Morgunblaðið - 23.06.1990, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 23.06.1990, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1990 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1990 21 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst IngiJónsson. BaldvinJónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Samningaviðræður EFTA og EB heflast Iupphafi vikunnar komust ut- anríkisráðherrar Evrópu- bandalagsins (EB) að niður- stöðu um umboð fyrir samn- inganefnd bandalagsins í við- ræðum við aðildarríki Fríversl- unarbandalags Evrópu (EFTA) um evrópskt efnahagssvæði (EES). Með þeirri ákvörðun var síðustu formlegu hindruninni fyrir samningaviðræðum bandalaganna rutt úr vegi og hófust þær á miðvikudag. Markmið EFTA-ríkjanna er að verða hluti af sameiginlegum markaði EB-ríkjanna og taka sem mestan þátt í efnahags- samvinnu þeirra, án þess að ganga í Evrópubandalagið. Er ætlunin að EES-samningurinn verði kominn til framkvæmda 1993 og hann tryggi sameigin- legan markað, þar sem viðskipti með vörur og þjónustu eru frjáls og óhindruð, fjármagn getur streymt hindrunarlaust milli landa og fólki verði frjálst að ferðast um og búa og starfa þar sem það vill. Með EES-samningi á einnig að afnema margvísleg- ar viðskipta- og samkeppnis- hindranir, sem nú fínnast í ein- stökum löndum og má þar nefna gjaldeyrisviðskipti, bankaþjón- ustu, tryggingar og flutninga- starfsemi til sögunnar. Á þessu stigi skal engu sleg- ið föstu um það, hvort eða hve- nær EFTA og EB komast að samkomulagi um þau atriði, sem hér hafa verið nefnd. Samningaviðræðurnar verða ekki auðveldar. í fyrsta lagi hafa EFTA-ríkin alls ekki öll gert það til fullnustu upp við sig, hvað þau eru reiðubúin til að ganga langt til samkomu- lags. í öðru lagi eru öflugir aðilar innan EB þeirrar skoðun- ar að setja eigi EFTA-löndunum þau skilyrði fyrir samningum, að þau þeirra, sem telja aðild að EB ekki útilokaða, líti fremur til hennar en samninga um EES. í þriðja lagi líta ýmsir stjórnmálamenn, svo sem ráð- herrar í Noregi, og forystumenn í atvinnulífi, á EES-samninginn sem enn einn áfangann á leið landa sinna inn í Evrópubanda- lagið. Hin almennu skilyrði, sem EB-ríkin setja til að knýja á EFTA-ríkin, felast einkum 1 kröfunni um að EFTA þróist með einum eða öðrum hætti í yfirríkjastofnun og standi þann- ig jafnfætis stjórharstofnunum Evrópubandalagsins. Mikilvæg forsenda fyrir tilveru EFTA er einmitt, að bandalagið er ekki yfirríkjastofnun, þar sem meiri- hluti aðildarlanda getur bundið hendur minnihlutans. EFTA- ríkin hafa ekki viljað sætta sig við_ að lúta slíku yfirríkjavaldi. í umboðinu sem EB-ráðherr- arnir samþykktu er lögð sérstök áhersla á, að ekki verði samið um undanþágur undan hinu al- menna samkomulagi nema um sé að ræða grundvallarhags- muni einstakra ríkja, enda gildi undanþágurnar aðeins í tak- markaðan tíma. Öll EFTA-ríkin hafa sett fram óskir um undan- þágur. Úr þeim óskum hefur alls ekki verið unnið enn þá og því síður hefur á það reynt, hvort unnt er að semja um þær milli EFTA og EB. Þegar umboðið er lesið með íslenskum augum, staldrar les- andinn sérstaklega við sjöttu grein þess, þar sem tekið er fram, að samið skuli um fisk- veiðiréttindi í stað viðskipta- ívilnana. Þessari stefnu hafa íslensk stjórnvöld jafnan mót- mælt. Á það hefur verið bent, að óeðlilegt sé að semja um aðgang erlendra skipa að tak- mörkuðum auðlindum í fisk- veiðilögsögu og fá tolla lækkaða í staðinn. ítrekuðu þeir Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra þetta sjónarmið, þegar þeir ræddu við framkvæmdastjórn EB hinn 18. apríl síðastliðinn en gáfu á hinn bóginn til kynna, að þeir væru til viðræðu um skipti á fiskveiðiréttindum á móti fiskveiðiréttindum. Ekkert er minnst á slík skipti í umboði EB-ráðherranna og ekkert ligg- ur fyrir um að pólitískur stuðn- ingur sé við slíka stefnumörkun hér. Hið eina sem er alveg víst, þegar litið er á þennan þátt málsins, er, að íslendingar eru almennt andvígir því að hleypa erlendum fiskiskipum inn í fisk- veiðilögsögu sína, enda ekki björgulegt þar um að litast. Tíminn er ekki langur sem EFTA og EB hafa til að kom- ast að niðurstöðu í þessum flóknu samningum. Sérhver þjóð þarf að huga vel að því sem hana sjálfa varðar nú þegar tekist verður á um einstök mál- efni. Hætta er á, að sjávarút- vegurinn verði einskonar horn- reka vegna þess hve hann er almennt lítill þáttur í þjóðarbú- skap þeirra sem þarna eiga hlut að máli. Fyrir þá sök er þeim mun brýnna að íslenska samn- inganefndin setji þann mála- flokk á oddinn. Er séreignarstefnan í hús- næðismálum að hrynja? eftir Þorstein Pálsson Fyrir nokkrum dögum skrifaði húsnæðismálastjórn ríkisstjóm og þingflokkum bréf þar sem gerð var grein fyrir fyrirsjáanlegu fjárhags- legu hruni Byggingasjóðs ríkisins. Undir þetta bréf rita bæði formaður húsnæðismálastjórnar og fram- kvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar. Mál þetta ber fremur óvanalega að. Um þessar mundir er verið að vinna að fjárlögum og lánsfjárlög- um fyrir næsta ár. Ríkisstofnanir senda fjárhagsáætlanir sínar til endanlegrar ákvörðunar ríkisstjóm- ar. Trúnaðarmenn ráðherra senda neyðarkall Nú bregður hins vegar svo við að formaður húsnæðismálastjómar og framkvæmdastjóri Húsnæðis- stofnunar skrifa sameiginlega undir bréf til ríkissstjómarinnar og allra þingflokka. Venjan er sú að stjóm- arandstöðuflokkar á Alþingi fá hvorki að sjá né heyra fjárlagatil- lögur næsta árs fyrr en fjármála- ráðherra leggur fjáríagafrumvarp fram í byijun haustþings hveiju sinni. En húsnæðismálastjóm og fram- kvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar hafa litið svo á að húsnæðislána- kerfið væri komið í slíkar ógöngur að nauðsynlegt væri að upplýsa bæði þingflokka ríkisstjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar þar um. Ég minnist ekki annarra dæma um, að forstöðumenn ríkisstofnana hafa talið mái þeirra komin I slíka hættu, að opinber aðvörun af þessu tagi væri gefin til Alþingis á undirbún- ingsstigi ijáríagagerðar. Ég hef áður vakið athygli á því í nokkmm laugardagsgreinum að núverandi ríkisstjórn hefur haft mjög ríka tilhneigingu til þess að koma vandamálum og viðfangsefn- um fyrir í uppistöðulónum. Með því móti skýtur hún úrlausn þeirra á frest og væntir þess að aðrir takist á við raunveralegan vanda. Hús- næðisvandamálin era gott dæmi um það hvernig ríkisstjórnin hefur hlaupist frá verkefnum sínum og vikið sér undan ábyrgð. Árangur Alþýðuflokksins Staða þessara mála er einkar athyglisverð með hliðsjón, af stór- yrtum yfirlýsingum Alþýðuflokks- ins í húsnæðismálum á undanförn- um áram. En nú þegar aðeins 10 mánuðir era til Álþingiskosninga og Alþýðuflokkurinn hefur farið með stjóm húsnæðismála í þrjú ár vísa helstu trúnaðarmenn félags- málaráðherra því yfir, að almenna húsnæðislánakerfið frá 1986 sé hrunið, ef áfram verði fylgt þeirri stefnu sem núverandi vinstri stjórn hefur markað í þessum efnum. Ríkisstjórn skar niður svo til öll framlög til Byggingasjóðs ríkisins á þessu ári. Slíkt er algjört eins- dæmi. Ríkisframlagið hrekkur að- eins fyrir tíunda hluta rekstrarút- gjalda eins og þau vora ákveðin í fjárlögum. Á hinn bóginn tók ríkisstjórnin engar ákvarðanir um að takmarka skuldbindingar Byggingasjóðsins eða minni umsvif í rekstri. í raun og vera var ákvörðun ríkisstjórnar- innar því um að stefna almenna húsnæðislánakerfínu í gjaldþrot. Framkvæmdastjóri Húsnæðis- stofnunar og formaður húsnæðis- málastjórnar segja í bréfí sínu til ríkisstjómar og þingflokka að verði sömu stefnu fylgt á næsta ári blasi við, að húsnæðismálastjórn verði að tilkynna umsækjendum að ekki verði um frekari lánveitingu á árinu 1991 og algjör óvissa um framhald- ið á árinu 1992. Hér er fast kveðið að orði. Ljóst er samkvæmt þessu að Bygginga- sjóður ríkisins og almenna hús- næðismálakerfið sem stofnað var 1986 í samvinnu ríkisvalds, vinnu- veitenda og verkalýðssamtakanna er hranið að öllu óbreyttu. Þetta er árangurinn af þriggja ára setu Alþýðuflokksins í félagsmálaráðu- neytinu. Árleg skuldasöfnun 1500 milljónir króna Fram kemur í bréfí Húsnæðis- stofnunar að vaxtahalli Bygginga- sjóðsins verði allt að 700 milljónir króna á þessu ári. Þar við bætist rekstrarkostnaður sem áætlað er að nemi tæpum 450 milljónum króna. Þá hefur ekki verið tekið tillit til afskrifta og niðurfærslu vanskila. Beinn hallarekstur Bygginga- sjóðsins á þessu ári er því augljós- lega meira einn milljarður króna. Með sama hætti áætlar Húsnæðis- stofnun að samanlagður vaxtahalli og rekstrarhalli næsta árs verði að minnsta kosti einn og hálfur millj- arður króna. Þessar hrikalegu tölur tala skýru máli. Þær segja í raun og veru allt sem segja þarf um það hvemig ríkisstjórnin hleypur frá verkefnum sínum. Tveir helstu trúnaðarmenn fé- lagsmálaráðherra í húsnæðismálum segja í bréfí sínu að ríkisstjómin sé að koma aftan að þeim umsækj- endum sem ekki vilja fara í hús- bréfakerfið og telja sig eiga rétt á lánum úr almenna kerfínu. Þetta era stór orð, ekki síst þegar haft er í huga, að annar bréfritari er sér- staklega skipaður af núverandi ráð- herra til þess að gegna formennsku í húsnæðismálastjórn og hinn er embættismaður og kunnur forystu- maður í Alþýðuflokknum. Aðvaranir að engai hafðar í tíð núverandi félagsmálaráð- herra hefur almenna húsnæðis- málakerfið þannig verið brotið nið- ur. Síðast var það gert í tíð Svav- ars Gestssonar í félagsmálaráðu- neytinu á árunum 1980 til 1983. Talsmenn Sjálfstæðisflokksins hafa á tveimur undanfömum þing- um margsinnis varað við afleiðing- um þeirrar stefnu sem núverandi ríkisstjórn hefur fylgt í þessum efn- um. Þeir hafa hvað eftir annað kallað eftir upplýsingum um stöðu Byggingasjóðs ríkisins og Bygg- ingasjóðs verkamanna án þess að þeim tilmælum væri sinnt. Félagsmálaráðherra hefur marg- sinnis verið krafínn svara um það hvernig ríkisstjórnin ætli að bregð- ast við. Svörin hafa jafnan verið út í hött en nú liggja hinar köldu stað- reyndir á borðinu frá tveimur helstu trúnaðarmönnum ráðherrans í þess- um_ málaflokki. Ég taldi nauðsynlegt um leið og þingflokki Sjálfstæðismanna hafði verið gerð grein fyrir þessari stöðu að óska eftir því að Ríkisendurskoð- un gerði ítarlega könnun á fjár- hagslegri stöðu og skuldbindingum Byggingasjóðs ríkisins og Bygg- ingasjóðs verkamanna. Þegar svo alvarlegar staðreyndir era dregnar fram í dagsljósið er slík könnun Ríkisendurskoðunar nauðsynleg til Þorsteinn Pálsson „Nauðsynlegt er að fá upplýsingar um það með nákvæmri úttekt hvenær byggingasjóð- irnir verða endanlega gjaldþrota ef halda á áfram svipuðum útlán- um og verið hefiir, vext- ir yrðu óbreyttir og áformað ríkisframlag á þessu ári yrði óbreytt að raungildi á næstu árum.“ þess að varpa enn skýrara ljósi á fjárhagsstöðuna í heild sinni. Nauðsynlegt er að fá upplýsingar um það með nákvæmri úttekt hve- nær byggingasjóðirnir verða endan- lega gjaldþrota ef halda á áfram svipuðum útlánum og verið hefur, vextir yrðu óbreyttir og áformað ríkisframlag á þessu ári yrði óbreytt að raungildi á næstu árum. Kostnaður við rekstur Húsnæðis- stofnunar er gífurlega mikill’ eða um 450 milljónir króna. Nauðsyn- legt er því að gera stjórnsýsluendur- skoðun á rekstri Húsnæðisstofnun- ar með það að markmiði að draga veralega úr kostnaði við reksturinn. Óskað hefur verið eftir því að Ríkis- endurskoðun geri slíka athugun. Eignagleðin lítilsvirt Það hefur verið markviss stefna núverandi ríkisstjórnarflokka að draga úr möguleikum venjulegs launafólks til þess að kaupa eða byggja íbúðir á almennum mark- aði. Stefnan hefur verið sú að koma sem flestum inn undir félagslegt húsnæðiskerfí að skandinavískum hætti. Hér er um að ræða grundvall- arbreytingu í húsnæðismálum. Fram til þessa hefur verið víðtæk samstaða um þá stefnu að greiða fyrir því að sem flestir gætu komið sér þaki yfír höfuðið á almennum húsnæðismarkaði. íslendingar eru sjálfstæðir í eðli sínu. Þeir vilja tryggja öryggi sjálfra sín og fjölskyldna sinna í eigin íbúðarhúsnæði. Fullyrða má að ekkert eitt atriði hafí öðru frem- ur dregið úr stéttarskiptingu og stuðlað að þjóðfélagslegum jöfnuði en einmitt séreignarstefnan í hús- næðismálum. Eignagleðin, sem Ragnar í Smára kallaði svo, hefur verið almenn á íslandi. Hana á nú að lítilsvirða og bijóta niður með því að koma sem flestum undir sam- félagslegt kerfi sem lýtur lögmáli náðar og miskunnar úthlutunar- nefnda í húsnæðismálum. Samkvæmt kenningu vinstri flokkanna mega þeir einir eiga eig- ið húsnæði, sem eru í góðum efn- um. Það eru forréttindi þeirra efn- uðu á tímum vinstri stjórnar. Hún vill að hinn almenni launamaður sé bundinn í kerfinu. Svo virðist sem styttra sé í að sá draumur vinstri flokkanna rætist en marga grunar. Höfundur er forma ður Sjálfstæðisflokksins. Silfurlax í Hraunsfírði: Sleppa þremur milljónum laxaseiða í hafíð í sumar UM ÞREMUR milljónum laxa- seiða verður sleppt úr hafbeitar- stöð Silfurlax í Hraunsfírði á Snæ- fellsnesi í sumar. Þetta er mesti Ijöldi seiða sem sleppt hefur verið úr hafbeitarstöð hérlendis, að sögn Júlíusar B. Kristinssonar framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Ef áætlanir eigenda Silfurlax standast munu á þriðja hundrað þúsund laxa skila sér í stöðina sumarið 1991 og gæti sláturþyngd þeirra orðið hátt á sjöunda hundr- að lesta. Laxinn er verkaður til útflutnings í fískvinnslunni Sæ- borgu á Stykkishólmi. Hefúr starfsemi Silfúrlax glætt atvinnu- líf bæjarins á þeim tima ársins þegar lægð er í sjávarútvegi við Breiðafjörð, að sögn Síurlu Böð- varssonar bæjarstjóra. Viðamiklar tilraunir með kynbæt- ur, klak og eldi fara fram á vegum Silfurlax. Vonast er til að auka megi til muna heimtur úr hafbeitinni og þyngd þess lax sem gengur í stöð- ina. „Silfurlax hefur frá upphafí lagt áherslu á markvisst rannsókna- og þróunarstarf. Við eigum enn mjög marga möguleika ókannaða sem gefa vonir um góðan árangur," seg- ir Júlíus B. Kristinsson. Hlutafélagið Silfurlax var stofnað árið 1984. Hópur sænskra athafna- manna lagði til 49% af upprunalegu hlutafé, sem var 4 milljónir króna, en íslendingar 51%. Eftir síðasta aðalfund er hlutafé orðið 110 millj- ónir króna. Stjórnarformaður fyrir- tækisins er Jón Magnússon forstjóri Hörður Harðarsson stöðvarstjóri í hafbeitarstöð Silfurlax í Hraunsfírði. Johanns Rönnings. Fyrirtækið á og rekur seiðaeldisstöð á Núpum í Ölf- usi og dótturfyrirtæki þess, Silfurg- en, starfar á Kalmanstjörn í Hafna- hreppi. Seiðaeldi í stöðuvatni Hafbeitarstöð Silfurlax í Hrauns- firði fer vart fram hjá neinum veg- faranda á þjóðveginum milli Grunda- íjarðar og Stykkishólms. Þegar ekið er um fjarðarbotninn sér yfír lítið stöðuvátn, sém myndast hefur í hrauninu en í það renna nokkrar ár og lækir. Um aldir streymdi sjór í vatnið á flóðinu, en þegar eldisstöðin var stofnsett var afrennsli vatnsins stíflað. Stíflan er undir brú á veginum og fyrir ofan hana blasa við eldiskvíar Silfurlax. Laxaseiðin era alin veturlangt í stöðuvatninu, þar til tímabært er að venja þau við seltu sjávar og sleppa þeim að því búnu í hafíð. Að ári snýr hluti fískanna til baka og og freistar þess að vitja æskustöðvanna í vatninu. Þá háfa eldismenn fiskinn með lítilli fyrirhöfn úr fjöruborðinu og slátra honum í eldisstöðinni. Að sögn Júlíusar er enginn munur á laxi úr hafbeit og villtum fiski. Þar sem fiskurinn er ekki veiddur í net eða á línu, heldur slátrað eins og eldislaxi, er tryggt að gæði hans séu eins og best verður á kosið. Hafbeitarlax er einnig að jafnaði stærri en jafngamall fiskur sem alinn hefur verið í kvíum eða kerum. Á síðasta ári var sleppt milljón seiða úr eldisstöðinni. Enn er of snemmt að segja til um heimtur en hafbeitarmenn telja þó að margt bendi til þess að þær verði góðar. Það voraði óvenju snemma og skil- yrði í hafínu vora með besta móti í vetur. „Okkar áætlanir standast fyllilega ef við heimtum um 7% af eins árs laxi til baka og 2% af tveggja ára gömlum laxi,“ segir Júlíus. I fyrra voru heimtur hafbeitarstöðva al- mennt með versta móti, eða innan við 2% af ársgömlum laxi. Vonir standa til að hluti þess fisks sem Morgunblaðið/KGA Kvíar Silfurlax í botni Hraunsíjarðar. Hér voru rúmlega 2.100 þúsund seiði alin í kvíuin í vetur, en önnur 840 þúsund í vatninu utan við kvíarnar. Nokkur hluti af seiðunum er örmerktur, til þess að fylgjast megi með árangri mismunandi aðferða við eldið. ekki skilaði sér þá gangi í stöðvarn- ar núna. Betri nýting með kynbótum Ævi laxanna sem Silfurlax heimt- ir úr hafi í sumar hófst á Kalman- stjörn skammt sunnan Hafna á Reykjanesi en þar elur Silfurgen hrygnur og hænga til undaneldis fyrir móðurstöðina. Undir venjuleg- um kringumstæðum hrygnir laxinn síðustu þijá mánuði ársins, en starfs- mönnum fyrirtækisins hefur tekist að fá fiskana til að hrygna fyrr á árinu, allt fram í maí. Eftir að seiðin hafa klakist út í Silfurgeni eru þau flutt í eldisstöðina á Núpum. Með því að breyta hegðun fískanna er nú unnt að nýta eldis- stöðvarnar í Ölfusi og á Snæfells- nesi til fullnustu og hafa afköstin margfaldast frá því sem áður var, að sögn Júlíusar. Stefnt að því að auka þyngd Þótt hafbeit fylgi augljóslega tölu- verð áhætta, benda forráðamenn Silfurlax á þá hagræðingu sem hægt sé að ná í rekstrinum, í í saman- burði við landeldi og kvíaeldi. Þrátt fyrir að Silfurlax hafí á skömmum tíma íjórfaldað afköst í seiðaeldinu, hefur ekki þurft að bæta við starfs- fólki, kaupa meiri orku eða stækka seiðaeldisstöðina. Þá er greitt mun hærra verð fyrir lax úr hafbeit en þann sem alinn er í sjókvíum eða á landi. „Við höfum ekki átt í nokkrum erfiðleikum að selja laxinn á háu verði,“ segir Jú- líus. „Nú setjum við stefnuna á það að ná meðalþyngd laxins upp fyrir 3 kíló, því við það flyst fiskurinn upp í mun betri verðflokk. Með því að auka heimtur um 20% og ná fram þyngri laxi gætum við aukið sölu- verðmæti eins árs lax um 100%.“ Uppskera á flóðinu Þegar blaðamenn heimsóttu eldis- stöðina í Hraunsfirði um miðjan mánuðinn var þar allt með kyrrum Sementshækkun hækkar tilkostnað - segir Halldór Jónsson, forstjóri Steypustövarinnar hf. HALLDOR Jónsson, forstjóri Steypustöðvarinnar hf., segir að 4% hækk- un sements hækki tilkostnað fyrirtækisins og því þurfi það hækkanir á steypu og hafi tilkynnt um þær til Verðlagsráðs, eins og vepja sé. Hann segist ekki hafa neinar skýringar á því að verðlagsráð ákvað hækkanir á steypu eftir 1. júní óheimilar fyrr í vikunni. Ilalldór sagði að auk þess hefði hann gert verðlagsstjóra grein fyrir því að hann teldi að fyrirtækið ætti inni tilkostnaðarhækkanir frá fyrri tíð, fyrir utan sementshækkunina 1. júní og í samræmi við það hafí fyrirtækið tilkynnt um 2,8-4,0% hækkanir á steypu, en í sterkum steypum geti sementið verið allt að 60%. Vegna ákvörðunar verðlagsr- áðs verði fyrirtækið að sækja um hækkun vegna sementshækkunar- innar. „Mér er ofarlega í huga að við lifum ekki lengur í fijálsu hag- kerfi. Við erum að verða síðasta kommúnistaríkið í Evrópu og búum við miðstýringu allra hluta, á sama tíma og alls staðar er verið að auka frelsi í þeim löndum sem við miðum okkur við í Vestur-Evrópu. Ef þessi opinbera forsjárhyggja á að halda, áfram á þá ekki að tryggja afkomu steypustöðva af opinberra hálfu. Ef verðlagsráð ætlar að ákveða hvað steypan á að kosta, þá hlýtur það að ákveða það einnig að við fáum að lifa á þessu, því ekki má þvinga neinn í taprekstur eða að afhenda eigur sínar samkvæmt stjórnarskránni," sagí Halldór. „Frá mínum bæjardyram séð er þetta bara endalaus vitleysa og verður það áfram meðan þessi stjórn situr. Þetta er tröllastjórn sem er að reyna að draga okkur aftur í aldir,“ sagði hann ennfrem- ur. Enn vantar húsgögn handa Víetnömunum SÖFNUN Rauða kross íslands til hjálpar 30 vietnömskum fíóttamönn- um, sem von er á til landsins 28. júní, gengur vel. Þó vantar nokkuð á að tekist hafi að safna öllu sem til þarf. „Það hefur töluvert borist af húsgögnum, húsmunum, búsáhöld- um og fötum en okkur vantar enn- meira,“ sagði Hannes Hauksson, framkvæmdastjóri Rauða krossins, í samtali við Morgunblaðið í vik- unni. Hannes sagði að sérstaklega vantaði húsgögn og beindi því til fólks að ef það ætti gömul rúm, kjöram, enda aðeins nokkrir tugir laxa gengnir í stöðina það sem af er sumri. Hörður Harðarson stöðvar- stjóri kvaðst þó ekki kvíða sumrinu. Benti tíðarfar ekki til annars en að áætlanir um heimtur í sumar myndu standast. Að vetrarlagi vinna aðeins 2-3 starfsmenn við stöðina, en yfír há- bjargræðistímann að sumrinu eru starfsmenn um 15 talsins. Kostnað- ur við reksturinn yfir vetrarmánuð- ina er í lágmarki, seiðin þurfa lítið fóður enda stendur vöxturinn í stað þar til hlýna tekur í vatninu um vorið. Byijað er að sleppa úr stöð- inni um miðjan júní og um líkt leyti byija fyrstu laxarnir að skila sér af hafi. Á flóðinu kemur laxinn inn að stöðinni. Rennur fiskurinn á lyktina af ferskvatninu sem seitlar úr lóninu fyrir innan stífluna. Lagt hefur ver- ið net á botninn utan við hana og þegar tími er til kominn þarf ekki annað en að draga upp netið til að veiða fiskinn. Laxinn er blóðgaður á staðnum, en að því búnu sendur til Stykkishólms í frekari vinnslu. í vetur var gerð sú tilraun að sleppa 840.000 seiðum í vatnið, eða rúmum fjórðungi þeirra sem alin voru. Þau hafa fengið æti að vild við kvíarnar í stöðinni, en starfs- rnenn sáu til þess að vatnið héldist íslaust á breiðu belti. Gefi þessi hátt- ur góða raun telur Hörður að ala megi ómældan fjölda seiða í vatninu. Ekki er vitað um slík eldislón við sjó hér á landi, né að Atlantshafslax sé alinn á þennan hátt á Norðurlönd- unum eða í Skotlandi. Engin spjöll af hafbeit Jafnframt því að taka við löxum úr hafbeit unnu starfsmenn að því að sleppa fyrstu seiðunum úr stöð- inni. Seiðin þurfa að laga sig að saltvatni og eru þau því í fyrstu lotu flutt í kví fyrir utan stífluna, á grunnsævi, þar sem sjórinn er bland- aður ferskvatni í jöfnum hlutföllum. Eftir nokkurn tíma er kvíin dregin sófa eða borðstofuborð þá væri það vel þegið. Tekið verður á móti hlutum söfununina að Suðurlandsbraut 32 milli klukkan 17.00 og 20.00. Einn- ig er hægt að hringja í Rauða kross- in og biðja um að hlutimir verði sóttir. Söfnunin stendur til 26. júní. utar í fjörðinn og seiðunum gefíð frelsi. Aðeins eitt af hveijum tíu seiðum snýr aftur að jafnaði og vaknar því sú spurning hvað verði um afgang- inn af hópnum. Leita þau jafnvel í laxveiðiár og blandast náttúralegum stofnum? Hörður segir að athuganir sýni að stór hluti þeirra seiða sem týnist drepist strax á fyrstu vikut#” í hafinu, séu étin af fuglum eða sel. Júlís bendir á að talningar hafi sýnt að fyrir hveija hundrað fiska sem skila sér í hafbeitarstöðvarnar villist að jafnaði minna en einn af leið. Flestir þeirra sem villist komi upp í annarri hafbeitarstöð eða í netaveiði. Aðeins brot af villuráfandi físki gangi upp í laxveiðiámar. Sífellt sé unnið að rannsóknum sem miði að því að koma í veg fyrir að þeir fískar sem sleppt er úr hafbeit- arstöðvunum hrygni í árnar. Hafbeitarmenn telja að íslending- ar eigi enn fjölmarga möguleika ókannaða á þessu sviði. Raunar geti landið skapað sér sérstöðu, því ban^_ við laxveiðum í sjó sé forsenda þess að unnt sé að stunda hafbeit. Á þessu sviði geti grannar okkar í Norður-Evrópu ekki skákað forskoti íslendinga. „Á íslandi eru mjög góð skilyrði til þess að ala seiði. Stofnar era góðir, nægt ferskvatn og jarðhiti sem skiptir sköpum um rekstrar- kostnaðinn. Ég tel að við eigum ýmsa möguleika ókannaða á því sviði. Kynbætur gætu skilað geysi- miklum árangri á skömmum tíma,“ segir Júlíus. „Það hefur verið talað um fisk^. eldið á mjög neikvæðan hátt að und- anförnu, en það ber einnig að geta þess sem jákvætt er. Fiskeldi er áhættusamt og oft stendur það ekki undir sér nema framleitt sé í mjög stórurn mæli. Ég held því ekki fram að fiskeldi sé nein gullnáma, en það hins vegar Ijóst að við eigum enn eftir að nýta okkur mörg tækifæirí á þessu sviði,“ segir Júlíus B. Krist- insson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.