Morgunblaðið - 23.06.1990, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1990
Um tónleika Bobs Dylans
Nokkrar útskýringar
eftir Egil Helgason
Einhver órói virðist hafa gripið
um sig í bænum, skilst manni vegna
þess að Listahátíð hafi á sínum
snærum ótölulegan fjölda „forrétt-
indaborgara", sem fái boðsmiða í
bestu sæti á tónleika Bobs Dylans,
eða hafi notið sérstakrar fyrir-
greiðslu um að panta miða, þótt
IStuglýst hafí verið að engar pantan-
ir yrðu teknar áður en miðasala á
tónleikana hæfist.
Almenningur megi svo sitja ein-
hvers staðar baka til eða uppi í
rjáfri.
Málsatvik eru þessi:
Strax og spurðist út að Bob
Dylan væri ef til vill væntanlegur
til íslands varð geðshræring víða
um bæinn. Flestir virtust telja
fullvíst að hver og einn miði á tón-
leikana myndi seljast upp nánast
samstundis. Símalínur voru gló-
andi, bæði í miðasölu og skrifstofu
Listahátíðar. Sumir gamlir aðdá-
endur meistarans (flestir allar götur
frá 1962) virtust telja það sjálfsagt
*%iál að þeir hefðu forgang að mið-
anum umfram hina yngri aðdáend-
ur. Að endingu var brugðið á það
ráð að láta þau boð út ganga að
ekki yrði tekið við neinum pöntun-
um — einfaldlega til að tryggja
vinnufrið á skrifstofunni.
Þegar nær dró því að miðasalan
opnaði var ástandið orðið slíkt að
við starfsmenn Listahátíðar urðum
að taka heimasíma úr sambandi á
kvöldin og yfir nóttina — til að
tryggja svefnfrið fyrir fólki sem
'%etlaði að „redda“ sér miðum gegn-
um klíku.
Á skrifstofunni höfðu menn varla
tíma til að undirbúa komu Dylans,
sem er ærið verk — svo voru aðdá-
endurnir áfjáðir. Það var með höpp-
um og glöppum að maður treysti
sér til að taka upp símtólið. En það
voru ekki skráðar neinar pantanir.
Vegna orðróms sem gengur um
bæinn verður þó að geta nokkurra
undantekninga: Samkvæmt samn-
ingi fékk East West Touring Comp-
any, fyrirtæki Bob Dylans, 50 miða
á besta stað í húsinu. Mun það
vera venja þegar slíkir tónleikar
eiga í hlut. Það verður svo að koma
ljós að hve miklu leyti fyrirtækið
nýtir þessa miða.
Þegar svo miklir fjármunir eru í
húfi er ekki beinlínis gaman fyrir
starfsmenn Listahátíðar að útdeila
boðsmiðum, enda var ákveðið að
halda þeim í algjöru lágmarki. Fyr-
ir okkur sem störfum við Listahátíð
er það auðvitað viss umbun erfiðis
að sjá þúsundkalla streyma inn, en
ekki út. Þó er erfitt að komast hjá
því að fáeinir aðilar sitji fyrir um
miða: Fyrst og fremst eðlilega hóp-
ur fólks sem hefur lagt á sig
ómælda vinnu við tónleikana og
þiggur í mörgum tilvikum ekki önn-
ur laun fyrir en boðsmiða. Án þessa
fólks hefðu tónleikarnir líkast til
aldrei verið haldnir. I öðru lagi fá-
einir fulltrúar ríkis og borgar, sem
eru bakhjarlar Listahátíðar og fjár-
magna hana. í þriðja lagi, stjórn
Listahátíðar og starfsmenn hennar.
Undirrituðum, sem er einn starfs-
manna, er reyndar hjartanlega
sama um hvar hann situr í húsinu.
Allt í allt eru þetta um 50 mið-
ar, 100 þegar miðar East West
Touring Company eru meðtaldir.
Listahátíð stendur í þakkarskuld
við fjölmargt annað fólk sem hefur
unnið hátíðinni margvíslegt gagn á
ýmsum vígstöðvum. Auðvitað hefði
komið vel til greina að bjóða sumu
þessu fólki á tónleikana. Hins vegar
var ákveðið að gera það ekki. I ein-
staka tilfelli fengu þessir hálfgild-
ings starfsmenn þó að taka frá
miða á tónleikana margumtöluðu,
miða sem voru greiddir að fullu.
Þar 30 miðar, um það bil.
Á margumtalað „grátt svæði“ í
eftir Jódísi Konráðs-
dóttur ogAsmund
Magnússon
Er eigin naflaskoðun leið til
heilsu og hamingju? Eftir að hafa
fylgst með fréttum og áhuga fjöl-
miðla á heimsókn jógans Amrit
Desai, mætti ætla að svo væri.
En því fer víðs fjarri! Ekki þarf
annað en að líta á ástandið í Indl-
andi, heimalandi viðkomandi til
að sjá að þar hefur jóga og hindú-
ismi ekki náð þeim árangri sem
auglýstur hefur verið í fjölmiðlum.
Við íslendingar þurfum ekki á
þessu að halda til að fylla það
húsinu voru seldir við opnun miða-
sölu 100 miðar af 200. Þeir hurfu
eins og dögg fyrir sólu — og ein-
mitt það virðist hafa valdið ein-
hverri gremju.
Annars er allt tal um „gráa svæð-
ið“ heldur tvírætt. Eftir að hafa
rölt um salarkynni Laugardalshall-
ar hefur undirritaður komist að því
að hér eru tæplega bestu sætin í
húsinu. Alls ekki. Að kröfu Dylans
er sviðið óvenju hátt og gnæfir
þarna yfír sætin; aukinheldur hefur
hann það víst fyrir vana sinn á tón-
leikum að standa aftarlega á svið-
inu, og því má vel vera að þeir sem
fremst sitja sjái ekki nema rétt
grilla í ennistoppinn á meistaranum.
Fyrir nú utan hvað hljóðgæðin eru
miklu beffTaftar í salnum.
Þetta er allt sukkið með miðana
— ekki einu sinni fjölmiðlar fá
ókeypis inn, sem þó er oftast venjan.
Ánnað mál, þessu ekki alveg
óskylt. Miðaverð. Ávæning hefur
maður haft af því að Listahátíð
ætli að stórgræða á tónleikum Bobs
Dylans, í því skyni að rétta við
hallan á öðrum atriðum. Þetta er
fjarri lagi.
Ég ætla ekki að rekja kostnaðinn
lið fyrir lið, en hann er óheyrilegur.
Þó er rétt að nefna nokkur atriði:
Þóknunin til listamannsins er rífleg,
til dæmis mun hærri en Leonard
Cohen fékk í sinn hlut fyrir tveimur
árum. Kostnaðurinn við að flytja
hljóðfæri og tækjabúnað frá New
York til Reykjavíkur og síðan til
tómarúm hjartans sem Sigurður
G. Pálmason sagði frá á Stöð 2,
sl. þriðjudagskvöld. Hjálpin kemur
ekki innan frá okkur sjálfum, hún
kemur utan að.
Allir menn á jörðinni eru skap-
aðir til að eiga samfélag við hinn
lifandi Guð, skapara sinn og þetta
tómarúm er til staðar innra með
öllum mönnum þar til þeir hafa
tek’ið við Jesú Kristi sem persónu-
legum frelsara sínum. Jesús sagði
sjálfur í Jóhannesarguðspjalli 14.6
„Ég er vegurinn, sannleikurinn og
lífið. Enginn kemur til föðurins
nema fyrir mig.“ Hvorki jóga né
önnur austræn trúarbrögð mæta
þörfum okkar íslendinga, heldur
það að taka við fagnaðarerindinu
„Þegar svo miklir Qár-
munir eru í húfí er ekki
beinlínis gaman fyrir
starfsmenn Listahá-
tíðar að útdeila boðs-
miðum, enda var ákveð-
ið að halda þeim í al-
gjöru lágmarki. Fyrir
okkur sem störfum við
Listahátíð er það auð-
vitað viss umbun erfiðis
að sjá þúsundkalla
streyma inn, en ekki
út.“
Kaupmannahafnar flugleiðis vegur
þungt. Að auki flugmiðar þessa
sömu leið, og ennfremur uppihald,
hótel og ferðir hér innanlands. Ekki
hefur áður verið sett upp fullkomn-
ara hljóð- og ljósakerfi fyrir tónleika
hér á Fróni; það kostar sitt, enda
er hluti af þessum búnaði í leigu
erlendis frá. Svið hefur verið byggt
í Laugardalshöll, stærra en nokkurn
tíma fyrr eða síðar. Almenn örygg-
isgæsla verður umfangsmeira en
áður eru dæmi til. Launakostnaður
— hér leggja hátt á hundrað starfs-
manna hönd á plóg. Og það mætti
tína til ýmislegt fleira.
Ásmundur Magnússon
um Jesú Krist! Ekki eigin nafla-
skoðun, heldur það að lyfta höfði
til himins. Hjálpin er ekki innra
með þér, fyrr en þú hefur tekið
við Jesú Kristi, boðið honum að
búa innra með þér. Megi okkur
lánast það, landi og þjóð til bless-
Þar við bætist að ekki er hægt
að selja nema um 2.800 miða á
tónleikana, enda er það krafa um-
boðsmann Dylans að allir skuli sitja
á tónleikunum og hafa gott útsýni
á sviðið. Til gaman má geta þess
að á blómatímanum góða stóðu um
sex þúsund manns upp á endann á
tónleikum Led Zeppelin, sællar
minningar.
Hér er sem sagt ekki stefnt í
neinn stórgróða, en vonandi heldur
ekki tap.
Undirbúningstími tónleika Bobs
Dylans er óvenju skammur, enda
eru ekki nema fáeinar vikur síðan
ljóst var að yrði af komu meistar-
ans. Síðustu tvær vikurnar hefur
starfsfólk Listahátíðar verið að inna
af hendi störf, sem undir eðlilegum
kringumstæðum hefðu átt að vera
fullkomlega frágengin fyrir mörg-
um mánuðum síðan. Á sama tíma
þurfti að sjá til þess að umfangs-
mikil Listahátíð gengi snurðulaust
fyrir sig. Árangurinn er sá að Bob
Dylan og hljómsveit hans eru á leið-
inni til Islands eftir tafsamt samn-
ingaþóf.
Við viljum helst ekki verða uppvís
að neinum sjálfbirgingshætti,
starfsmenn og stjórn Listahátíðar,
en samt teljum við að við höfum
unnið að þessumt tónleikum eftir
bestu vitund og af fullum heilindum.
Með ósk um góða skemmtun á
tónleikunum á miðvikudagskvöld
og von um að allir verði á eitt sátt-
ir þegar hann stígur fram á sviðið,
maðurinn sem breytti heiminum,
Dylan...
Höfundur er blaðafulltrúi
Listahátíðar.
Jódís Konráðsdóttir
unar að leita ekki langt yfir
skammt!
Jódís Konráðsdóttir er
hjúkrunarfræðingur og
Asmundur Magnússon læknir og
forstöðumaður Orðs Lífsins í
Reykjavik.
Eigin naflaskoðun,
heilsa og hamingja?
Vélagslíf
□ EDDA 59902466 - 1 Hvf
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3S 11798 19533
Sunnudagur 24. júní
1. kl. 8.00 Þórsmörk, dagsferð
og til sumardvalar. Verð kr.
2.000,- í dagsferðina (hálft gjald
fyrir 7-15 ára). Kynnist Þórs-
mörkinni í sumarskrúða. Fjöl-
skyldutiiboð á sumardvöl. Mið-
vikudagsferð 27. júni. Tilvalið
að dvelja í góðu yfirlæti í Skag-
fjörösskála í Langadal á milli
ferða.
2. kl. 13.00 Verferð 3: Selatang-
ar.
Á Selatöngum eru merkar minjar
um útræði fyrri tíma. Lok vor-
vertíðar samkvæmt fornu tíma-
tali. Fiskabyrgi, verbúðarminjar,
refagildrur, sérstæðar kletta-
borgir, Nótahellirinn o.fl. merki-
legt skoðað. Tilvalin fjölskyldu-
ferð. Fararstj. Höskuldur Jóns-
son. Verð 1.000,- kr., frítt f. 15
ára og yngri í fylgd foreldra
sinna. Brottför í ferðirnar frá
Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin. Allir velkomnir!
Ferðist innanlands með Ferða-
félaginu í sumar.
Sumarleyfisferðir verða aug-
lýstar i félagslífinu á morgun
sunnudag. Gerist félagar I F.í.
Árgjaldið er 2.500,- kr. og Árbók-
in, sem kemur út um helgina,
er innifalin. Árbókin fjallar um
svæði vestan Eyjafjarðar.
Ferðafélag íslands,
félag fyrir þig.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Fagnaðarsamkoma ,í kvöld kl.
20.30. Lior llan og Birgitte Ya-
vari frá (srael tala og syngja.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar fram-
undan:
Sunnudagur
Safnaðarsamkoma kl. 11.00.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
Stjórnarskipti. Barnagæsla. Að
samkomu lokinni verður safnað-
armeðlimum boðið til samveru í
neðri sal kirkjunnar.
Sunnudagskvöld.
Almenn samkoma kl. 20.00.
Ræðumaður Guðni Einarsson.
Skírn. Ljósbrot syngur. Barna-
gæsla. Allir hjartanega velkomn-
ir.
Miðvikudagur
Biblíulestur kl. 20.30. Ræðu-
maður Hafliði Kristinsson.
Föstudagur
Æskulýðssamkoma kl. 20.30.
Laugardagur
Bænasamkoma kl. 20.30.
FERÐAFÉLAG
© ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Laugard. 23. júní kl. 20:
Jónsmessunæturganga
Ferðafélagsins
Sog-Djúpavatn-Ketilsstígur.
Fjölbreyttganga í Reykjanesfólk-
vangi. Stöðuvötn, gigar, litrík
hverasvæði, o.fl. Þægileg
ganga. Komið til baka upp úr
miðnætti. Verð 1.000,- kr. Brott-
för frá BSÍ, austanmegin. Allir
velkomnir.
Ferðist innanlands með Ferða-
félaginu í sumar. Sumarleyfis-
ferðir verða auglýstar í fé-
lagslífinu á næstunni. Gerist
félagar í F.í. Árgjaldið er 2.500,-
kr. og Árbók er innifalin.
Ferðafélag (slands.
félag fyrir þig.
H ÚTIVIST
GRÓFINN11 • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI14606
Jónsmessunæturganga
Laugard. 23. júní. Með Akra-
borg upp á Akranes. Gengið út
með ströndinni og á Akrafjall
þaðan sem fylgst verður með
sólarlagi. Rútuferð til baka eftir
miðnætti. Framhaldsganga í ná-
grenni Reykjavíkur. Brottf. kl.
18.30 frá Grófarbryggju. Verð
kr. 1.500,-
Þórsmerkurgangan 11
ferð.
Sunnudag 24. júní
Holtahreppur hinn forni: Fylgt
verður gömlu þjóðleiðinni frá
Ásahverfi yfir að ytri Rangá.
Komið við hjá Hellistjörn. Auð-
veld ganga. Staðfróðir Rangæ-
ingar verða með í för. Athugið
breyttan brottfarartíma. Farið kl.
9.30 frá Umferðarmiðstöð -
bensínsölu. Stansað við Árbæj-
arsafn.
Létt hjólreiðaferð fyrir
byrjendur
Sunnud 24. júnf. Brottför kl.
13.30 frá Árbæjarsafni. í ferðinni
verða veittar upplýsingar og
leiðbeiningar um skynsamlega
útbúnað í hjólreiðaferðum.
í Útivistarferð eru allir velkomnir!
Sjáumst.
Útivist.
Hútivist
GRÓFIHN11 • REYKJAVÍK - SÍMI/SÍMSVARI14606
Sumarleyfisferðir
Ferðist um (sland í sumarleyfinu
í góðum félagsskap.
Hornstrandir eru engu
líkar!
4.-13./6: Hornvik: Tjaldbæki-
stöð. Gönguferðir um stórbrotið
landsvæði m.a. á Hornbjarg, í
Látravík og Rekavík.
Fararstj. Gísli Hjartarson.
4.-13/6: Aðalvík - Hornvík:
Bakpokaferð. Tilvalin ferð til
þess að kynnast Hornströndum
vel. Gengið um svæði sem róm-
uð eru fyrir náttúrufegurð og
mikilfengleika. Undirbúnings-
fundur á skrifstofu Útivistar,
Grófinni 1, þriðjud. 26/6 kl. 18.
Mikilvægt að allir þátttakendur
mæti. Fararstj. Sigurður Sigurð-
arson.
Tværgóðar
bakpokaferðir
6.-10./6: Kalmanstunga
Hveravellir: Ný gönguleið um
mikilfenglegt svæði. Dagur á
Hveravöllum í lok ferðar. Far-
arstj. Reynir Sigurðsson.
8.-12./6: Landmannaiaugar -
Þórsmörk:
Hinn vinsæli Laugavegur
óbyggðanna, sem allir geta
gengið. Svefnpokagisting. Dag-
ur í Básum í lok ferðar. Fararstj.
Haukur P. Finnsson.
Pantið timanlega í sumarleyfis-
ferðir. Miðar óskast sóttir viku
fyrir brottför.
í Útivistarferð eru allir vel-
komnir.l
Sjáumst.
Útivist.
Kaupi málma!
Kaupi allar teg. málma, nema
járn, gegn staðgr. Sæki efnið og
flyt ykkur að kostnaðarlausu.
Uppl. gefur Alda í síma 667273.