Morgunblaðið - 23.06.1990, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1990
17
Philips sérum lýsinguna
/7>V
I
Opinber s (i dnircjsaöili HM 1990
UPPLÝSINGAR: SiMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
verru meoi
Blönduós:
Leikvöllur hann-
aður af börnum
Blönduósi.
NÝLEGA hefur verið gerður leikvöllur við
grunnskólann á Biönduósi, sem nemendur 5.
og 3. bekkjar hafa að mestu hannað sjálf.
Hjördís Bérgsdóttir myndmenntakennari á
Blönduósi sagði að leitað hefði verið eftir hug-
myndum nemenda í 3. og 5; bekk skólans hvern-
ig þau vildu hafa leikvöll. Áhersla var lögð á að
fá allt efni til leikvallargerðar heima fyrir og að
leikvöllur hentaði öllum aldurshópum. Verkefni
þetta reyndist börnunum auðvelt úrlausnar og
var megin niðurstaðan sú að leikvöllurinn þyrfti
að fullnægja hreyfiþörf barnanna. Þó fannst sum-
um yngri barnanna erfitt að koma þörfum nem-
enda níunda bekkjar inn í leikvallargerðina og
kom m.a. fram sú tillaga til úrlausnar að koma
fyrir einum bekk á leikvellinum og merkja hann
með tölunni níu. j6n gjg-
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Krakkarnir á Blönduósi eru ánægðir með nýja leikvöllin sem þeir sjálfir hafa lagt
grunninn að. Þeir lögðu ríka áherslu á að hreyfiþörfin yrði virkjuð sem best og má
glögglega sjá á myndinni að það hefur tekist.
Hella:
Jón Þorgilsson
lætur af störfiim
sveitarstjóra
JÓN Þorgilsson, sveitarstjóri á
Hellu (Rangárvallahrepps)
síðastliðin 12 ár og oddviti næstu
átta ár þar á undan, hefúr látið
af störfúm sveitarsljóra. Hann
sagði af sér því starfi á síðasta
fundi fráfarandi hreppsnefhdar.
Auglýst hefúr verið eftir nýjum
sveitarstjóra og er umsóknar-
frestur til 1. júlí næstkomandi.
Jón Gauti Jónsson hefur verið
fenginn til að annast rekstur
hreppsskrifstofunnar um sinn.
Jón Þorgilsson vildi ekki tjá sig
um hvers vegna hann hætti, en
sagði þó að líklega teldi bæði hann
sjálfur og aðrir að hann hefði verið
nógu lengi í þessu starfi. „Ég var
búinn að vera sveitarstjóri í 12 ár
og þar á undan átta ár sem oddviti
og þar með í rauninni sveitarstjóri
líka, þannig að samanlagt var ég
nú búinn að vera 20 ár í þessu,“
sagði hann.
I hreppsnefndarkosningunum í
Rangárvallahreppi nú fékk E-listi
tvo menn, K-listi einn og N-listi
tvo. E-listinn hafði meirihluta í
síðustu hreppsnefnd, fjóra hrepps-
nefndarmenn af fimm. N-listinn og
K-listinn mynduðu meirihluta um
kjör oddvita nú og í nefndir.
Hlutkesti við val í neftidir borgarstjórnar:
Sjálfstæðismenn höfðu betur 13
sinnum en minnihlutinn 7 sinnum
frestað, áður en til þess yrði tekin
afstaða. Var á það fallist og verð-
ur því kjörið í ráðin á næsta borg-
arstjórnarfundi.
KOSNINGAR í nefndir og ráð borgarstjórnar Reykjavíkur fóru
fram á borgarsljórnarfundi síðastliðinn fimmtudag. Flestar nefhd-
irnar eru fimm manna og þurfti að viðhafa hlutkesti við kosning-
ar til þeirra til að skera úr um það hvort fjórði maður Sjálfstæðis-
flokks eða annar maður minnihlutans tæki þar sæti. Alls unnu
sjálfstæðismenn hlutkestið 13 sinnum en minnihlutinn 7 sinnum.
Minnihlutaflokkarnir buðu fram sameiginlega lista í allar neftidir
samkvæmt samkomulagi sem gert var fyrir skömmu.
heyrðu. Borgarstjóri kom með þá
tillögu að kosið yrði í ráðin hvort
í sínu lagi, en minnihlutinn óskaði
eftir að afgreiðslu málsins yrði
Fyrst var efnt til hlutkestis við
val í borgarráð. Þar höfðu sjálf-
stæðismenn betur og fengu fjóra
menn, Magnús L. Sveinsson,
Katrínu Fjeldsted, Vilhjálm Þ. Vil-
hjálmsson og Áma Sigfússon, en
minnihlutinn aðeins einn, Siguijón
Pétursson, Alþýðubandalagi.
Kjör í aðrar nefndir fór sem hér
segir:
I hafnarstjórn fengu sjálfstæð-
ismenn fjóra menn kjörna en
minnihlutinn einn. Borgarstjórn
kaus Guðmund Hallvarðsson
formann.
í byggingarnefnd fékk Sjálf-
stæðisflokkurinn fjóra menn en
minnihlutinn einn. Nefndin kýs sér
sjálf formann.
Kosið var í fjórar stjórnir heilsu-
gæsluumdæma og fengu sjálf-
stæðismenn tvo menn í hverja en
minnihlutinn einn.
í heilbrigðisnefnd fengu sjálf-
stæðismenn fjóra fulltrúa en
minnihlutinn einn. Nefndin kýs sér
sjálf formann.
í stjórn sjúkrastofnana
Reykjavíkur fengu sjálfstæðis-
menn tvo fulltrúa en minnihlutinn
einn.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk þijá
fulltrúa í félagsmálaráð en minni-
hlutinn tvo. Formaður var kjörinn
Guðrún Zoéga.
í almannavarnanefnd
Reykjavíkur fengu sjálfstæðis-
menn tvo fulltrúa kjörna en minni-
hlutinn engan. Valið var með hlut-
kesti milli annars fulltrúa sjálf-
stæðismanna og fulltrúa minni-
hlutans og báru sjálfstæðismenn
sigur úr býtum.
í barnaverndarnefnd fékk Sjálf-
stæðisflokkurinn fimm fulltrúa en
minnihlutinn tvo. Nefndin kýs sér
sjálf formann.
í umhverfismálaráð fékk Sjálf-
stæðisflokkurinn fjóra menn
kjörna en minnihlutinn einn. For-
maður var kjörinn Júlíus Hafstein.
í menningarmálanefnd fékk
Sjálfstæðisflokkurinn fjóra menn
kjörna en minnihlutinn einn. For-
maður var kjörinn Hulda Valtýs-
dóttir.
í húsnæðisnefnd fengu sjálf-
stæðismenn þijá fulltrúa en minni-
hlutinn einn. Nefndin velur sér
sjálf formann.
í stjórn Sorpeyðingar höfuð-
borgarsvæðisins bs. fengu sjálf-
stæðismenn þijá menn kjörna en
minnihlutinn tvo. Stjórnin kýs sér
sjálf formann.
í stjórn Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar fékk Sjálf-
stæðisflokkurinn þijá menn kjörna
en minnihlutinn tvo. Formaður var
kjörinn Magnús L. Sveinsson.
í atvinnumálanefnd fengu sjálf-
stæðismenn þijá menn kjörna en
minnihlutinn tvo. Formaður var
kjörinn Jóna Gróa Sigurðardóttir.
í stjórn Strætisvagna
Reykjavíkur fékk Sjálfstæðis-
flokkurinn þijá menn kjörna en
minnihlutinn tvo. Formaður var
kjörinn Sveinn Andri Sveinsson.
í stjórn veitustofnana fékk
Sjálfstæðisflokkurinn fjóra menn
kjörna en minnihlutinn einn. For-
maður var kjörinn Páll Gíslason.
í skipulagsnefnd fengu sjálf-
stæðismenn fjóra menn kjörna en
minnihlutinn einn. Formaður var
kjörinn Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son.
í umferðarnefnd fengu sjálf-
stæðismenn fjóra menn kjörna en
minnihlutinn einn. Formaður var
kjörinn Haraldur Blöndal.
í íþrótta- og tómstundaráð
fengu sjálfstæðismenn fjóra menn
kjörna en minnihlutinn einn. For-
maður var kjörinn Júlíus Hafstein.
í stjórn Dagvista barna fékk
Sjálfstæðisflokkurinn þijá menn
kjörna en minnihlutinn tvo. For-
maður var kjörinn Anna K. Jóns-
dóttir.
í byggingarnefnd aldraðra fékk
Sjálfstæðisflokkurinn fjóra menn
kjörna en minnihlutinn einn. For-
maður var kjörinn Páll Gíslason.
í ferðamálanefnd fengu sjálf-
stæðismenn þijá menn kjörna en
minnihlutinn tvo. Formaður var
kjörinn Júlíus Hafstein.
Kosningu í skólamálaráð og
fræðsluráð var frestað að ósk
minnihlutans. Þegar kom að þeim
kosningum kynntu fulltrúar
minnihlutans bókun, þar sem fram
kom að þeir litu svo á, að aðeins
væri verið að kjósa í fræðsluráð,
þar sem það ætti að sjá um öll
þau mál, sem undir skólamálaráð