Morgunblaðið - 23.06.1990, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JUNI 1990
Co-J.3
að hvetja hann til dáða.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all right* raservod
® 1990 Lo* Angeles Times Syndicate
Með
morgxmkaffinu
Vann ég þá ekki milljónina
eflir allt, mismælti þulur-
inn sig?
HÖGNI HREKKVÍSI
Gjaldi til Læknastöðvarinnar
ætlað að standa undir kostnaði
Til Velvakanda.
Þann 20. júní birtist í dálki þínum
bréf varðandi gjaldtöku fyrir læknis-
þjónustu á Læknastöðinni Landa-
koti. Vii ég leyfa mér að biðja um
birtingu eftirfarandi skýringa.
Rekstur Læknastöðvarinnar
Landakoti er á engan hátt tengdur
rekstri Landakotsspítala, þótt hann
leigi Læknastöðinni húsnæði. Nafn
stöðvarinnar tengist staðsetningu
hennar en ekki sjúkrahúsinu. Mót-
taka sú sem hér um ræðir er opin
þ.e. fólk getur mætt fyrirvaralaust
án tímapöntunar. Fjöldi því mjög
breytilegur.
Þessi tími er ætlaður fólki með
langvinna gigtsjúkdóma sem reglu-
lega þarf að fá stungulyf í sprautum
eða önnur lyf, þar sem fylgjast þarf
náið með ástandi viðkomanda með
blóð og þvagsýnum. Farið er yfir
sjúkraskrár allar samdægurs, rann-
sóknaniðurstöður færðar inn og mat
lagt á þær. Haft samband við sjúkl-
inga þurfi einhverju að breyta og
lyfseðlar gefnir eftir þörfum. Auk
þessa er farið yfir allar niðurstöður
jafnharðan og þær berast og gripið
inn í sé þess þörf.
Þessi hópur fólks hefur jafnframt
greiðan aðgang að undirrituðum alla
daga jafnt.
Blóðtökur ' annast meinatæknir,
hjúkrunarfræðingur eða sjúkraliði
sér um annað.
Komi fyrir að undirritaður geti
ekki mætt í hluta eða allan móttöku-
tímann, hefur sá háttur verið á, að
sjúkraliði og meinatæknir hafa tekið
á móti sjúklingum, frekar en gera
þá afturreka. Þetta breytir engu um
eftirlit það, sem málið snýst um og
að framan greinir. Það er fram-
kvæmt samdægurs.
Misskilningur er að gjald það, sem
um ræðir sé fyrir blóðtöku. Gjaldinu
er ætlað að standa undir kostnaði
við framangreinda þjónustu. Upp-
hæðin, kr. 900, er ákveðin í reglu-
gerð Heilbrigðismálaráðuneytisins
með hliðsjón af samningi LR við TR.
Þessi samningur er forsenda þessar-
ar þjónustu og án hans væri henni
sjálfhætt.
Halldór Steinsen, læknir.
Atvinnulausir piltar
vilja ekki sveitastörf
Til Velvakanda.
Nú er sífellt verið að skrifa um
allan þann fjölda námsmanna sem
ekki fær vinnu í sumar, maður sér
þetta blöðunum, í sjónvarpinu og
heyrir um þetta í útvarpinu. En nú
ber svo við að mig vantar pilt til
sveitastarfa en fæ engan. Þegar ég
hringdi í Atvinnumiðlun námsmanna
var mér sagt að enginn piltur feng-
ist í þetta starf, stúlku gæti ég feng-
ið en engan pilt. Svo virðist sem pilt-
arnir vilji frekar vera atvinnulausir
í bænum en að taka erfiðisvinnu sem
fylgir sveitastörfum. Veit ég um
fleiri sem hafa sömu sögu að segja.
Sveitakona
Atviká
Hornafjarð-
arflugvelli
„Flugmaður“ gerði í dálkum Vel-
vakanda athugasemdir við frétt í
Morgunblaðinu, sem höfð var eftir
loftferðaeftirlitinu, um atvik það á
Hornafjarðarflugvelli nýverið þegar
flugvél frá Flugfélagi Austurlands,
sem var að lenda, nauðhemlaði á
flugbrautinni á Homafjarðarflug-
velli þegar flugmaðurinn sá flugvél
Landgræðslunnar aka inn á flug-
brautina.
Hér hefur því miður orðið mis-
skilningur milli blaðamanns Morg-
unblaðsins og loftferðaeftirlitsins,
sem Morgunblaðið er beðið velvirð-
ingar á, því málinu er alls ekki lok-
ið heldur er unnið að rannsókn þess
og verður með það farið samkvæmt
starfsreglum eins og önnur mál sem
berast loftferðaeftirlitinu.
Loftferðaeftirlitið
Þessir hringdu .. .
^ I k G
Félag fráskilinna
Vegna fyrirspumar um Félag
fráskilinna skal upplýst að félagið
heldur fundi hálfsmánaðarlega í
Templarahöllinni. Næsti fundur
verður föstudaginn 6. júlí kl. 20.30.
Nýjum félögum er bent á að mæta
kl. 20.00 og geta þá fengið allar
þær upplýsingar um félagið sem
þeir óska.
Demantshringur
Hvítagullshringur með demanti
tapaðist, líklega fyrir utan Borgar-
bakarí á Grensásveginum sl.
sunnudag. Finnandi hringi í Sillíu
í síma 681705.
Týndur köttur
Lítill 8 mánaða köttur sem er
svartur með hvítar loppur er týnd-
ur. Þeir sem hafa séð til kattarins
sem býr í Þingholtsstrætinu eru
vinsamlega beðnir að hringja í síma
623087. Kötturinn er með gráa
hálsól og rautt spjald á ólinni.
Ekki komið nóg af fótbolta
Guðrún hringdi:
„Það skrifaði einhver Alex í
Velvakanda að nóg væri komið af
fótbolta. Ég er honum algerlega
ósammála. Nú er ég komin hátt á
áttræðisaldur og hef reglulega
gaman af fótboltanum. Það besta
sem er sýnt í sjónvarpinu er fótbolt-
inn, það væri nær að minnka eitt-
hvað af öllum þessum glæpamynd-
um sem sýndar er. Þar er ég viss
um að margir eru mér sammála."
Svart flauelsbelti
Á 17. júní fannst á Amtmannsstíg
svart flauelsbelti, líklega af litlum
upphlut. Eigandi getur hringt í
síma 656389 eða 29511 (23).
Kvenúr tapaðist
Kvenúr úr stáli tapaðist á föstu-
degi fyrir viku á leiðinni milli Foss-
vogs og Skeifunnar. Finnandi vin-
samlega hringi í síma 32970.
Breyta þarf geymslu-
fyrirkomulagi
Kona hringdi:
„Mig langar til að segja frá at-
viki sem gerðist í Bláa lóninu fyrir
stuttu. Þaðan var stolið þrem skó-
pörum og er þar enginn sem ber
ábyrgð. Dóttir mín var ein af þeim
sem missti þarna fleiri þúsund
króna nýlega leðurskó og er . Svo
virðist sem fólk iðki það að koma
í lélegum sandölum og leiti sér að
almennilegum skóm sem það síðan
tekur traustataki. Þetta er í annað
skipti sem skóm er stolið af dóttur
minni, í fyrra skipti var það í Laug-
ardalslauginni. Forráðamenn sund-
staða og annarra opinberra staða
verða að breyta á einhvern hátt
geymslufyrirkomulaginu. Annað
hvort að hafa læstar hirslur eða
gæslu.“
Víkveiji skrifar
Þar sem Víkveijinn á föstudag
var að gagnrýna flugmenn
fyrir að tala óskýrt í hljóðnemann
þegar veittar eru upplýsingar um
flugið þykir Víkveijanum í dag
ástæða til að gagnrýna þessi um-
mæli Víkveijans í gær því að flug-
menn og flugstjórar eru jafn ólíkir
og blaðamenn og engin regla til um
þá almennt, hvorki hvernig þeir
tala í hljóðnema eða annað í fari
þeirra. Sumir blaðamenn eru skrif-
andi, aðrir ekki. Sumir eru talandi,
aðrir ekki. Sumir flugmenn tala
skýrt, aðrir ekki. Það er allt og
sumt. Það er aftur á móti ágætt
að minna flugmenn á að tala
íslenzku þegar þeir ávarpa íslenska
farþega en aðrar tungur þegar þeir
snúa sér til annarra farþega.
Ástæðan til þess að Víkveijinn í
dag lætur þessa getið er þó ekki
sú sem að framan greinir heldur
vill hann vekja athygli á því að flest-
um farþegum er kærkomið þegar
flugmenn í farþegaflugi segja frá
fluginu, bæði róar það farþega,
skemmtir þeim og veitir þeim upp-
lýsingar sem flestir hafa gaman af.
Það vilja allir vita hvað ber fyrir
augu á jörðu niðri ef útsýni er,
hvernig fluginu er háttað og annað
því um líkt. Mörgum leiðist á löngu
flugi og hlakka mest til að komast
niður á jörðina aftur. En ef hægt
er að hafa eitthvað fyrir stafni, til
að mynda hugsa um það sem fyrir
ber, og dreifa huganum með því
að hlusta á skýringar áhafnar þá
er það góð dægrastytting. Að sjálf-
sögðu er æskilegt að talað sé eins
skýrt í hljónemann og unnt er, en
ef Víkveijinn í dag mætti koma
með uppástungu gengi hún þvert á
niðurlag Víkveijans í gær, þegar
hann segir „Þetta hefur það í för
nieð sér að flugfarþeginn biður þess
með sjálfum sér að maðurinn hætti
þessu tafsi og farþegarnir fái frið
til að halda áfram að lesa eða sofa“.
Það ætti þvert á móti að hvetja flug-
menn til að skýra farþegum meir
en gert er frá fluginu og því sem
fyrir augu ber. Það róar þá sem
eru flughræddir og skemmtir hinum
sem hafa ekkert að gera hvort eð
er. Víkveijinn í dag segir því við
flugmenn, takið oftar til máls, seg-
ið farþegum frá því sem fyrir augu
ber en umfram allt róið þá sem
hræddir eru ef vélin hristist mikið
og segið þeim eins og er að engin
hætta sé á ferðum, þetta sé einung-
is eins og bíil lendi á holóttum vegi!
Þá munu fleiri fljúga og fleirum
mun líða vel í þreytandi flugferðum.
En það er ekki endilega nauðsyn-
legt að taka það fram, þótt hjólin
fari ekki niður.