í samningum að ekki mætti geyma kjarnorku- eða efnavopn á þýsku landsvæði. Fyrr um daginn hafði Shevardnadze lagt til á fundi með hinum bandaríska starfsbróður sínum, James Baker, að herafli bandamanna í Berlín og nágrenni yrði fluttur á brott á sex mánuðum eftir sameiningu Þýskalands. Heimildarmenn Reuters-frétta- stofunnar sögðu hina ráðherrana Kanada: Klofningur yfirvofandi Winnipeg. Reuter. ANDSTAÐA þingmanns í Man- itoba, indjánahöfðingjans Elijahs Harpers, varð til þess í gær að ekki var hægt að ganga frá Meech Lake-samningnum svo- kallaða og afstýra klofiiingi ríkjasambandsins. Þing allra fylkjanna tíu þurfa að leggja blessun sína yfir samninginn til að hægt verði að undirrita hann fyrir miðnætti í nótt. Harper not- færði sér rétt til að heyra álit kjós- enda á samningnum og því var ekki hægt að ganga til atkvæða um hann í gær. í gærkvöld bað ríkisstjórnin hæstarétt að fram- lengja frestinn. I samningnum er kveðið á um menningarlega sérstöðu Quebec- fylkis, en meirihluti íbúa þess er frönskumælandi. hafa fundið tillögunni flest til for- áttu. Þeir hefðu verið sammála um að ótækt væri að takmarka sjálfs- ákvörðunarrétt Þjóðveija með þess- um hætti og sagt að semja bæri um fækkun liðsafla í Evrópu í viðræðun- um í Vínarborg um niðurskurð hefð- bundins herafla. Þá var bent á að krafa Sovétmanna um bann við kjarnorkuvopnum á þýsku landi væri til þess fallin að þröngva Bandaríkja- mönnum til að fjarlægja gereyðing- arvopn sín í Vestur-Þýskalandi. Sambandsráðið, efri deild vestur- þýska þingsins, samþykkti í gær samning þann sem stjórnvöld í þýsku ríkjunum hafa gert með sér um sam- runa efnahagslífsins. Jafnaðarmenn höfðu hótað að koma í veg fyrir stað- festinguna en svo fór að fulltrúar níu af 11 sambandsríkjum sam- þykktu hann. Fulltrúar Saarlands, heimalands Oscars Lafontaine kansl- araefnis jafnaðarmanna, og Neðra- Saxlands greiddu atkvæði gegn sátt- málanum. Jafnframt staðfesti þingið yfirlýsingu stjórnvalda þess efnis að Þjóðveijar viðurkenndu vesturlanda- mæri Póllands. Efnahagssamruni þýsku ríkjanna verður því að veru- leika fyrsta næsta mánaðar þar sem þingið í Austur-Þýskalandi staðfesti sáttmálann á fimmtudag. AUJEO CHECKTOINT CHARUE ’síítWiSt Reuter Checkpoint Charlie komin á sögusafh Checkpoint Charlie, frægasta landamærastöð í heimi, hvarf inn á söguspjöldin í gær, en þá var henni lyft af grunni, sett á bíl og ekið á safn. Hef- ur hún staðið á mörkum Vestur- og Austur-Berlínar síðan 1961 þegar kommúnistastjórnin reisti múrinn alræmda og alla tíð síðan verið táknræn fyrir vonina um sameinaða Berlín og fólk, sem er fijálst ferða sinna. Utanríkisráðherrar Fjói-veldanna, Banda- ríkjanna, Bretlands, Frakklands og Sovétríkjanna, og þýsku ríkjanna voru viðstaddir þegar Checkpoint Charlie kvaddi og einng borgarstjórar Vestur- og Austur-Berlínar. Jarðskjálftarnir í Iran: Gífiirlegl áfall fyrir þjóðina og efnahagslífíð í landinu Teheran, Genf, Nikósíu. Reuter. ÍRANSKA utanríkisráðuneytið tilkynnti í gær, að 35.000 manns að minnsta kosti hefðu týnt lífi í jarðskjálftunum í fyrradag en tal- an hækkar stöðugt eftir því sem björgunarmenn komast til fleiri þorpa og bæja. Þá er áætlað, að á annað liundrað þúsund manns hafi slasast og um 400.000 eru heimilislaus. Bandarílyastjórn og Rússneski kommúnistaflokkurinn: Harðlínumenn ráða ferðinni Moskvu. dpa, Reuter. Harðlínumaðurinn ívan Polozhkov fékk flest atkvæði í gær þegar gengið var til kosninga um væntanlegan formann kommúnistaflokksins í Rússlandi. Næstur honum kom hægfara umbótasinni, Oleg Lobov, og átti að kjósa á milli þeirra í gærkvöld en skýra ekki frá niðurstöðunni fyrr en í dag. Polozhkov fékk 1.017 atkvæði í fyrstu umferð og Lobov 846 og fjór- ir aðrir frambjóðendur verulega minna fylgi. Að einum undanskildum eru þeir úr harðlínuárminum og því þykir fullvíst, að Polozhkov verði kjörinn formaður kömmúnistaflokks- ins í Rússlandi. Hann er 55 ára gam- all, flokksformaður í Krasnodar og beið ósigur fyrir Borís Jeltsín í kosn- ingunum um forseta Sovétlýðveldis- ins Rússlands í síðasta mánuði. Lobov er varaformaður kommúnista- flokksins í Armeniu þar sem hann hefur getið sér gott orð. Fulltrúafundur rússneskra komm- únista hefur staðið í fjóra daga og einkennst af hörðum árásum á um- bótastefnu Míkhaíls Gorbatsjovs, for- seta Sovétríkjanna. Hafa margir hvatt hann til að segja af sér sem formaður sovéska kommúnista- flokksins og þar á meðal harðlínu- maðurinn Jegor Lígatsjov, sem sagði í viðtali við sovéskt dagblað í gær, að hann væri viss um, að sósíalism- inn kæmist aftur á í Austur-Evrópu. flestar ríkissljórnir á Vesturlönd- um hafa boðið írönum aðstoð sína og ætla þeir að þiggja hana að nokkru leyti, taka við lyQum og hjálpargögnum en vilja ekki hleypa neinum útlendingum inn í landið. íranskir björgunarmenn vinna að því hörðum höndum að grafa fólk úr húsarústunum í þeim bæjum, sem þeir hafa komist til, en vegna tækj- askorts verða þeir víða að nota hend- urnar einar við verkið. Iranska sjón- varpið sýndi í gær myndir frá Gilan- og Zanjan-héraði, sem urðu harðast úti í jarðskjálftunum í fyrradag, og sást á þeim, að í mörgum bæjum var ekkert hús uppistandandi. Er óttast, að manntjónið sé miklu meira en þegar er fram komið og kunni allt að 100.000 manns hafa farist. Bandaríkjamenn, Bretar, Frakk- ar, Vestur-Þjóðveijar og ríkisstjórnir víða um heim hafa boðið írönum fjárstuðning og hjálpargögn og Al- þjóða Rauði krossinn hefur beðið aðildarfélögin að beita sér í hjáipar- starfinu. Ekki var fyrirfram vitað hvernig klerkastjórnin, sem fjand- skapast við Vesturlönd, tæki boðinu en Rafsanjani, forseti írans, sagði eftir að hafa farið um jarðskjálfta- svæðin, að skelfingin væri svo ólýs- anleg, að alþjóðleg hjálp væri nauð- synleg. Ætla íranir að þiggja hjúkr- unargögn, vinnuvélar og tjöld en taka fram, að læknar, tæknimenn og aðrir útlendingar séu óvelkomnir til landsins. Á jarðskjálftasvæðunum í Gilan- og Zanjan-héraði búa um fjórar milljónir manna og er þessi lands- hluti eitt helsta landbúnaðarsvæðið í landinu. Nú er akurlendið víða horfið og áveitukerfið í molum og því óttast erlendir sérfræðingar, að auk manntjónsins muni náttúruham- farirnar hafa alvarlegar afleiðingar fyrir íranskt efnahagslíf. íranir flytja inn matvæli fyrir 20% gjaldeyris- teknanna og viðbúið, að þau útgjöld muni nú vaxa verulega auk kostnað- arins við uppbygginguna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.