Morgunblaðið - 23.06.1990, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 23.06.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1990 31 félk í fréttum Spaugstofumenn leita nú logandi ljósi að léttustu lundinni. Þarna eru þeir við fararskjóta sinn í Stykkishólmi ásamt Arna Helgasyni, fréttaritara Morgunblaðsins. F.v.: Karl Ágúst, Orn, Randver, Pálmi og Sigurður. Lengst til hægri stendur tónlistarmaðurinn Jónas Þór- ir og fremstur I flokki er Arni Helgason. HLATUR Salurínn í krampa Salurinn lá bara i krampa allan tímann, þetta var alveg meiri- háttar," sagði Jenný Steinarsdóttir í Stykkishólmi. Þar leituðu Spaug- stofumenn að léttustu lundinni í vik- unni og voru „alveg ferlega hressir" að hennar sögn. Sjálfir segjast Spaugstofumenn hamingjusamir með móttökurnar og hafa gaman af vertíðinni. Spaugstofumenn lögðu upp í leit- ina á þjóðhátíðardaginn og hafa þeg- ar komið við í Borgamesi, Ólafsvík, Stykkishólmi, Patreksfirði og Búð- ardal. Þar stigu þeir á stokk í Dala- búð og meðal áhorfenda var Halldóra Steinarsdóttir. „Þetta var alveg rosa- lega flott sýning," sagði hún, „stemmningin í salnum var æðislega góð. Mér finnst ekki hægt að taka eitt atriði út úr, þetta var hvert öðru spaugilegra." Jenný Steinarsdóttir sagði að fólk- ið í salnum hefði fengið að vera með í skemmtuninni. „Það fannst mér einmitt gott. Auðvitað urðu sumir feimnir þegar þeir heyrðu hvað liðið hló mikið, en allir höfðu gaman af.“ Örn Ámason, einn Spaugstofu- manna, sagði að leitin hefði gengið Pálmi Gestsson gefúr eigin- handaráritanir að sýningu lok- inni. stórvel, þegar væri orðið Ijóst að úrslitakeppni um léttustu lundina yrði býsna tvísýn. „Það kemur í ljós þann 10. júlí hver á léttustu lund landsins, þangað til leitum við víða, hjá ungum spaugurum, ömmum þeirra og miðaldra ættingjum. Við fáum stórfjölskyldur á skemmtanirn- ar. Ferðalagið út um land hefur kost- að mikinn undirbúning og er í raun puð. Stórskemmtilegt puð.“ TUNGUMALANAM Madonna nemur japönsku ær fregnir berast nú af popp- stjörnunni Madonnu, að er hún lagðist í rúmið fyrir nokkru til að jafna sig eftir ofreynslu, hóf hún að læra japönsku með aðstoð „ling- vafóns“. Ástæðan er sú, að milljón- ir Japana eru yfir sig hrifnir af tónlist að hætti Madonnu og sjálf er hún afar vinsæl þar um slóðir. Hún telur hins vegar að hún gæti stóraukið sölu á plötum sínum á hinum óplægða akri Japans, ef hún syngi sjálf á japönsku. Þá er sagt að hún þoli illa hina japönsku útg- áfu af sjálfri sér. Sú heitir Hiroko og þykir ekki lakari í poppinu en Madonna sjálf og jafnvel enn spengilegri og djarfari á sviði. Næst á dagskrá hjá Madonnu er að hrifsa Japansmarkaðinn af heimamanninum Hiroko. Madonna nemur nú japönsku til að selja betur þar í landi. COSPER «i T Maðurinn minn hefur misst allt traust á þér læknir, nú æfir hann sig bara á hörpu BHnMMHMWjl Olæsilegu Hobbv hjólhýsin eru nú tijsýnis Meykjavik, Ketlavík og á Akureyri, Nú geturðu skoðað þessa kostagripi hjá BSA Co. Á sömu stöðum er Camp-let Royal tjald- bflasölunni á Akureyri, Bflakringlunni í vagninn einnig til sýnis. Opið um helgina: Gísii Jónsson & Co. Keflavík og hjá umboðinu, Gísla Jónssyni & laugardag 10—18 og sunnudag 13—18. Sundaborg 11 Sími 91-686644 ■ ■A_ Hjá Hobby eru smáatridin stórmál!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.